Fréttablaðið - 22.02.2004, Qupperneq 11
11SUNNUDAGUR 22. febrúar 2004
Konungur Kambódíu:
Fylgjandi giftingum samkynhneigðra
Abdul Qadeer Khan:
Seldi úran til Líbíu
Afkoma lífeyrissjóða:
Tæplega
10% ávöxtun
hjá Lífiðn
LÍFEYRISMÁL Hrein raunávöxtun
lífeyrissjóðsins Lífiðnar var
9,9% á nýliðnu ári. Nafnávöxtun
var 13,5% og fjárfestingartekjur
2,6 milljarðar króna.
Heildareignir sjóðsins námu
22,8 milljörðum króna og jukust
um 20% frá árinu 2002. Eignir
umfram heildarskuldbindingar
voru 6,4%.
Alls voru greiddar 274 millj-
ónir króna í lífeyrissjóðinn og er
það um 28% meira en árið 2002.
Þar vegur þyngst 15,5% hækkun
allra lífeyrisgreiðslna í septem-
ber 2002.
Fjöldi þeirra sem greiddu til
Lífiðnar á síðasta ári var 5,237,
en samtals eiga um 12 þúsund
manns réttindi í sjóðnum. Líf-
eyrisþegar eru 561. ■
ÍRAN, AP Vanræksla starfsmanna
á lestarstöð eða bilun í hemla-
búnaði olli því að flutningalest
hlaðin eldsneyti rann stjórnlaust
af stað og fór út af sporinu
skammt frá borginni Neyshabur
í Íran. Að minnsta kosti 320
manns fórust og 460 slösuðust
þegar lestin sprakk, að sögn
yfirmanns Rauða hálfmánans. Á
meðal þeirra sem létust voru 182
slökkviliðsmenn og nokkrir hátt-
settir embættismenn.
Yfir fimmtíu lestarvagnar
runnu um fimmtíu kílómetra
leið á 150 kílómetra hraða á
klukkustund áður en þeir fóru út
af sporinu við næstu lestarstöð.
Eldur kom upp í vögnunum og
um fimm klukkustundum síðar
sprungu þeir í loft upp. Það tók
slökkviliðsmenn tæpan sólar-
hring að ráða niðurlögum elds-
ins sem braust út við sprenging-
una.
Fimmtán metra djúpur gígur
myndaðist við sprenginguna og
moldarkofar í fimm þorpum
hrundu til grunna. Skjálfti upp á
3,6 á Richter-kvarða kom fram á
jarðskjálftamælum. ■
KAMBÓDÍA, AP Eftir að hafa séð
myndir í sjónvarpi af hjóna-
vígslum samkynhneigðra í San
Francisco gaf konungur Kam-
bódíu út þá yfirlýsingu að hann
teldi rétt að hommar og lesbíur
fengju að ganga í hjónaband.
Giftingar samkynhneigðra eru
bannaðar með lögum í Kambó-
díu.
Norodom Sihanouk konungur
sagði að þar sem Kambódía væri
frjálslynt lýðræðisríki væri rétt
að heimila giftingar fólks af
sama kyni. Hann ítrekaði jafn-
framt að Kambódíumenn ættu
að viðurkenna og koma vel fram
við kynskiptinga.
Í Kambódíu er þingbundin
konungsstjórn. Sihanouk hefur
engin eiginleg pólitísk völd en
nýtur mikillar virðingar meðal
þegna sinna. ■
BRÚÐHJÓN
Konungur Kambódíu sá myndir í sjónvarpi af hjónavígslum samkynhneigðra í San Francisco.
KÚALA LÚMPÚR, AP Líbíustjórn fékk
auðgað úraníum frá Pakistan árið
2001 til nota í kjarnorkuáætlun
sinni, sagði Buhary Syed Abu
Tahir malasísku lögreglunni.
Hann er grunaður um að vera lyk-
ilmaður í sölu Abdul Qadeer
Khan, yfirmanns kjarnorkuáætl-
unar Pakistans, á sölu efnis og
upplýsinga til framleiðslu kjarn-
orkuvopna.
Tahir sagði jafnframt að Khan
hefði selt Írönum hluti í búnað til
að auðga úraníum. Fyrir það hefði
hann fengið andvirði um 200
milljóna króna. Auðga þarf úraní-
um til að hægt sé að nota það í
kjarnorkuvopn. ■
STUÐNINGSMENN KHANS
Margir Pakistanar styðja Abdul Qadeer
Khan og vilja að honum verði sleppt úr
stofufangelsi.
Yfir 300 fórust þegar flutningalest sprakk:
Vanræksla eða bil-
un í hemlabúnaði
SLÖKKVISTARF
Það tók slökkviliðsmenn tæpan
sólarhring að ráða niðurlögum
eldsins sem braust út þegar
vagnarnir sprungu.