Fréttablaðið - 22.02.2004, Síða 29
29SUNNUDAGUR 22. febrúar 2004
Kvöldverður á
Kaffi Reykjavík fylgir
konudags-
blómavendinum
frá okkur.
Frítt vikukort
í fylgir einnig.
Konudagsblómaúrvalið
er hjá okkur
Skólavörðustíg 12, Bergstaðastrætismegin (kl. 8 - 21)
og nú einnig í Kringlunni (kl. 10 -18) - Smáralind (kl. 10 -19)
Heimsendingarþjónusta, símar 561 3030 og 551 9090
Ísólfur Gylfi Pálmason
sveitastjóri í Hrunamanna-
hreppi og fyrrum alþingismaður
Hvað finnst þér
best í fari
kvenna?
„Það er náttúr-
lega blíðlyndi
þeirra, tryggðin
og umhyggjan.“
Hvað finnst þér
verst í fari
kvenna?
„Það er harkan, grimmdin og óþolin-
mæðin.“
Hvað gerir þú til að gleðja konuna
þína?
„Færi henni að sjálfsögðu blóm frá
Landi og sonum á Flúðum.“
Hver eru mestu mistök sem karlar
gera í samskiptum við konur?
„Það er að sýna þeim ekki þolinmæði
og hæfilega kurteisi.“
Heldur þú upp á konudaginn?
„Ekki sérstaklega, það eru allir dagar
hjá mér konudagar.“
Árni Johnsen
fyrrverandi þingmaður
Hvað finnst þér best í fari kvenna?
„Það fylgir þeim fegurð, hlýja, um-
hyggja og rík eðlisgreind.“
Hvað finnst þér verst í fari kvenna?
„Ég þekki ekkert vont í fari kvenna.“
Hvað gerir þú til að gleðja konuna
þína?
„Ég reyni að sýna tilitssemi og brydda
upp á einhverjum óvæntum hlutum.
Svo fara blóm alltaf vel konum.“
Hver eru mestu mistök sem karlar
gera í samskiptum við konur?
„Yfirgangur.“
Heldur þú upp á konudaginn?
„Já, svona eins og flestir. Ég veit af
honum og reyni að bregðast við eins og
ástæða er til.“
Helgi Seljan Friðriksson
fyrrverandi alþingismaður
Hvað finnst þér best í fari kvenna?
„Það er auðvitað heiðarleiki og trygglyndi.“
Hvað finnst þér verst í fari kvenna?
„Ætli það sé ekki andstæðan, það er ef þær eru svikular og
ótrúar.“
Hvað gerir þú til að gleðja konuna þína?
„Ég hef gert alveg hræðilega lítið, eiginlega skammarlega
lítið fyrir konuna. Ég reyni samt að vera góður við hana.“
Hver eru mestu mistök sem karlar gera
í samskiptum við konur?
„Það veit ég ekki. Úr því að
konan tollir hjá mér ennþá
hef ég ekki gert mistök sem
leiða af sér einhver ósköp.“
Heldur þú upp á
konudaginn?
„Nei, ég geri afskaplega lítið
af því og er ósköp svikull í
því. En það er jafnræði því
konan gerir ekki mikið á
bóndadaginn. Við lát-
um innri táknin nægja
og skiptum okkur
minna af þeim ytri.“
Árni B. Tryggvason
leikari
Hvað finnst þér best í
fari kvenna?
„Það er svo margt. Það
eru til að mynda þessi
ljúfheit í þeim. Flestar
konur eru fallegar og
ljúfar og þær eru stór-
kostlegar.“
Hvað finnst þér verst í fari kvenna?
„Það er verst í fari þeirra þegar þær eru að skamma mann
fyrir ekki neitt.“
Hvað gerir þú til að gleðja konuna þína?
„Það er ýmislegt. Ef ég má missa aur færi ég henni jafnvel
blóm jafnvel þó það sé ekki konudagur. Ég á yndislega konu
og er henni þakklátur fyrir það sem hún hefur gert fyrir
mig og börnin.“
Hver eru mestu mistök sem karlar gera í samskiptum
við konur?
„Ég held að mestu mistökin séu þau að misskilja þær.“
Heldur þú upp á konudaginn?
„Já, það er að segja að ég er vís með að færa henni kaffi í
rúmið. Ég geri það reyndar á hverjum morgni, það er fast-
ur liður eins og í útvarpinu. Svo færi ég henni blóm á konu-
daginn. Það er eðlilegt að ég sé þakklátur konu sem hefur
búið með mér í 53 ár. Ég þarf að þakka fyrir það.“
Guðmundur Þ. Jónsson
fyrrverandi verkamaður
Hvað finnst þér best í fari kvenna?
„Ég hef verið einhleypur alla tíð svo ég
vil ekki svara því.“
Hvað finnst þér verst í fari kvenna?
„Ég svara því heldur ekki. Það er ekkert
sem ég hef að kvarta undan – hef ekki
lent í neinum málum sem ég þarf að vera
óánægður með.“
Hvað gerir þú til að gleðja konur?
„Ég hef lítið gert af því. Ég keypti stund-
um blóm og gaf systur minni. Annað hef
ég ekki gert.“
Hver eru mestu mistök sem karlar gera í
samskiptum við konur?
„Ég á ekki gott með að svara því. En ætli
þau séu ekki fleiri en ein. Það er margt
sem við einhleypingar kynnumst ekki og
skiljum eiginlega ekki hvað konur eru að
tala um. Það ætti heldur að spyrja þá
sem hafa verið í sambúð.“
Heldur þú upp á konudaginn?
„Ekkert sérstaklega.“
Ágúst Benediktsson
fyrrverandi netagerðarmaður
Hvað finnst þér best í fari kvenna?
„Að þær séu alúðlegar og sanngjarnar.“
Hvað finnst þér verst í fari kvenna?
„Þegar þær eru stórgerðar og vilja öllu
ráða.“
Hvað gerir þú til að gleðja konur?
„Ég geri nú lítið af því.“
Hver eru mestu mistök sem karlar gera í
samskiptum við konur?
„Þau eru nú mörg, en ég veit ekki á
hverju á að taka. Það er misjafnt eins og
fólk er margt.“
Heldur þú upp á konudaginn?
„Það geri ég ekki. Það var ekki talað um
konudaginn þegar ég var að alast upp í
gamla daga. Ég man ekki eftir því.“
50 ára
60 ára
70 ára 80 ára
91 ára 103 ára