Fréttablaðið - 13.02.2004, Síða 18
18 13. febrúar 2004 FÖSTUDAGUR
■ Andlát
■ Jarðarfarir
Þann 13. febrúar árið 1945 gerðu773 Avro Lanvaster flugvélar
breska flughersins loftárás á mið-
aldaborgina Dresden og í kjölfarið
fylgdu rúmlega 500 bandarískar
sprengjuflugvélar sem létu
sprengjum rigna yfir borgina í tvo
daga.
Hugmyndin að sprengjuárás af
þessari stærðargráðu kom fyrst
upp árið 1941 þegar Bretar komust
að þeirri niðurstöðu að það mætti
draga hratt úr baráttuþreki Þjóð-
verja með því að gera sprengju-
árásir á heilu borgirnar og bæina í
Þýskalandi.
Bandamenn notuðu sérstakar
eldsprengjur í þessum árásum sín-
um. Sprengjurnar voru hlaðnar eld-
fimum efnum, eins og til dæmis
napalmi, en þegar heitt og kalt loft
mættist við sprengingu sogaðist
fólk inn í eldhafið.
Dresden þótti hentug fyrir loft-
árásir af þessu tagi þar sem hún
hafði nánast sloppið við allt slíkt
hingað til og var illa búin loft-
varnarbyssum. Eldsprengjurnar
gerðu það ómögulegt að koma tölu á
þá sem létust í árásunum en nýleg-
ar rannsóknir benda til þess að
35.000 manns hafi týnt lífi í Dres-
den en samkvæmt öðrum heimild-
um dóu rúmlega 100.000 manns.
Íbúafjöldinn var miklu meiri en
venjulega þar sem fólk á flótta und-
an rauðu herdeildum Rússa hafði
streymt til borgarinnar. ■
10.30 Þorsteinn C. Löve verður jarð-
sunginn frá Laugarneskirkju.
13.30 Arnþór Flosi Þórðarson, Selja-
braut 42, Seltjarnarnesi, verður
jarðsunginn frá Seltjarnarnes-
kirkju.
13.30 Svanfríður Guðný Kristjánsdótt-
ir, Tómasarahaga 16, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Neskirkju.
15.00 Hjörtur Brynjólfsson frá
Hraunsnefi, Borgarfirði, verður
jarðsunginn Dómkirkjunni.
15.00 Rut Bergsteinsdóttir, Rauðagerði
54, verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju.
■ Afmæli
Tómas Ingi Olrich, fyrrverandi
menntamálaráðherra, er 61 árs í dag.
Kristinn Guðmundsson húsasmíða-
meistari og byggingaeftirlitsmaður,
Langagerði 74, Reykjavík, lést þriðjudag-
inn 10. febrúar.
Birna Eggertsdóttir Norðdahl frá Hólmi,
dvalarheimilinu Barmahlíð, Reykhólum,
lést sunnudaginn 8. febrúar.
Þóranna G. Jónsdóttir, Flétturima 38,
Reykjavík, lést 28. janúar. Útförin hefur
farið fram í kyrrþey.
■ Bandamenn létu sprengjum rigna yfir
þýsku borgina Dresden. Mannfall var
gríðarlegt og tjónið á sögulegum
byggingum óbætanlegt.
ÞORVALDUR ÞORSTEINSSON
Leikrit hans, And Björk of course ..., var
valið sem framlag Íslands til Norrænu
leikskáldaverðlaunanna árið 2004
fyrr í vikunni.
Hver?
Skapandi lífvera eins og allir menn.
Hvar?
Hér og nú ætla ég rétt að vona. En
hugsanlega er þetta lygi en ég verð að
eiga það við sjálfan mig.
Hvaðan?
Norðurbrekkunni á Akureyri. Það er að
aðeins fínna hverfi en önnur hverfi á
Akureyri.
Hvað?
Afskaplega þakkátur myndlistarmaður
og rithöfundur sem á þann draum að
vekja grun hjá sem flestum um eigin
sköpunargáfu.
Hvernig?
Með því að hafa hugrekki til að fyrirgefa
sjálfum sér og hjálpa öðrum til að gera
slíkt hið sama með því gera sköpunar-
gáfuna að sjálfsögðum þætti í lífi allra.
Hvers vegna?
Vegna þess að sá sem tekur ekki ábyrgð
á að skapa sitt eigið líf verður seint
hamingjusamur og deyr líklegast úr
leiðindum.
Hvenær?
Hvenær sem að egóið er ekki að þvæl-
ast fyrir manni þá gerast góðir hlutir.
■ Persónan
Hann var ástríðufullur bók-menntamaður og bókmennt-
ir voru honum fyrst og fremst
liður í einlægri og ástríðufullri
þekkingarleit,“ segir Bergljót
Kristjánsdóttir íslenskufræðing-
ur um Matthías Viðar Sæmund-
son bókmenntafræðing. Matth-
+ías Viðar, sem lést þann 3. febr-
úar síðastliðinn, kom víða við
samfélaginu sem og í fræðum
sínum. Hann kenndi í framhalds-
skóla, var forsvarsmaður Félags
áhugamanna um bókmenntir og
var einn afkastamesti fræðimað-
ur Háskólans á sviði hugvísinda.
„Hann var róttækur í þjóð-
félagsskoðunum og mikill verka-
lýðssinni eins og birtist í verki
hans um Héðinn Valdimarsson.“
Sem persónu lýsir Bergljót hon-
um sem ákaflega hlýjum og
elskulegum manni sem var gott
að vinna með. „Það sem var
skemmtilegt við hann var hvað
hann var djúpt alvörugefinn
maður en í sömu mund hafði
hann vald á íslenskum gálga-
húmor eins og hann gerist bestur
og nöturlegastur.“
Ástráður Eysteinsson bók-
menntafræðingur var einnig
samstarfsmaður Matthíasar um
árabil. „Matthías Viðar var afar
fjölhæfur bókmenntafræðingur.
Hann var virkur bókmenntagagn-
rýnandi og lét hiklaust í ljós þá
skoðun sína að nýjar íslenskrar
bókmenntir skorti oft formlega
og hugmyndalega dirfsku. Þrátt
fyrir fjölhæfni Matthíasar kom
það mér og fleiri kollegum hans á
óvart að frétta að hann ætlaði
næst að ráðast í að skrifa ævi-
sögu Héðins Valdimarssonar.
Þannig var ómögulegt að ganga
að honum vísum á afmörkuðum
bás í fræðunum. Mér skilst að
hann hafi komist langleiðina með
að ganga frá því verki og vonandi
birtist það fljótlega á prenti.“
Þröstur Helgason var nem-
andi Matthíasar og segir að sem
frábær kennari muni áhrif hans
eiga eftir að vera mikil eftir
hans dag. „Það var einkennandi
fyrir hann að hann var mjög leit-
andi í sínu fræðastarfi og nem-
endur hans fengu að fylgjast
með leit hans. Í þau fimm ár sem
ég var nemandi hans var hann
ekkert að pukrast með það sem
hann var að gera og var örlátur á
það sem hann fann. Þannig fékk
ég að fylgjast með því hvernig
hann var að þróa sín fræði
áfram. Sem fræðimaður var
hann algjörlega fordómalaus
gagnvart viðfangsefni sínu,
skoðaði allt og las allt. Hann má
teljast með framsæknustu bók-
menntafræðingum og var iðu-
lega skrefinu á undan. Sem
talandi dæmi eru kaflar hans í 3.
bindi Íslensku bókmenntasög-
unnar en þar skrifaði hann að
mörgu leyti íslenska bókmennta-
sögu upp á nýtt.“■
JERRY SPRINGER
Spjallþáttastjórnandinn umdeildi er 60 ára
í dag.
13. febrúar
■ Þetta gerðist
1542 Catherine Howard, fimmta eigin-
kona Hinriks 8. Englandskon-
ungs, er hálshöggvin fyrir fram-
hjáhald.
1635 Fyrsti almenningsskólinn í
Bandaríkjunum opnar í Boston.
1668 Spánn viðurkennir sjálfstæði
Portúgals.
1920 Forveri Sameinuðu þjóðanna
viðurkennir hlutleysi Sviss.
1935 Bruno Richard Hauptmann er
fundinn sekur um ránið og
morðið á barni Charles og Anne
Lindbergh.
1945 Rússneskir hermenn ná yfirráð-
um í Búdapest af þýska hernum.
1960 Frakkar sprengja sína fyrstu
kjarnorkusprengju.
1984 Konstantin Chernenko er valinn
aðalritari sovéska kommúnista-
flokksins eftir dauða Júrís
Andropov.
1996 Söngleikurinn Rent eftir Jonath-
an Larson er frumsýndur í
Bandaríkjunum.
DRESDEN
Borgin var nánast jöfnuð við jörðu í hörð-
um loftárásum bandamanna árið 1945.
13. febrúar
1943
Endurskrifaði íslenska
bókmenntasögu
Dresden jöfnuð við jörðu
Heimasíða gegn einelti
Heimasíðan á að virka eins oggagnlegt bókasafn þar sem
fólk getur leitað eftir upplýsing-
um og fræðslu,“ segir Freyja
Friðbjarnardóttir, framkvæmda-
stjóri Regnbogabarna. Samtökin
opnuðu heimasíðu í gær og nutu
til þess aðstoðar Þorgerðar
Katrínar Gunnarsdóttur mennta-
málaráðherra.
Freyja segir einelti vissulega
enn til staðar. „Einelti er á Íslandi
í allri sinni mynd. Fyrirspurnir og
ráðleggingar gagnvart kynþátta-
fordómum hafa aukist og svo
virðist sem ungt fólk sé helstu
gerendur.“
Freyja segir að á heimasíðunni
verði virk spjallrás og hægt verði
að koma með fyrirspurnir til sam-
.takanna. Þá sé að finna fræðslu
auk ábendinga um fleiri gagnlega
miðla sem fjalla um einelti.
Frá stofnun samtakanna í nóv-
ember árið 2002 hefur þróunin inn-
an samtakanna farið vaxandi að
mati Freyju. „Við byrjuðum með
tvær hendur tómar. Við fengum
gefins húsnæði sem krafðist mik-
illar lagfæringar. Það má segja að
mesta orkan hafi farið í þessar
endurbætur en þær voru á okkar
kostnað. Með opnun heimasíðunn-
ar vildum við í leiðinni minna á
starfsemi samtakanna.“ ■
ÞORGERÐUR KATRÍN GUNNARSDÓTTIR
Menntamálaráðherra var í góðum félagsskap þegar hún opnaði nýja heimasíðu
Regnbogabarna snemma í gærmorgun.
Ný heimasíða
REGNBOGABÖRN HAFA OPNAÐ
NÝJA HEIMASÍÐU
■ Framkvæmdastjóri samtakanna segir
einelti í allri sinni mynd fyrirfinnast á
Íslandi
Útför
■ Útför Matthíasar Viðars Sæmundsson-
ar verður gerð frá Kristskirkju í Landakoti
í dag klukkan 13.30.
MATTHÍAS VIÐAR SÆMUNDSSON
Í upphafi ferils síns var honum nútímamaðurinn á 19. og 20. öld í bókmenntum mjög svo hugleikinn en á síðari árum varð hann fyrir
miklum áhrifum af verkum franska fræðimannsins Michel Foucault sem leiddi hann í að skoða frekar bókmenntir á upplýsingatímanum
frá nýju sjónarhorni auk þekktra rannsókna hans á galdri og galdramálum.