Tíminn - 01.10.1971, Page 11

Tíminn - 01.10.1971, Page 11
F^STUDAGUR 1. október 1971 TIMINN 11 Or verinu NESKAUPSTAÐUR f fyrstihúsinu á Neskaup- stað vinna að jafnaði 50 stúlk- ur og 30 karlmenn. Afkasta- geta er, þegar bezt lætur, um 35 tonn af fiski á dag, miðað við að unnið sé frá kl. 08.00 til 19.00 daglega, og meiri- hlutinn af fiskinum sé pakk- aður í neytendaumbúðir. Unn- ið er að mestu eftir bónus- kerfi. 1. september var fram- leiðslan 60 þúsund kassar, allt unnið úr bolfiski. Er það álíka mikið og framleitt hafði verið um sama leyti árið 1970. f sumar hefur verið hag- kvæmt með útgerð smærri báta. Veður hefur verið ein- muna gott og fiskurinn verið inanfjarðar oft á tíðum. Allt að 40 trillur stunda veiðarnar, þegar allt er talið, er þá talið allt að 10 tonna bátar. Afli þessara báta er frá 100 kg. á dag í nokkur tonn hjá stærstu bátunum. Afkastamesta veiði- skipið er togarinn Barði, en eins og kunnugt er, var hann keyptur til Neskaupstaðar s.l. vetur. Skipið var búið að vera 209 daga við veiðar 1. sept. s.l. og afli þess á tímabilinu er 2009 tonn og verðmæti afl- ans upp úr skipi 26 millj. kr. Aflazt hefur mjög vel á þetta skip og er búizt við, að reynt verði að kaupa annað svipað skip til Neskaupstaðar og telja forráðamenn, að þá sé tryggt hráefni fyrir frystihúsið allt árið um kring. Aðstaða er mjög hagstæð við löndun aflans og hægt að koma mikilli hagræð- ingu við, ef menn hafa á því áhuga. Stutt er af bryggjunni upp í fiskmóttöku og jafnvel hægt að koma við færibandi ef það þykir henta. Eins og víða annars staðar. er umhverfi frystihússins ábótavant og þyrfti nauðsyn- lega úr að bæta. Auk b.v. Barða, gerir fyrirtækið út v.s. Birting, sem var við síldveið- ar erlendis í sumar og landaði fyrir 10.4 millj. kr. V.s. Bjart- ur, sem gerður er út af sama fyrirtæki, landaði síld erlendis fyrir kr. 9.4 millj. kr. og v.s. Börkur, sem landaði erlendis fyrir 9.4 millj kr. Alls hafa skip Síldarvinnslunnar affað fyrir 79 millj. kr. frá áramót- um til 1. september. Tvö önn- ur skip eru gerð út frá Nes- kaupstað en það eru v.s. Sveinn Sveinbjörnsson, sera var á síldveiðum erlendis í sumar og aflaði fyrir 6.5 millj. kr. og v.s. Magnús, sem einnig var á síldveiðum erlendis og landaði fyrir 7.2 millj. kr. Auk þeirrar framleiðslu, sem talin hefur verið, er salt- fiskframleiðsla nokkur og er allur sá fiskur þurrkaður og vinna nokkrir menn að stað- aldri við saltfiskframleiðsluna. Mikil vinna hefur verið á Neskaupstað og hefur heldur verið skortur á fólki en hitt. Nokkuð er um nýbyggingar íbúðarhúsa. Netaverkstæði er á staðnum og er það í myndarlegri bygg- ingu og voru nokkrir menn að vinna þar við að gera við nætur síldveiðiskipanna, sem munu fara til síldveiða um 1. október. Þegar hausta tekur, minnkar mjög fiskirí trillubát- anna og minnkar þá atvinna i frystihúsinu. Niðurlagningar- verksmiðja er nýreist á Nes- kaupstað. Ekki hefur verið nægilegt hráefni til vinnsl- unnar fyrir hendi, og síld, sem keypt var frá Eskifirði, reynd- ist ekki nothæf til þeirrar vinnslu, sem ætlað var og hef- ur af þessum sökum ekki ver- ið eins mikil starfræksla í nið- urlagningarverksmiðjunni og upphaflega var gert ráð fyrir, en vonandi fæst ufsi í haust, svo tryggja megi vinnslu í framtíðinni. Ingólfur Stefánsson. Sólun SÓLUM HJÓLBARÐA Á FÓLKSBÍLA, JEPPA- OG VÖRUBÍLA MEÐ DJÚPUM SLITMIKLUM MUNSTRUM. Ábyrgð tekin d sólnin.gunni. Kaupum notaða sólningarhæfa nylon-hjólbarða; önnumst allar .viðgerðir hjólbarðq með fullkomnum tækjum. GÓÐ ÞJÓNUSTA. — VANIR MENN. BARÐINN HF. Ármúla 7. — Sími 30501,—Reykjavík. AÐEINS VANDAÐIR OFNAR h/fOFNASMIÐJAN EINHOLTI 10 - SlMI 21220 Við velii J.m r unfisf • það b< srgor slg 1111 JBHnflBl - < DFN AR H/R 111 - Síðumúla 2 7 . H eykjavík i Símar 3-55- |i||| r 3-42-00 TRÚLOFUNARHRINGAR Fljót afgreiðsla. Sendum gegn póstkröfu GUÐM. ÞORSTEINSSON gullsmiSur, Bankastr. 12 H.E ÖLGERÐIN EGILL SKALLAGRÍMSSON RÚSKINNSLÍKl Rúskinnslíki í sjö litum á kr.. 640,00 pr. meter- Krumplakk í 15 litum, verS kr. 480,00 pr. meter. Sendum sýnishom um allt land. LITLI-SKÓGUR Snorrabraut 22 — Sími 25644. VEUUM ÍSLENZKT <H> ÍSIENZKAN IÐNAÐ

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.