Fréttablaðið - 24.01.2004, Side 8
8 24. janúar 2004 LAUGARDAGUR
■ Lögreglufréttir
■ Afríka
Fyrsta ballið á Bessastöðum
„Þetta var frábært. Forsetinn
sagði að nú hefði verið brotið
blað í sögu forsetaembættisins
með því að leika tækjamúsík í
veislu á Bessastöðum.“
Viðar Hákon Gíslason, meðlimur Trabant, sem
sló upp balli á Bessastöðum, DV 23. janúar.
Komið að skuldadögum
„Nú er hægt að leysa ÚA upp og
selja það fyrir sex milljörðum
meira en Brim seldi það á. Þá
gætum við fengið kvótann til
baka en Akureyringar gætu sótt
um byggðakvóta.“
Kristinn Pétursson á Bakkafirði, Fréttablaðið 23.
janúar.
Að eilífu amen
„Þó að Össurar væri mátturinn
sem formanns flokksins er ljóst
að frá upphafi var dýrðin í Ráð-
húsi Reykjavíkur.“
Birgir Hermannsson um innviði Samfylkingar-
innar, Morgunblaðið 23. janúar.
Orðrétt
Þorrinn hafinn og reynt að endurskapa fyrri stemningu:
Gestir fá trogið á borðið
ÞORRINN Þorrinn hófst formlega í
gær. Löng hefð er fyrir að fólk
gæði sér á séríslenskum þorramat
sem samanstendur meðal annars
af súrum hrútspungum, lifrar-
pylsu, lundarbagga og hákarli.
Gissur Guðmundsson, mat-
reiðslumaður og rekstrarstjóri
Naustsins, segir að haldið verði
upp á þorrann á mun hefðbundn-
ari hátt í ár en áður. „Þeir sem
koma til okkar í þorramat fá nú
trogið á borðið í staðinn fyrir
hlaðborð. Þetta var alltaf gert hér
á árum áður og við viljum gjarna
endurskapa gömlu stemninguna.“
Hann segir aðaláhersluna vera að
koma Naustinu í sitt upprunalega
horf og að litið verði á staðinn
sem séríslenskan veitingastað.
Upphafsmaður þorrablóta í
Reykjavík var Halldór S. Gröndal,
þáverandi veitingahúsamaður í
Naustinu. Árið 1956 kynnti hann
þessa fornu matargerð fyrir borg-
arbúum og framreiddi í trogum. Í
viðtali sem tekið var við Halldór í
blaðinu í gær var ranghermt að
Naustið væri lokað en það fagnar
hálfrar aldar afmæli nú í haust.
Gagngerar breytingar hafa
verið gerðar í eldhúsi Naustsins.
Gissur segir að tækjakostur hafi
allur verið endurnýjaður ásamt
því að veggir, gólf og loftræsting
voru tekin í gegn. „Við hreyfum
að sjálfsögðu ekki við salnum sem
er í sínu upprunalegu horfi.“ ■
Þögn um jöfnun
lífeyrisréttinda
Samninganefnd ríkisins hefur enn engu svarað um jöfnun lífeyris-
réttinda launafólks. Starfsgreinasambandið segir það ásamt jöfnun
annarra kjara, meginkröfuna í viðræðum við ríkið.
KJARAMÁL Samninganefnd ríkisins
hefur enn engu svarað um jöfnun
lífeyrisréttinda launafólks á al-
mennum markaði við lífeyrisrétt-
indi opinberra starfsmanna. Jöfnun
lífeyrisréttinda er ein meginkrafa
Starfsgreinasambandsins í viðræð-
um við ríkið.
Kjaraviðræður Starfsgreina-
sambandsins fyrir hönd 31 aðildar-
félags eru þrískiptar, í fyrsta lagi
við Samtök atvinnulífsins, í öðru
lagi við ríkið og loks við Landsvirk-
un vegna samnings um virkjunar-
framkvæmdir.
Kjarasamningarnir við Samtök
atvinnulífsins og ríkið voru lausir
um áramót, en virkjunarsamningur-
inn rennur út 29. febrúar.
Starfsgreina-
sambandið vísaði
kjaradeilu sinni
við ríkið til ríkis-
s á t t a s e m j a r a
skömmu fyrir jól
en viðræður sem
staðið höfðu frá í
nóvember, skil-
iðu litlu.
S a m n i n g a -
nefndirnar hafa hist á sex formleg-
um fundum, auk þess sem unnið
hefur verið í vinnuhópum um ein-
stök málefni.
Meginkröfur Starfsgreinasam-
bandsins gagnvart ríkinu varða
jöfnun réttinda og kjara félags-
manna aðildarfélaganna sem starfa
hjá ríkinu í ýmsum starfsgreinum,
miðað við réttindi og kjör opinberra
starfsmanna.
Ætlunin er að samræma 14
kjarasamninga í einn og hefur
nokkuð þokast. Ríkið lagði fram
drög að samræmdum samningi í
vikunni en Starfsgreinasambandið
segir þau samningsdrög ekki ganga
eins langt og tillögur sambandsins
gerðu ráð fyrir.
Forsenda samræmds samnings
er meðal annars að launamunur
milli launafólks á almennum mark-
aði og opinberra starfsmanna verði
leiðréttur og hefur jöfnun launa-
taxta lítillega verið rædd.
Þá krefst Starfsgreinasamband-
ið þess einnig að tekin verði upp ný
launatafla og virðist það mál í höfn,
þótt vinna við röðun í launaflokka
samkvæmt nýrri töflu sé á byrjun-
arreit.
Góður gangur er í viðræðum
Starfsgreinasambandsins og Sam-
taka atvinnulífsins en samninga-
nefndir þinga næstkomandi mánu-
dag, fara yfir árangurinn hingað til
og ákveða framhald viðræðna.
Viðræður stéttarfélaga við
Landsvirkjun um virkjunarsamn-
inga eru skemmra á veg komnar en
aðeins einn viðræðufundur hefur
verið haldinn. the@frettabladid.is
BATNANDI ÁSTAND
Háttsettur foringi í Bandaríkjaher, segir að
ástandið í landinu verði væntanlega komið
í eðlilegt horf innan sex mánaða.
Stuðningsmenn Saddams:
Komnir
á hnén
ÍRAK Raymond Odierno, háttsettur
foringi í Bandaríkjaher, segir að
stuðningsmenn Saddams Hussein í
Írak séu komnir á hnén og að
ástandið í landinu verði væntanlega
komið í eðlilegt horf innan sex mán-
aða.
„Handtaka Saddams var mjög
mikill sálfræðilegur sigur fyrir
okkur og áfall fyrir óvininn,“ sagði
Odierno sem fer með stjórn banda-
ríska hersins á svæðinu norður frá
Bagdad allt til olíusvæðanna í ná-
grenni Kirkuk og meðfram írönsku
landamærunum.
„Handtakan hefur haft þau áhrif
að okkur berast nú nákvæmari og
áreiðanlegri upplýsingar um óvin-
inn frá íröskum borgurum sem áður
óttuðust hefnd Saddams,“ sagði Odi-
erno. ■
Kjötmarkaður:
Aukin sala
lambakjöts
KJÖTMARKAÐUR Sala á lambakjöti
jókst um 1,1% á síðasta ári þrátt
fyrir harða samkeppni við aðrar
kjöttegundir, samkvæmt frétta-
tilkynningu frá Landssamtökum
sauðfjárbænda.
Mikil samkeppni hefur verið á
kjötmarkaði síðastliðin tvö ár og
hefur kjötverð verið í sögulegu lág-
marki vegna offramboðs.
Birgðir af lambakjöti drógust
saman um 6,3% á sama tíma. Sauð-
fjárbændum þykir þetta tvennt,
aukin sala og minnkandi birgðir
mjög jákvæð þróun fyrir sauðfjár-
bændur og kjötmarkaðinn í heild
sinni. ■
HLAUT 17 ÁRA DÓM Herréttur á
Fílabeinsströndinni hefur dæmt
lögreglumann í sautján ára fang-
elsi fyrir morðið á franska út-
varpsmanninn Jean Hélène í
október á síðasta ári. Lögreglu-
maðurinn, sem heitir Theodore
Seri, neitar að hafa myrt útvarps-
manninn og hrópaði þegar dóm-
urinn var kveðinn upp: „Ég er
saklaus, ég er saklaus“.
LAUNIN TVÖFÖLDUÐ Laun yfir-
manna lögreglunnar í Kenýa hafa
verið tvöfölduð með það að mark-
miði að ná tökum á spillingu inn-
an lögreglunnar, sem leitt hefur
til aukinna glæpa í landinu.
Glæpir hafa sérstaklega aukist í
höfuðborginni Nairobi, sem af
sumum er kölluð „Nairobbery“,
og er átakið liður í því að bæta
ímyndina og byggja upp ferða-
mannaiðnaðinn.
FYRRUM RÁÐHERRA DÆMDUR
Jean de Dieu Kamuhanda, fyrr-
um menntamálaráðherra Rúanda,
var á fimmtudaginn dæmdur í
lífstíðarfangelsi eftir að hafa ver-
ið fundinn sekur um þjóðarmorð
og glæpi gegn mannkyni. Hann
var sakaður um að hafa sjálfur
stjórnað hermönnum sem stóðu
að morðum á allt að 800.000 tútsí-
og hútúmönnum árið 1994.
HEILSUGÆSLAN
Fulltrúar heilsugæslustöðvarinnar hafa átt í
óformlegum viðræðum við Seltjarnarnes-
bæ um mögulega stækkun.
Heilsugæslan á
Seltjarnarnesi:
Viðræður
um stækkun
HEILBRIGÐISMÁL Jónmundur Guð-
marsson, bæjarstjóri Seltjarnarnes-
bæjar, hefur óskað eftir viðræðum
við fjármálaráðuneytið um stækkun
heilsugæslustöðvarinnar.
Í vetur hafa fulltrúar heilsu-
gæslustöðvarinnar átt í óformleg-
um viðræðum við Seltjarnarnesbæ
um mögulega stækkun á húsnæði
stöðvarinnar og breytingu á eignar-
haldi núverandi húsnæðis. Í tilkynn-
ingu frá Seltjarnarnesbæ segir að
með flutningi bókasafnsins á Eiðis-
torg hafi skapast svigrúm fyrir
heilsugæsluna til að mæta þörf
fyrir aukið húsrými og þar með efl-
ingu þjónustu í vesturbæ Reykja-
víkur og á Seltjarnarnesi. ■
STÁLU TÓBAKI Brotist var inn í
söluturn í Grafarvogi í fyrrinótt
og tóbaki stolið. Til að komast inn
spennti þjófurinn upp hurðina.
Þjófavarnarkerfi verslunarinnar
fór í gang og var innbrotið til-
kynnt til lögreglu klukkan 2.24.
Enginn hefur verið handtekinn.
Berlusconi ræddi við blaðamenn:
Hló að Gróusögunum
ÍTALÍA Silvio Berlusconi, forsæt-
isráðherra Ítalíu, henti gaman
að sögusögnum um að hann
hefði farið í andlitslyftingu þeg-
ar hann kom fram opinberlega í
fyrsta sinn í rúman mánuð.
Ítalskir fréttamenn gáfu sig á
tal við forsætisráðherrann á
götu í miðborg Rómar.
Berlusconi sagðist hafa
ákveðið að gefa sér tíma til að
grennast og byggja sig upp eftir
erfiðan tíma í forsæti Evrópu-
sambandsins. Hann viðurkenndi
að hafa fastað en vísaði á bug
fregnum af því að hann hefði
farið í lýtaaðgerð í Sviss og
drukkið geitamjólk.
Berlusconi hafði ekki látið
sjá sig opinberlega síðan 20.
desember og dvalið að mestu
leyti á eynni Sardiníu. ■
GÆDDU SÉR Á ÞORRAMAT Í NAUSTINU
Naustið á sína fastagesti. Þessir herramenn gæddu sér á gómsætum þorramat og virtust
ánægðir að fá trogið á borðið. Þá má geta þess að súr hvalur er nú á boðstólum í
Naustinu.
BERLUSCONI
Ítalski forsætisráðherrann svaraði spurn-
ingum fréttamanna sem gáfu sig á tal við
hann á götu í miðborg Rómar.
„Ætlunin er
að samræma
14 kjarasamn-
inga í einn og
hefur nokkuð
þokast.
BÍÐA SVARA
Nokkuð hefur þokast í viðræðum Starfsgreinasambandsins og ríkisins. Enn fást þó ekki
svör frá ríkinu við kröfunni um jöfnun lífeyrisréttinda.