Fréttablaðið - 24.01.2004, Síða 40
36 24. janúar 2004 LAUGARDAGUR
SAHA Í TREYJU NÚMER NÍU
Louis Saha skrifaði í gær undir fimm og
hálfs árs samning við Manchester United.
Félagið greiddi Fulham 12,8 milljónir
punda fyrir leikmanninn.
Fótbolti
hvað?hvar?hvenær?
21 22 23 24 25 26 27
JANÚAR
Laugardagur
Evrópumótið í handbolta:
Omeyer lokaði franska markinu
HANDBOLTI Frakkar sigruðu
Serba/Svartfellinga 23-20 á öðrum
degi Evrópumótsins í handbolta.
Frakkar lögðu grunninn að sigrinum
á síðustu þrettán mínútum fyrri hálf-
leiks þegar þeir skoruðu sex mörk
án þess að Serbarnir næðu svara.
Staðan var 7-7 þegar sautján mínút-
uru voru liðnar af leiknum en þá lok-
aði Thierry Omeyer franska mark-
inu. Frakkarnir skoruðu sex síðustu
mörk fyrri hálfleiks og leiddu 13-7 í
hléi.
Gregory Anquetil lék mjög vel í
fyrri hálfleik og skoraði sex af þrett-
án mörkum Frakkanna. Skyttan Jer-
ome Fernandez meiddist í fyrri hálf-
leik og tók ekki þátt í seinni hálfleik.
Sex til sjö marka munur hélst á
liðunum langt fram eftir seinni hálf-
leik en Júgóslavarnir löguðu stöðuna
undir lokin með fjórum síðustu
mörkum leiksins.
Gregory Anquetil skoraði sex
mörk fyrir Frakka, Nikola Karabatic
fimm, Guillaume Gille fjögur, Joel
Abati, Cedric Burdet og Jerome
Fernandez tvö hver og Olivier
Girault og Christophe Kempe eitt
hvor.
Nenad Maksic var markahæstur
Serba/Svartfellinga með fimm mörk,
Danijel Andjelkovic, Marko Curu-
vija og Ratko Nikolic skoruðu þrjú
hver, Marko Krivokapic og Zikica
Milosavljevic tvö hvor og Ivan
Lapcevic og Vladimir Petric sitt
markið hvor. ■
Gúllassúpa að
hætti Ungverja
Ungverjar unnu slaka og andlausa Íslendinga, 32-29, og skildu þá eftir
stigalausa eftir tvo leiki.
HANDBOLTI Íslenska landsliðið í hand-
knattleik er komið í vond mál eftir
tap gegn Ungverjum, 32-29, í öðrum
leik liðsins í C-riðli Evrópumótsins í
Slóveníu í gærkvöld. Íslenska liðið
hefur nú tapað báðum leikjum sín-
um á mótinu og verður nauðsynlega
að vinna Tékka á morgun til að kom-
ast í milliriðill. Ef sá leikur tapast
fer landsliðið heim, með frímerki af
ódýrari gerðinni á rassinum, strax á
mánudag. Leikurinn var jafn og
spennandi í fyrri hálfleik og það
munaði aldrei meira en þremur
mörkum á liðinum. Ungverjar voru
með frumkvæðið en staðan í hálf-
leik var jöfn, 15-15. Kunnugleg sjón
en það var einnig jafnt í hálfleik í
leiknum gegn Slóvenum á fimmtu-
dagskvöldið. Fyrstu sjö mínútur síð-
ari hálfleiks var allt með sama brag,
liðin skiptust á skora en þá skildu
leiðir.
Ungverjar skoruðu þá fimm
mörk í röð og breyttu stöðunni úr
17-17 í 22-17. Eftir það var alltaf á
brattann að sækja fyrir íslenska
liðið en þeir áttu þó möguleika á
því að jafna leikinn á síðustu mín-
útum leiksins þegar staðan var
31-29 fyrir Ungverja. Þá brenndu
hornamennirnir Guðjón Valur
Sigurðsson og Einar Örn Jónsson
af í hraðaupphlaupum og í fram-
haldinu gulltryggðu Ungverjar
sér sigurinn með marki úr hraða-
upphlaupi. Íslenska liðið var á
hælunum mestallan leikinn og
fjarri því að vera sama lið og stóð
vaktina í Svíþjóð fyrir tveimur
árum og í Portúgal í fyrra. Varn-
arleikurinn var varla til staðar og
hin sterka 6:0 vörn sem oft hefur
komið íslenska liðinu til bjargar
virkaði engan veginn. Íslensku
leikmennirnir gengu ekki út í ung-
versku skytturnar, sem fengu að
valsa um að vild við teiginn. Sókn-
arleikur íslenska liðsins var þung-
lamalegur og hugmyndasnauður
og munaði miklu að Ólafur Stef-
ánsson virkaði þungur og þreytt-
ur. Dagur Sigurðsson hefði betur
verið heima í Austurríki miðað
við frammistöðu hans í dag og
einu ljósu punktarnir voru
frammistaða Jaliesky Garcia og
Snorra Steins Guðjónssonar, sem
sýndi hugrekki miðað við aldur og
reynslu þrátt fyrir að ekki hafi
allt gengið upp hjá honum. Það
hefur fjarað undan íslenska liðinu
í þessari keppni. Væntingarnar
fyrir mótið voru miklar og mark-
miðin hjá hópnum voru skýr; Sig-
ur í riðlinum var skilyrði. Í dag
líta markmiðin hjákátlega út svo
ekki sé meira sagt og spurningin
er hvort íslenska liðið nái að girða
sig í brók og vinna Tékkana á
morgun – það væri ekki til of mik-
ils ætlast.
Ólafur Stefánsson og Jaliesky
Garcia voru markahæstir í ís-
lenska liðinu með sjö mörk, Guð-
jón Valur Sigurðsson skoraði
fimm mörk, Rúnar Sigtryggsson
og Snorri Steinn Guðjónsson skor-
uðu fjögur mörk hvor og Einar
Örn Jónsson og Patrekur Jóhann-
esson skoruðu eitt mark hvor.
Reynir Þór Reynisson varði ellefu
skot í marki Íslands og Guðmund-
ur Hrafnkelsson tvö. Ivo Diaz var
markahæstur hjá Ungverjum
með níu mörk en þeir eru öruggir
í milliriðill og geta tryggt sér sig-
urinn í riðlinum á morgun með því
að leggja Slóvena að velli.
oskar@frettabladid.is
KSÍ:
Tíu milljónir
til félaganna
FÓTBOLTI Stjórn Knattspyrnusam-
bands Íslands ákvað á fundi á
þriðjudag að greiða tæpar tíu millj-
ónir króna til 57 aðildarfélaga KSÍ.
Þetta er þriðja árið í röð sem aðild-
arfélög njóta slíks framlags.
Félög sem sendu lið til keppni í
mót á vegum KSÍ í yngri aldurs-
flokkum utanhúss 2003 fá framlag
frá sambandinu. Félög sem sendu
lið til keppni í yngri flokkum beggja
kynja fá 200.000 krónur hvert, en
félög sem sendu aðeins lið til keppni
í yngri flokkum annars hvors kyns-
ins 125.000 krónur hvert. Félög sem
voru aðilar að einu samvinnufélagi
fá 62.500 krónur hvert. ■
LEIKIR:
12.15 KA og Tindastóll leika í Bog-
anum á Akureyri í Powerade-
mótinu í fótbolta.
13.30 Þróttur Reykjavík leikur við
Þrótt Neskaupstað í íþróttahúsi
Hagaskóla í 1. deild kvenna í
blaki.
14.00 Keflavík keppir við ÍS í Kefla-
vík í 1. deild kvenna í körfubolta.
14.00 ÍBV mætir Víkingi í Eyjum í
RE/MAX deild kvenna.
15.15 Völsungur og Hvöt leika í
Boganum á Akureyri í Powerade-
mótinu í fótbolta.
16.00 KR leikur við Njarðvík í DHL-
höllinni í 1. deild kvenna í körfu-
bolta.
16.00 KA/Þór mætir Fram í KA-
heimilinu í RE/MAX-deild kvenna.
16.00 Grótta/KR og Valur leika á
Seltjarnarnesi í RE/MAX-deild
kvenna í handbolta.
17.00 SA og Björninn keppa í
Skautahöllinni á Akureyri á Ís-
landsmóti karla í íshokkí.
17.30 Þróttur Reykjavík leikur við
HK í íþróttahúsi Hagaskóla í 1.
deild karla í blaki.
SJÓNVARP:
11.45 US Champions Tour 2004 á
Sýn.
12.15 Enski boltinn á Sýn. Bein út-
sending frá leik Scarborough og
Chelsea í 4. umferð bikarkeppn-
innar.
14.00 EM í handbolta á RÚV. Sýnd
verður upptaka af leik Íslendinga
og Ungverja.
14.50 Enski boltinn á Stöð 2. Bein
útsending frá leik Arsenal og
Middlesbrough í 4. umferð bikar-
keppninnar.
14.55 EM í handbolta á RÚV. Bein
útsending frá leik Svía og Sviss-
lendinga.
15.30 Supercross (Edison
International Field) á Sýn.
16.30 EM í handbolta á RÚV. Sýnd
verður upptaka af leik Serba og
Svartfellinga og Frakka.
16.30 Motorworld á Sýn.
17.00 Enski boltinn á Sýn. Bein út-
sending frá leik Liverpool og
Newcastle United í 4. umferð
bikarkeppninnar.
19.25 Spænski boltinn á Sýn. Bein
útsending frá leik Real Madrid og
Villarreal.
22.00 Sterkasti maður heims á Sýn.
22.30 Hnefaleikar á Sýn.
02.00 Hnefaleikar á Sýn. Bein út-
sending frá hnefaleikakeppni í
Atlantic City. Á meðal þeirra sem
mætast eru Arturo Gatti og
Gianluca Branco.
A-LANDSLIÐ KARLA
Leikur gegn Albönum í Tírana í lok mars.
A-landslið karla:
Leikur við
Albani
FÓTBOLTI Íslenska karlalandsliðið
leikur vináttuleik við Albana í
Tírana 31. mars. Leikurinn verður
þriðja viðureign þjóðanna en þær
léku tvisvar í undankeppni EM
1992. Íslendingar unnu 2-0 á Laug-
ardalsvelli með mörkum Atla Eð-
valdssonar og Arnórs Guðjohnsen
en Albanir unnu 1-0 í Tírana með
marki Eduards Abazi.
Albönsku landsliðsmennirnir
leika með félögum í átta löndum.
Miðjumaðurinn Lorik Cana leikur
með Paris St. Germain, sóknar-
maðurinn Igli Tare með Bologna
og miðjumaðurinn Besnik Hasi
með Anderlecht. Þjálfari Albana
er Hans-Peter Briegel, sem lék
með Evrópumeisturum Þjóðverja
árið 1980 og úrslitaleiki HM árin
1982 og 1986. Hann tók við lands-
liðinu í desember 2002 og unnu Al-
banar Rússa 3-1 í fyrsta leiknum
undir stjórn Briegels. ■
FRAKKAR UNNU
Frakkinn Guillaume Gille sækir að vörn
Serba/Svartfellinga en Ivan Lapcevic er til
varnar.
■ Ummæli
UNGVERJALEIKURINN Þjálfari Ung-
verja, Laszlo Skaliczky, er maður
fárra orða og hann lét hafa eftir-
farandi eftir sér á blaðamanna-
fundi í gær. „Þetta var erfiður leik-
ur en við lékum mjög vel og sóknin
okkar var mjög góð. Við spiluðum
betur en Íslendingar og þeir hrein-
lega réðu ekki við okkur í dag.
Vörnin var líka fín hjá okkur og ég
er virkilega ánægður með sigurinn.
Íslenska liðið lagði sig fram allan
leikinn og gafst aldrei upp. Hraða-
upphlaup þess voru fín.“
ÓLAFUR STEFÁNSSON Í KRÖPPUM DANSI MYND/DELO
Ólafur Stefánsson skoraði sjö mörk gegn Ungverjum í gær og var markahæstur ásamt Jaliesky Garcia en fékk oft á tíðum óblíðar
móttökur hjá ungversku varnarmönnunum.