Fréttablaðið - 24.01.2004, Síða 46
24. janúar 2004 LAUGARDAGUR
Dröfn Þórisdóttir hefur verið for-stöðumaður íslensku bóka-
klúbbanna hjá Eddu um árabil en
hefur nú söðlað um og tekið við af
Pétri Má Ólafssyni sem útgáfustjóri
Vöku-Helgafells. Hún er fyrsta kon-
an hérlendis sem stýrir forlagi af
þessari stærðagráðu en Vaka-
Helgafell gaf út um 100 titla á ári
þegar mest lét. „Mér líst mjög vel á
þetta,“ segir Dröfn. „Þetta er mikil
áskorun og gaman að takast á við
þetta. Vaka-Helgafell hefur alltaf
verið með lifandi bókaútgáfu og
hefur hingað til staðið sig vel gagn-
vart lesendum. Við munum halda
áfram að vera með bækur fyrir
fólkið.“
Hún segir það bæði og hvort
nýja starfið hafi komið henni á
óvart. „Ég hef staðið mig vel í því
sem ég hef verið að gera fyrir bóka-
klúbbana en ég hafði ekkert leitt
hugann að þessu og sóttist ekkert
eftir því. Í bókaklúbbunum hef ég
staðið í útgáfu og hef því reynslu á
þessu sviði. Það sem fer í klúbbana
fer í útgáfu líka.“
Fyrsta verk nýs útgáfustjóra
verður að móta útgáfuáætlun ársins
og fylgja úr hlaði þeim útgáfum
sem eru í undirbúningi.
„Ég hef mikinn áhuga á bókum
og geri mér far um að lesa flestar
þær bækur sem Edda gefur út. Það
er ekki leiðinlegt að geta lesið bæk-
ur í vinnunni.“ ■
Bókaútgáfa
DRÖFN ÞÓRISDÓTTIR
■ Nýr útgáfustjóri Vöku-Helgafells.
Rocky
Mikil áskorun í nýju starfi
DAGBLAÐIÐ VÍSIR 20. TBL. – 94. ÁRG. – [ LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 2004 ] VERÐ KR. 250
Tinna Gunnlaugs:Líklega næstiþjóðleikhússtjóri Bls. 24-25
Geir Sveinsson:Aldrei afturhandbolti Bls. 14–15
Mamma hrekur kjaftasögurnar
Hann hefur játað á sigspilafíkn í breskumfjölmiðlum, sagður verafaðir barns sem hannhefur ekki gengist viðog sagður hafa fagnaðárásunum 11. septem-ber í drykkjutúr ásamtfélögum úr Chelsea. En
móðir hans, ÓlöfEinarsdóttir, segir leik-menn á borð við Eiðeiga litla möguleika áað hrekja hina hörðu ogósanngjörnu bresku
pressu.
Spilafíkn,
framhjáhald ogdrykkjuskapur
BRESKU BLÖÐINUM EIÐ SMÁRA:
Barist við vonda kafarann
Dáðadrengir unnu Músíktil-raunir örugglega í fyrra og
slógu eftirminnilega í gegn á
Airwaves-tónlistarhátíðinni. Nú
vinnur hópurinn að sinni fyrstu
plötu og stefnt er á útgáfu í ár.
Ólíkt rokksveitinni Mínus er ekki
unnið hörðum höndum að því að
viðhalda rokkímyndinni.
„Vanalega eyðum við laugar-
dagskvöldum í að gera eitthvað
ógeðslega nördalegt, okkur finnst
það geðveikt skemmtilegt. Þá
spilum við Risk eða Catan langt
fram á nóttu,“ segir Kalli, höfuð-
paur Dáðadrengja. „Þá höfum við
oft gert grín að því hvað við erum
miklar rokkstjörnur. Við vitum
kannski á sama tíma af einhverj-
um rokkstjörnum á fylleríi eða í
dóppartíum.“
Kalli tekur það reyndar fram
að hið týpíska laugardagskvöld sé
ekki til í lífi Dáðadrengja. „Það er
alltaf eftirvænting eftir þessum
kvöldum. Það sem við vonumst
helst að gerist er að við lendum í
ævintýrum. Við reynum þó ekki
að búa þau til sjálfir því ef maður
gerir það þá eru þau ekki jafn
skemmtileg. Við lendum líka oft í
því að enda niðri í bæ einhvers
staðar í tómu rugli. Hauslausir,
gubbandi á einhverjar stelpur.
Það er mjög skemmtilegt líka. Ef
þær svo eru á eftir þessu rokk-
stjörnulíferni, þá fíla þær það
bara líka.“
Eftir Risk-spilamennskuna eða
gubbið verða hlutir svo ögn súrari.
Kvöldið í kvöld gæti þannig orðið
mjög eftirminnilegt. „Við getum
tekið inn alls konar eiturlyf og hitt
skrýtið fólk?“ veltir Kalli fyrir
sér, hugsar sig stuttlega um og sér
svo fljótlega að það gengur ekki
upp. „Við tökum engin eiturlyf í al-
vörunni. Ætlum við verðum ekki
að reyna að berjast við vonda kaf-
arann? Hann er alltaf í höfninni,
sundlaugum eða hvar sem vatn er
að finna. Hann getur ekki farið
upp á land. Ef hann er að plotta
með vondu gaurunum þá þurfa
þeir að hitta hann í höfninni. Við
förum niður á höfn, stökkvum á
hann eða reynum að kyrkja hann.“
Já, það verður fjör á Kleppi í
kvöld. ■
Laugardagskvöld
KALLI DÁÐADRENGUR
■ Það eru ekki allar poppstjörnur í rugl-
inu. Kalli úr Dáðadrengjum á það jafnvel
til að spila Risk eða Catan langt fram eft-
ir nóttu á laugardagskvöldum.
KALLI DÁÐADRENGUR
Vonast eftir því að lenda í ævintýrum í kvöld.
1
6 7
8 9
14
16 17
15
18
2 3 4
1311
10
12
5
Lárétt: 1 pyttir, 6 málm, 7 tónn, 8 tveir
eins, 9 umboðsstjórnarsvæði, 10 gerast,
12 útlim, 14 hrós, 15 stafur, 16 tímabil,
17 ganghljóð, 18 rétt.
Lóðrétt: 1 kari, 2 ásynja, 3 félag, 4 spor,
5 bók, 9 keyra, 11 úa og grúa, 13 fugla,
14 læsing, 17 tveir eins.
Lausn:
Lárétt: 1keldur, 6eir, 7mi,8rr, 9amt,
10ske,12arm,14lof, 13ká,16ár, 17tif,
18satt.
Lóðrétt: 1keri,2eir, 3lr, 4ummerki,5
rit,9aka,11mora,13máfa,14lás,17tt.
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Ólafur Gunnarsson.
Gunnar Örn Kristjánsson.
28-34.
„Ég þekki fullt af hárgreiðslumeisturum! Ég
ætla að vera DJ á einhverjum ógeðslega kúl
skemmtistað! Ég er svo æði! Ég er með
símann hjá Dorrit!“ LÚÐAR!
DRÖFN ÞÓRISDÓTTIR
Hefur tekið við sem útgáfustjóri Vöku-
Helgafells.
Pældu í hvað það er niðurdrepandi að það er nóg til að
komast fram fyrir í röðinni á kjötmarkaðinn að hafa ein-
hvern tíma verið í einhverju steingeldu og ömurlegu
raunveruleikasjói í sjónvarpinu! Ætti ekki að senda
þetta lið aftur í heimaþorpin þegar maður er kominn
með ógeð á því og það hefur fengið að kíkja í bæinn?
Einmitt! Ef það eina sem maður er þekktur fyrir er að
hafa fengið niðurgang á besta útsendingartíma ætti að
vera lögbundin skylda að sækja um varanlegt dvalar-
leyfi ef maður ætlar eitthvað að stoppa hérna!
Yo!
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
LD
A
LÓ
A