Tíminn - 16.11.1971, Side 2

Tíminn - 16.11.1971, Side 2
K ÞRIÐJUDAGUR 16. nóvember 1971 TÍMINN Ritstjóri: Elías Snæland Jónsson o ' Frá aðalfundi miðstjórnar SUF í Glaumbæ um hclgina. Fundurinn var mjög vel sótur og einkennd ist og einhug og samstöðu. (Tímamynd — Gunnax) L Aðalfundur miðstjómar Sambands ungra fram- sóknarmanna fagnar myndun ríkisstjórnar vinstri afl- anna og íýsir yfir fyllsta stuðningi við málefnasamn- ing þann, sem er grundvöllur stjórnarsamstarfsins. Aðalfundurinn minnir á samþykkt síðasta mið- stjómarfundar, þar sem einróma var lögð megin in áherzla á, að Framsóknarflokkurinn ætti 1) að mynda varanlega vinstri stjórn á íslandi, og 2) að vinna að framkvæmd lokaorða stefnuskrár síðasta flokksþings um „að móta sameiginlegt stjórnmála- afl allra þeirra, sem aðhyllast hugsjónir jafnaðar, samvinnu og lýðræðis. Aðalfundur miðstjórnar fagnar þeim árangri, sem náðst hefur í báðum þessum málum. Framsóknar- flokkurinn hefur nú forystu fyrir vinstri stjórn, og hafnar hafa verið viðræður við aðra flokka um mót- un sameiginlegs stjórnmálaafls jafnaðar- og sam- vinnumanna. Jafnframt minnir fundurinn á sam- þykkt framkvæmdastjómar um viðræður fjögurra flokka, og samþykkt síðasta miðstjómarfundar SUF um myndun sameiningarráðs. Aðalfundur miðstjómar hvetur unga framsóknar- menn um allt land til að einbeita kröftum sínum til þess að tryggja langvarandi setu þessarar ríkis- stjómar og framkvæmd þeirra atriða, sem um getur í málefnasamningi stjómarflokkanna. n. Aðalfundur miðstjómarinnar telur útfærslu fisk- veiðilögsögunnar fyrir 1. september 1972 stærsta hagsmunamál þjóðarinnar í dag. Fundurinn þakkar . Einari Ágústssyni, utanríkisráðherra, fyrir góða frammistöðu í þessu máli, og leggur áherzlu á nauð- syn þjóðareiningar um framkvæmd málsins. m. Aðalfundur miðstjómarinnar fagnar þeirri áherzlu, sem rfkisstjómin leggur á að bæta afkomu verka- fólks, bænda, sjómanna og annarra þeirra, sem búa við hliðstæð kjör, og telur mikilvægar þær ráðstaf- anir, sem þegar hafa verið gerðar í þá átt, og boð- aðar hafa verið. Aðalfundurinn hvetur samtök vinnumarkaðarins til þess að finna sem fyrst friðsamlega lausn á þeirri kjaradeilu, sem nú stendur yfir, og tryggja þannig, og á annan hátt, að fyrirheit ríkisstjórnarinnar um „að auka í áföngum kaupmátt launa verkafólks, bænda og annars láglaunafólks um 20% á næstu tveimur árum“ nái fram að ganga. Jafnframt hvetur fundurinn ríkisstjórnina til að koma sem fyrst á heildarstjórn fjárfestingamála. Þannig verði markvisst og skipulega unnið að eflingu undirstöðuatvinnuveganna á grundvelli áætlunargerð- ar undir forystu ríkisvaldsins. IV. Aðalfundur miðstjórnar minnir ó fyrri ályktanir um, að landsbyggðinni verði sköpuð ja'fnréttisaðstaða á öllum sviðum þjóðlífsins, og minnir fundurinn í því sambandi alveg sérstaklega á ástand heilbrigðismála, mcnntamála, húsnæðismála, samgöngumála og und- irstrikar kröfuna um jafnaðarverð á rafmagni og um rafmagn til allra landsmanna. . V. Aðalfundurinn minnir á, að samvinnuhreyfingin hefur búið við skertan hlut þau rúmu 12 ár, sem fjandsamleg ríkisstjórn sat við völd á íslandi. Fund- urinn telur nauðsynlegt, að lögð verði mikil áherzla á eflingu samvinnuhreyfingarinnar og aukna þátt- töku fólksins í starfsemi samvinnufélaganna, og stefnt verði að því, að hún verði baráttutæki fjöldans gegn erlendu og innlendu auðvaldi. Sterk, þróttmikil og lif- andi samvinnuhreyfing, sem hefur náið samstarf við verkalýðshreyfinguna, er nauðsynlegur baklijarl vinstri flokkanna í nmsköpun íslenzks þjóðfélags. VL Aðalfundur miðstjómarinnar minnir á einróma samþykkt síðasta þings SUF í utanríkis- og vamar- málum, en þar er lögð áherzla á: að mörkuð verði sjálfstæð íslenzk utanrDdsstefna, og stefnt verði að aukinni samstöðu á alþjóða- vettvangi með Norðurlöndum, smárikjnm og óháðum friðaröflum. að bandaríska herliðið hverfi úr landi. að staða íslands innan NATO verði mótuð á grund- velli sjálfstæðrar utanrikisstefnu, og aðild fs- lands að NATO verði stöðugt endurmestin með tilliti til breyttra aðstæðna. að aðstoð íslendinga við vanþróaðar þjóðir verfS aukin. að leitað verði eftir viðskiptasamningum við EBE- ríkin er tryggi hagsmuni íslands án þess að sjálfstæði landsins sé skert. iý\,- Aðalfundurinn fagnarþví, að vinstri stjórnin hefur gerzt boðberi sjálfstæðrar íslenzkrar utanríkisstefnu, og þegar sýnt hana í verki m.a. með afstöðu sinni til Kínamálsins á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Sérstaklega telur miðstjórnin mikilsvert, að rfkis- stjórnin hefur gert stefnu Framsóknarflokksins í vamarmálunum að sinni stefnu með því, að í mál- efnasamningi stjórnarflokkanna er skýrt tekið fram, að varnarsamningurinn við Bandaríkin „skal tekinn til endurskoðunar eða uppsagnar í því skyni, að varnarliðið hverfi frá íslandi í áföngum“, og jafn- framt sett það stefnumið, að „brottför liðsins eigi sér stað á kjörtímabilinu“. Lýsir miðstjórnin yfir eindregnum stuðningi við þá starfshætti, seim utan- ríkisráðherra hefur mótað í þessum málum. Fundurinn ítrekar þá skoðun ungra framsóknar- manna, að áður en herinn fer úr landi verið gerðar ráðstafanir til að tryggja atvinnuskilyrði þeirra, sem á vegum hans hafa unnið. Þær ráðstafanir verði fólgn- ar í gerð ítarlegrar framkvæmdaáætlunar fyrir Suð- umes og öflun nægilegs fjármagn til að tryggja framgang hennar. ALYKTUN ÞINGS SUJ, MIÐ- STJÓRNAR SUF OG UNGRA MANNA f FLOKKSSTJÓRN SFV „Þing SUJ, miðstjóm SUF, og nngir menn í flokksstjóm SVF álykta: Við lýsum eindregnum stuðn ingi við þær viðræður, sem nú fara fram um myndun sam- eiginlegs stjórnmálaafls allra þeirra, sem aðhyllast hugsjón- ir lýðræðislegrar jafnaðar- og samvinnustefnu og hvetjum til þes« að þeim verði hraðað eft- ir föngum. Við teljum nauð- synlegt, að kjarni þeirra á næstu mánuðum verði ítarleg könnun á málefnalegri sam- stöðu og hugsjónagrundvelli. Um leið og við bendum á, að árangurs viðræðnanna er beðið með eftirvæntingu um allt land viljum við leggja áherzlu á, að þær verði mikl- um mun víðtækari en nú er og nái til sem flestra. í því skyni munum við beita okkur fyrir eftirfarandi: að halda sameiginlega fundi um allt land að koma á fót viðræðuhóp- um um sameingarmálið á sem flestum stöðum að efla útgáfustarfsemi sam- einingarmálinu til kynn- ingar að halda á næstunni opna ráðstefnu um sameining- armálið, þar sem meðal annars fari fram umræð- ur um nánara samstarf hreyfinga okkar. Við skorum á alla vinstri menn að taka nú upp nánara samstarf innan verkalýðshreyf ingar, samvi.nnuhreyfingar og annars staðar, þar sem nauð- syn er á samstöðu þeirra, sem aðhyllast hugsjónir jafnaðar og samvinnu.“ Eystelnn Jónsson flytur ávarp í kvöldverSarboði SUF s. I. laugardagc- kvöld. (Tímamynd Gunnar) t

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.