Fréttablaðið - 15.02.2004, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 15.02.2004, Blaðsíða 15
ríkisfjármálastefnunni á síðustu misserum. Greint er frá því að fjárlagahalli á árinu 2003 hafi ver- ið um 1,7% af landsframleiðslu. Blaðið telur að þrátt fyrir auknar skatttekjur á þessu ári náist markmið ríkisstjórnarinnar um afgang af fjárlögum á þessu ári ekki. The Economist spáir að fjár- lagahalli nemi um 0,2% af lands- framleiðslu í ár en á árinu 2005 verði afgangur upp á 0,4% af landsframleiðslu. Fjallað er um aukin útgjöld í heilbrigðismálum og greint frá því að á síðustu árum hafi yfir helmingur heilbrigðisstofnana farið að meðaltali 26% fram úr fjárheimildum sínum á ári. Aðrar hagstærðir The Economist spáir því að Seðlabankinn hækki vexti á fyrsta ársfjórðungi þessa árs og haldi hækkunum áfram á árinu 2005. Blaðið telur að grunnvextir Seðla- bankans verði 7,5% í árslok 2005 en í dag eru þeir 5,3%. Gert er ráð fyrir að hagvöxtur verði 4,5% í ár og 4,8% árið 2005 en varað er við því að viðskipta- halli geti dregið úr hagvexti bæði árin. Blaðið telur verðbólgu ekki fara úr böndunum þrátt fyrir mik- inn styrk í efnahagslífinu en að hún verði þó lítillega yfir mark- miðum Seðlabankans bæði árin; verði 2,8% í ár og 3,3% árið 2005. Gengi krónunar mun halda áfram að styrkjast á árinu 2004 þótt viðskiptahalli myndi þrýsting á gengið. Sérstaklega er gert ráð fyrir mikilli styrkingu gagnvart Bandaríkjadal á þessu ári en auknum stöðugleika í gengismál- um á árinu 2005. Stjórnmálin Stuðningur við ríkisstjórnina fór dvínandi á síðari hluta ársins 2003 og segir The Economist að þetta megi rekja til minnkandi fylgis við Sjálfstæðisflokkinn. Þetta er sett í samhengi við deilur Davíðs Oddssonar við áberandi menn í hinu síkvika viðskiptaum- hverfi landsins. The Economist segir að Samfylkingunni hafi ekki tekist að nýta sér þetta heldur hafi stuðningur fyrst og fremst aukist við Vinstri hreyfinguna - grænt framboð. Sameiningar og yfirtökur í við- skiptaheiminum voru fjölmargar á árinu 2003. Þetta telur The Eonomist að hafi haft mjög mikil áhrif í viðskiptalífinu en einnig á hið pólitíska landslag. Nýjar valdablokkir hafi orðið til sem hafi ógnað stöðu hins svokallaða „kolkrabba“ sem hafi borið ægis- hjálm yfir viðskiptalífið og verið mjög áhrifamikill á stjórnmála- sviðinu. Eru kaup Baugs á þrotabúi DV og hlutur fé- lagsins í Fréttablaðinu og nú Norðurljósum sérstak- lega nefnd í þessu sam- bandi. Segir The Economist að Fréttablaðið hafi tekið forystu á íslenskum dag- blaðamarkaði og sé nú sterkara en Morgunblaðið, sem fullyrt er að sé málpípa Sjálfstæð- isflokksins. Sagt er frá orðahnipping- um milli for- s v a r s m a n n a Baugs og Dav- íðs Oddssonar og nefndum sem settar hafi verið á laggirnar til þess að taka afstöðu til h r i n g a - myndunar og eignar- halds á fjölmiðlum. Í skýrslu b l a ð s i n s segir einnig frá því að Ólafur Ragn- ar Grímsson og Samtök at- vinnulífsins hafi varað við því að gerðar verði breytingar sem stefni í hættu frelsi Íslendinga til að keppa á sviði alþjóðlegra viðskipta. Meiðyrði og bankamál The Economist fjallar um kaupin á eignum Jóns Ólafssonar og grein- ir frá meiðyrðamáli sem Jón hefur höfðað vegna ummæla Davíðs Oddssonar. Þá fjallar blaðið um upphlaupið í kringum kaupréttar- samninga forsvarsmanna KB- banka. The Economist segir að deil- urnar milli viðskiptalífsins og for- sætisráðherra séu ný- mæli á Íslandi og segir skýrslan að þetta megi fyrst og fremst rekja til hraðra breyt- inga í við- skiptalands- laginu þar sem „ráð- andi elíta“ til margra áratuga hafi misst mikil áhrif. Blaðið segir kald- hæðnislegt að þessar breytingar megi fyrst og fremst rekja til að- gerða ríkisstjórna Dav- íðs Oddssonar sem hafi gert frumkvöðlum mögulegt að fóta sig í efnahagslífinu. Þetta segir blaðið vera veigamikla breytingu í íslensku viðskiptalífi sem hafi áður verið bundið í fjö- tra þar sem fjölskyldutengsl hafi ráðið miklu. ■ 15SUNNUDAGUR 15. febrúar 2004 Sendifulltrúa- námskeið Samnorrænt námskeið fyrir verðandi sendifulltrúa Rauða krossins verður haldið á Íslandi 18. – 23. apríl n.k. Þátttaka í námskeiðinu er forsenda þess að geta unnið sem sendifulltrúi Rauða kross Íslands á alþjóðavettvangi. Inntökuskilyrði eru menntun á háskólastigi, þriggja ára starfsreynsla og góð enskukunnátta. Þekking á öðrum tungumálum, áhugi á mannúðarmálum og löngun til að læra og gefa af sér er mikill kostur. Valið er á námskeiðið úr fyrirliggjandi umsóknum. Þátttökugjald er 20.000 kr. Umsóknir með ferilsskrá berist Kristínu Ólafsdóttur (kristin@redcross.is) fyrir 29. febrúar. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að nota staðlað umsóknareyðublað sem er að finna á vefsíðu Rauða kross Íslands, www.redcross.is, þar er einnig að finna allar nánari upplýsingar. Sendifulltrúar starfa á vegum Rauða kross Íslands hjá Alþjóðaráði Rauða krossins eða Alþjóðasambandi landsfélaga Rauða krossins og Rauða hálfmánans við marg- vísleg störf. Þar má helst telja sérhæfð störf eins og við heilsugæslu, verkfræði, flutningsfræði, fjármálastjórnun og almannatengsl en einnig er ráðið fólk til almennra starfa við dreifingu hjálpargagna. M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN Viltu vinna við alþjóðlegt hjálparstarf? BÚIST VIÐ LITLUM BREYTINGUM Í STJÓRNARRÁÐINU The Economist telur að stefna ríkisstjórnarinnar muni lítið breytast við að Halldór Ásgrímsson taki við embætti forsætisráðherra.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.