Fréttablaðið - 15.02.2004, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Kvikmyndir 34
Tónlist 34
Leikhús 34
Myndlist 34
Íþróttir 32
Sjónvarp 36
SUNNUDAGUR
ÚTIVIST FYRIR ALLA Orkuveita
Reykjavíkur og Ferðafélag Íslands efna til
fjölskyldugöngu í Elliðaárdalnum í dag.
Leiðsögumenn verða þeir Einar Gunn-
laugsson og Kristinn Þorsteinsson. Lagt
verður af stað frá Mörkinni 6 klukkan 11.
Að lokinni leiðsögn býður Orkuveitan
upp á veitingar í Minjasafni sínu. Þátttaka
er ókeypis og allir eru velkomnir.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
HÆGT KÓLNANDI Í DAG Í borginni
verður milt fyrripartinn en hitinn fer líklega
niður í tvær gráður í kvöld. Hlýnar aftur
síðdegis á morgun og þá hvessir að nýju
um vestanvert landið. Sjá síðu 6.
15. febrúar 2004 – 45. tölublað – 4. árgangur
GANGUR Í KJARAVIÐRÆÐUM
Mörg smærri
ágreiningsefni í
kjarasamningum
á almennum
vinnumarkaði
hafa verið leyst.
Stóru málin eru
enn eftir. Samtök
atvinnulífsins
leggja áherslu á
að hagsmunir fyrirtækja og starfsfólks fari
saman í þeim efnum. Sjá síðu 4
SAMEINING SVEITARFÉLAGA
Sveitarstjórnarmenn á Vestfjörðum eru já-
kvæðir gagnvart frekari sameiningu sveitar-
félaga. Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar segir
ekkert hafa sparast á sameiningu en vill
sameina stærra svæði. Sjá síðu 6
REÐASAFNIÐ NORÐUR Hið íslenzka
reðasafn verður flutt til Húsavíkur. Eigandi
safnsins sér fram á bjarta tíma fyrir norðan.
75% gesta hans eru útlendingar og 60% af
heildargestafjöldanum eru konur. Sjá síðu 10
DEILUR RAKTAR TIL KOL-
KRABBANS The Economist telur deilur
Davíðs Oddssonar og atvinnulífsins mikilvæg-
ar breytur varðandi framtíðarhorfur í íslensku
efnahagslífi. Fullyrt er að þær megi rekja til
veikari stöðu kolkrabbans. Sjá síðu 14
BYLUR Í MIÐAUSTURLÖNDUM Hríðarbylur geisaði víða í Miðausturlöndum í gær. Ísraelskur hermaður mátti standa vaktina í kófinu í
úthverfi borgarinnar el-Hader á Vesturbakkanum.
RANNSÓKN Við krufningu kom fram
að maðurinn sem fannst látinn í
höfninni í Neskaupstað á miðviku-
dag hafði innbyrt um 350 grömm
af amfetamíni sem var í um
fjörutíu smokkum eða einangrað
með öðru móti. Heimildum innan
lögreglunnar ber ekki saman um
þetta, talað er um að efnið hafi ver-
ið haft í áður óþekktum hylkjum.
Sannað þykir að maðurinn hafi lát-
ist við að gat kom á umbúðir og
amfetamín komst í blóð hans. Þrjú
stungusár eru á líkinu, á kvið og
brjóstholi og er talið að þau hafi
verið veitt eftir að maðurinn lést
og það hafi verið gert til að forðast
gasmyndun í líkinu, en hún veldur
því að líkið flýtur upp eftir ákveð-
inn tíma í vatni eða sjó. Þeir sem
til þekkja segja sárin veitt af kunn-
áttumönnum.
Þegar Fréttablaðið fór í prent-
un í gærkvöld leitaði lögregla
tveggja Íslendinga sem eru grun-
aðir um að hafa komið líkinu fyrir
í höfninni. Innan lögreglunnar eru
misvísandi kenningar um hverju
rannsóknin hefur skilað. Flestir
telja að sá látni hafi komið til Ís-
lands flugleiðis og farið í flugi frá
Keflavík til Egilsstaða. Aðrir telja
allt eins líklegt að maðurinn hafi
sótt amfetamínið í skip sem var í
Norðfirði. Ætlunin hafi verið að
koma því þaðan á markað í
Reykjavík.
Rannsóknin beinist helst að því
hvaða menn hinn látni ætlaði að
hitta þar sem allt bendir til að þeir
sem áttu að taka við efninu hafi
komið líki mannsins fyrir í höfn-
inni.
Sjá nánar bls. 2
Steingrímur J.
í yfirheyrslu:
Enginn
einn hópur
sem ræður
STJÓRNMÁL „Það er enginn einn
hópur sem ræður því að lokum
hvaða áherslur flokkurinn hefur.
Það gerum við öll saman. Því
verða þessir ágætu félagar að
sæta eins og allir aðrir,“ segir
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstrihreyfingarinnar -
græns framboðs, í viðtali við
Fréttablaðið í dag um óánægju-
hóp innan flokksins.
„Ég gef ekki mikið fyrir það
þótt Davíð Oddsson taki stórt
upp í sig á fundum og Valgerður
Sverrisdóttir hafi áhyggur í ein-
um fjórða af þingræðum meðan
þau gera ekki nokkurn skapaðan
hlut,“ segir Steingrímur J. jafn-
framt.
Sjá nánar síðu 16–17.
Tíu ár á Evrópska efnahagssvæðinu
Stjórnmálamenn deildu hart í aðdraganda aðildar Íslands að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið.
Tíu ára reynsla er nú komin á samninginn og áhrif hans á íslenskt samfélag. Eiríkur Bergmann Einarsson,
stjórnmálafræðingur við Háskóla Íslands, fjallar um samninginn í tilefni tímamótanna. SÍÐA 12
▲
Fjölmiðlar eru speglar
samfélagsins
Fylgst með
börnum
á Netinu
SÍÐA 17
▲
SÍÐUR 18–19
▲
Páll Magnússon er kominn
aftur til starfa á Stöð 2. Hann
yfirgaf fyrirtækið fyrir þremur
árum til að gegna fram-
kvæmdastjórastarfi hjá Ís-
lenskri erfðagreiningu en snýr
nú aftur sem framkvæmda-
stjóri dagskrársviðs Íslenska
útvarpsfélagsins.
Verðandi dagmóðir ætlar að
setja upp myndavél svo for-
eldrar geti fylgst með börnum
sínum á Netinu. Dagmóðirin
vill fullvissa foreldrana um að
börnin séu örugg og fái góða
umönnun.
Var með 350 grömm
amfetamíns innvortis
Maðurinn sem fannst látinn í Norðfjarðarhöfn reyndist hafa innbyrt um fjörutíu umbúðir sem
samtals innihéldu rétt um 350 grömm af amfetamíni. Götuverð efnisins er að lágmarki tvær
milljónir króna. Þrjú göt voru stungin á líkið til að forðast gasmyndun svo það flyti ekki.
Forseti Íslands:
Kominn
heim úr
vetrarfríi
STJÓRNMÁL Ólafur Ragnar Gríms-
son, forseti Íslands, og kona
hans, Dorrit Moussaieff, komu
til landsins í gær eftir vetrarfrí í
Bandaríkjunum. Við komuna
heim vildi Ólafur Ragnar ekki
tjá sig við fjölmiðla um deilurn-
ar sem orðið hafa milli hans og
Davíðs Oddssonar forsætisráð-
herra í kjölfar hátíðarhalda
vegna hundrað ára afmælis
heimastjórnar á Íslandi.
Ólafi Ragnari var ekki gert
viðvart um ríkisráðsfund sem
haldinn var 1. febrúar og hélt
því fram að fundinum hefði ver-
ið haldið leyndum fyrir sér. ■
M
YN
D
/A
P