Fréttablaðið - 24.01.2004, Qupperneq 21
fjölda fólks. Síðarnefnda sveitin
hyggur á útgáfu í apríl næstkom-
andi og mun væntanlega festa sig
í sessi í sínum flokki. Sigur Rós
er einnig með nýja plötu í bígerð,
á tíu ára starfsafmælinu, og
aldrei að vita nema sveitin nái að
bæta í aðdáendahóp sinn.
Emilíana sú eina
Eina hugsanlega vonarstjarn-
an sem sérfræðingarnir sáu er
Emilíana Torrini sem hefur alið
manninn í Bretlandi upp á
síðkastið. Emilíana samdi meðal
annars lagið Slow fyrir Kylie
Minogue sem komst á topp
breska vinsældarlistans sem og
þemalag Gollris, geðklofa hobbit-
ans í Hringadróttinssögu. Emili-
ana hefur allt sem til þarf, hæfi-
leika og útlit, og ef hún heldur
rétt á spilunum gætum við Ís-
lendingar eignast nýja stjörnu í
poppheiminum.
Rokkhljómsveitin Mínus er sú
sveit sem vakti hvað mesta at-
hygli hér á landi á síðasta ári.
Sveitin hefur fengið frábæra
dóma í virtum tónlistarblöðum
ytra og mun vonarstjarna hennar
líklega skína skært í ár. Nýr
samningur við Sony gæti fleytt
henni langt, jafnvel yfir þröskuld
heimsfrægðar.
Íslensku ídolin munu láta til
sín taka hér á landi í ár en frægð-
arsól þeirra mun þó líklega ekki
ná út fyrir landsteinana.
Nói og Óskarinn
Dagur Kári Pétursson komst
svo sannarlega í hóp með vonar-
stjörnum Íslands með myndinni
Nói Albinói. Það skýrist brátt
hvort myndin komist á lokahóf
Óskarsverðlaunanna og ef það
gengur eftir er brautin rudd,
bæði fyrir leikstjórann sem og
aðalleikarann Tómas Lemarquis.
Huldar Breiðfjörð gæti náð
fyrri sess á stjörnuhimninum.
Það fer þó allt eftir því hvernig
Næsland í leikstjórn Friðriks
Þórs Friðrikssonar gengur. Huld-
ar fær þó tvö tækifæri því seinna
á árinu kemur bók um Kínaferð
hans út.
Kaldljós hefur notið gríðar-
legra vinsælda hér heima fyrir
og er stórfyrirtækið Miramax
farið að gefa henni auga með
heimsdreifingu í huga. Hilmar
Oddsson gæti í kjölfarið fengið
nokkur spennandi verkefni sem
og höfundur bókarinnar, Vigdís
Grímsdóttir. Hver veit nema
kvikmyndin My name is Iceborg,
I’m a lion verði ein af stórmynd-
um Hollywood næstu ára.
Aðrir rithöfundar
Annars verður erfitt að segja
til um hvaða rithöfundar slá í
gegn á árinu og hvort einhver
þeirra muni ná heimsfrægð. Arn-
aldur Indriðason heldur væntan-
lega áfram að mjaka sér til
frægðar í útlöndum og spurning
hvort kvikmyndir byggðar á bók-
um hans muni gefa honum byr
undir báða vængi. Líklegt þykir
þó að Ólafur Jóhann muni slá í
gegn í Bandaríkjunum með Höll
minninganna. Efnið er talið virka
vel ofan í hinn ofvaxna markað
vestanhafs og líklegt að bókin
verði kvikmynduð innan
skamms. Ólafur Jóhann mun ein-
nig fylgja eftir velgengni sinni
með nýrri bók fyrir jól.
Íslendingar í viðskiptum
London er borg heimsfrægðar
Íslendinga í viðskiptum næstu
árin. Íslendingar hafa verið að
gera sig gildandi í borginni. Lýð-
ur og Ágúst Guðmundssynir í
Bakkavör eru á uppleið í borg-
inni. Baugur undir forystu Jón-
anna Ásgeirs og Scheving Thor-
steinssonar hafa verið að fjár-
festa í verslunarkeðjum í Bret-
landi og gætu orðið næstu tísku-
kóngar.
Björgólfur Thor er á barmi
heimsfrægðar í borginni og ljóst
að fylgst verður með honum og
forstjóra Pharamco Róbert
Wessman. Ef fer fram sem horfir
og verður Pharmaco meðal 250
stærstu fyrirtækja í FTSE-vísi-
tölunni í London.
Óþekkt andlit
Þótt ofantaldar vonarstjörnur
séu líklegastar til að halda heiðri
Íslands á lofti um allan heim á ár-
inu má ekki gleyma því að stjörn-
um skýtur oft hratt upp á himin-
inn. Því má eins búast við því að
óþekkt fólk muni láta til sín taka
á árinu og sýna alþjóð hvað í því
býr, landi og þjóð til sóma.
kristjan@frettabladid.is
LAUGARDAGUR 24. janúar 2004
m helgina!
notuðum bílum verða 80 bílar á sérstöku tilboðsverði. Einnig mikið
úrval af notuðum vélsleðum. Sölumenn okkar eru í hátíðarskapi, nýttu
þér það. Komdu í fjörið, njóttu gæðanna og skoðaðu nýjungarnar.
Komdu á Nýbýlaveginn um helgina, - það verður bara skemmtilegt.
Boðið er upp á glæsilegar veitingar alla helgina. Opið laugardag kl. 12-16 og
sunnudag kl. 13-16. www.toyota.is
ÍS
LE
N
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
23
39
4
0
1/
20
04
* Eigða'nn eða
leigða'nn tilboð
lc 90 53.300 verð pr mán
Avensis 26.800 verð pr mán
Yaris 17.400 verð pr mán
ÍS
LE
N
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
23
39
4
0
1/
20
04
*
ÍS
LE
N
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
23
39
4
0
1/
20
04