Tíminn - 16.11.1971, Síða 12

Tíminn - 16.11.1971, Síða 12
Mikill einhugur einkenndi miðstjórnarfund SUF: Sameiginleg yfirlýsing um sameiningarmálið frá miðstjórn SUF, þingi SUJ og ungum flokksstjórnarmönnum í SFV Þriðjudagur 16. nóvember 1971 Kjaramálin til umræðu á Alþingi EB-Reykjavík, mánudag. Talsverðar umræður urðu um kjaramál utan dagskrár í neðri deild Alþingis í dag, eftir að Ólafur Jóhannesson, forsætisráð- herra, hafði kvatt sér hljóðs til þess að leiðrétta missögn Mbl. á ummælum hans, eins og frá er greint á forsíðu blaðsins í dag. Guðlaugur Gíslason (S) beindi þeirri fyrirspurn til forsætisráð- herra, hvort hann gæti gefið upp lýsingar um hvað kjarasamning- unum liði. Ólafur Jóhannesson, forsætis- ráðherra, sagði að sáttanefnd hefði verið skipuð og sú sátta- nefnd hefði þegar haft fund með deiiuaðilum og héldi áfram að halda fundi með þeim. Forsætis- ráðherra kvaðst að sjálfsögðu ekki geta gefið neinar upplýsingar um það á þessari stundu, hvernig þessi mál stæðu. Það hefði orðið nokkur drattur á þessum kjara- samningum, en þó engan veginn meiri heldur en oft áður. For- sætisráðherra taldi, að það yrði ekki sagt um þessa samninga, að þeir hefðu tekið óeðlilega langan tíma til þessa. Hitt kvaðst hann vilja segja, að þetta væru ákaf- lega '"óknir samningar, flóknari en oft áður, vegna þess að nú væri samið á einni hendi við ákaf lega marga aðila. Það væri auð- Framhald á bls. 22 Sendiráðs- þjófurinn fundinn SB—Reykjavík, mánudag. Danska lögreglan hefur nú haft uppi á þeim, sem brauzt inn í íslenzka sendiráðið í Kaupmanna- höfn í maí s.l. og hafði á brott með sér vegabréf og stimpla. Þjófurinn er þýzkur ríkisborgari. Þjóðverjinn hafði falsað handa sjálfum sér tvö íslenzk vegabréf, en hin hafði hann brennt eða eyðilagt. Ekki hafði hann eyðilagt stimplana, því hann afhenti lög- reglunni þá alla, er hann var handtekinn. EJ—Reykjavík, mánudag. Aðalfundur miðstjórnar Sam- bands ungra framsóknarmanna var lialdinn í Reykjavík um helg ina. Fundurinn var mjög vel sóttur af miðstjórnarmönnum úr öllum kjördæmum landsins, og mikill einhugur og samstaða ein- kenndi öll störf hans. T.d. sam- þykkti fundurinn einróma ályktun í sameiningarmálinu, sem einnig var samþykkt á þingi Sambands ungra jafnaðarmanna og af ungum fuUtrúum á fundi flokksstjórnar Samtaka frjálslyndra og vinstri manna, cn þessir fundir voru einni.g haldnir um helgina. Álykt- unin er birt á bls. 14. Miðstjórnarfundurinn hófst kl. 14 á iaugardag, og sátu hann um 50 miðstjórnarmenn. Már Péturs- son, formaður SUF, setti fundinn. Fundarstjórar voru Pétur Einars- son og Magnús Ólafsson og fund- arritari Halldóra Sveinbjörnsdótt- ir. Már Pélursson flutti skýrslu formanns og Þorsteinn Ólafsson skýrslu gjaldkera, en í framhaldi af þeim voru almennar umræður. í lok þeirra var skipað f stjóm- málanefnd og skipulags- og starfs verkefnanefnd, og eins var kjör- in fimm manna. viðræðunefnd til- viðræðna við fulltrúa frá þingi SUJ og fulltrúa ungra manna í flokksstjóm SFV. Um kvöldið var kvöldverðarboð í Glaumbæ fyrir miðstjórnarmenn, en heiðursgestir vora Eysteinn Jónsson og frú og Þórarinn Þór- arinsson og frú, en Eysteinn og Þórarinn eru heiðursfélagar SUF. Nefndir störfuðu fyrir hádegi á sunnudag, en eftir hádegi hóf- ust fundarstörf með ávarpi Ein- ars Ágústssonar, utanríkisráð- herra, og er það birt á bls. 15. Því næst var tekin fyrir til- laga viðræðunefndanna, og var sú sameiginlega ályktun samþykkt í einu hljóði. Síðan var fjallað um álit stjóm- málanefndar og skipulags- og starfsverkefnanefndar, og þau samþykkt með nokkrum breyting- um. Nokkrar tillögur aðrar voru einnig samþykktar. Már Pétursson sleit síðan mið- stjórnarfundinum um kvöldmatar leyti á sunnudag. Stjómmálayfirlýsing fundarins er birt á bls. 14 ásamt sameigin- legu ályktuninni, en ýmsar aðrar ályktanir munu birtast síðar. Stálu morfíni og. sprautuðu sjálf sig SB-Reykjavík, mánuðag. Lögreglan í Vestmannaeyjum handtók nýlega kærustupar í Eyj- um, sem undanfarið hefur brotizt inn í báta í Vestmannaeyjahöfn Framhald á bls. 22 Eldingu sló niður í Douglas kóng Þær voru vel búnar og knálegar í storminum í dag þessar ungu Reykja- víkurkonur. En skiltið fyrir ofan þær minnir okkur á misrétti það, sem þær eru belttar í karlmannaþjóðfélagi. Karlmenn geta fengið ókeypis afnot af almenningssalerni þarna á næstu grösum, meðan konur verða að borga 7 krónur hinum megin vlð götuna á samskonar stofnun. (Tfmamynd G-E) t--———— --------——------------7 J Reykjaneskjördæmi | Laugardaginn 20. nóvember verður fundur hjá fonnönnum | Framsóknarfélaganna f kjördæminu að Neðstutröð 4, Kópavogi. j Hefst fundurinn kl. 4 síðdegis. Fundarefni: Undirbúningur kjör- I dæmisþingsins og fl. Stjómin. Framsóknarvist á Hótel Sögu Framsóknariélag Reykjavík- Aðgöngumiðar fást á Hring ur efnir til Framsóknarvistar þraut 30, sími 24480 og á af- á Hótel Sögu á, fimmtudags- greiðslu Tímans, Bankastræti kvöldið kl. 8,30. 7, sími 12323. Vistinni stjórnar Markús Stefánsson og Ágúst Þorvalds son alþm. flytur ræðu. Á eftir leikur hljómsveit Ragnars Bjamasonar fyrir dansi. Glæsileg kvöldverðlaun, og auk þess heildarverðlaun karla og kvenna, eftir þriggja kvölda keppni, en verðlaunin eru flugferð til Kaupmannahafnar með Framsók-narfélögunum. Markús Ágúst Ratsjárskermurinn eyðilagöist ÞÓ-Reykjavík, mánudag. „Við vorum einhvers staðar ná- lægt Henglinum á kafi í skýja- bólstrum, sem vo-u mjög rafmagn aðir, þegar eldingu laust allt í einu þotuna, og kom hún á nef her,nar“, sagði Smári Karlsson, flugstjóri Loftleiðaþotunnar Leifs Eiríkssonar, en eldingu laust nið- ur í þotuna kl. 17,30 í gær, þegar þotan var að koma inn til lend- ingar á Keflavíkurflugvöll. Þegar vélin hafði lent stuttu síðar heilu og höldnu, og starfs- menn fóru að skoða hana, kom í ljós, að við eldinguna hafði l-.mÍG gat á ratsjárhlífina, sem er á nefi vélarinnar. Var vélin því tekin úr notkun, en í dag átti að koma ný ratsjárhlíf með Cargolux-vél frá Ncw York, og var búizt við, að viðgerð lyki í nótt. Smári Karlsson, flugstjóri, sagði að aðeins einni eldingu hefði lost- ið niður í þotuna og við það hefði reyndar myndazt mikill blossi, sem hefði blindað áhöfnina augna b''k. Annars kvað hann eldingar að öllu jöfnu hættulausar, enda mjög algengt að eldingum lysti niður í flugvélar á suðlægari slóð um. Flugvélarnar væru búnar eld- ingavörum, sem komið væri fvrir á nefi, stéli og vængjum. Þar kæmu eldingar niður og yllu þær yfirleitt engum skemmdum. FUF Kópavogi Aðalfundur FUF í Kópavogi verður haldinn sunnudaginn 21. nóvember kl. 3 síðdegis. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjómin. r I KÓPAVOGUR t ! Frcyja. félag framsóknarkvenna, heldur aðalfund sinn miðviku j daginn 24. nóv. kl. 20:30 að Neðstu tröð 4. Stjórnin.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.