Fréttablaðið - 27.01.2004, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 24
Sjónvarp 28
ÞRIÐJUDAGUR
„AF HVERJU LÆTUR MAMMA
SVONA?“ Í kvöld klukkan 20 flytur
Svava Aradóttir erindi á vegum Félags
áhugafólks og aðstandenda Alzheimer-
sjúklinga og annarra minnissjúkra. Fund-
urinn er haldinn í Skógarbæ, Árskógum.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
GÆTI VÍÐA ORÐIÐ BJARTVIÐRI
Með hægviðri vestantil en dálitlum vindi á
Norðausturlandi. Afskaplega aðgerðalítið
veður. Frostlaust yfir daginn suðvestan- og
vestantil, annars frost. Sjá síðu 6
27. janúar 2004 – 26. tölublað – 4. árgangur
● sýning á ferð og flugi
Thalamus:
▲
SÍÐA 30
In
Transit
● 30 ára í dag
Þór Steinarsson:
▲
SÍÐA 15
Sósíalískt
afmæli
● loksins vann hringurinn
Golden Globe:
▲
SÍÐA 29
Forleikur að
Óskari
● fótaaðgerð eða -snyrting?
Erfðabreyttar lífverur
geta breytt miklu
heilsa o.fl.
Jónína Þ. Stefánsdóttir:
▲
SÍÐA 18 og 19
DEAN DREGUR Á KERRY Litlu mun-
ar á tveimur sigurstranglegustu frambjóð-
endunum í prófkjöri demókrata í New
Hampshire. John Kerry nýtur stuðnings
31% væntanlegra kjósenda en Howard
Dean má vænta 28% samkvæmt nýrri
skoðanakönnun. Sjá síðu 9
ÁBYRGÐ VERÐI SKOÐUÐ Félagar í
Tryggingasjóði lækna vilja að ábyrgð Gunn-
ars Arnar Kristjánssonar, fráfarandi forstjóra
SÍF, verði skoðuð. Hann var endurskoðandi
sjóðsins þegar framkvæmdastjóri dró sér
fé. Sjá síðu 2
LÆKKA Í LAUNUM Starfsfólk þvotta-
húss sjúkrahússins á Húsavík lækkar í laun-
um um 20% við það að nýtt fyrirtæki tekur
við rekstri þvottahússins. Formanni verka-
lýðsfélagsins finnst slæm kynning á nýju
fyrirtæki að lækka lág laun. Sjá síðu 8
UMBÓTASINNAR ÆFIR Æðstaráð
klerkastjórnarinnar í Íran beitti neitunar-
valdi gegn lagabreytingu þingsins sem átti
að tryggja rétt umbótasinna til að bjóða
fram í komandi þingkosningum. Umbóta-
sinnar eru æfir. Sjá síðu 10
ÍRAK „Ef í ljós kemur, eins og nú
er haldið fram, að Írakar hafi
ekki verið að þróa áfram gereyð-
ingarvopn, og jafnvel ekki átt
þau, þá er það mikið áfall fyrir
helstu leyniþjónustur heims, og
jafnframt Bandaríkjamenn og
Breta. Leyniþjónustur fullyrtu að
Írakar væru að byggja upp
vopnabúr, þar með talin gereyð-
ingarvopn. Írakar hafa aldrei
gert hreint fyrir sínum dyrum og
höfnuðu samvinnu við vopnaeft-
irlitsmenn Sameinuðu þjóðanna.
Það er eitthvað sem kemur ekki
heim og saman í þessu máli,“ seg-
ir Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra.
Halldór telur það alvarlegt ef
upplýsingarnar reynast ekki rétt-
ar, ekki síst þar sem afdrifaríkar
ákvarðanir hafi verið teknar á
grundvelli þeirra. Fullsnemmt sé
þó að slá einhverju föstu.
„Íslensk stjórnvöld tóku ekki
þátt í innrásinni í Írak, heldur
studdu aðgerðir um að koma lög-
um yfir einn harðsvírasta harð-
stjóra mannkynssögunnar sem
ógnaði allri heimsbyggðinni. Það
er mikilvægt fyrir okkur að geta
treyst þeim upplýsingum sem
koma frá leyniþjónustum risa-
veldanna, en það er ekki ólíklegt
að gert hafi verið meira úr ger-
eyðingarvopnaeign Íraka en efni
stóðu til. Leyniþjónusturnar hafa
beðið álitshnekki og það er ljóst að
menn munu síður treysta upplýs-
ingum þeirra í framtíðinni,“ segir
utanríkisráðherra.
Sjá síðu 4
Halldór Ásgrímsson um hugsanleg gereyðingarvopn í Írak:
Erfitt að treysta leyniþjónustum
LJÓS Á HIMNI Fólk dreif að hallartorginu í St. Pétursborg í gær þegar þess var minnst að 60 ár eru liðin frá því að 900 daga löngu um-
sátri þýskra hersveita um borgina, sem þá hét Leníngrad, var hrundið í síðari heimsstyrjöld. Ljósgeislarnir sem lýstu upp himininn yfir St..
Pétursborg voru tákn fyrir leitarljósin sem voru notuð til að finna sprengjuvélar á flugi yfir borginni meðan á umsátrinu stóð.
Strætisvagnabílstjórar
reknir:
Með bjór
undir stýri
KAUPMANNAHÖFN Tveir danskir
strætisvagnabílstjórar hafa verið
reknir fyrir að drekka áfengi í
vinnunni. Annar bílstjórinn var
stöðvaður af lögreglunni þegar
hann ók á ólöglegum hraða í mið-
bæ Kaupmannahafnar með bjór í
annarri hendi.
Farþegi í strætisvagni hafði
samband við lögreglu þegar hann
sá að bílstjórinn var að drekka
bjór undir stýri. Lögreglan stöðv-
aði fyrst vitlausan strætisvagna-
bílstjóra en sá reyndist einnig hafa
drukkið bjór áður en hann mætti í
vinnu. Áfengismagnið í blóði hans
reyndist óverulegt og var hann því
ekki handtekinn. Hinn bílstjórinn
mældist aftur á móti með rúmlega
eitt prómill af áfengi í blóðinu og
var sviptur ökuleyfi. ■
ÓLAFUR SKORRDAL
Kennir fólki að rækta kannabis.
Námskeið:
Kennir fólki
kannabisrækt
KANNABIS Kannabisræktun er ólög-
leg en það er ekki ólöglegt að kenna
fólki að rækta kannabis. Þetta
hyggst Ólafur Skorrdal nýta sér en
hann býður fólki upp á námskeið í
ræktun kannabis.
„Við munum halda námskeiðið á
mörgum stöðum. Fólk fær ekki að
vita hvar námskeiðið verður fyrr en
skömmu áður en það verður hald-
ið,“ segir Ólafur og segir það gert til
að lögreglan sé ekki að hafa afskipti
af námskeiðinu, auk þess sem þeir
sem sæki námskeiðin vilji væntan-
lega ekki að fylgst sé með þeim.
Hreint sakavottorð þarf til þess
að sitja námskeiðið. Sjá síðu 6
Ráðandi hlutur í
Flugleiðum seldur
Samningar um kaup á ráðandi hlut í Flugleiðum voru undirritaðir í gær-
kvöldi. Oddaflug sem er í eigu Jóns Helga Guðmundssonar og Hannesar
Smárasonar keypti 38,5% hlut í Flugleiðum af Straumi og Íslandsbanka.
VIÐSKIPTI Oddaflug hf., félag í eigu
eignarhaldsfélaga Jóns Helga Guð-
mundssonar í BYKÓ og Hannesar
Smárasonar, aðstoðarforstjóra Ís-
lenskrar erfðagreiningar, keypti í
gær 38,5% hlut í Flugleiðum. Selj-
endur eru Straumur fjárfestingar-
banki, sem selur 32,7%, Sjóvá-Al-
mennar með fjögur prósent og Ís-
landsbanki með 1,8%. Gengið í
þessum viðskiptum er sjö krónur á
hlut. Verðmæti viðskiptanna er því
um 6,3 milljarðar króna.
Þórður Már Jóhannesson, fram-
kvæmdastjóri Straums, og Hannes
Smárason segja viðskiptin hafa átt
sér skamman aðdraganda. Hannes
segir að markmið þeirra með fjár-
festingunni sé að eiga þennan hlut
til lengri tíma. „Kaupin nú eru lið-
ur í því að koma festu á eignarhald
Flugleiða og í framhaldinu verður
aðkoma annarra fjárfesta skoðuð.“
Hannes segir Flugleiðir gegna
lykilhlutverki í samgöngum lands-
ins og vera í forystu ferðaþjónust-
unnar, einnar mikilvægustu at-
vinnugreinar landsins. „Við teljum
fyrirtækið afar áhugavert og bjóða
upp á spennandi tækifæri til auk-
innar arðsemi og vaxtar.“
Þórður Már Jóhannesson segir
þessi viðskipti afar góð fyrir
Straum og hluthafa hans. „Við
erum mjög sátt við þessa niður-
stöðu.“ Hann vill ekki tjá sig um
söluhagnað Straums. Straumur
eignaðist hlutinn í stórum við-
skiptum á haustmánuðum þegar
eignum Burðaráss var skipt á
milli Landsbanka, Íslandsbanka
og Straums. Gera má ráð fyrir að
hagnaður Straums sé allt að einn
og hálfur milljarður króna.
Hannes segir að ekki hafi verið
haft samráð við stjórnendur Flug-
leiða í aðdraganda kaupanna. „Við
hittum þá eftir undirritun og fór-
um yfir málin og fengum jákvæð
viðbrögð við þessum viðskiptum.“
haflidi@frettabladid.is
FLUGLEIÐIR SELDAR
Þórður Már Jóhannesson, framkvæmda-
stjóri Straums Fjárfestingarbanka, og Hann-
es Smárason eftir að gengið hafði verið frá
viðskiptum með ráðandi hlut í Flugleiðum.
Varnarlið Ulster:
Vilja koma
að viðræðum
DUBLIN, AP Leiðtogar Varnarliðs
Ulster, ólöglegra samtaka mótmæl-
enda sem berjast gegn kaþólikkum
á Norður-Írlandi, funduðu í gær
með Bertie Ahern, forsætisráð-
herra Írlands, og sóttust eftir því
að fá að taka þátt í viðræðum um
skiptingu valda á Norður-Írlandi.
Fundurinn þykir til marks um
mikil sinnaskipti þar sem samtökin
hafa barist gegn friðarsamkomu-
lagi og hafa myrt fjölda kaþólikka. Í
næsta mánuði verður þó ár liðið síð-
an samtökin lýstu yfir vopnahléi,
sem bresk stjórnvöld hafa neitað að
viðurkenna þar sem samtökin teng-
ist enn ofbeldisverkum. ■