Fréttablaðið - 24.01.2004, Síða 30
Hin gríðarlega aðsókn semverið hefur á leiksýn-
ingu sem byggir á þríleik
Philips Pullman, His Dark
Materials, í The National
Theatre í London hefur orðið
til þess að sýningin hefur
verið framlengd um viku til
að gefa æstum aðdáendum
tækifæri til að ná í miða en
fyrir löngu var orðið uppselt
á allar sýningar. Miðar á sýn-
inguna hafa reyndar verið til
sölu á Ebay uppboðsvefnum
fyrir allt að 200 pund, um
26.000 íslenskar krónur, sem
er nú ekki beint alþýðuverð.
Sýningin hefur fengið góða
dóma gagnrýnenda og þykir
sérlega mikið tæknilegt af-
rek. ■
26 24. janúar 2004 LAUGARDAGUR
IL GIGANTE
Michelangelo, Florence and the David eftir
Anton Hill
Ríkissjónvarpið sýnir um þess-
ar mundir fádæma góða þætti um
ítölsku Medici-ættina. Hún gerði
ýmislegt fleira en að græða pen-
inga og studdi meðal annars
listamenn til dáða. Listamaður-
inn Michelangelo var afsprengi
þessa tíma og hann lifði fyrir list
sína á þann hátt sem fáir hafa
gert. Þetta er athyglisverð bók
um minnisverða tíma og merki-
lega menn.
Metsölulisti Bókabúða
Máls og menningar,
Eymundssonar og Pennans
ALLAR BÆKUR
1. Almanak Háskóla Íslands. Háskóli
Íslands
2. Kaldaljós. Vigdís
Grímsdóttir
3. Á villigötum.
Henning Mankell
4. Þú getur hætt að
reykja. Guðjón Berg-
mann
5. Heilsudagbókin.
Ritstjóri Ingvar Jóns-
son
6. Mýrin. Arnaldur
Indriðason
7. Einhvers konar ég. Þráinn Bertelsson
8. Meistarinn og Margaríta. Mikhaíl
Búlgakov
9. Almanak Þjóðvinafélagsins. Sögu-
félagið
10. Listin að lifa, listin að deyja. Óttar
Sveinsson
SKÁLDVERK - INNBUNDNAR
BÆKUR
1. Plateró og ég - útsölubók. Juan
Ramón Jiménez
2. Heimsins heimskasti pabbi - útsölu-
bók. Mikael Torfason
3. Hvíti skugginn - útsölubók. Þórunn
Valdimarsdóttir
4. Da Vinci lykillinn.
Dan Brown
5. Hobbitinn. J.R.R.
Tolkien
6. Í allri sinni nekt -
útsölubók. Rúnar
Helgi Vignisson
7. Lygasaga. Linda Vil-
hjálmsdóttir
8. Vetrarferðin - út-
sölubók. Ólafur Gunn-
arsson
9. Lokavitni - útsölubók. Patricia
Cornwell
10. Samúel - útsölubók. Mikael Torfa-
son
SKÁLDVERK - KILJUR
1. Kaldaljós. Vigdís Grímsdóttir
2. Á villigötum. Henning Mankell
3. Mýrin. Arnaldur Indriðason
4. Meistarinn og
Margaríta. Mikhail
Búlgakov
5. Dóttir gæfunnar.
Isabel Allende
6. Grafarþögn. Arn-
aldur Indriðason
7. Dauðarósir. Arn-
aldur Indriðason
8. Úrvalssögur.
Ólafur Jóhann Sig-
urðsson
9. Hringadrottinssaga I-III. J.R.R. Tolkien
10. Sjálfstætt fólk. Halldór Laxness
LISTINN ER GERÐUR ÚT FRÁ SÖLU DAGANA 14.01.-20.01.
2004 Í BÓKABÚÐUM MÁLS OG MENNINGAR, EYMUNDS-
SON OG PENNANUM.
■ Bækur
Allt frá því skáldkonan Iris Mur-doch lést hafa samferðamenn
hennar risið upp hver á fætur öðr-
um og flett ofan af einkalífi hennar,
sem var satt að segja ekki tíðinda-
laust. Nú hefur látinn ástmaður op-
inberað samband sitt við skáldkon-
una. Í Þýskalandi kom nýlega út
bók sem geymir endurminningar
Nóbelsverðlaunahafans Elias
Canetti. Canetti fæddist í Búlgaríu,
fékk Nóbelsverðlaunin árið 1981 og
lést árið 1994. Canetti og Murdoch
áttu í ástarsambandi sem var ekki
mikil sæla fyrir skáldkonuna og
Canetti varð fyrirmynd að mörgum
illmennum sem koma fyrir í verk-
um hennar. Í þessum nýútkomnu
endurminningum Canettis hæðist
hann að skáldverkum og heimspeki
Murdoch, talar niðrandi um útlit
hennar og skýrir í smáatriðum frá
ástarlífi þeirra. ■
Viðar Hreinsson bókmennta-fræðingur fékk á dögunum
viðurkenningu Hagþenkis fyrir
vandaða tveggja binda ævisögu
Stephans G. Stephanssonar.
Verðlaunaupphæðin er 750.000
krónur. „Hagþenkir er vaxandi
félag sem er að vinna gott starf
og viðurkenning þess hefur
fengið æ meira vægi, enda gott
fólk sem situr í viðurkenningar-
nefnd. Heiðurinn er því mikill
og góður,“ segir Viðar.
Viðar lagðist í miklar rann-
sóknir fyrir ritun ævisögunnar.
„Ég þekkti fyrir kveðskap
Stephans en ég þurfi að ná utan
um þann heim sem hann lifði og
hrærðist í; gamla íslenska
bændasamfélagið, handrita-
menninguna í Skagafirði og
endurreisnarhreyfinguna með-
al bænda sem grasseraði í Þing-
eyjarsýslu meðan hann var þar.
Einnig skoðaði ég landnáms-
sögu Vesturheims og ekki síður
andlegt líf fyrir vestan. Ég las
mikið í heimspekingum og
skáldum eins og Emerson,
Thoreau og Whitman til að átta
mig á því andlega lífi sem
Stephan gleypti í sig þegar hann
kom vestur. Mér fannst líka
mikilvægt að ná að fanga dag-
legt líf hans. Stephan var strit-
andi bóndi og það varð að kom-
ast til skila. Svo vann ég auðvit-
að mikið í frásagnaraðferðinni.
Ég var endalaust að skera niður,
stytta og skerpa frásögnina.“
Vildi gefa heimildunum mál
Það eru margar aðferðir við að
skrifa ævisögu, er einhver ein rétt-
ari en önnur að þínu mati?
„Nei, aðalatriðið er hin fag-
legu vinnubrögð. Menn verða að
vinna heimildarvinnuna vel,
vanda alla framsetningu og
setja gæsalappir og tilvísanir á
sinn stað. Að öðru leyti verður
hver að finna sína aðferð. Mín
hugmynd var að hafa bókina
eins breiða og djúpa og hægt
væri án þess að tapa söguþræð-
inum. Það hefði verið mjög auð-
velt að týna sér í endalausum
útúrdúrum og hlaupa út og suð-
ur og segja sögu hvers furðu-
fugls sem varð á vegi Stephans.
Ég vildi frekar vekja grun um
að slíkar sögur væru til. Svo
ganga menn mislangt í því hvað
þeir vilja skálda í eyðurnar. Það
hentaði mér ekki að ganga langt
í þeim efnum. Ég vildi gefa
heimildunum mál þannig að les-
endur sæju hvað væri að gerast
án þess að ég þyrfti að spinna
það upp sjálfur.“
Þörf umræða um
vinnubrögð
Mikið fár hefur ver-
ið í kringum ævisögu
Hannesar Hólmsteins
Gissurarsonar um
Halldór Laxness. Við-
ar er spurður álits um
þær hörðu deilur. „Ég
hef ekki lesið bókina
og skammast mín ekk-
ert fyrir það. Ég mun
lesa hana fljótlega,“
segir hann. „En eins
og þessu er lýst, og
það er búið að tína til
mörg dæmi um með-
ferð á heimildum, þá
sýnast mér vinnu-
brögðin á því sviði for-
kastanleg. Umræða
um vinnubrögðin er þó
þörf og enginn skaði
að henni. Þetta er mik-
ið alvörumál fyrir
fræðiheiminn og hags-
munamál fyrir fræði-
menn. Ef menn kom-
ast upp með slæleg
vinnubrögð hlýtur
fræðin að setja niður
fyrir vikið. Það sýnir
líka mikla lítilsvirð-
ingu fyrir störfum
okkar fræðimanna
þegar þekktur lög-
fræðingur heldur því
fram í blaðagrein að
það sé nóg að setja
eitthvað sem hann
kallar „stóra allsherj-
artilvísun“ í eftirmála.
Ég efast um að honum
líkaði það vel ef
þannig væri farið með
hans eigin verk. Núna
er þessi umræða kom-
in út í þvílíka vitleysu
í sleggjudómum og
jafnvel ótrúlegum sví-
virðingum í garð
þeirra sem gagnrýnt
hafa bókina að það
dettur engum lengur í
hug að leggja orð í
belg. Nú vonast maður
bara til að skítkastinu í
blöðum fari að linna og
að með einhverjum
hætti verði komist að formlegri
niðurstöðu í málinu.“
Ný ævisaga í smíðum
Viðar segist aldrei hafa ver-
ið neitt sérlega gefinn fyrir
ævisögur og les þær ekki mikið.
„Ég leit á þessa ævisögu Steph-
ans sem köllun eða skylduverk.
Mér fannst að það yrði að koma
Stephan á framfæri og að hann
þyrfti að fá verðskuldaða at-
hygli,“ segir hann. Hann vinnur
nú að nýrri ævisögu og segist
hafa mjög gaman af því. „Það er
ævisaga Þorsteins M. Jónsson-
ar. Hann var alþingismaður um
hríð og þekktastur fyrir að hafa
verið í sambandslaganefndinni
1918. Hann var einnig kennari,
skólastjóri, sáttasemjari og
bókaútgefandi. Bókasafn hans
var eitt það stærsta og besta í
einkaeigu á Íslandi. Þorsteinn
var rismikill og sterkur karakt-
er en þar fyrir utan er skemmti-
legur menningarsögulegur
þráður í ævi hans. Hann var al-
inn upp í sveit fyrir austan og
skrifaði upp handrit sem ungur
maður og varð síðan á 20. öld
stórtækur bókaútgefandi. Ævi
hans rúmar því tvo menningar-
heima. Þetta er skemmtilegt og
spennandi verkefni og ég geri
ráð fyrir að bókin komi út fyrir
jólin 2005.“
kolla@frettabladid.is
VIÐAR HREINSSON
„Hagþenkir er vaxandi félag sem er að vinna gott starf og viðurkenning þess hefur fengið æ meira
vægi, enda gott fólk sem situr í viðurkenningarnefnd. Heiðurinn er því mikill og góður.“
Viðar Hreinsson fékk viðurkenningu Hagþenkis fyrir vandaða tveggja binda ævisögu Stephans G. Stephanssonar:
Köllun eða skylduverk
IRIS MURDOCH
Ástmaður hennar Elias Canetti segir frá
sambandi þeirra í endurminningum
sínum.
Canetti hæðist að Murdoch Slegist um
miða á
Pullman