Tíminn - 01.10.1971, Page 6

Tíminn - 01.10.1971, Page 6
6 TIMINN FÖSTUDAGUR L október 1971 „Gaman er a<5 börnunum, þeg- ar þau fara að sjá.“ Svo er sagt, að kerling nokkur hafi sagt fyr- ir löngu. Mér hafa stund- um dottið þessi ummæli í hug, síðan rílcisstj órnaskiptin urðu. Það hefur oft verið gaman að stjómarandstöðublöðunum, og þó einkum Morgunblaðinu, síð- «n Ólafur Jóhannesson myndaði ríkisstjórn sína. Samkvæmt lýs- ingum Morgunblaðsins á allt að vera ómögulegt hjá ríkisstjórn hans. Þar eT allt gert annað hvort of eða van og er þar eng-, inn millivegur. Þar er ekkert gert rétt eða eins og það ætti að vera. Samkvæmt kenningum Morgunblaðsins er Sjfcftstæðis- flokkurinn, með Alþýðuflokkinn sér til aðstoðar, sá eini, sem hæfur er til ríkisstjómarstarfa hér á landi. Sjálfstæðismenn vita allt, þeir gera allt rétt, Þeir hafa alltaf gert allt rétt og þeir munu alltaf gera allt rétt. Þetta er tónninn hjá Morgunblaðinu, og hjá Alþýðublaðinu er hann svipaður, þótt þar sé ekki allt- af jafnsterkt að orði kveðið og eru það skiljanlegar ástæður. Morgunblaðið hefur vemlega sctt niður við fráfall Bjama heitins Benediktssonar og brott- för Sigurðar Bjarnasonar. Báð- ir voru þeir lífsreyndir og vel menntaðir hæfileikamenn. Bezt menntaði maðurinn, sem þar ræðjur ríkjum nú, er án efa Matthías Johannessen. Hann er skáld og fagurkeri, en mun hafa mjög takm. áhuga á póli- tík. Hinn ritstj., Eyjólfur Kon- ráð Jónsson, hefur ekki ennþá unnið sér neitt sérstakt álit í ritstjórastarfi. Hvernig á því stendur, skal ósagt látið. En maður kemur í manns stað og nú er kominn þriðji ritstjórinn. Hann er kallaður aðstoðarrit- stjóri. Það mun eiga að skiljast svo, að hann eigi að stjóraast af öðram. Hann er mikill á lofti í skrifum sínum og virðist svo, sem hann eigi heiminn og sé alvitur. Já, hann geltir stundum feiknin öll og virðist ætla að snúa öllu við á blaðinu og það svo, að maður getur ekki annað en reiknar með að hann ætli sér ekki til lengdar að vera að- eins til aðstoðar. „ólafía" er núverandi rlkis- stjómv kölluð af stjórnarand- stöðublöðum. Það nafn voru þau búin að gefa henni áður en taýn var mótuð og fullmynduð. Þetta er aðeins eitt dæmi um rithátt og virðingarleysi stjóra- arandstöðunnar fyrir núverandi rfkisstjórn. Ég læt þetta eina dæmi nægja um rithátt stjóm- arandstöðublaðanna, en þar er vissulega af nógu að taka. En af hverju varf stjóra Jóhanns Hafsteins ekki kölluð Jóhafma eða bara Jóka, sem er nafn á gömlum draug? Ekki var það svo fráleitt. Var það ekki ein- mitt í stjórnartíð hans, sem sundrung mikil upphófst manna á meðal í stóru byggðarlagi? Og það var nú einmitt aðalverk drauga í gamla daga, að því er sagt er, að gera mönnum glett- ur og jafnvel skaða, svo og að sundra rtnáttu og samstarfi. Ég heid, að stjórnarandstað- an ætti að láta af þeirri blaða- mennskú, sem hún hefur haldið uppi nú um skeið. Það er henni ekki á nokkurn hátt til fram- dráttar, heldur miklu fremur hið gagnstæða. Innan skamms eiga þingmenn allir að koma saman til þing- starfa. Þar eiga þeir að vinna í sameiningu að þjóðarheill og þjóðarsóma. Hvernig má vera, NÝJA RÍKISSTJÖRNIN STJÚRNARANDSTAOAN að slíkt geti farið vel úr hendi, sé verið með uppnefni, skamm- aryrði og ósannindi í ræðu og riti? Hvers vegna geta menn ekki sýnt hverjum öðmm fulla kurteisi og virðingu, þótt þeir séu pólitískir andstæðingar? Það er mannl. að deila um mál efni, framgang þeirra og leiðir, þeim til framgangs. En það á að gera með rökum og fullri virðingu fyrir andstæðingnum, en ekki með stóryrðum. Sá það ekki hægt, er heldur ekki hægt að búast við jákvæðum y» horfum til eigin málefna og skoðana. „Litla þjóð, sem átt í vök að verjast, vertu ei við sjálfa þig að berjast.“ Þessa góðu áminn- ingu okkar góða skálds mætt- um við oftar hafa í huga og halda máli okkar meira við tak- mörk en oft er raunin á. Við, sem allir til samans erum ekki stærri né meiri en eitt stórt þorp eða smáborg á meginlandi Evrópu. Allir vita, sem vilja vita, að í röðum allra stjórnmálafl. eru hæfir og vel menntaðir menn, til að geta setið og starfað í ríkisstjórn. Þar verðuf ekki gert upp á milli flokka, a. m. k. ekki fyrr en á reynir /og annað hefur sýnt sig. Það er t. d. út í loftið að telja menn óhæfa til þeirra starfa fremur en annarra, Þótt þeir hafi ekki átt þar sæti áður. Allir hafa einhvern tíma ver- ið byrjendur, bæði 1 þeim störf um og öðrum. Það era engir unglingar né viðvaningar, sem skipa núverandi ríkisstjórn, og það hélt ég að öUum mætti vera ljóst. AUt eru það líísreyndir og velmenntaðir menn. AUir hafa þeir setið á Alþ. að einum undanskildum, og sumir þeirra alllengi. Tveir þeirra hafa áður setið í ríkisstjóm og getið sér góðan orðstír og almennt traust. Það verða því alger vindhögg að níða og ófrægja þessa menn í byrjun starfs þeirra í núver- andi ríkisstjórn. Ættum við ekki heldur að láta það bíða þar til reynsla kemur á störf þeirra og spara okkur óp og illyrði um þá? Óp og öskur hæfa raunar aldrei menntun og menningu, og þá sízt hjá framámönnum þjóð- arinnar. Eitthvað voru stjórnarand- stöðublöðin að æsa sig út af skólastjóraveitingu í Ólafsvík. Þá hefði þeim vissulega verið sæmra að Þegja. Það hefur aldrei verið talið heillavænlegt að kasta grjóti úr glerhúsi, og glerhús stjórnarandstöðunnar er ákaflega þunnt og brothætt. Engin ríkisstjórn hefur verið jafnhlutdræg í starfsmanna- og embættisveitingum og fyrrver- andi ríkisstjórn ,og enginn ráð- herra þar var verri en einmitt fyrrverandi menntamálaráð- herra. Það situr því sízt á Al- þýðublaðinu að öskra. Það rifj- ar aðeins frekar upp stjóraar- feril þessa manns. Alþýðublaðið og Alþýðu- flokkurinn ættu nú að faTa að átta sig á því, að það er eitt- hvað meira en lítið bogið við hina pólitísku stefnu hjá þeim nú hin seinni árin. Er það ekki undir formennsku Gylfa Þ. Gfslasonar í flokknum, sem þing mannatala hans hefur lækkað úr 10 þingmönnum niður í 5? Og hver ætli eigi hér stærsta sök? En nú breytum við um stefnu, segir Gröndal. Nú erum við eng- um háðir og nú er það vinstri stefna hjá okkur. Betur færi að svo yrði, en óneitanlega læðist að manni grunur um, að kippt verði í spottann. Núverandi ríkisstjórn verður hlutdræg og vond í sínum starfs- og embættaveitingum, ef hún nokkura tíma kemst með tæm- ar nálægt hælum fyrirrennara síns. Og sízt hef ég trú á að núverandi menntamálaráðherra verði þar ógnvaldur. Ég trúi ein- mitt og tel að þekking hans og dómgreind, samfara trúnaði hans við starf sitt, sé á Þann vég, áð þann geri ætið það, sem sannast er og réttast, og. láti þar enga pólitík villa um fyrir sér. Hitt er svó annað mál, að Alþýðublaðið og Morgunblað- ið munu ætíð reka upp skræk mikinn, ef hlutirnir eru þeim ekki hápólitískt í hag. Einhver var að tala eða skrifa um, að létta þurfi sköttum af sjómönnum, til þess að gera sjó- mennskuna eftirsóttari en hún er nú. Þessu er ég mótfallinn. Sjómenn hafa þegar og hafa haft mörg undanfarin ár, sér- stakan frádrátt umfram aðrar stéttir þjóðfélagsins. Sá frá- dráttur er eðlilegur og sann- gjam, en svo á það heldur ekki að vera meira. Sjómenn eiga ekki að verða bónbjargarmenn. Kjör þeirra þurfa að verða það góð, að þeir greiði skatta sína með stolti. Sjómennskan er heillandi starf og það ekki sfzt fyrir unga og kraftmikla menn. Hún hefur hættur, erfiði og ævintýri í för með sér. Hvaða starf nú til dags hefur ekki hættur í för með sér? Bara að fara yfir götu get- ur verið hættulegt, og það jafn- vel þótt maður sé í fullum rétti. Sjómennskan gefur oft góðar tekjur og með köflum góða hvíld og frjálsræði. Að takast á við náttúruöflin er heillandi, jafnvel rómantískt. En svo get- ur Það á vissum augnablikum orðið alvarlegt. Þá þarf hver og einn á öllu sínu að halda. Þá þurfa allir að standa saman og þá stendur heldur enginn einn. Þetta reynir manninn, styrkir hann og stælir, gefur honum þroska, menntun og menningu, og hver þarf ekki á þeim hlut- um að halda nú til dags? Hvemig væri, að ríkið ætti og gerði út stórt og gott fiski- skip, og notaði það fyrst og Framhald á bls. 10 Nýjungar - Belgía Þrjár útgáfur eru nú fram- undan hjá belgísku póststjóra- inni. Hinn 13. september kemur út samstæða til að minna á ferða mannastaði og eru það tvö merki. 2,50 frankar. Mynd frá Alost, með mynd af kirkju heilags Marteins. Merkið er marglitt, grafið af M. Spinoy. 2,50 frankar. Mynd frá Mons, af ráðhúsinu og klukkuturni. Fleirlit. Grafið af M. de Vos. Sama dag kemur ennfremur út samstæða merkja í tegundinni „menning“. Þessi merki eru gef- in út til að minnast tónlistar- hátfða Vallóna og Flæmingja. 3,50+1,50 frankar er gefið út til að minnast tónlistarhátíðar Flæmingja, en 7,00+3,00 frank- ar til að minnast tónlistarhátíð- ar Vallóua. Bæði merkin eru teiknuð af M. A. Pasture, prentuð í helio- gravure af Ets. J. Malvaux í örkum með 30 stk. Þriðja útgáfan þennan sama dag er svo til að minnast 50 ára afmælis Fjölskyldusambandsins. Teiknari er M. W. De Hollander. Verðgildið 1,50 frankar. Pirentað í heliogravure af sama og áður. Að lokum smáathugasemd. — Prentunaraðferðin HELIOGRA- VURE er heitin eftir Ifelio Cour voiser, sem fann hana upp, al- veg eins og De La Rue kallar sína aðferð DELACRULE. Þetta hefti á því ekkert skylt við griska orðið Helio = Sól, nema hvað einhver spekingur á ís- landi hefir tekið eftir að þau voru stöfuð eins. Sá hinn sami hefur svo talið íslenzkri póst- stjórn trú um að speki hans sé rétt, svo að í tilkynningum und- anfarinna ára hefir þessi prent- unaraðferð verið kynnt sem SÓL PRENTUN. Minna má nú gagn gera, en er ekki mál að ljnni? Flestir aðrir nefna prentunar- aðferðina sínu rétta nafni, Photogravure = Ljósprentun. Sigurður H. Þoi-steinsson

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.