Fréttablaðið - 13.02.2004, Síða 2
Gæsluvarðhald:
Grunur
um smygl
LÖGREGLA Héraðsdómur Reykjavík-
ur hefur úrskurðað einn eða fleiri
menn í gæsluvarðhald vegna gruns
um innflutning á töluverðu magni
af fíkniefnum.
Lögreglan verst allra frétta af
málinu og vill ekki gefa upp hversu
margir eru í varðhaldi vegna
málsins né hversu mikið magn af
eiturlyfjum er um að ræða. Sjón-
varpið greindi frá því í gærkvöld
að hugsanlega væri um að ræða á
annan tug kílóa af hassi. ■
2 13. febrúar 2004 FÖSTUDAGUR
„Við skulum vona ekki – en menn
þurfa náttúrlega að taka á honum
stóra sínum eftir þessa törn.“
Davíð Gunnarsson er formaður Stúdentaráðs. Í
gær og fyrradag var kosið í Háskólanum og hafa
frambjóðendur lítið sést með námsbækur á síð-
ustu vikum. Um 3.200 kusu í kosningunum.
Spurningdagsins
Davíð, eru ekki allir frambjóðendurn-
ir að fara að skítfalla í vor?
■ Norðurlönd
■ Lögreglufréttir
Spáir fjölgun starfa
í skugga ríkishalla
Alan Greenspan spáir eflingu atvinnulífsins vestra og fleiri störfum.
Hann segir mikinn ríkishalla þó vissa hættu sem dregið geti kjarkinn
úr atvinnulífinu og þar með hamlað gegn nýjum ráðningum.
WASHINGTON, AP Uppsveifla í
efnahagslífi Bandaríkjanna frá
síðasta sumri
getur skilað sér
í fleiri störfum,
að því gefnu að
vaxandi halli
ríkissjóðs verði
ekki til þess að
draga kjark úr
atvinnulífinu,
sagði Alan
G r e e n s p a n ,
b a n k a s t j ó r i
bandaríska seðlabankans, þegar
hann lýsti efnahagshorfum í
Bandaríkjunum fyrir efnahags-
nefnd Bandaríkjaþings.
Bandarísk stjórnvöld hafa
spáð því að 2,6 milljónir nýrra
starfa verði til á þessu ári. Það
er 400.000 störfum meira en
hefur tapast á fyrstu þremur
árum valdatíðar George W.
Bush. Aðspurður um hvers
vegna störfum hefði ekki fjölg-
að samhliða uppsveiflu í at-
vinnulífinu sagði Greenspan
ástæðuna þá að framleiðni hefði
aukist hratt, fyrirtæki gætu
framleitt meira með færra
starfsfólki en áður. Hann taldi
þó líkur á að drægi úr fram-
leiðniaukningu. Í kjölfarið gætu
fyrirtæki orðið viljugri til að
ráða starfsfólk. Það væri þó
bundið því að fjárlagahalli
Bandaríkjanna, sem er í sögu-
legum hæðum, hræddi vinnu-
veitendur ekki frá ráðningum.
Fjárlagahallinn getur einnig
gert vandann meiri þegar eftir-
stríðskynslóðin fer á eftirlaun.
„Án aðgerða til að bæta úr þessu
gæti þróunin þrengt mjög að
möguleikum okkar til að bjóða
upp á jafnvel lágmarksþjónustu
hins opinbera samhliða því að
halda uppi núverandi réttindum
eftirlaunafólks án þess að
hækka skatta verulega,“ sagði
Greenspan.
Hagfræðingar utan ríkis-
geirans hafa lýst efasemdum
um spá stjórnvalda um 2,6 millj-
ónir nýrra starfa á árinu en ný
störf kunna að vera nauðsynleg
til að George W. Bush nái endur-
kjöri.
„Þetta er meira en ég myndi
spá fyrir um en ég er ekki að
sækjast eftir endurkjöri,“ sagði
David Wyss, aðalhagfræðingur
Standard & Poor’s. Mark Zandi
hjá Economy.com segir að
vinnumarkaðurinn þurfi að efl-
ast mjög hratt ef spáin eigi að
ganga eftir. Greenspan sagði
hins vegar að spáin væri trú-
verðug að því gefnu að drægi úr
framleiðniaukningu. ■
Útgáfa á sögu stjórnarráðsins:
Tugmilljóna
kostnaður gagnrýndur
ALÞINGI Mörður Árnason, Samfylk-
ingunni, gerði útgáfu rita um sögu
stjórnarráðsins að umtalsefni í
fyrirspurnatíma á Alþingi í gær og
spurði forsætisráðherra út í tug-
milljóna kostnað vegna útgáfu og
prentun verksins.
„Ég sé ekki eftir skattpeningum
til fræðimanna, en 37,5 milljónir
fyrir 1.200 síður af fræðiefni
hljóta að byggjast á einhverjum
misskilningi. Gróf viðmiðun Hag-
þenkis sýnir að kostnaður við út-
gáfu þriggja binda sé ekki meiri en
14 milljónir. Hvað fór hér úrskeið-
is? Voru einhverjir aðrir á launum
en fræðimennirnir eða á þessi
bókaútgáfa mikil ritverk óútgefin í
handriti? Og 14 milljóna prent-
kostnaður er helmingi meiri kostn-
aður en eðlilegt þykir,“ sagði
Mörður og krafði forsætisráð-
herra um svör.
Davíð Oddsson sagði kostnað-
inn eðlilegan, heildarkostnaður við
útgáfu ritanna hefði reynst minni
en áætlanir gerðu ráð fyrir og
væri um 54 milljónir, þar af um 40
milljónir vegna höfunda og rit-
nefnda. Sumarliði Ísleifsson sagn-
fræðingur hefði verið ráðinn til að
ritstýra verkinu og sex fræðimenn
ráðnir til að fjalla um einstaka
þætti. Forsætisráðherra sagði að
Sögufélagið, sem væri útgefandi
verksins, hefði haft tiltekið frum-
kvæði að verkinu og samstarf við
það félag hefði verið gott. ■
Kjarnorkuáætlun Írana:
Leyndu
teikningum
VÍN, AP Eftirlitsmenn Alþjóða kjarn-
orkumálastofnunarinnar hafa
fundið teikningar í Íran af þróuð-
um tæknibúnaði sem notaður er til
að auðga úran. Talið er að teikning-
arnar hafi Íranar fengið frá Abdul
Qadeer Khan, fyrrum yfirmanns
kjarnorkuáætlunar Pakistans, sem
hefur viðurkennt að hafa selt
kjarnorkuleyndarmál úr landi.
Írönsk stjórnvöld upplýstu ekki
um teikningarnar þegar þau sam-
þykktu eftirlit með kjarnorkuáætl-
un sinni eftir að hafa verið sökuð
um að reyna að koma sér upp gjör-
eyðingarvopnum, heldur fundust
þær við leit eftirlitsmanna. ■
ELDUR Í FJÖLBÝLISHÚSI Tilkynnt
var um eld í stigahúsi í litlu fjölbýl-
ishúsi á Sauðárkróki klukkan 9.16 í
gærmorgun. Íbúi í húsinu varð
eldsins var þegar reykskynjari fór
af stað og kallaði til slökkvilið.
Húsið var rýmt en engin slys urðu
á fólki. Slökkvistarf gekk greiðlega
og voru skemmdir á húsinu óveru-
legar. Grunur leikur á að eldurinn
hafi kviknað út frá sígarettustubbi
en lögreglan á Sauðárkróki fer með
rannsókn málsins.
3,5 KG AF HASSI FUNDUST Í LEIFS-
STÖÐ Líklegt er talið að starfsmað-
ur á Keflavíkurflugvelli hafi átt að
sækja um 3,5 kg af hassi sem yfir-
völd fundu falin í Leifsstöð á
mánudag. Rannsókn málsins
stendur yfir.
BROTIST INN Í KJÖTVINNSLU Brot-
ist var inn í kjötvinnsluna Kjötsel
í Reykjanesbæ í gærmorgun. Úti-
hurð var brotin upp, farið inn á
skrifstofu og teknir þaðan pening-
ar. Áætlað er að ránsfengurinn
hafi verið á bilinu fimmtán til
tuttugu þúsund krónur. Ekki er
vitað hverjir voru að verki en lög-
reglan í Keflavík fer með rann-
sókn málsins.
British Airways:
Flugi aflýst
enn á ný
LUNDÚNIR, AP Enn á ný aflýsti
breska flugfélagið British Air-
ways flugi frá Lundúnum til
Washington af öryggisástæðum.
Um var að ræða flug BA 223
næstkomandi sunnudag. Flugi frá
Lundúnum til Sádi-Arabíu var
einnig aflýst.
Að sögn talsmanns British
Airways var þessi ákvörðun tekin
á grundvelli upplýsinga frá bresk-
um stjórnvöldum. Röskun hefur
orðið á flugi frá Lundúnum til
Washington átta sinnum á þessu
ári vegna upplýsinga um hættu á
hryðjuverkum. Flugi til Sádi-
Arabíu hefur einnig verið aflýst
nokkrum sinnum. ■
VÆGT AFBRIGÐI FUGLAFLENSU
Vægt afbrigði af fuglaflensu
fannst í villtri önd í Osló. Veiran
fannst í sýnum sem tekin voru
við rannsóknir á villtum fuglum í
Noregi á síðasta ári. Að sögn heil-
brigðisyfirvalda er um að ræða
algengt afbrigði veirunnar sem
ekki getur borist til manna.
HÖFUÐBORGIN Oddviti Sjálfstæðis-
flokksins í borgarstjórn Reykja-
víkur segir að ný
þriggja ára fjárhags-
áætlun borgarinnar
sýni að borgin safni
stöðugt meiri skuld-
um. „Þessi þriggja
ára fjárhagsáætlun
borgarstjórnar sýnir
að fjármálastjórnin
er langt frá því að
vera góð. Auk þess er
hún bæði ómarkviss
og úr takti við raun-
veruleikann,“ segir
Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson.
Sjálfstæðismenn
benda á tillögur um
1,5 milljarða króna sparnað sem
settar eru fram en eru ekki út-
færðar.
Vilhjálmur segir
útgjöld borgarinnar
þenjast út á nær öllum
sviðum og að ekki
dugi að benda á fjár-
festingar Orkuveitu
Reykjavíkur til þess
að útskýra skulda-
aukningu borgarinnar.
Hann segir áætlan-
ir meirihluta R-list-
ans vera ómarkvissar.
„Þetta er meira í ætt
við sýndarveruleika
en raunhæfa fjár-
málastjórn,“ segir
Vilhjálmur. ■
MÖRÐUR ÁRNASON
Þingmaður Samfylkingarinnar spurði forsætisráðherra um það í fyrirspurnatíma á Alþingi
hvort tugmilljóna króna kostnaður við útgáfu og prentun á ritum um sögu stjórnarráðsins
byggðist á misskilningi.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
GREENSPAN OG FJÁRLAGAHALLINN
Seðlabankastjórinn brá upp mynd af afkomu ríkissjóðs síðustu fimmtán árin. Fjárlagahalli
hefur aukist í tíð beggja Bush-feðga en var breytt í rekstrarafgang í stjórnartíð Clintons.
„Þetta er
meira en ég
myndi spá
fyrir um en
ég er ekki að
sækjast eftir
endurkjöri.
Barnaníðingur:
Gæslu-
varðhald
framlengt
KYNFERÐISBROT Gæsluvarðhald yfir
manni á fertugsaldri, sem er
ákærður fyrir kynferðisbrot gegn
sex drengjum og fyrir að eiga
mikið af barnaklámi, var fram-
lengt til 4. mars í Héraðsdómi í
gær.
Lögreglan handtók manninn
fyrst í byrjun júní á síðasta ári og
við húsleit fannst mikið magn af
barnaklámi á myndbandsspólum
og geisladiskum, þar á meðal
heimagert efni. Hann játaði að
hafa átt barnaklámið, var ákærð-
ur en síðan sleppt.
Maðurinn var aftur handtekinn
þann 3. febrúar, grunaður um að
hafa reynt að tæla 12 ára dreng á
Netinu. Var hann úrskurðaður í
viku gæsluvarðhald, sem var síðan
framlengt um þrjár vikur í gær. ■
VILHJÁLMUR
Þ. VILHJÁLMSSON
Oddviti sjálfstæðismanna í
borgarstjórn Reyjavíkur.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson:
Sýndarveruleiki í
fjárhagsáætlunum