Tíminn - 16.11.1971, Blaðsíða 12
Mikill einhugur einkenndi miðstjórnarfund SUF:
Sameiginleg yfirlýsing
um sameiningarmálið
frá miðstjórn SUF, þingi SUJ og ungum flokksstjórnarmönnum í SFV
Þriðjudagur 16. nóvember 1971
Kjaramálin
til umræðu
á Alþingi
EB-Reykjavík, mánudag.
Talsverðar umræður urðu um
kjaramál utan dagskrár í neðri
deild Alþingis í dag, eftir að
Ólafur Jóhannesson, forsætisráð-
herra, hafði kvatt sér hljóðs til
þess að leiðrétta missögn Mbl. á
ummælum hans, eins og frá er
greint á forsíðu blaðsins í dag.
Guðlaugur Gíslason (S) beindi
þeirri fyrirspurn til forsætisráð-
herra, hvort hann gæti gefið upp
lýsingar um hvað kjarasamning-
unum liði.
Ólafur Jóhannesson, forsætis-
ráðherra, sagði að sáttanefnd
hefði verið skipuð og sú sátta-
nefnd hefði þegar haft fund með
deiiuaðilum og héldi áfram að
halda fundi með þeim. Forsætis-
ráðherra kvaðst að sjálfsögðu ekki
geta gefið neinar upplýsingar um
það á þessari stundu, hvernig
þessi mál stæðu. Það hefði orðið
nokkur drattur á þessum kjara-
samningum, en þó engan veginn
meiri heldur en oft áður. For-
sætisráðherra taldi, að það yrði
ekki sagt um þessa samninga, að
þeir hefðu tekið óeðlilega langan
tíma til þessa. Hitt kvaðst hann
vilja segja, að þetta væru ákaf-
lega '"óknir samningar, flóknari
en oft áður, vegna þess að nú
væri samið á einni hendi við ákaf
lega marga aðila. Það væri auð-
Framhald á bls. 22
Sendiráðs-
þjófurinn
fundinn
SB—Reykjavík, mánudag.
Danska lögreglan hefur nú haft
uppi á þeim, sem brauzt inn í
íslenzka sendiráðið í Kaupmanna-
höfn í maí s.l. og hafði á brott
með sér vegabréf og stimpla.
Þjófurinn er þýzkur ríkisborgari.
Þjóðverjinn hafði falsað handa
sjálfum sér tvö íslenzk vegabréf,
en hin hafði hann brennt eða
eyðilagt. Ekki hafði hann eyðilagt
stimplana, því hann afhenti lög-
reglunni þá alla, er hann var
handtekinn.
EJ—Reykjavík, mánudag.
Aðalfundur miðstjórnar Sam-
bands ungra framsóknarmanna
var lialdinn í Reykjavík um helg
ina. Fundurinn var mjög vel
sóttur af miðstjórnarmönnum úr
öllum kjördæmum landsins, og
mikill einhugur og samstaða ein-
kenndi öll störf hans. T.d. sam-
þykkti fundurinn einróma ályktun
í sameiningarmálinu, sem einnig
var samþykkt á þingi Sambands
ungra jafnaðarmanna og af ungum
fuUtrúum á fundi flokksstjórnar
Samtaka frjálslyndra og vinstri
manna, cn þessir fundir voru
einni.g haldnir um helgina. Álykt-
unin er birt á bls. 14.
Miðstjórnarfundurinn hófst kl.
14 á iaugardag, og sátu hann um
50 miðstjórnarmenn. Már Péturs-
son, formaður SUF, setti fundinn.
Fundarstjórar voru Pétur Einars-
son og Magnús Ólafsson og fund-
arritari Halldóra Sveinbjörnsdótt-
ir.
Már Pélursson flutti skýrslu
formanns og Þorsteinn Ólafsson
skýrslu gjaldkera, en í framhaldi
af þeim voru almennar umræður.
í lok þeirra var skipað f stjóm-
málanefnd og skipulags- og starfs
verkefnanefnd, og eins var kjör-
in fimm manna. viðræðunefnd til-
viðræðna við fulltrúa frá þingi
SUJ og fulltrúa ungra manna í
flokksstjóm SFV.
Um kvöldið var kvöldverðarboð
í Glaumbæ fyrir miðstjórnarmenn,
en heiðursgestir vora Eysteinn
Jónsson og frú og Þórarinn Þór-
arinsson og frú, en Eysteinn og
Þórarinn eru heiðursfélagar SUF.
Nefndir störfuðu fyrir hádegi
á sunnudag, en eftir hádegi hóf-
ust fundarstörf með ávarpi Ein-
ars Ágústssonar, utanríkisráð-
herra, og er það birt á bls. 15.
Því næst var tekin fyrir til-
laga viðræðunefndanna, og var
sú sameiginlega ályktun samþykkt
í einu hljóði.
Síðan var fjallað um álit stjóm-
málanefndar og skipulags- og
starfsverkefnanefndar, og þau
samþykkt með nokkrum breyting-
um. Nokkrar tillögur aðrar voru
einnig samþykktar.
Már Pétursson sleit síðan mið-
stjórnarfundinum um kvöldmatar
leyti á sunnudag.
Stjómmálayfirlýsing fundarins
er birt á bls. 14 ásamt sameigin-
legu ályktuninni, en ýmsar aðrar
ályktanir munu birtast síðar.
Stálu morfíni
og. sprautuðu
sjálf sig
SB-Reykjavík, mánuðag.
Lögreglan í Vestmannaeyjum
handtók nýlega kærustupar í Eyj-
um, sem undanfarið hefur brotizt
inn í báta í Vestmannaeyjahöfn
Framhald á bls. 22
Eldingu sló niður í Douglas kóng
Þær voru vel búnar og knálegar í storminum í dag þessar ungu Reykja-
víkurkonur. En skiltið fyrir ofan þær minnir okkur á misrétti það, sem
þær eru belttar í karlmannaþjóðfélagi. Karlmenn geta fengið ókeypis
afnot af almenningssalerni þarna á næstu grösum, meðan konur verða
að borga 7 krónur hinum megin vlð götuna á samskonar stofnun.
(Tfmamynd G-E)
t--———— --------——------------7
J Reykjaneskjördæmi
| Laugardaginn 20. nóvember verður fundur hjá fonnönnum
| Framsóknarfélaganna f kjördæminu að Neðstutröð 4, Kópavogi.
j Hefst fundurinn kl. 4 síðdegis. Fundarefni: Undirbúningur kjör-
I dæmisþingsins og fl. Stjómin.
Framsóknarvist á Hótel Sögu
Framsóknariélag Reykjavík- Aðgöngumiðar fást á Hring
ur efnir til Framsóknarvistar þraut 30, sími 24480 og á af-
á Hótel Sögu á, fimmtudags- greiðslu Tímans, Bankastræti
kvöldið kl. 8,30. 7, sími 12323.
Vistinni stjórnar Markús
Stefánsson og Ágúst Þorvalds
son alþm. flytur ræðu. Á eftir
leikur hljómsveit Ragnars
Bjamasonar fyrir dansi.
Glæsileg kvöldverðlaun, og
auk þess heildarverðlaun karla
og kvenna, eftir þriggja kvölda
keppni, en verðlaunin eru
flugferð til Kaupmannahafnar
með Framsók-narfélögunum. Markús Ágúst
Ratsjárskermurinn eyðilagöist
ÞÓ-Reykjavík, mánudag.
„Við vorum einhvers staðar ná-
lægt Henglinum á kafi í skýja-
bólstrum, sem vo-u mjög rafmagn
aðir, þegar eldingu laust allt í
einu þotuna, og kom hún á nef
her,nar“, sagði Smári Karlsson,
flugstjóri Loftleiðaþotunnar Leifs
Eiríkssonar, en eldingu laust nið-
ur í þotuna kl. 17,30 í gær, þegar
þotan var að koma inn til lend-
ingar á Keflavíkurflugvöll.
Þegar vélin hafði lent stuttu
síðar heilu og höldnu, og starfs-
menn fóru að skoða hana, kom
í ljós, að við eldinguna hafði
l-.mÍG gat á ratsjárhlífina, sem
er á nefi vélarinnar. Var vélin
því tekin úr notkun, en í dag
átti að koma ný ratsjárhlíf með
Cargolux-vél frá Ncw York, og
var búizt við, að viðgerð lyki
í nótt.
Smári Karlsson, flugstjóri, sagði
að aðeins einni eldingu hefði lost-
ið niður í þotuna og við það hefði
reyndar myndazt mikill blossi,
sem hefði blindað áhöfnina augna
b''k. Annars kvað hann eldingar
að öllu jöfnu hættulausar, enda
mjög algengt að eldingum lysti
niður í flugvélar á suðlægari slóð
um. Flugvélarnar væru búnar eld-
ingavörum, sem komið væri fvrir
á nefi, stéli og vængjum. Þar
kæmu eldingar niður og yllu þær
yfirleitt engum skemmdum.
FUF Kópavogi
Aðalfundur FUF í Kópavogi verður haldinn sunnudaginn 21.
nóvember kl. 3 síðdegis. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjómin.
r
I KÓPAVOGUR
t
! Frcyja. félag framsóknarkvenna, heldur aðalfund sinn miðviku
j daginn 24. nóv. kl. 20:30 að Neðstu tröð 4. Stjórnin.