Fréttablaðið - 24.01.2004, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 24. janúar 2004 27
Engjateigi 5, sími 581 2141
Opið virka daga frá kl. 10.00-18.00, laugardaga frá kl. 10.00-16.00.
15%
aukaafsláttur
á stórútsölunni
Bandaríski rithöfundurinnOlivia Goldsmith lést nýlega,
54 ára gömul. Hún var í verkum
sínum fulltrúi miðaldra kvenna og
talaði ákaft gegn æskudýrkun.
„Meginmarkmið mitt í lífinu er að
breyta menningu okkar þannig að
litið verði á eldri konur sem full-
gildar mannverur. Þegar konur
verða fertugar verða þær ósýni-
legar,“ sagði hún eitt sinn í viðtali.
Það er kaldhæðni örlaganna að
Oliva Goldsmith lést eftir lýtaað-
gerð. Hún fékk hjartaáfall í svæf-
ingunni og komst aldrei til meðvit-
undar.
Goldsmith gekk á sínum tíma í
gegnum erfiðan skilnað þar sem
hún komst nálægt því að missa al-
eiguna. Hún flutti til London og
skrifaði fyrstu skáldsögu sína The
First Wives Club eftir að hafa les-
ið blaðagrein um miðaldra karl-
menn sem skildu við eiginkonur
sínar til að ná sér í ungar fyrirsæt-
ur. Bókin kom út árið 1992 og varð
vinsæl Hollywood-kvikmynd með
Goldie Hawn, Bette Midler og
Diane Keaton í aðalhlutverkum.
Goldsmith skrifaði á ferli sínum
ellefu skáldsögur um svipað efni,
auk barnabóka. Hún sagði sjálf að
þegar hún dæi myndu bitrir karl-
menn hrækja á gröf hennar.
Dauði Goldsmith hefur nú orðið
tilefni umræðna um lýtaaðgerðir
og þær hættur sem þær geta falið
í sér. Goldsmith, sem talaði svo
mjög um að miðaldra konur ættu
að sætta sig við útlit sitt og aldur,
var greinilega ekki sátt við sjálfa
sig eins og hún var. Breytingarnar
sem hún vildi gera kostuðu hana
lífið. Fyrir dauða sinn hafði hún
nýlokið við skáldsöguna Wish
upon a Star, sem kemur út seinna á
þessu ári.
Breskur útgáfustjóri hennar
lýsti henni sem konu sem hefði
haft frábæra samræðuhæfileika
og fengið fólk til að veltast um af
hlátri en hefði á seinni árum orðið
hlédræg vegna vonbrigða í einka-
lífi. ■
Höfundur First Wives Club lést eftir lýtaaðgerð:
Dauði Oliviu Goldsmith
OLIVIA GOLDSMITH
Höfundurinn sem talaði gegn æskudýrkun lést eftir lýtaaðgerð.
Það hefur verið íslensk slag-síða á bókahlaðanum að und-
anförnu,“ segir Tómas R. Ein-
arsson tónlistarmaður, sem er
lesandi vikunnar. „Hótelsumar
Gyrðis Elíassonar var fyrst;
hann lætur fleira flakka en
áður, það eru ýmis teikn um
meira óþol, harðari stíl í allri
fáguninni. Náðarkraftur Guð-
mundar Andra er skratti fín
stúdía á vönduðu en tímavilltu
fólki, afar vel stíluð. Krafturinn
er mestur í Stormi Einars Kára-
sonar sem siglir öruggt þessi
árin; Óvinafagnaður var topp-
bók og þessi er glettilega vel
heppnuð. Skugga-Baldur Sjóns
er frábærlega stíluð nóvella, ég
hefði þegið hana helmingi
lengri. Splunkunýr dagur Pét-
urs Gunnarssonar var óviðjafn-
anleg stefnuyfirlýsing og nýi
hlutinn í ljóðasafninu Að baki
daganna bætir þroskanum við;
móðurminningin er þar sterk-
asta lesningin.
Linda Vilhjálmsdóttir er líka
gott ljóðskáld og Lygasaga er
víða góð, en ég held hún hefði
getað orðið meira en það með
lengri yfirlegu. Ég held að
Herra Alheimur Hallgríms
Helgasonar hefði líka þolað
lengri biðtíma, eða kannski
leiðast mér bara vísindaskáld-
sögur. Að láta lífið rætast eftir
Hlín Agnarsdóttur þótti mér
vel fléttuð og í réttri fjarlægð
frá viðfangsefninu.
Ég er svo í Kíkóta númer
tvö, þar er margt skemmtilegt
en víða teygður fullmikill lopi
fyrir okkur Njálumenn. Ég
greip svo ofan í snilldar-
ævisögu Stephens
Spender, World Within
World, til að rifja upp
lýsingu hans á Virgin-
íu Woolf, eftir að
hafa séð The Ho-
urs; Spender var
e i n k e n n i l e g a
brilljant gufu-
menni. Svo bíð ég
núna eftir nýjum
bókum tveggja Íslandsvina;
fyrra bindi af lífshlaupi spæns-
ka útgáfustjórans Jaime Sal-
inas, Travesías, eða Flakk, sem
kom út á Spáni í nóvember og
hefur fengið verðlaun og fína
dóma. Hin er Snowleg eftir
Nicholas Shakespeare, sem var
að koma út í Bretlandi og fékk
stjörnudóm í The Economist
síðastliðinn laugardag. Mig er
eiginlega farið að klæja í putt-
ana eftir þeim báðum.“ ■
Krafturinn er
mestur
í Stormi Einars Kárasonar
sem siglir öruggt þessi árin;
Óvinafagnaður var toppbók
og þessi er glettilega vel
heppnuð. Skugga-Baldur
Sjóns er frábærlega stíluð
nóvella, ég hefði þegið hana
helmingi lengri. Splunkunýr
dagur Péturs Gunnarssonar
var óviðjafnanleg stefnuyfir-
lýsing og nýi hlutinn í ljóða-
safninu Að baki daganna
bætir þroskanum við;
móðurminningin er þar
sterkasta lesningin.
,,
Íslensk slagsíða
TÓMAS R. EINARSSON
„Ég er svo í Kíkóta númer
tvö, þar er margt skemmtilegt
en víða teygður fullmikill lopi
fyrir okkur Njálumenn.“