Fréttablaðið - 08.02.2004, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Kvikmyndir 42
Tónlist 42
Leikhús 42
Myndlist 42
Íþróttir 38
Sjónvarp 44
SUNNUDAGUR
VALUR MÆTIR HAUKUM
Fjórir leikir verða í Remax-úrvalsdeild
karla. KA tekur á móti Fram klukkan 19,
en klukkan 19.15 mætast HK og Stjarn-
an, Grótta/KR og ÍR og Valur og Haukar.
Grótta/KR sækir Hauka heim í Remax-
deild kvenna klukkan 17.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
LOKSINS, LOKSINS Já, nú eru þau á
leiðinni hlýindin. Þau fara sér hægt og
verður orðið frostlaust allra vestast seint í
kvöld. Þá hvessir þar og má búast við
strekkingi eða allhvössum vindi með
slyddu og síðan rigningu. Sjá síðu 6.
8. febrúar 2004 – 38. tölublað – 4. árgangur
KVARTAÐ Á KÁRAHNJÚKUM Kvart-
anir streyma frá íslenskum starfsmönnum á
Kárahnjúkasvæðinu til Starfsgreinafélags
Austurlands. Kvartað vegna vangoldinna
launa og framkomu yfirmanna. Sjá síðu 4
SAMA VERÐ Olís og Skeljungur lækk-
uðu í gær eldsneytisverð hjá sér og fylgdu í
kjölfar lækkana hjá ESSO. Lækkunin nær
aðeins til eldsneytis í sjálfsafgreiðslu og er
nú það sama hjá öllum. Sjá síðu 4
FJÁRMÁLAÓSTJÓRN Kosningastjóri
Vinstri grænna í Kraganum sagður hafa eytt
langt um efni fram. Fyrrverandi formaður
kjördæmisráðs ábyrgur fyrir skuld upp á
2,5 milljónir. Sjá síðu 6
BITNAR EKKI Á SJÓÐFÉLÖGUM
Lífeyrissjóðurinn Framsýn mun að líkindum
tapa nokkrum tugum milljóna króna vegna
misferlis fyrrverandi framkvæmdastjóra
sjóðsins. Sjá síðu 8
HREINSAÐ TIL EFTIR ÓSKÖPIN Mikið fannfergi og vindur settu strik í reikninginn hjá fjölda fólks víða um land í gær og fyrrinótt. Á
Egilsstöðum segjast menn ekki hafa séð jafn mikinn snjó í áratugi og höfðu snjóruðningsmenn nóg að gera þegar veðrið lægði. Fjöldi bíla
festist og máttu margir hafast við í bílum svo klukkustundum skipti áður en björgunarsveitarmenn gátu komið þeim til bjargar. Sjá síðu 2
43% landsmanna ósátt
við heilbrigðiskerfið
Um 43% landsmanna eru ósátt við þjónustu heilbrigðiskerfisins ef marka má nýja skoðanakönn-
un Fréttablaðsins. Helmingur kvenna er ósáttur. Samkvæmt sömu könnun er um helmingur
þjóðarinnar reiðubúinn að borga meira fyrir betri læknisþjónustu.
HEILBRIGÐISMÁL Samkvæmt nýrri
skoðanakönnun Fréttablaðsins
eru 42,6% landsmanna ósátt við
þjónustu heilbrigðiskerfisins.
Samkvæmt sömu könnun er tæp-
ur helmingur landsmanna, 48,8%,
reiðubúinn til þess að borga meira
fyrir betri læknisþjónustu.
Jón Kristjánsson heilbrigðis-
ráðherra segir það ekki koma
sér á óvart, í ljósi erfiðrar um-
ræðu um heilbrigðiskerfið und-
anfarið, að svo margir séu ósátt-
ir við þjónustuna. Hann segir
það viðunandi að 57% séu sátt,
þótt vitaskuld sé takmarkið að
hækka það hlutfall. Aftur á móti
segir Jón að það komi sér á
óvart, að svo stór hluti fólks sé
reiðubúinn að greiða aukalega,
úr eigin vasa, fyrir betri læknis-
þjónustu. „Þessi niðurstaða er
athyglisverð,“ segir Jón. „Þetta
er hærri prósenta en ég hefði
átt von á. Auðvitað hlýtur þetta
að sýna að menn telja heilbrigð-
isþjónustuna mjög mikilvæga
og vilja greiða fyrir hana eins
og fyrir aðra þjónustu sem
menn kaupa.“
Athygli vekur að konur virðast
ósáttari við þjónustu heilbrigðis-
kerfisins en karlar. Upp undir
helmingur kvenna, 49,7% af þeim
sem tóku afstöðu, lýsir sig ósáttan
við þjónustuna. Sambærilegt hlut-
fall hjá körlum er 35,7%. Jafn-
framt virðast fleiri konur reiðu-
búnar að greiða aukalega fyrir
betri þjónustu en karlar. Úrtakið
var 800 manns.
Nánar á síðum 24-25
Framkvæmdastjóri
heimastjórnarafmælis:
Fráleit
gagnrýni
SUNNUDAGSVIÐTAL „Það er fráleitt.
Formaður Framsóknarflokksins af-
hjúpaði minnisvarða um Hannes
Hafstein á Ísa-
firði. Ísfirðing-
ar tóku ákvörð-
un um það.
Ekki getur það
talist ákvörðun
S j á l f s t æ ð i s -
flokksins,“ seg-
ir Júlíus Hafstein, framkvæmda-
stjóri hátíðarhalda vegna 100 ára af-
mælis heimastjórnarinnar aðspurð-
ur um álit sitt á þeirri skoðun sem
komið hefur fram að Sjálfstæðis-
flokkurinn hafi eignað sér um of
heimastjórnarafmælið. Júlíus ræðir
um hin umdeildu hátíðarhöld og
fleira í viðtali í blaðinu í dag.
Nánar á síðum 22-23
Fólkið á bak við ráðherrana
Starf aðstoðarmanns ráðherra fer ekki hátt. Þetta er fólkið sem er á þönum allan daginn fyrir ráðherrann
sinn, veður í gegnum súrt og sætt, heldur utan um dagbókina og þarf jafnvel stundum að koma fram í
stað ráðherrans. En hvaða fólk er þetta?
Egó snýr aftur
SÍÐUR 26-27
▲
Hljómsveitin Egó er ein sú
merkasta í íslenskri
poppsögu. Borist hafa
fregnir þess efnis að
hljómsveitin hyggi á
endurkomu. „Stórir
strákar fá raflost“ mun
þá hljóma enn á ný.
Ósátt
42,6%
Sátt
57,4%
ÞJÓNUSTA
Ert þú sátt(ur) eða ósátt(ur) við
þjónustu heilbrigðiskerfisins?
JÚLÍUS HAFSTEIN
▲SÍÐUR 20-21
Í útflutningi er lykilatriði að þekkja
menningu þjóðanna sem við
höfum viðskipti við. Gunnar
Svansson vinnur við það hjá
Útflutningsráði að skoða og
kortleggja ólíka menningu
landanna.
Viðskipti
og menning
▲
SÍÐUR 16-17