Fréttablaðið - 26.01.2004, Síða 1
ALDRAÐIR Reykaðstaða heimilis-
fólksins á Hrafnistu í Reykjavík
er lítið nokkurra fermetra glugga-
laust herbergi.
Starfsmaður heimilisins, sem
ekki vill láta nafns síns getið, seg-
ir aðstöðuna vera fyrir neðan allar
hellur og ekki gamla fólkinu bjóð-
andi. Þetta sé heimili fólksins og
því eigi þeir sem reyki rétt á al-
mennilegri aðstöðu. Auk þess sem
reykherbergið er mjög lítið og
gluggalaust, er enginn öryggis-
hnappur inni í því sem býður
hættunni heim. Starfsmaðurinn
segir að ef eitthvað komi fyrir
inni í herberginu sé hætta á að
viðkomandi verði bjargarlaus og
geti ekki kallað eftir hjálp.
Mikill reykur myndast inni í
herberginu þegar heimilisfólkið
fær sér að reykja. Til þess að
bæta andrúmsloftið hefur verið
sett upp vifta sem fer sjálfkrafa í
gang þegar ljósið í herberginu er
kveikt. Starfsmaðurinn segir að
margir hinna öldruðu íbúa hafi
kvartað sárlega undan þessu því
viftan trufli heyrnartækin þeirra.
Hann segir ljóst að þetta gangi
ekki svona til lengdar. Fyrir rúmu
ári síðan hafi yfirstjórn Hrafnistu
lofað að bæta úr þessu en ekkert
hafi enn verið gert.
Sveinn Skúlason, forstjóri
Hrafnistu, segist taka undir það
að aðstaðan sé alls ekki nægilega
góð. Það standi hins vegar til að
bæta úr henni samfara breyting-
um á anddyri hússins í vor.
„Það þýðir að reykherbergið
verður flutt þar sem anddyrið er,“
segir Sveinn. „Það er stefnt að því
að herbergið verði mun betra –
stærra og með gluggum.“
Samkvæmt starfsmanninum
hefur gamla fólkið líka kvartað
undan því að ekki sé lengur hægt
að fara út á svalir hússins.
Ástæðan fyrir því sé að vegna
átaks gegn reykingum starfs-
manna hafi svölunum verið læst.
Sumir starfsmenn hafi átt það til
að fara út á svalir að reykja.
Sveinn segir það rétt að Hrafn-
ista sé með átak í gangi gegn
reykingum starfsmanna. Það
hafi tíðkast í einhverjum mæli
að starfsmenn hafi reykt úti á
svölum, þó það sé stranglega
bannað samkvæmt lögum. Hins
vegar sé það ekki rétt að svölun-
um hafi verið læst vegna reyk-
inga starfsmanna. Reyndar séu
svalirnar læstar eftir klukkan
fimm á daginn en þannig hafi
það lengi verið. Hann segir að til
að hjálpa starfsmönnum að
hætta reykingum hafi heimilið
boðið þeim nikótínplástra og
nikótíntyggjó.
trausti@frettabladid.is
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 22
Sjónvarp 28
MÁNUDAGUR
FJÖLSKYLDUVIKA Í HÍ Í dag hefst
fyrsta fjölskylduvika stúdentaráðs Háskóla
Íslands. Hugo Þórisson flytur fyrirlestur
um uppeldi barna í sal 101 í Odda og
boðið verður upp á fimleikakennslu fyrir
börn stúdenta. Dagskráin stendur fram á
miðvikudag.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
HELDUR HLÝNANDI VESTAN TIL
Það ætti að vera orðið frostlaust um eða
eftir hádegi. Áfram kalt allra austast. Úr-
komulítið á landinu öllu. Rofar heldur til
síðdegis. Sjá síðu 6
● húseigendafélagið
● allt um mottur▲
FYLGIR BLAÐINU Í DAG
Verslunin Brynja
er 85 ára
Björn Snæbjörnsson:
26. janúar 2004 – 25. tölublað – 4. árgangur
● 34 ára í dag
Bjarni Benediktsson:
▲
SÍÐA 17
Hvíld milli
þorrablóta
● amma má ekki vita
Mínus:
▲
SÍÐA 30
Fleiri
yfirlýsingar
YNGSTI ÞJÓÐARLEIÐTOGINN Mikhail
Saakashvili, sem tók formlega við embætti
forseta Georgíu við hátíðalega athöfn í höfuð-
borginni Tbilisi í gær, er yngsti þjóðarleiðtogi
Evrópu, aðeins 36 ára. Sjá síðu 4
RÚMRA 400 MILLJARÐA EINKA-
NEYSLA Heimilin í landinu vörðu meira en
400 milljörðum króna í einkaneyslu í hittið-
fyrra. Einkaneyslan hefur aukist um 25 millj-
arða króna á tveimur árum en þjóðin fjárfestir
minna en áður. Sjá síðu 2
SELDI ÍBÚÐ SEM HANN ÁTTI EKKI
Ungt par lenti í vandræðum þegar það keypti
íbúð. Sá sem seldi hana hafði misst hana út
úr höndunum og neitaði bankinn, sem hafði
eignast íbúðina, að samþykkja sölu á um-
sömdu verði. Sjá síðu 4
ÓVISSA UM GEREYÐINGARVOPN
Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, segir ekki vissu fyrir því að Írakar hafi
átt gereyðingarvopn þegar ráðist var inn í
landið. Halldór Ásgrímsson hefur ekki trú á að
Írakar hafi náð að eyða öllum gereyðingar-
vopnum sínum. Sjá síðu 2
VÖRUFLUTNINGAR Lögreglumaður og
héraðslögregluþjónn vinna sem
afleysingabílstjórar hjá Vöru-
afgreiðslunni á Patreksfirði. Fyr-
irtækið hefur sinnt vöruflutning-
um um rúmlega tveggja ára skeið
án þess að hafa rekstrarleyfi. Því
er reksturinn ólöglegur að sögn
Vegagerðarinnar og hefði átt að
vera stöðvaður af sýslumanni.
Helgi Auðunsson, fram-
kvæmdastjóri Vöruafgreiðslunnar,
staðfestir störf mannanna tveggja
en segir ekkert athugavert við
starfsemina. „Það er mjög algengt
að fyrirtæki í vöruflutningum séu
ekki með rekstrarleyfi.“
Á bæjarráðsfundi í Vestur-
byggð var samþykkt að sækja um
styrk frá samgönguráðuneytinu
til að efla vöruflutninga inn og út
af svæðinu.
„Bæjarstjórn Vesturbyggðar
samþykkti að fela Brynjólfi Gísla-
syni bæjarstjóra að sækja um
styrkinn,“ segir Jón B. G. Jónsson,
forseti bæjarstjórnar. „Ég veit
ekki hvenær er von á svari frá
samgönguráðuneytinu.“ Hann
segir að engin ákvörðun hafi verið
tekin um hvernig styrknum verði
varið eða hvort hann renni til
Vöruafgreiðslunnar. Hann þver-
tekur fyrir að það hafi verið rætt í
bæjarstjórn og verði vart gert
fyrr en svar berst. ■
Vifta í reykherbergi
truflar heyrnartæki
Starfsmaður Hrafnistu gagnrýnir aðbúnað heimilisfólks. Reykherbergið er lítið og gluggalaust
og þar er enginn öryggishnappur. Forstjórinn segir að aðstaðan verði bætt á næstu mánuðum.
Sérstakt átak í gangi gegn reykingum starfsmanna.
Flutningafyrirtæki starfar án rekstrarleyfis:
Lögreglumenn starfa
við ólöglega flutninga
FJÖLDI Á SKJALDBREIÐ Viktor Einar naut útiverunnar á Skjaldbreið í gær. Nokkur fjöldi fólks lagði leið sína þangað, hvort tveggja á
jeppum og snjósleðum. Sólin skein skært á ferðalanga sem nýttu sér tækifærið sem stillt veðrið gaf fólki til útiveru þrátt fyrir mikið frost.
EM-draumurinn úti:
Mjög sárt
HANDBOLTI „Þetta eru geysilega mik-
il vonbrigði og það er mjög sárt að
upplifa að vera dottinn út því það
vantaði aðeins herslumuninn að við
færum áfram í þessu móti,“ sagði
Guðmundur Guðmundsson, lands-
liðsþjálfari í handbolta, eftir að ís-
lenska liðið féll út af Evrópumótinu
í handbolta. Ísland gerði jafntefli
við Tékka en þurfti að vinna til að
komast áfram.
„Það er gríðarlega sárt að aðeins
hafi vantað eitt mark og mér fannst
í þessari keppni að herslumuninn
hafi vantað til þess að fylgja þessu
eftir í 60 mínútur. Við spilum á köfl-
um mjög vel en það eru of miklar
sveiflur í leiknum. Við erum alltaf í
vænlegri stöðu en svo vantar yfir-
vegun og þar að auki höfum við ekki
efni á að klúðra svona mörgum
dauðafærum.“ Sjá síðu 24
Langar í Subaru
VRC rallbíl
bílar o.fl.
Rúnar Jónsson:
▲SÍÐA 18
● nýr freelander
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M