Fréttablaðið - 28.01.2004, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 23
Sjónvarp 28
MIÐVIKUDAGUR
ÞINGMENN SNÚA AFTUR
Alþingi fundar í dag í fyrsta sinn frá því
fyrir jól. Í dag verður utandagskrár-
umræða um Íraksmál og fyrirspurnatími
þar sem ráðherrar svara fyrirfram
ákveðnum spurningum þingmanna.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
HÆGAR BREYTILEGAR ÁTTIR Með
frosti víðast hvar, síst þó með ströndum
vestan til. Vægt frost í borginni en veðrið
þar verður bjart og fallegt. Sjá síðu 6.
28. janúar 2004 – 27. tölublað – 4. árgangur
● aðgengilegt í bókabúðum
Feministar:
▲
SÍÐA 30
Kæra gróft
klám
● 53 ára í dag
Þórhildur Líndal:
▲
SÍÐA 16
Göfugt að gæta
barna
● nói albínói ekki með
Óskarsverðlaunin:
▲
SÍÐA 29
Hringurinn með
11 tilnefningar
● hópferðir í enskuskóla ● don kíkóti
Börnin lifa sig inn
í námsefnið
nám o.fl.
Ása Helga Ragnarsdóttir:
▲
SÍÐA 18 og 19
HÓTA AÐ GANGA ÚT Starfsmenn
leikskólans Olgukots hafa ekki fengið
greidd laun fyrir desember. Þeir hafa gef-
ið stjórnendum skólans frest til laugar-
dags til að ganga frá greiðslu launa ella
gangi þeir út. Sjá síðu 2
DÝRARI LYF Lyfjakostnaður hækkaði
um 49% á árunum 1999–2002. Mest
hækkaði lyfjakostnaður hjá Heilbrigðis-
stofnun Þingeyinga, þar rúmlega tvöfaldað-
ist kostnaðurinn. Sjá síðu 6
MESTI HAGNAÐUR ÍSLANDS-
BANKA Íslandsbanki hagnaðist um tæpa
sex milljarða á síðasta ári og fær hver og
einn starfsmaður 240.000 krónur í
kaupauka vegna þess. Eignir bankans eru
komnar í 444 milljarða króna. Sjá síðu 10
KOMIÐ FYRIR DÓMSTÓLA Mál
Sparisjóðs Mýrarsýslu gegn Kaupfélagi Ár-
nesinga vegna kaupa sparisjóðsins á 30
milljóna króna víxli frá eignarhaldsfélaginu
Brú hefur verið þingfest. Sparisjóðurinn vill
fá víxilinn greiddan að fullu. Sjá síðu 2
HEILBRIGÐISMÁL „Á meðan ekki
liggur fyrir tillaga um aðra út-
færslu, sem nær sömu markmið-
um að spara fé, þá stendur fyrri
ákvörðun,“ sagði Jóhannes M.
Gunnarsson, lækningaforstjóri
Landspítala-háskólasjúkrahúss,
um fyrirhugaða helgarlokun
bráðamóttöku við Hringbraut.
Á fundi framkvæmdastjórnar
spítalans var fjallað um bráðamót-
tökuna, en áform um helgarlokun
hafa fengið mikinn andbyr. Stéttar-
félög, launþega-
samtök og hags-
munasamtök hafa
mótmælt sparnað-
a r á f o r m u n u m
kröftuglega og
bent á að aðgerð-
irnar skerði ör-
yggi sjúklinga
verulega.
Meðal þeirra
sem hafa mót-
mælt eru Lands-
samtök hjarta-
sjúklinga. Í álykt-
un þeirra segir að
stjórn LSH hafi „ekki leyfi“ til að
draga úr þjónustu bráðamóttök-
unnar og þar með að draga úr lífs-
og batalíkum sjúklinga. Aðgerð-
irnar muni ekki skila sér í sparn-
aði þegar upp verði staðið. Fjórir
til fimm veikist af hjartasjúkdóm-
um á hverjum sólarhring. Hættan
sé alvarleg alla daga ársins.
„Sviðsstjórum hefur verið falið
að reyna að finna leið sem skilar
sama fé og skaðar starfsemina
minna,“ sagði Jóhannes. Hann
sagði, að sparnaðartalan sem
nefnd hefði verið í tengslum við
helgarlokun bráðamóttökunnar
hefði verið misvísandi. Talað
hefði verið um nítján milljóna
sparnað. Ef ekki væri gert ráð
fyrir neinum breytingum á starfs-
fólki myndi lokunin ein og sér
skila 35 milljónum króna.
„Það er ekki á okkar færi að
draga tilkynningar um áformaðar
uppsagnir til baka. Það verður
ekki gert,“ sagði Jóhannes spurð-
ur um viðbrögð við fram komnum
kröfum Bandalags háskólamanna
þess efnis. Hann sagði að spítalinn
hefði sent fulltrúum BHM bréf,
þar sem þetta hefði komið fram,
svo og að unnið yrði eftir föngum
með þeim að öflun þeirra upplýs-
inga sem þeir hefðu óskað eftir.
jss@frettabladid.is
FULLSETINN AUSTURBÆR
„Nú er nóg komið, nú er okkur að mæta,“ sagði Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags Íslands, á fundi um málefni Land-
spítala háskólasjúkrahúss. Húsfylli var á fundinum sem allmörg samtök efndu til í Austurbæ í gær til að mótmæla niðurskurði í heilbrigð-
iskerfinu. Ræðumenn létu í sér heyra og salurinn tók undir með lófataki.
Mótmælafundur:
Tefla lífi í
hættu
MÓMÆLI „Við verðum að spyrna
við fótunum taka höndum saman
til að hindra þessa mannfyrirlitn-
ingarstefnu,“ sagði Sigursteinn
Másson, formaður Geðhjálpar, á
fjölmennum fundi í Austurbæ í
gær þar sem þess var krafist að
stjórnvöld endurskoðuðu fjárveit-
ingar til Landspítala-háskóla-
sjúkrahúss. Hann hvatti fólk
einnig til að hafna kvótakerfi í
heilbrigðiskerfinu, því þörf og
vilji væri fyrir fyrsta flokks heil-
brigðiskerfi fyrir alla.
„Nú er nóg komið, nú er okkur
að mæta,“ sagði Kristín Á. Guð-
mundsdóttir, formaður sjúkra-
liðafélags Íslands. Hún talaði um
að verið væri að svipta fólk
atvinnu og þrengja að stærsta
sjúkrahúsi landsins. Hún sagði
niðurskurðinn, handstýrða stefnu
ríkisstjórnarinnar, vera vilja rík-
isstjórnarinnar til að einkavæða
heilbrigðisþjónustuna þó til þess
þurfi að tefla jafnvel lífi og heilsu
fólks í hættu.
Að fundinum stóðu Geðhjálp,
Landssamband eldri borgara,
Landssamtök hjartasjúkra, Um-
hyggja, Öryrkjabandalag Íslands,
ASÍ, BHM, BSRB og Læknafélag
Íslands. ■
„ Það er
ekki á okkar
færi að
draga til-
kynningar
um áformað-
ar uppsagnir
til baka. Það
verður ekki
gert.
JÓHANNES M. GUNNARSSON
Fyrri ákvörðun stendur meðan ekki liggur fyrir tillaga sem nær sama
sparnaði og skaðar starfsemina minna.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Reyna að forðast
lokun um helgar
Sviðsstjórum slysa- og bráðasviðs og lyflækningasviðs Landspítalans
hefur verið falið að gera tillögur um leiðir sem koma mættu í stað
fyrirhugaðrar lokunar bráðamóttöku við Hringbraut um helgar.
Tony Blair:
Sigraði með
naumindum
LONDON, AP Tony Blair vann mikil-
vægan áfangasigur þegar þing-
menn samþykktu frumvarp
stjórnar hans um
hækkun skóla-
gjalda á háskóla-
stigi með aðeins
fimm atkvæða
mun, 316 atkvæð-
um gegn 311.
72 þingmenn
V e r k a m a n n a -
flokksins greiddu
atkvæði gegn
frumvarpinu og leit lengi vel út
fyrir að þeir kynnu að verða fleiri.
Mikil áhersla var hins vegar lögð
á að þingmenn flokksins greiddu
atkvæði með frumvarpinu svo
þeir veiktu stöðu Tony Blairs ekki
um of. ■
Þingflokkur Samfylkingar:
Skipt um
formann
STJÓRNMÁL Margrét Frímannsdóttir
var í gær kjörin þingflokksfor-
maður Samfylkingar eftir að Bryn-
dís Hlöðversdóttir, sem gegnt hefur
starfinu frá því á síðasta kjörtíma-
bili, lét af því.
„Ég hef tekið þá ákvörðun í ljósi
breytinga á mínum persónulegum
högum að sinna fyrst og fremst
þingmannsstarfinu og þeim póli-
tísku verkefnum sem því fylgja um
sinn. Ég er ekki að senda einhver
pólitísk skilaboð með þessu og er
ekki að hætta í pólitík. Ég þurfti ein-
faldlega að gefa mér svolítið and-
rými,“ segir Bryndís. ■
TONY BLAIR
Hafði sigur í
kosningunni.