Fréttablaðið - 13.02.2004, Page 4
4 13. febrúar 2004 FÖSTUDAGUR
Ertu hlynnt(ur) lýtaaðgerðum í
fegrunarskyni?
Spurning dagsins í dag:
Telur þú að ofbeldi hafi aukist á Ís-
landi á síðustu 10 árum?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
54%
46%
Nei
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
■ Norðurlönd
ATVINNUMÁL „Við treystum okkur
ekki til að gefa umsögn nema við
höfum tilteknar lágmarksupplýs-
ingar, sem við höfum ekki. Við
vísum þessu því aftur til sýslu-
mannsembættisins,“ sagði Þor-
björn Guðmundsson, formaður
Samiðnar, um fyrirliggjandi um-
sóknir til staðfestingar atvinnu-
réttinda erlendra starfsmanna
hér á landi. Sýslumannsembættið
á Seyðisfirði hafði sent Samiðn 20
umsóknir frá Impregilo, sem bið-
ur um staðfestingu atvinnurétt-
inda í byggingar- og málmiðnaði.
Þorbjörn sagði að á þessum
pappírum kæmi ekki einu sinni
fram þjóðerni manna, hvað þá
annað.
„Það er alveg ljóst að það gilda
tvenns konar reglur,“ sagði Þor-
björn. „Annars vegar fyrir EES-
borgara og hins vegar fyrir þá
sem eru utan EES. Það er ekki
hægt að afgreiða umsóknirnar
nema við vitum af hvaða þjóðerni
þessir menn eru.“
Þorbjörn sagði að samkomulag
það sem verkalýðshreyfingin
hefði gert við Impregilo á sínum
tíma væri tvíþætt.
„Annars vegar snýr það að
þeim sem voru komnir inn á
svæðið, þegar það var gert. Þar
horfðum við framhjá því að þar
væru menn búnir að brjóta lög og
reglur. Hins vegar snýr það að
þeim sem áttu að koma eftir að
samkomulagið tók gildi. Þeir áttu
ekki að fara inn á svæðið fyrr en
þeir væru búnir að leggja fram
tilskilda pappíra.“ ■
MORÐMÁL „Mér brá hrikalega og
get varla lýst því hvernig mér
leið,“ segir Þorgeir Jónsson kaf-
ari, sem fann líkið í höfninni í
Neskaupstað á miðvikudag.
Þorgeir segir að hann hafi ver-
ið fenginn til að skoða bryggjuna
neðansjávar vegna skemmda sem
urðu í óveðri í byrjun febrúar. „Ég
var að skoða skemmdirnar og
fyrirvaralaust blasti líkið við mér.
Ég stoppaði aðeins við, hugsaði
andartak og leit í kringum mig
áður en ég fór upp til að láta vita.“
Þorgeir var viss frá upphafi að
það var lík sem hann sá. Lögregl-
an var kölluð til. Þorgeir kafaði
aftur, nú til að aðstoða lögreglu
svo unnt væri að hífa líkið upp, en
það var á um sex til sjö metra
dýpi. Þorgeir segist efast um að
líkið hefði getað hreyfst til, þar
sem búið var að festa við það
þunga bobbinga.
Þorgeir segir sig strax hafa
grunað að um morð væri að ræða.
Hann segir hrikalegt til þess að
hugsa að kafarar geti átt von á
sjón sem þessari. „Ég hef hugsað
til þess í hvaða stöðu sportkafarar
væru sem lentu í ámóta. Reynslan
hjálpaði mér. Áður en ég fram-
kvæmdi eitthvað stoppaði ég við
og hugsaði málið. Gætti þess að
fara ekki of hratt upp, en alltaf er
hætta á köfunarveiki.“
Þorgeir hefur stundað köfun
frá árinu 1988. Árið 1994 fór hann
til Seyðisfjarðar ásamt þremur
öðrum Norðfirðingum til að leita í
höfninni að manni sem var sakn-
að. Þeir fundu manninn fljótt. „Þá
vissum við hvað við vorum að fara
út í en það var samt áfall þegar
við fundum hann.“
Þorgeir var að fara til að kafa í
höfninni þegar Fréttablaðið ræddi
við hann í gær. Hann sagðist
þurfa að kanna svæðið í höfninni
frekar auk þess sem gott væri
fyrir hann að kafa fljótt aftur til
að ná skrekknum úr sér.
Þorgeir ber sig vel og segist
hafa það þokkalegt. Hins vegar sé
því ekki að neita að upplifunin sé
alltaf að skjóta upp kollinum af og
til enda erfitt að komast hjá því
þar sem fréttir af atburðinum eru
í öllum fréttatímum og blöðum.
Hann fékk áfallahjálp eftir atvik-
ið og segir það hafa verið hið
besta mál.
hrs@frettabladid.is
Aftaka í Texas:
Myrti tíu
ára stúlku
TEXAS, AP Karlmaður á fimmtugs-
aldri var tekinn af lífi í Texas fyr-
ir þrjú morð sem framin voru árið
1991. Á meðal fórnarlamba
mannsins var tíu ára stúlka sem
hann hafði beitt kynferðisofbeldi.
„Eins og ég hef sagt frá upp-
hafi drap ég þau ekki,“ sagði Ed-
ward LaGrone áður en banvænu
eitri var sprautað í æðar hans.
Sannað þótti að Lagrone hefði
ruðst inn á heimili hinnar tíu ára
gömlu Shakeisha Loyd og hafið
skothríð. Shakeisha og tvær
frænkur hennar létust en frændi
hennar særðist.
Móðir Shakeisha hafði kært
LaGrone fyrir kynferðisbrot gegn
dótturinni. Shakeisha var barns-
hafandi þegar hún lést og var það
niðurstaða DNA-rannsóknar að
LaGrone væri faðirinn. ■
ÖRYGGISRÁÐ SAMEINUÐU
ÞJÓÐANNA
Bandaríkjamenn voru sakaðir um að
njósna um aðildarríkin.
Ásakanir um njósnir:
Vilja svör
MEXÍKÓBORG, AP Stjórnvöld í
Mexíkó hafa krafið Bandaríkja-
menn og Breta svara vegna ásak-
ana um að leyniþjónustur land-
anna hafi njósnað um ríki sem
áttu aðild að öryggisráði Samein-
uðu þjóðanna í aðdraganda inn-
rásarinnar í Írak. Í bréfi sem þau
sendu breskum og bandarískum
stjórnvöldum er lýst áhyggjum af
umræðu um hugsanlegar njósnir
og óskað eftir svörum við því
hvort njósnað hafi verið um
mexíkóska sendimenn.
„Þeir voru að njósna. Banda-
ríkjamenn hafa alltaf notast við
njósnir til að sjá fyrir hvaða
ákvarðanir önnur ríki taka,“ sagði
Adolfo Aguilar Zinser, fyrrum
sendiherra Mexíkó hjá Samein-
uðu þjóðunum. ■
BERGSTAÐASTRÆTI 37 • SÍMI: 552 5700
Matarlist og leikhús
Leikhúsmatseðill
milli kl. 18.00 - 20.00
ÞrIggja rétta kvöldverður
á 4.500 kr.
Upplýsingar á www.holt.is
• • •
• • •
• • •
undur.is
100 ÁRA Danska dagblaðið
Ekstra bladet fagnaði í gær hund-
rað ára afmæli sínu. Blaðið sem
upphaflega var aukaútgáfa Politi-
ken gaf ekki út sérstaka hátíðar-
útgáfu en setti upp stóra auglýs-
ingu við húsnæði sitt af hundi
pissandi á fætur konu, undir yfir-
skrift sem þýða mætti „Illa upp
alið frá 1904“
MORÐMÁL „Það var algjör tilviljun
að líkið fannst svona fljótt,“ segir
Gísli Sigurbergur Gíslason, hafn-
arstjóri í Neskaupstað.
Gísli segir að bryggjan þar sem
líkið fannst hafi skemmst þegar
bátur sem lá við bryggjuna í óveðri
barðist við hana Hann segir að við-
gerðir á bryggjunni hafi ekki verið
áætlaðar fyrr en seinna á árinu eða
jafnvel því næsta. Hann hafi hins
vegar rætt við Þorgeir Jónsson
kafara á þriðjudag og beðið hann
að athuga hvort skemmdir væru á
stólpum bryggjunnar. Þorgeir
hafði samband við Gísla daginn eft-
ir til að láta vita að hann ætlaði að
fara niður þá um daginn þar sem
veðrið væri svo gott.
„Ég bað Þorgeir einnig að at-
huga hvort fríholt hefðu dottið af
bryggjunni og væru á botninum.
Þegar hann fór að gá að þeim fann
hann líkið.“ Gísli stóð á bryggj-
unni með öðrum manni til að vera
Þorgeiri innan handar og til að
hífa upp fríholtin ef einhver
væru. „Við ætluðum ekki að trúa
honum þegar hann kom upp úr
sjónum og sagðist hafa séð lík.“ ■
Ólöglegir innflytjendur:
Haldið í
gíslingu
KALIFORNÍA, AP Bandaríska lögregl-
an fann 64 ólöglega innflytjendur
læsta inni í litlu húsi skammt frá
Perris í Kaliforníu. Þrír menn voru
handteknir í húsinu grunaðir um að
hafa smyglað fólkinu yfir landa-
mærin frá Mexíkó og haldið þeim í
gíslingu á meðan beðið var eftir
greiðslum frá fjölskyldum þeirra.
Einum gíslanna tókst að sleppa
og gera yfirvöldum viðvart. Húsið
sem innflytjendurnir voru læstir
inni í var aðeins 81 fermetri að flat-
armáli og í mikilli niðurníðslu. Gísl-
arnir voru frá Mið-Ameríku en
mennirnir sem voru handteknir eru
taldir vera Mexíkóar. ■
GÍSLI SIGURBERGUR GÍSLASON
Kafarinn leitaði fríholta
þegar hann fann líkið.
Gísli Sigurbergur Gíslason, hafnarstjóri í Neskaupstað:
Líkið fannst fyrir tilviljun
Brá þegar hann synti
fram á hinn myrta
Þorgeir Jónsson kafari, sem fann líkið í höfninni við netagerðarbryggj-
una í Neskaupstað, fann fyrir tíu árum í Seyðisfjarðarhöfn mann sem
saknað hafði verið.
ÞORGEIR JÓNSSON KAFARI
Synti fram á innpakkað lík.
Þrátt fyrir að honum brygði illa
við náði hann áttum áður en
hann synti upp og lét vita.
Samiðn vill meiri upplýsingar frá Impregilo:
Endursendi umsóknir til sýslumanns
ÞORBJÖRN
GUÐ-
MUNDSSON
Formaður
Samiðnar seg-
ir að í upplýs-
ingunum sem
borist hafi frá
sýslumannin-
um hafi ekki
einu sinni
komið fram af
hvaða þjóð-
erni mennirnir
væru.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
LM
A
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
LM
A
GAGNRÝNIR BYGGINGU VEGGSINS
Ástandið í landinu helga er
áhyggjuefni
fyrir alla, sagði
Jóhannes Páll
páfi II þegar
hann gagn-
rýndi ísraelsk
stjórnvöld fyr-
ir að byggja
vegg milli Ísra-
ela og Palest-
ínumanna. Hann sagði að menn
ættu frekar að byggja brýr en
veggi og leita friðar og sátta þegar
hann tók á móti Ahmed Qureia, for-
sætisráðherra Palestínu.
JÁTAR SÖK Rúmlega fertugur
Bandaríkjamaður sem hafði lýst
sig saklausan af ákærum um að
hafa numið á brott tólf ára breska
stúlku hefur nú játað sök. Stúlk-
unni kynntist hann á Netinu, hitti
hana í Bretlandi og fór með henni
til Frakklands og Þýskalands.
Hann neitar því að hafa haft mök
við stúlkuna og segist hafa talið
hana átján ára.
STJÓRNMÁLAMAÐUR STUNGINN
MEÐ HNÍFI Kona vopnuð hnífi
réðst á yfirmann dómsmála í
Hamborg á framboðsfundi í gær.
Roger Kusch, sem er meðlimur í
Kristilegra demókrataflokknum,
var fluttur á sjúkrahús með
minniháttar áverka á læri. Við-
staddir yfirbuguðu konuna og
héldu henni þar til lögreglan kom
á staðinn.
FORSETAFRAMBJÓÐENDUR MÓT-
MÆLA Frambjóðendur í forseta-
kosningunum í Rússlandi neituðu
að taka þátt í
kappræðum í
sjónvarpi
sem Vla-
dímír Pútín
forseti hafði
ákveðið að
sniðganga.
Frambjóð-
endurnir
sögðu að það
þjónaði engum tilgangi að ræðast
við í sjónvarpi þegar aðalkeppi-
nauturinn væri fjarri góðu gamni.
■ Evrópa