Tíminn - 26.10.1971, Qupperneq 9

Tíminn - 26.10.1971, Qupperneq 9
ÍÞRÓTTIR 9 ÞREÐJUDAGUR 26. október 1971 TÍMINN ÍÞRÓTTIR Bikarkeppni KKÍ KR vann Þór 50:49 Þórsaramir komust í 10 stig yfir, en KR-ingar skoruðu 11 síðustu stigin. KR-ingar sigruðu Þór á Akur- eyri í Bikarkeppni KKÍ í íþrótta- skemmunni á Akureyri á laugar- daginn með eins stigs mun 50:49. Með þessum sigri sló KR Þór út og mun mæta Ármanni í undan- úrslitum um næstu helgi. Þessi leikur var all sögulegur og einn sá mest spennandi sem fram hefur farið í íþróttaskemm- unni í langan tíma. Var spenn- ingurinn slíkur, að áhorfendurnir öskruðu á KR-inga í leikslok, enda þótti þeim súrt að tapa með svona litlum mun. KR-ingar byrjuðu vel og komust 10 stig yfir í fyrri hálfleik. Þeir höfðu yfirburði á mörgum svið- um, og kom þeim sjálfum það víst nokkuð á óvart, því að þeir hafa ekkert æft undanfarnar vikur, þar sém þeir hafa ekki fengið inni í sínu eigin heimili, KR-heimilinu. Þegar staðan var 37:29 fyrir KR, hrökk allt í baklás hjá þeim og Akureyringar sendu knöttinn á færibandi niður í körfuna. Skor- uðu þeir 20 stig gegn aðeins 2 stigum KR á örfáum mínútum og komust 10 st. yfir 49:39. Þá tóku KR-ingar til sinna ráða og hófu að leika „maður á mann“ um allan völl. Við þessu áttu Þórs- arar ekkert svar og þeir hreinlega brotnuðu. KR-ingar með Ein- ar Bollason í fararbroddi tóku knöttinn af þeim hvað eftir annað og létu þá síðan brjóta á sér undir körfunni, þar sem Einar tók 6 víti og sendi 5 þeirra niður. Söx- uðu þeir á bilið jafnt og þétt, og þegar 1 mín. var til leiksloka voru þeir búnir að skora 11 stig og komnir 1 stig yfir. Þórsarar hófu upphlaup en misstu knöttinn eins og fyrr og þar með fór draum urinn um sigur í leiknum, því KR-ingar héldu knettinum síðustu sekúndurnar. Þórsararnir voru betri aðilirfn í leiknum og áttu skilið að fara með sigur af hólmi. En þeir voru fádæma klaufskir síðustu mín. Framhald á 11. síðu. Meistaraflokkur kvenna Jafntefli hjá Fram og Val Tveir leikir fóru fram í meist- araflokki kvenna í Reykjavíkur- mótinu í handknattleik á laugar- daginn. Vikingur, núverandi Reykjavíkurmeistari, sigraði KR 7:5 * ágætum leik. KR sem féll niður í 2. deild á síðasta íslands- móti sýndi nú einn sinn bezta leik á þessu nýhafna keppnistíma- bili og kemur sterklega til greina með að endurheimta sæti sitt í 1. deild, en liðið mun mæta Breiðabliki á morgun í fyrri leik liðanna um sætið sem Völsung- ur gaf eftir í 1. deildinni í ár. Hinn leikurinn í Reykjavíkur- mótinu var á milli Fram og Vals, liðanna sem talið var að berðust um sigurinn í mótinu, og lauk þeirri viðureign með jafntefli 5:5. Var þessi leikur heldur bágbor- inn og báru liðin lítið af öðrum liðum í mótinu, þrátt fyrir að þau séu talin bezt þeirra. HALLDÓR BRAGASON OG HILMAR BJÖRNSSON, URÐU MARKH/íSTIR í REYKJAVÍKURMÓTINU í meistaraflokki karla á Reykjavíkurmótinu í hand- knattleik, voru skoruð 563 mörk. Leikmenn Vals skoruðu flest þeirra eða 94 og skoruðu nær allir leikmenn Vals í þessu móti. Næst flest mörkin skoruðu ÍR-ingar eða 88, en þar næst leikmenn Fram, Vík- ings, Ármanns, KR og Þróttar. Valsmenn fengu einnig fæst mörkin á sig, eða 51, sem gerir að jafnaði rétt rúmlega 8 mörk i leik. Er það góð útkoma, þótt þarna sé aðeins leikið 2x20 mín. Önnur lið fengu mun fleiri mörk á sig, þar af fengu KR-ingar 109 mörk eða að meðaltali um 16 mörk í leik. (Sjá nánar stöðuna á bls. 10). Tveir menn urðu jafnir og markhæstir í mótinu, Hilmar Björnsson, KR og Halldór Bragason, Þrótti — með 26 mörk hvor. Þeir koma báðir Hilmar Biörnsson, KR og Halldór Bragason, Þrótti urðu markhæstir í Reykjavíkurmótinu í handknattleik með 26 mörk hvor. úr liðum, sem urðu í neðstu sætunum í móti.nu og er langt síðan að menn, sem ekki hafa leikið með beztu liðunum, hafi orðið markliæstir. En báðir þessir leikmenn hafa verið nokkuð afgerandi með liðum sínum í þessu móti. — klp. 26.232 KLST. ; t _ ■• \ \ ; í þremur árum eru 156% vikuT, 1093 dagar eða 26.232 klst. Er þá við það miðað, að éitt þessara þriggja ára sé hlaupár. Þetta er nokkuð langur tími, og margt getur því skeð. Ef þér veljið KUBA, þegar þér festið kaup á sjónvarpstæki, skiptir þetta yður þó engu máli, vegna þess, að þeim fylgir skrifleg ábyrgð í einmitt þrjú ár, 156% vikur, 1093 daga eða 26.232 klst., og nær sú ábyrgð til allra hluta tækjanna. — 1 þessu tilliti, sem flestum öðrum, getum við því boðið það, sem aðrir geta ekki boðið. Af þessari ástæðu ættuð þér að minnast KUBA, þegar að sjónvarpskaupunum kemur. Það borgar sig. 3JA ÁRA ÁBYRGÐ B S ®

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.