Fréttablaðið - 22.02.2004, Blaðsíða 41
LEIKIR
15.15 KS og Hvöt spila í Boganum
á Akureyri í Powerade-mótinu í
knattspyrnu.
18.00 Fram og ÍA leika í Egilshöll í
deildabikarkeppni karla í knatt-
spyrnu.
19.15 FH og Afturelding leika í
RE/MAX-1. deild karla í hand-
knattleik í Kaplakrika.
20.00 FH mætir Val í Egilshöll í
deildabikarkeppni karla í knatt-
spyrnu.
20.00 Keflavík og Þróttur R. leika í
Reykjaneshöll í deildabikarkeppni
karla í knattspyrnu.
SJÓNVARP
10.30 Boltinn með Guðna Bergs
á Sýn. Allt um leikina í ensku úr-
valsdeildinni frá laugardeginum.
11.50 Enski boltinn á Sýn. Bein
útsending frá leik Aston Villa og
Birmingham í ensku úrvalsdeild-
inni.
13.50 Enski boltinn á Sýn. Bein
útsending frá leik Portsmouth og
Liverpool í ensku bikarkeppninni.
15.50 Enski boltinn á Sýn. Bein
útsending frá leik Tottenham og
Leicester í ensku úrvalsdeildinni.
17.00 Markaregn á RÚV. Mörk
helgarinnar í þýsku 1. deildinni.
18.00 Meistaradeildin í hand-
knattleik á Sýn. Bein útsending
frá leik Magdeburg og Pick
Szeged í meistaradeildinni í
handknattleik.
20.00 PGA-mótaröðin í golfi á
Sýn. Sýnt frá Buick-boðsmótinu
sem fram fór um síðustu helgi.
21.00 Boltinn með Guðna Bergs
á Sýn. Allt um leikina í ensku úr-
valsdeildinni frá laugardeginum.
21.35 Helgarsportið á RÚV. Allt
um íþróttir helgarinnar.
22.40 Evrópska mótaröðin í golfi
á Sýn. Sýnt frá ANZ-meistaramót-
inu á síðasta ári.
23.40 Meistaradeild Evrópu í
knattspyrnu á Sýn. Fréttaþáttur
um meistaradeild Evrópu í knatt-
spyrnu.
41SUNNUDAGUR 22. febrúar 2004
hvað?hvar?hvenær?
19 20 21 22 23 24 25
FEBRÚAR
Sunnudagur
Guðmundur Steinarsson:
Heim á
nýjan leik
FÓTBOLTI Sóknarmaðurinn Guð-
mundur Steinarsson er að öllum
líkindum á leið til Keflavíkur og
leikur með nýliðunum í Lands-
bankadeildinni á komandi tímabili.
Rúnar Arnarson, formaður
knattspyrnudeildar Keflavíkur,
staðfesti í samtali við Fréttablað-
ið í gær að Keflvíkingar hefðu
rætt við Guðmund og hæfileg
bjartsýni væri um að samkomu-
lag næðist.
Guðmundur, sem er uppalinn í
Keflavík, lék með Frömurum á
síðasta tímabili en skoraði ekki
eitt einasta mark með liðinu. ■
Sjö stiga forysta Arsenal
Arsenal jók forystu sína á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með sigri á Chelsea þar sem Eiður
Smári skoraði mark og fékk rautt spjald á meðan Manchester United gerði jafntefli gegn Leeds.
FÓTBOLTI Arsenal jók forystu sína á
toppi ensku úrvalsdeildarinnar í
gær þegar liðið bar sigurorð af
Chelsea, 2-1, á Stamford Bridge.
Það blés þó ekki byrlega fyrir
toppliðinu því að Eiður Smári
Guðjohnsen kom Chelsea yfir
strax eftir 28 sekúndur með lag-
legu marki eftir undirbúning frá
Geremi og Adrian Mutu.
Leikmenn Arsenal eru þó
þekktir fyrir allt annað en að
leggja árar í bát og jöfnuðu á 15.
mínútu með marki frá Patrick
Vieira, hans fyrsta á tímabilinu,
eftir stórkostlegan undirbúning
hjá Dennis Bergkamp. Brasilíu-
maðurinn Edu kom Arsenal síðan
yfir sex mínútum síðar eftir skóg-
arhlaup Neils Sullivan, markvarð-
ar Chelsea, og fleiri urðu mörkin
ekki.
Arsenal var mun betri aðilinn í
leiknum og ekki bætti úr skák að
Eiður Smári fékk að líta rauða
spjaldið hjá Mike Riley, dómara
leiksins, eftir klukkutíma leik en
þá fékk hann sitt annað gula
spjald í leiknum.
Patrick Vieira, fyrirliði
Arsenal, var sáttur eftir leikinn
og sagði að hann og félagar hans
hefðu lært af mistökum síðasta
árs.
„Við höfum meiri reynslu og
munum ekki gera sömu mistök og
í fyrra. Við erum komnir með
góða stöðu eins og í fyrra og ætl-
um okkur að vera á toppnum. Við
vorum kannski með of mikið
sjálfstraust í fyrra en ætlum að
passa hrokann núna,“ sagði
Vieira.
Manchester United tapaði
tveimur dýrmætum stigum á
heimavelli þegar liðið gerði jafn-
tefli, 1-1, gegn botnliði Leeds
sem var án fjölmargra lykil-
manna. Manchester United var
mun betri aðilinn í fyrri hálfleik
en tókst ekki að koma boltanum
framhjá hinum unga markverði
Leeds, Scott Carson, sem var að
spila sinn annan deildarleik fyrir
félagið.
United tókst þó að skora á 64.
mínútu þegar Paul Scholes kom
þeim yfir en Alan Smith náði að
jafna metin þremur mínútum síð-
ar. Þar við sat og Manchester
United er nú sjö stigum á eftir
Arsenal þegar tólf umferðir eru
eftir af deildinni. ■
MARK OG RAUTT SPJALD
Mike Riley, dómari leiks Chelsea og Arsenal, sést hér gefa Eiði Smára Guðjohnsen, markaskorara Chelsea, rauða spjaldið í gær..
ENSKA ÚRVALSDEILDIN
Chelsea-Arsenal 1-2
1-0 Eiður Smári Guðjohnsen (1.), 1-1
Patrick Vieira (15.), 1-2 Edu (21.).
Man. Utd-Leeds 1-1
1-0 Paul Scholes (64.), 1-1 Smith (67.).
Bolton-Man. City 1-3
1-0 Kevin Nolan (22.), 1-1 Robbie
Fowler (27.), 1-2 Robbie Fowler (31.), 1-
3 Simon Charlton, sjálfsm. (50.).
Charlton-Blackburn 3-2
1-0 Carlton Cole (10.), 2-0 Jason Euell
(36.), 2-1 Andy Cole (74.), 2-2 Brad
Friedel (90.), 3-2 Claus Jensen (90.).
Newcastle-Middlesbrough 2-1
0-1 Boudewijn Zenden (33.), 1-1 Craig
Bellamy (63.), 2-1 Alan Shearer, víti
(83.).
Southampton-Everton 3-3
0-1 Wayne Rooney (7.), 0-2 Duncan
Ferguson (32.), 1-2 Kevin Phillips (58.),
1-3 Wayne Rooney (78.), 2-3 James
Beattie (83.), 3-3 F. Fernandes (90.).
Wolves-Fulham 2-1
1-0 Paul Ince (20.), 2-0 Carl Cort (51.),
2-1 Steed Malbranque (84.).
Arsenal 26 19 7 0 51:17 64
Man. United 26 18 3 5 50:24 57
Chelsea 26 17 4 5 47:21 55
Newcastle 26 10 11 5 37:27 41
Charlton 26 11 7 8 37:32 40
Liverpool 25 10 8 7 36:27 38
Aston Villa 25 10 6 9 30:28 36
Fulham 26 10 5 11 38:37 35
Birmingham 24 9 8 7 23:26 35
Bolton 26 8 10 8 32:40 34
Tottenham 25 10 3 12 35:38 33
Southampton 26 8 8 10 26:26 32
Middlesbrough25 8 7 10 27:31 31
Man. City 26 6 9 11 36:38 27
Blackburn 26 7 6 13 38:43 27
Everton 25 6 8 12 31:39 26
Portsmouth 25 6 5 14 28:39 23
Wolves 26 5 8 13 24:52 23
Leicester 25 4 9 12 33:47 21
Leeds 26 5 6 15 24:51 21
KÖRFUBOLTI Keflvíkingar tóku á
móti KFÍ í gærkvöld í Intersport-
deildinni í körfuknattleik og
sýndu litla gestrisni. Heimamenn
unnu stórsigur, 124-89, og gerðu
út um leikinn með frábærum síð-
ari hálfleik. Keflavík hafði tólf
stiga forystu, 60-48, í hálfleik en í
síðari hálfleik héldu þeim engin
bönd. Gunnar Einarsson, fyrirliði
Keflavíkur, og JaJa Bey hjá KFÍ
voru reknir út úr húsi í leiknum
fyrir slagsmál og eiga væntanlega
yfir höfði sér leikbann.
Keflavík er nú í þriðja sæti
deildarinnar með 26 stig, fjórum
stigum á eftir Grindavík sem er í
öðru sæti. KFÍ er hins vegar í
þriðja neðsta sætinu, með jafn
mörg stig og Breiðablik og Þór
Þorlákshöfn sem eru fyrir neðan.
Derrick Allen var stigahæstur hjá
Keflavík með 27 stig og tók 7 frá-
köst, Fannar Ólafsson, sem spilaði
á nýjan leik eftir fingurbrot og
líkamsárás, skoraði 22 stig og tók
10 fráköst, Gunnar Einarsson
skoraði 15 stig, Gunnar Stefáns-
son skoraði 13 stig sem og Nick
Bradford en hann tók einnig 14
fráköst. Jón Nordal Hafsteinsson
vakti mikla lukku en hann átti
nokkrar frábærar troðslur. Troy
Wiley var stigahæstur hjá KFÍ
með 30 stig og tók 17 fráköst, Pét-
ur Már Sigurðsson skoraði 21 stig,
JaJa Bey skorðai 15 stig og Betu-
el Fletcher skoraði 12 stig. ■
Intersport-deildin í körfuknattleik:
Stórsigur Keflvíkinga
KÖRFUBOLTI Keflavík tryggði sér í
gær deildarmeistaratitilinn í 1.
deild kvenna í körfuknattleik þeg-
ar liðið bar sigurorð af KR, 73-57,
í Keflavík. Á sama tíma tapaði ÍS
óvænt fyrir Grindavík, 73-68, og
því getur ÍS ekki lengur náð
Keflavík að stigum.
Keflavík hafði yfirhöndina all-
an leikinn gegn KR og leiddi í
hálfleik, 37-26. Rannveig Rand-
versdóttir var stigahæst hjá
Keflavík með 17 stig og Birna Val-
garðsdóttir skoraði 14 stig. Sigrún
Skarphéðinsdóttir og Lilja Odds-
dóttir skoruðu 11 stig hvor fyrir
KR og hin bandaríska Katie Wolfe
skoraði 10 stig.
Grindavík tryggði sér sigurinn
gegn ÍS með frábærum lokakafla
þar sem liðið skoraði tólf af
fimmtán síðustu stigum leiksins.
Þar munaði mest um stórkostlega
frammistöðu Ólafar Helgu Páls-
dóttur en hún skoraði níu stig á
þessum kafla. Hún var jafnframt
stigahæst hjá Grindavík með 21
stig og Kesha Tardy skoraði 15
stig og tók 9 fráköst. Hin 39 ára
gamla Hafdís Helgadóttir var
með 19 stig fyrir ÍS og Stella Rún
Kristjánsdóttir skoraði 16 stig. ■
1. deild kvenna í körfuknattleik:
Titillinn tryggður hjá
Keflavíkurstúlkum