Tíminn - 29.09.1971, Blaðsíða 16
I
Miðvikudagur 29. sept. 1971
Hasshundur
væntanlegur
í október
EB-Reykjavík, þriðjudag.
Þá líður óðum að því, að
hinn margumtalaði hasshund-
ur komi hingað til lands og
ljóstri upp um þá, sem reyna
að smygla kannabisefnum inn
í landið.
Samkvæmt upplýsingum Jóns
Thors, deildarstjóra í dóms-
málaráðuneytinu, var Þor-
steinn Steingrímsson, lögreglu-
maður í Reykjavík, sendur í
byrjun þessa mánaðar í þjálf-
unarstöð á Bretlandi, þar sem
hann er nú í þjálfun með hass-
hundinn. Tekur þessi þjálfun
6—8 vikur, og er því reiknað
með, að Þorsteinn komi aftur
til landsins með hundinn seint
í næsta mánuði.
Kosið um sameigin-
lega bæjarstjórn á
ísafirði og í Eyrar-
hreppi
OÓ-Reykjavík, þriðjudag.
Á sunnudaginn, 3. okt. verða
sveitarstjórnarkosningar á fsa-
firði og í Eyrarhrcppi, hinar
fyrstu eftir sameiningu sveitar-
félaganna. Alls eru 1780 á kjör-
skrá. 1560 á ísafirði og 220
í Eyrarhreppi, sem var. Fimm
listar eru boðnir fram, cða
jafnmargir og þingflokkarnir
eru. Kjörnir verða sjö fulltrú-
ar, en það er sama tala og
bæjarfulltrúar á fsafirði hafa
verið til þessa.
í gærkvöldi var haldinn fram
boðsfundur á ísafirði, þar sem
fulltrúar allfa flokka leiddu
saman hesta sína. Var fundur-
inn mjög fjölmennur, en hon-
um var útvarpað fyrir vestan.
Var funduhinn hinn fjörugasti,
en þar töluðu fimm manns frá
Framsóknarflokknum, þrír frá
Alþýðubandalagi, fjórir frá Al-
þýðuflokki, fjórir frá Sjálfstæð
isflokki og þrír frá Samtökum
frjálslyndra og vinstri manna.
Á lista Framsóknarflokksins
eru fimm efstu menn þessir:
Theodór Norðkvist, Barði Ólafs
son, Guðmundur Sveinsson,
Eiríkur Sigurðson og Guðrún
Eyþórsdóttir.
Hassreykingar á
Keflavíkurflugvelli
OÓ-Reykjavík, þriðjudag.
Lögreglunni á Keflavíkur-
f'ugvelli var fyrir nokkru til-
kynnt um stúlku, sem var held
ur illa á sig komin og tæpast
með meðvitund. Við læknis-
skoðun kom í ljós, að stúlkan
var undir áhrifum eiturlyfja,
og einnig hafði hún drukkið
áfengi.
Við rannsókn málsins kom í
ljós að stúlkan hafði verið í
samkvæmi með tveim varnar-
iiðsmönnum og þar var reykt
hass. Fannst ofurlítið magn af
þvi í fórum mannanna. Er nú
málinu lokið með dómssátt.
Var öðrum mannanna gert að
greiða 8 þús. kr. en hinum eitt
>' 'að minna. Ekki kom fram að
menn þessir hefðu selt hass.
Nú er tími hrossarétta á þeim stöðum á landinu, þar sem hrossum er smalað af fialli. Mestu hrossaréttirnar eru í Húnavatnssýslum og Skagafirði,
og á laugardaginn var réttað í Laufskálarétt í Hjaltadal. Þar var baeði margt um hross og menn, og hér á myndinni sjáum við þegar hrossin voru
rekin í réttina norður í 'Hjaltadal. (Tiimamynd Stefán Pedersen)
BYRJAÐ A UPPSETNINGU
Á VÉLUM BLAÐAPRENTS
Ráðgert er að hægt verði að hef ja prentun
um miðjan nóvember.
KJ—Reykjavílt, þriðjudag.
Fjögur dagblaðanna í Reykjavík, Tíminn, Þjóðvilljinn, Alþýðublaðið
og Vísir stofnuðu fyrir nokkru lilutafélagið Blaðaprent. í því
skyni að festa sameiginlega kaup á offsetprentvél til prentunar á
öllum daghlöðunum fjórUm. Vélin er nú komin til landsins, og hefst
uppsetning hennar á rnorgun.
Blaðaprent h.f. hefur fest kaup
á húsnæði fyrir starfsemi sína að
Síðumúla 14. Fær fyrirtækið þar
til umráða alla 1. hæð hússins.
í bakhúsinu verður prentvélin og
það sem henni tilheyrir, en í
þeim hluta hússins, sem snýr að
götunni, verða setjarasalir og þar
íer umbrot einnig fraim. Verða
setjarasalirnir tveir og aðskildir,
þannig að hægt verður að vinna
við tvö blöð í einu, og búa þau
til prentunar.
Prentvélin er bandarísk ,rota-
tion“ offsetprenlvél, og kostaði
hún ásamt setjaravélum og öðrum
nauðsynlegum útbúnaði u;m 23
milljónir króna. í prentsmiðju
Blaðaprents verður ekkert blý not
að, heldur verður uim að ræða
svokallaða filimusetningu. ■
Byrjað verður að koma vélun ■
um fyrir næstu daga, og eru er- a
lendir tæknimenn koimnir hingað
til lands í því skyni. Er ráðgert
að hægt verði að hefja prentun ■
hjá Blaðaprenti um miðjan nóvem ■
ber, en að undanförnu hefur ver a
ið, og er reyndar enn, unnið að _
því að innrétta húsnæðið við Síðu
múla fyrir þessa starfsemi.
Jafnframt því sem blöðin fjögur ■
verða prentuð þama, hefur dag- ■
blaðið Vísir fest kaup á efri hæð _
hússins, og mun flytja þangað ■
með ritstjórnarskrifstofur sínar, ■
um leið og offsetprentvélin verð a
ur tekin í notkun. _
Hver drap
tryppið ?
OÓ—Rcykjavík, þriðjudag.
Aðfaranótt sunnudags s.
ekið á tryppi á veginum á mótk
vfð Hvamm í Holtahreppi S
Skagafirði. Sá, sem ók bílnuml.
kom heim að Hvammi og vakti
bóndann þar upp og bað liann
að aflífa tryppið. Fór bóndi
með manninum, en þegar þeir
komn að slysstaðnum var trypp
ið dautt.
Bíllinn var talsvert skemmd
ur eftir áreksturinn. Var hann
dældaður að framan og fram
rúðan brotin. Við tryppið var
ekki annað að gera en drösla
því út fyrir vegarkantinn. Bíl-
stjórinn sagði bónda að hann
væri á leið suður, en kvaðst
mundu koma við á Sauðárkróki
og tilkynna lögregluimi um
atburðinn, en tryppið var i
eigu annars bónda í Skagafirði.
Skemmst er frá að segja, að
bílstjórinn kom aldrei til yfir
valda á Sauðárkróki en bónd
inn í Hvammi þekkti ekki mann
inn.
Er viðkomandi bílstjóri beð
inn að hafa samband við um-
ferðardeild rannsóknarlögregl-
unnar í Reykjavík eða lögregl
una á Sauðárkróki sem fyrst.
Allt logaði í slags-
málum á Arnarstapa
OÓ—Reykjavík, þriðjudag.
Það skcði svo sem ekkert
markvert á þessum dansleik
öðrum dansleikjum fremur, sem
haldnir hafa vcrið á Snæfells
nesi í sumar, sagði fulltrúi
sýslumanns í Stykkishólmi, er
hann var inntur frétta af dans
leik sem lialdinn var á Arnar
stapa s. I. laugardagskvöld, þar
sem lögregluþjónar voru barð
ir og föt þeirra rifin utan af
þcim og rúða brotin í nýjum
lögreglubíl. Þar að auki voru
margar rúður brotnar í sam-
komuhúsinu.
Fimm lögreglumenn voru á
staðnum og voru þeir illa út
leiknir eftir að liafa gert sitf
bezta til að halda uppi regiv
Fraíiihíild á 14.
I