Fréttablaðið - 18.02.2004, Side 30

Fréttablaðið - 18.02.2004, Side 30
Hrósið 26 18. febrúar 2004 MIÐVIKUDAGUR Ljósmyndari sem myndaði brúð-kaup Ástþórs Magnússonar í Þingvallakirkju þann 11. febrúar seldi tímaritinu Séð og heyrt einkaréttinn á myndunum að brúð- gumanum forspurðum. Ásþór hef- ur reynt að nálgast myndirnar en hefur aðeins fengið að skoða þær. „Vegna forfalla komst æsku- félagi minn Emil Þór Sigurðsson ljósmyndari ekki í athöfnina og þá var útvegaður annar ljósmyndari sem ég þekki ekki persónulega. Hann tók að sér að mynda athöfn- ina fyrir okkur hjónin og einnig að afgreiða myndir til fjölmiðla í samræmi við reglur Ljósmynd- arafélags Íslands yrði þess óskað,“ segir Ástþór, sem telur ljósmyndarann hafa gengið þvert á áður gert samkomulag. Ástþór komst að því daginn eft- ir brúðkaupið að ljósmyndarinn hafði gert ráðstafanir til þess að hvorki brúðhjónin né aðrir fengju aðgang að myndunum, en Ástþór hafði ætlað sér að senda öllum fjöl- miðlum mynd. „Við vonum að ljós- myndarinn og Séð og heyrt verði við þeirri beiðni að senda okkur hjónunum myndirnar og að ekki verði frekari hömlur settar á það að við fáum að njóta myndanna og senda þeim sem við óskum mynd úr brúðkaupi okkar,“ segir Ástþór í yfirlýsingu sem hann hefur gefið út vegna myndamálsins. Yfirlýs- ingin er svar Ástþórs við fyrir- spurnum fjölmiðla um myndir úr brúðkaupinu og henni er einnig ætlað að taka af allan vafa á því að það var ekki Ástþór sjálfur sem seldi Séð og heyrt myndirnar fyrir 70.000 krónur enda situr hann eftir og saknar myndanna frá þessum stóra degi í lífi sínu. ■ Brúðkaup ÁSTÞÓR MAGNÚSSON WIUM ■ og Natalia Wium gengu í það heilaga á dögunum. Ljósmyndarinn sem festi athöfn- ina á filmu seldi Séð og heyrt einkaréttinn. Imbakassinn ... fær Haraldur Þór Egilsson sagnfræðingur fyrir að spyrja þeirrar tímabæru spurningar hvort sendiráð heyri sögunni til. Brúðkaupsmyndir í gíslingu hjá Séð og heyrt í dag Morðingi fær ekki að hitta kærustuna sína Bestu tónlistar- hátíðirnar Lygi og fals í fyrirsætu- bransanum Tengja skemmtan og öryggi Hljómsveitin Roðlaust og bein-laust frá Ólafsfirði tengir saman áhugamál og vinnu með ýmsu móti. Hljómsveitin er skip- uð áhöfninni á frystitogaranum Kleifarbergi ÓF-2 en sveitin getur líka treyst á hljóðfæraleikara í landi ef einhver úr áhöfninni er ekki til taks. Hún hefur gefið út tvo geisladiska og ágóðinn af þeim báðum hefur runnið til styrktar öryggismála sjómanna. „Björgunarsveitir seldu fyrri diskinn okkar Bráðabirgðalög og fengu allan ágóðann,“ segir Björn Valur Gíslason, hljómsveitarmeð- limur og fyrsti stýrimaður á Kleifarbergi. „Nafnið á diskinum vísar til þess að sjómenn og út- gerðarmenn hafa ekki fengið að gera kjarasamninga í nærri fimmtung úr öld þar sem ríkis- stjórnir landsins hafa oftast sett bráðabirgðalög á kjaradeilur þessara aðila. Seinni diskurinn, Brælublús, hefur verið seldur í símasölu til styrktar Slysavarnar- skóla sjómanna og það hefur gengið vonum framar.“ Björn segir það engu skipta þó ágóðinn af geisladiskaútgáfu hljómsveitarinnar renni ekki í vasa meðlimanna. „Við erum að gefa út diska vegna þess að við höfum gaman af tónlistinni og fé- lagsskapnum. Þar sem við erum ekki atvinnutónlistarmenn heldur áhugamenn viljum við styrkja þá sem hugsa um öryggi okkar á með- an við höfum gaman af músíkinni. Allir sjómenn fara í gegnum Slysa- varnarskólann og hafa sterkar taugar til hans. Á þessum tveim árum höfum við látið nokkuð drjúgar upphæðir renna til örygg- is sjómanna, um þrjár milljónir.“ ■ Færeyingurinn Ernst S. Olsen,framkvæmdastjóri Vestnor- ræna ráðsins, hefur gert storm- andi lukku í Dominos pizzu aug- lýsingum þar sem hann leikur landa sinn sem lifir fyrir það eitt að vinna hjá Dominos. Það kom mörgum á óvart þegar Frétta- blaðið birti frétt þess efnis að Ernst væri fyrir það fyrsta al- vöru Færeyingur og ekki síður virðulegur framkvæmdastjóri. Það virðist nefnilega vera út- breiddur misskilningur að þessi skemmtilegi karl í auglýsingunni sé í raun starfsmaður Dominos. Flatbökukeðjan hefur að vísu kynnt undir þá listrænu blekk- ingu með því að hengja mynd af Ernst, sem starfsmanni mánaðar- ins, upp á vegg pizzustaðanna og það er töluvert um að krakkar geri sér ferð á staðina til þess eins að spyrja: „Er Færeyingur- inn að vinna?“ Á að gera eitthvað sniðugt um helgina? ÁSTÞÓR MAGNÚSSON Hefur ekki fengið eina einustu brúðkaups- mynd en hann fékk að skoða þær hjá Séð og heyrt í gær. Blaðið tryggði sér einkarétt á myndunum en Ástþór vonast engu að síður til að geta fengið að nota þær. Tónlist ROÐLAUST OG BEINLAUST ■ Styrkti björgunarsveitirnar með fyrri disknum og Slysavarnarskóla sjómanna með þeim síðari. 1 6 7 8 9 14 16 17 15 18 2 3 4 1311 10 12 5 Lárétt: 1 rýrt, 6 fjanda, 7 félagsskapur, 8 tveir eins, 9 eins um p, 10 bílaleiga, 12 sær, 14 skip, 15 óreiða, 16 stækkaði, 17 gufu, 18 meltingarhólf í jórturdýrum Lóðrétt: 1 afríkumaður, 2 arg, 3 skamm- stöfun, 4 eins konar vísnasöngvari, 5 tengt trú, 9 æst, 11 senda skilaboð, 13 vítt, 14 fantur, 17 ekki. Lausn: Lárétt: 1magurt, 6ára,7aa,8rr, 9ópó, 10alp,12mar, 14far, 15rú,16óx,17 eim,18laki. Lóðrétt: 1mári,2arr, 3ga,4rappari,5 taó,9ólm,11faxa,13rúmt,14fól,17ei. ■ Veistu svarið? Svör við spurningum á bls. 6 1. 2. 3. Um 100 þúsund tonn. Ísrael. John Daly. Nei, ætli maður hangi ekki bara hérna! HLJÓMSVEITIN ROÐLAUST OG BEINLAUST Áhöfnin frá Ólafsfirði semur tónlist og gefur út diska sér til skemmtunar en allur ágóði rennur til öryggismála sjómanna. Fréttiraf fólki

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.