Fréttablaðið - 24.01.2004, Side 45
Fyrrum hljómborðsleikari Jet-hro Tull fór í kynskiptaaðgerð
og er í dag kona. Hann hét áður
David Palmer og skartaði í
gamla daga alskeggi. Nú er hann
66 ára með sítt ljóst hár, farðar
sig, elskar svartar þröngar
sokkabuxur og hefur breytt
nafni sínu í Dee.
Dee átti mjög erfitt með að til-
kynna Ian Anderson, flautuleikandi
höfuðpaur sveitarinnar, tíðindin. Á
endanum settist hann niður með
honum og sagði að hann hefði svolít-
ið sem hann þyrfti að „tappa af sínu
rúmgóða brjósti“.
Anderson stóð við bakið á félaga
sínum en viðurkenndi að hafa átt
mjög erfitt með ákvörðun hans í
fyrstu.
Dee hefur ákveðið að hefja loks-
ins sólóferil sinn. „Ég vil vera
dæmdur út frá tónlist minni en
engu öðru,“ sagði hann í viðtali við
The Evening Standard. Þar segir
hann löngun sína til þess að skipta
um kyn hafa verið „opið leyndar-
mál“ í bransanum og að hann hafi
ákveðið að láta verða af því þegar
eiginkona hans lést fyrir 9 árum síð-
an.
Jethro Tull var stofnuð árið 1968
og er enn starfandi. Palmer hætti þó
árið 1980. ■
LAUGARDAGUR 24. janúar 2003 41
Alfa III
Nýtt námskeið um Fjallræðuna.
Kynning í Neskirkju við
Hagatorg, þriðjudaginn kl. 20.
Kaffi og veitingar.
Séra Örn Bárður Jónsson,
leiðir námskeiðið.
www.neskirkja.is
Hljómborðsleikari Jethro
Tull í kynskiptiaðgerð
JETHRO TULL
Ekki ýkja kvenlegir... eða hvað?
Skrýtnafréttin
JETHRO TULL
■ Hljómborðsleikari Jethro Tull hefur lát-
ið breyta sér í konu.
Jón „góði“ þokkatröll
Hlustendur Rásar 2 völdu JónÓlafsson, hljómborðsleikara
og sjónvarpsmann, kynþokka-
fyllsta mann ársins en valið er ár-
viss viðburður og fer jafnan fram
á bóndadeginum.
Guðni Hauksson, sjómaður í
Bolungarvík, varð í öðru sæti en
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
fréttamaður í Kastljósinu, varð
þriðji. Idolstjarnan Kalli Bjarni
hafnaði í fjórða sæti og Ólafur
Þór Rafnsson byggingaverkfræð-
ingur í því fimmta.
Topp tíu listann fylltu síðan í
þessari röð Vilhelm Anton Jóns-
son Naglbítur, Guðjón Valur Sig-
urðsson, handboltamaður og sig-
urvegari síðasta árs, Jónsi Í svört-
um fötum, Sigfús Sigurðsson
handboltamaður og Jón Sigurðs-
son Idol.
Jón tók niðurstöðunni af sinni
stöku hógværð, leit í spegil og
spurði: „Er þetta virkilega kyn-
þokkafyllsti maður ársins?“ ■
JÓN ÓLAFSSON
Oft nefndur „góði“, var valinn kynþokka-
fyllsti maður ársins af hlustendum Rásar 2
á bóndadeginum í gær.