Fréttablaðið - 19.02.2004, Blaðsíða 50
46 19. febrúar 2004 FIMMTUDAGUR
Önnur breiðskífa Noruh Jones,Come Away With Me, seldist
öllum að óvörum í milljónum ein-
taka og kom stúlkunni rækilega á
kortið. Næsti lagaskammtur er
unninn úr sama vinalega deiginu.
Þeir sem náðu tengingu við fyrri
plötuna eiga bókað eftir að gera
það líka núna.
Norah færir sig upp á skaftið í
lagasmíðum og á hlut í fleiri lög-
um en áður. Hún er fær sem slík
og lög hennar eru ekkert síðri að
gæðum en lög þeirra stórsnillinga
sem hún tekur upp á sína arma,
þó svo að þar séu menn á borð við
Duke Ellington og Tom Waits.
Einnig virðist hún hafa umvafið
sig góðu fólki og er í dag í raun-
inni bara forsprakki sveitarinnar
The Handsome Band. Þar innan-
dyra eru góðir menn og konur,
þar á meðal afbragðs lagahöfund-
ur að nafni Lee Alexander.
Svo kíkir Dolly Parton í heim-
sókn í laginu Creepin’ In. Hún er
hress að vanda þó svo að hún
virki svolítið eins og skrattinn úr
sauðarleggnum á plötunni.
Noruh virðist líða vel í sveita-
söngvadjass sínum og aðdáendum
hennar á eflaust áfram eftir að
líða vel með henni. Eins og fyrri
platan er þessi ólíkleg til þess að
ganga fram af nokkrum manni.
Hún á því eflaust eftir að vera
jafn lengi á endurtekningu og
fyrri platan var fyrir þá sem
þurfa að bíða eftir þjónustu síma-
kerfis Norðurljósa.
Birgir Örn Steinarsson
Umfjölluntónlist
NORAH JONES:
Feels like home
Meira af því
sama
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
TOPP 20 - X-IÐ 97.7 - VIKA 8
„Are You Gonna Be My Girl“
JET
„Y’all Want A Single“
KORN
„Megalomaniac“
INCUBUS
„I Miss You“
BLINK 182
„Last Train Home“
LOSTPROPHETS
„Mad World“
GARY JULES
„I Hate Everything About You“
3 DAYS GRACE
„Reptilia“
THE STROKES
„A Selfish Need“
MAUS
„Take Me Out“
FRANZ FERDINAND
* Listinn er valinn af
umsjónarmönnum stöðvarinnar.
Vinsælustulögin
BJÖRN BRÓÐIR kl. 4 og 6 M. ÍSL. TALI
BJÖRN BRÓÐIR kl. 4 M. ENSKU TALI
THE HAUNTED MANSON kl. 4, 6 og 8
kl. 5.30, 8, og 10.30LOVE ACTUALLY
kl. 3.40 M/ÍSL TALILOONEY TUNES
kl. 3.45 M/ÍSL TALIFINDING NEMO
kl. 8.15 & 10 B. i. 14 ára
Eingöngu Sýnd Í VIP kl. 5
THE LAST SAMURAI
kl. 6HONEY
SÝND kl. 5.45, 8 og 10
SÝND Í LÚXUS VIP kl. 10
kl. 3.45 og 5.50UPTOWN GIRLSkl. 4 & 8 Lúxus kl. 5 & 9LORD OF THE RINGS
HHH Kvikmyndir.com HHH H.J Mbl.
B.Ö.S Fínasta skemmtun Fréttablaðið
SÝND kl. 5.30, 8 og 10.30
SÝND kl. 10 B.i. 14
kl. 10 B.i. 12 áraTHE HUMAN STAIN
kl. 5.50 og 8KALDALJÓS
kl. 5.50 og 10 B.i. 16 áraMYSTIC RIVER
kl. 6HEIMUR FARFUGLANNA
FRÖNSK KVIKMYNDAHÁTÍÐ
3 TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
HHH Kvikmyndir.com
HHH H.J Mbl.
B.Ö.S Fínasta skemmtun Fréttablaðið
Mögnuð mynd með
Óskarsverðlauna-
höfunum Ben Kingsley
og Jennifer Conelly
SÝND kl. 5.40, 8 og 10.20
SÉRSTÖK SÍMAFORSÝNING kl. 8
SÝND kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10 B. i. 16 ára
HHH1/2 SV MBL
HHHH Kvikmyndir.com
HHH ÓHT RÁS 2
4 TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
SÝND kl. 8 og 10.40
Síminn býður 2
fyrir 1 gegn
framvísun
tilboðsmiða
KORN
Verðandi Íslands-
vinir í Korn
verma nú annað
sætið á X-inu.
118 mörk í tveimur leikjum
Tvö lið í annarri deild ind-versku knattspyrnunnar í Goa
voru rekin úr keppni á dögunum
eftir að þau skoruðu grunsamlega
mörg mörk á einum degi. Liðin
tvö skoruðu í heildina 118 mörk og
voru yfirmenn deildarinnar vissir
um að brögð hefðu verið í tafli eft-
ir leikina.
Félagið Curtorim Gym vann San-
golda Lighting 61-1 og Wilfred
Leisure vann Dona Paula 55-1.
Dagblaðið The Asian Age segir
að leikmenn liðanna hafi breytt
leikjunum í gamanleiki.
Fótboltasamtökin í Goa fylgjast
með rekstri þeirra 153 fótbolta-
félaga sem eru starfrækt í hérað-
inu. Öll liðin fjögur eru í rannsókn,
grunuð um að hafa ákveðið úrslitin
fyrirfram.
Svipað atvik átti sér stað fyrir 15
árum síðan í Vestur-Bengal þegar
114 mörk voru skoruð í tveimur
leikjum.
Framtíð félaganna verður ákveð-
in á sérstökum fundi. Víst er að lið-
in tvö sem skoruðu flest mörkin
verða rekin úr keppni. Sigurvíman
hefur því enst mjög stutt. ■
Drottningarn-
ar dauðar?
TÓNLIST Þá er það orðið ljóst að saga
rokksveitarinnar Queens of the
Stone Age er öll. Að minnsta kosti ef
söngvarinn Josh Homme er jafn
ákveðinn í því að drepa sveitina.
Homme og bassaleikarinn Nick
Oliveri tjáðu sig í sitt hvoru lagi við
NME og sögðu sína hlið á sam-
starfsslitunum.
Þeir hafa verið félagar frá tán-
ingsaldri og segir Homme að sam-
starfsslitin séu það erfiðasta sem
hann hafi þurft að ganga í gegnum
en að það hafi verið mikilvægara að
halda vináttunni en að halda sveit-
inni á lífi.
En kannski er ekki öll von úti því
Oliveri segist vilja setjast niður
með félaga sínum og reyna að fá
hann til þess að gera aðra plötu.
Homme sagði í fréttatilkynningu
í síðustu viku að ástæðan fyrir slit-
unum væru atburðir sem hefðu átt
sér stað síðustu 18 mánuði. Þeir
væru þess eðlis að hann sæi sér
ekki fært að vinna lengur með Oli-
veri.
Þetta kom flatt upp á bassaleik-
arann sem segir þá félaga ekki hafa
verið að rífast. Svo bætti hann því
við að hann myndi glaður ganga í
veg fyrir hríðskotabyssu til þess að
vernda vin sinn.■
Leikkonan Scarlett Johanns-son, sem vann nýverið Bafta-
verðlaunin bresku fyrir leik
sinn í Lost in Translation, segir
stráka á hennar aldri vera of
óþroskaða fyrir sig. Stúlkan er
19 ára og segist frekar laðast að
karlmönnum sem séu nær þrí-
tugu. Hún segist hafa þurft að
hafa frumkvæðið í öllum sínum
ástarsamböndum til þessa og
viðurkennir að vera orðin leið á
því.
Leikkonan Debra Messing,sem leikur Grace í sjón-
varpsþáttunum vinsælu
Will&Grace,
hefur lofað að-
dáendum þátt-
anna að þeir
verði fram-
leiddir í tölu-
verðan tíma til
viðbótar.
Bandarískir
sjónvarps-
áhorfendur
eru byrjaðir
að örvænta
eftir að margir af vinsælustu
sjónvarpsþáttum landsins eru
að hverfa af skjánum. Þar má
nefna Sex and the City, Friends
og Frasier sem dæmi.
www.undur.is
MÁLVERK?
QUEENS OF THE STONE AGE
Vinskapurinn virðist enn vera til staðar, en
samt virðist söngvarinn staðráðinn í því að
drepa sveitina.
Skrýtnafréttin
FÓTBOLTI
■ Tveimur indverskum fótboltaliðum var
hent úr keppni á dögunum fyrir að skora
samtals 118 mörk á einum degi.
INDVERSKUR FÓTBOLTI
Þeir eru víst mjög hrifnir af því að skora mörk, fótboltastrákarnir á Indlandi.