Fréttablaðið - 24.01.2004, Qupperneq 22
■ Nafnið mitt
22 24. janúar 2004 LAUGARDAGUR
Opinberun
ástmanns
Leikarinn og fyrirsætan Mich-ael Bergin, þekktastur fyrir
leik sinn í Strandvörðum, vinnur
nú að bók sem heitir Hinn mað-
urinn: John F. Kennedy yngri,
Carolyn Bessette og ég, en þar
skýrir hann frá ástarsambandi
sínu við Carolynu, eiginkonu
Johns. Hann vinnur einnig að
heimildarmynd um sambandið.
Michael segir að samband sitt
við Carolynu hafi verið svo
ástríðuþrungið að ekki einu
sinni hjónaband hennar og „am-
eríska prinsins“ hafi getað kom-
ið á milli þeirra.
Michael átti í ástarsambandi
við Carolynu áður en hún giftist
John Kennedy og hann heldur
því fram að þau hafið haldið
sambandi sínu áfram eftir að
hún gekk í hjónaband. Carlyn
lést ásamt eiginmanni sínum og
systur í hörmulegu flugslysi
árið 1999. Hún var 33 ára.
Uppljóstrun um leynilegt ást-
arsamband Carolynar er for-
eldrum hennar áfalll en þegar
hún lést sögðu þeir að John og
Carolyn hefðu verið sannir sálu-
félagar. Þetta er ekki eina áfall-
ið sem foreldrarnir hafa orðið
að þola síðan Carolyn lést en
skömmu eftir lát hennar full-
yrtu kunnugir að hún hefði ver-
ið umsvifamikil kókaínæta og að
hjónaband hennar og Johns
hefði verið í molum og stefnt
hefði í skilnað. Á síðasta ári kom
út í Bandaríkjunum bókin Bölv-
un Kennedyanna þar sem höf-
undurinn Edward Klein opin-
beraði það sem hann kallaði
„dökku hliðina“ á hjónbandi
Johns og Carolynar. Þar sagði
Michael höfundi frá sambandi
þeirra Carolynar og lýsti henni
sem ráðríkri og skapmikilli en
hún mölvaði oftar en einu sinni
eigur hans í afbrýðiskasti. Ed-
ward Klein segir í bókinni að
þegar Carolyn reifst við John
Kennedy hafi hún sagt í bræði
að hún svæfi enn hjá Michael.
Klein sagði í bókinni að Michael
og Carolyn hefðu haldið ástar-
sambandi sínu áfram meðan hún
bjó með John Kennedy en því
sambandi hafi lokið eftir gift-
ingu hennar og Johns. Michael
heldur því hins vegar fram að
sambandið hafi haldið áfram
meðan hún var í hjónabandi.
Vinir og ættingjar Carolynar
og Johns taka þessar fullyrðing-
ar nærri sér og segja að Carolyn
hafi þótt vænt um John en viður-
kenna þó að hjónaband þeirra
hafi verið stormasamt en harð-
neita því að hún hafi haldið fram
hjá honum. ■
CAROLYN OG
JOHN KENNEDY YNGRI
Þau létust í flugslysi árið 1999. Skömmu
eftir það komu fram fullyrðingar um að
stefnt hefði í skilnað milli þeirra.
MICHAEL BERGIN
Leikarinn úr Strandvörðum vinnur að bók og sjónvarpsþætti þar sem hann skýrir frá
ástarsambandi sínu og Carolynar meðan hún var gift John Kennedy.
CAROLYN BESSETTE
Er sögð hafa átt í ástarsambandi við fyrirsætuna Michael Bergin sem er hvað þekktastur
fyrir leik sinn í þáttunum um Strandverði.
Guð er náðugur
Ég er skírður í höfuðið á lang-afa sem hét Jón Sigurðsson og
var bóndi austur undir Eyjafjöll-
um,“ segir Jón Sigurðsson, söngv-
ari og pabbi, sem heillaði þjóðina
upp úr skónum með söng sínum
og brosi í Idol-stjörnuleitinni, að-
spurður um nafn sitt.
Nafnið Jón er stytting á nafn-
inu Jóhannes og merkir Guð er
náðugur.
„Hann var mér að mestu leyti
náðugur í þessari blessuðu Idol-
keppni. Í það minnsta undir það
síðasta,“ segir Jón hlæjandi.
Jón er langvinsælasta karl-
mannsnafnið í þjóðskrá. Um 5.546
manns bera nafnið sem fyrsta eig-
innafn, um 4% karlmanna á Ís-
landi. Nafnið er einnig vinsælt
sem annað eiginnafn. Um 904
bera nafnið sem annað eiginnafn.
„Ég er feginn að heita Jón Sig-
urðsson. Þetta er nafn sem hefur
sterka merkingu. Ég væri ekki
jafn sáttur ef ég bæri eitthvað
millinafn, til dæmis Jón Ársæll
eða eitthvað álíka,“ segir Jón og
hlær enn sínum heillandi hlátri.
Sigurður er annað vinsælasta
karlsmannsnafnið í þjóðskrá.
Rúmlega þúsund færri Sigurðar
eru á landinu en Jónar.
Jón segir að honum hafi tals-
vert verið strítt á nafninu þegar
hann var yngri, sérstaklega þegar
nafnið Jón Jónsson var notað í
auglýsingum.
„Ég tók stríðninni með jafnað-
argeði. Þá minnti ég viðkomandi á
Jón Sigurðsson, fulltrúa lýðveld-
isins, þannig að hann fékk það
beint aftur í bakið,“ segir Jón og
útilokar ekki að hann sé skyldur
hetjunni. „Það getur vel verið. Við
erum ábyggilega öll tengd saman
langt aftur í ættir.“ ■
JÓN SIGURÐSSON
Er skírður í höfuðið á langafa sínum sem
var bóndi austur undir Eyjafjöllum.
Hann var mér að
mestu leyti náðugur
í þessari blessuðu Idol-
keppni. Í það minnsta undir
það síðasta.
,,