Tíminn - 10.11.1971, Page 13

Tíminn - 10.11.1971, Page 13
MIÐVIKUDAGTO 10. nóvember 1971 “ÍÞRÓTTIR TÍMINN ÍÞRÓTTIR 13 Víkingur Klp-Reykjavík. — Víkingur sigraði Breiðablik í úrslita- ieik bikarkeppninnar í knattspyrnu í gærkvöldi, með einu marki gegn engu. Var markið skorað í fyrri hálfleik, og var það eitt af því örfáa í þessum leik, sem hægt var að hrópa húrra fyrir. Markið var í einu orði sagt stórglæsilegt, og sannkallað mark, sem vert var að sigra með í öðru stærsta knattspyrnumö'ri landsins. Liðin voru mjög áþekk, en þó voru Breiðabliksmenn öllu betri og áttu meira í Jeiknum, en tækifæri þeirra voru sárafá, sem og bikarmeistaranna nýju og fulltrúa íslands í Evrópukeppni bikarmeistara næsta ár, Víkings. Leikið var í flóðljósunum, sem bæði liðin voru búin að venja sig við, með því að æfa í þeim undan- farna daga. Þau þurftu ekki að kvarta undan aðstæðunum. Völl- urinn var í góðu ásigkomulagi og ekki var kuldi í lofti. Að vísu var nokkur gola, og stóð vindur- inn beint á annað markið. Og kom það því jafnt niður á bæði liðin. Breiðablik lék undan vindi í fyrri hálfleik. Eftir 10—15 mín. kafla þar sem lítill munur var á liðunum, tóku Kópavogsmenn leik- inn í sínar hendur og sóttu nær látlaust fram að leikhléi. Þeim tókst þó ekki að skora — en áttu 2 til 3 nokkuð góð tækifæri í fyrri hálfleik. Það fyrra var á 1. mín. er Eiríkur Þorsteinsson komst að marki, og það síðara á 20. mín. — og var það tækifæri nýtt full- komlega. Guðgeir Leifsson tók aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi Breiða- bliks og sendi knöttinn með rétt- um smiwigi upp í vindinn, þannig að hann beygði fyrir markið, Ólaf ur Hákona.rson, markvörður Breiða bliks hætti sér út til að handsama knöttinn — fór einum of langt þannig að hann missti af honum og knötturinn sveif beint í höf- uðið á Jóni Ólafssyni, sem skall- aði hann með ógurlcgum krafti, enda fylgdi allur líkami ha.ns eft- ir, beint í markið. Stórglæsr.legt mark, sem vert var að klappa fyrir, enda var það óspart gert af hinum 1500 áhorfendum, sem mættir voru. Ekk hefði verið ósanngjarnt að Breiðablik hefði skorað 1 til '2 ' : "l/t ' " ' i« i: Oti.OÍ l/l I .> LANDSLIÐSÞJÁLFARINN í LANDSLIÐSNEFND! Klp-Reykjavík. ekki gaf kost á sér aftur eftir Sú breyting hefur orðið á eins árs veru í henni. landsliðsnefndinni í handknatt leik karla, að Hilmar Björns- Fyrir voru í nefndinni þeir son, landsliðsþjálfari hefur tek Jón Erlendsson Op Hjörleifur ið sæti í henni í stað Reynis Þórðarson, og verða þeir áfram Ólafssonar, þjálfara Vals, sem ásaint Hilmari. mörk í fyrri hálfleik. En í þeim síðari átti liðið ekki skilið að skora — því þá gafst aldrei tæki- færi, og kom Diðrik markvörður Víkings aðeins einu sinni við knöttinn í öllum hálfleiknuim. Leikurinn fór að mestu fram á miðjunni, þar var mikið spark að og hart barizt, og í flestum til- fellum voru þetta tilgangslaus spörk í allar áttir. Leikurinn var því leiðinlegur á að horfa og knattspymulega séð skilur hann ekkert eftir . . . nema minning una um, þegar 2. deildarliðið Vík ingur varð sigurvegari í bíkar- keppninni. Víkingarnir komust ekki upp með sinn ágæta samleik, því að Breiðabliksmenn voru í eða við fæturnar á Þeim, þegar knött urinn var nálægt, og enginn grið ur var gefinn. Mestur kraftur Breiðabliks fór í þetta — knatt- spyrnan eins og aðrir leika hana sat á hakanum. Miðjumennirnir puðuðu og spörkuðu og framlínan varð ein að vinna að því sem hún fékk. Það var sáralítið og hún var auðveldlega tekin í karphúsið hjá vamarmönnum Vík ings. Sama sagan var hjá hinu liðinu, Allt fór í spörkiri á miðj unni og framlínan var ein að hlaupa um. Þetta var eins - og þegar glímumenn mætast hvorug ur gefur tak á hinum, til mikilla leiðinda fyrir þá sem á horfa. Bæði liðin og leikmenn þeirra voru áþekkir í alla staði, og bar enginn af öðruim, og Guð- geir Leifsson var óvenju daufur miðað við fyrri leiki. Allir aðrir börðust og spörkuðu eins ogjseir gátu —, og skaraði enginn íram úr í því- ... sSsSsSÍK': Breiðabliksmenn sækja að marki Víkings í fyrri hálfleik í leiknum I gærkveldi. stekkur upp og reynir skot að marki. Guðmundur Þórðarson (Tímamynd Róbert) Geir Hallsteinsson skoraði 5 mörk í leiknum gegn Árhus KFUM í fyrra- kvöld, og 5 mörk gegn sama liði með FH á sunnudag. Hann leikur aftur meS FH í kvöld— mætir KR í 1. deildinni og Valur lelkur viS Hauka, „Islenzka blandan brást“ Árhus KFUM sigraði úrvalslið HSÍ 20:19 — og þótti lítið til liðsins koma utan fyrstu 10 mín. Gleðikarlarnir frá Árósum settu heldur ofaní við hlandað lið okk- ar „beztu“ handknattleiksmanna, er þeir sigruðu það i síðasta leik sínum í fslandsferðinni góðu — 20:19 — í Laugardalshöllinni á mánudagkvöldið. Við hittum þá i búningsklef- anum eftir leikinn og spurðum þá hvað þeim hefði fundM um ís- lenzka liðið — þeir voru að von- um ofsa kátir, og létu því ýmis- legt flakka — flest heldu rnei- kvætt fyrir liðið og stjórnendur þess. Þó sögðu þeir að þeim hefði þótt liðið leika glæsilega fyrstu 10 mínúturnar, en eftir það hefði það ekkert verið, og ekkert sýnt. „Við erum búnir að leika hér 3 leiki og þessi var sá Iéttasti“, sagði einn þeirra „Að vísu lögðum við mest upp úr því að sigfa íslenzka landsliðið og gerðum þá okkar bezta — fórum meira að segja ekki út að skemimta okkur á sunnu dagskvöldið bara til þess að vera betur fyrir kallaðir. Það var tæpt hjá okkur undir lokin, en við viss- uoi hvað við vorum að gera og við tefldum rétt og vel — a.m.k. mun betur en íslenzka landslið- ið.“ Þetta var svo sannarlega rétt hjá danskinum. Fyrstu 10 mínút- ur leiksins voru irieð þeim glæsi- legustu, sem maður hefur séð til ísl. liðs. En svo fékk maður líka að sjá nær 50 mín, af lélegum leik, enda segir það sig sjálft að það hlýtur að vera lélegt lið, þegar danskt 1. deildarlið, sem er miðlungsgott, og búið er að sukka og svalla í nokkra daga, fyr ir utan að leika 2 erfiða leiki, sigrar „blöndu“ af okkar beztu mönnum. „Landsliðið" hafði frumkvæðið leiknum, hvað markaskorun snerti, frá upphafi — utan einu sinni í s.h. að Danirnir sem léku án Bjarna Jónssonar, jöfnuðu 11:11. Þeim tókst ekki að jafna aftur fyrr en í 16:16 — en þá sá maður að hverju stefndi, því allt fór í handaskolum hjá leikmönnum og „yfirmönnum“ þeirra. Síðustu mín. voru hreint herfilegar hjá þeim, hvað eftir annað var skorað í gegn- um götótta vörn, og ekkert var varið. Danirnir jöfnuðu 19:19 og eftir frumhlaup okkar manna, brunuðu þeir upp og skoruðu sitt 20 mark. íslenzka liðið átti mögu- leika á að jafna, en tíminn var naumur og allir vildu skora — og það fórst fyrir. Að sjálfsögðu er hægt að hrósa einstaka leikmönnum fyrir frá- bæran leik á köflum — en það er ekki nóg að gera vel einu sinni og svo ekki oftar. Þeir Gísli, Geir og Ólafur, gerðu margt laglegt, enda skoruðu þeir samtals 16 af mörkunum 19, en jafnbeztir af öll um Jslendingunum voru dómararn- ir Björn Kristjánsson og Karl Jó- hannsson, þeir dæmdu eins og bezt gerist allan tímann. — klp.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.