Fréttablaðið - 22.02.2004, Blaðsíða 47
Æfingum er að ljúka á leikrit-inu Þetta er allt að koma sem
byggt er á samnefndri skáldsögu
eftir Hallgrím Helgason undir
leikstjórn Baltasars Kormáks.
Sýningar hefjast í Þjóðleikhúsinu
á fimmtudaginn næstkomandi og
því mun Baltasar eyða næstu dög-
um og kvöldum niðri í leikhúsi þar
til allt smellur saman.
„Þetta er ein flóknasta sýning
sem ég hef staðið að,“ segir Balta-
sar. „En hún verður vonandi
skemmtileg.“ Sagan af Ragnheiði
Birnu er margslungin og segir
Baltasar að það hafi verið heil-
mikið mál að gera handritið. „Ég
fer ekki hefðbundna leið að því og
reyni fremur að sýna stemningu
og uppákomur en að fylgja lífi
hennar dag frá degi. Það er ekki
verið að elta bókina of mikið,
þannig að kannski verða ekki ein-
hverjir uppáhaldskaflar þarna
sem fólk á von á að sjá. Ég hef
reynt að nálgast þetta frekar með
því að leita að kjarnanum. Þannig
verður verkið ekki allt litlar svip-
myndir heldur gefur frekar mynd
af kjarnanum af lífshlaupi ein-
hverrar konu sem þráir að vekja
athygli á sjálfri sér fyrir hæfi-
leika sem hún kannski hefur ekki
af því kaliberi sem hún þarf til að
ná heimsathygli.“
Tólf ólíkir leikarar taka þátt í
verkinu og fara Þórunn Erna
Clausen og Ólafía Hrönn Jóns-
dóttir með hlutverk Ragnheiðar.
„Það er ofsalega gaman að setja
saman ólíka hópa af fólki,“ segir
Baltasar um leikhópinn. Með
sumu fólkinu hefur hann starfað
áður sem leikari en aldrei sem
leikstjóri. „Hérna setti ég saman
skemmtilega grúbbu sem ég get
treyst.“ ■
47SUNNUDAGUR 22. febrúar 2004
Ingvi Hrafn Jónsson hefur ekkifarið leynt með andúð sína á
fyrirhuguðu forsetaframboði Ást-
þórs Magnússonar og er það
helst kostnaðurinn
sem þjóðfélagið
mun bera af kosn-
ingunum sem fer
fyrir brjóstið á
Ingva. Ingvi er í
nánum tengslum
við andlega heilsu
þjóðarsálarinnar í gegnum Út-
varp Sögu og hann fullyrti í viku-
legu spjalli sínu við Stefán Jón
Hafstein í Íslandi í dag á Stöð 2 á
föstudaginn að
enginn núlif-
andi Íslending-
ur gæti fellt
Ólaf Ragnar
Grímsson í for-
setakosningum,
síst af öllu
Snorri Ás-
mundsson
myndlistamaður eða Ástþór.
Ingvi lagði því í framhaldinu til
að kostnaðinum við kosningarnar
yrði deilt niður á þá 1.500 Íslend-
inga sem munu gera Ástþóri
kleift að bjóða sig fram með því
að skrifa undir stuðningsyfirlýs-
ingu, og þeim verði sendur reikn-
ingurinn.
Hver stórhljómsveitin á fæturannarri boðar nú komu sína
til Íslands í vor og sumar. Suga-
babes ríða
á vaðið í
apríl en
síðan
fylgja
Korn,
Kraftwerk
og Place-
bo í kjöl-
farið og
talið er víst að fleiri bætist í hóp-
inn. Þetta þýðir vitaskuld að tón-
leikahaldarar munu berjast
grimmt
um vasa-
peninga
ungling-
anna
sem eru
helsti
mark-
hópur þeirra og markaðsspakir
menn fullyrða að það stefni í
slíkt offramboð á stórum nöfnum
úr tónlistarheiminum að ein-
hverjir hljóti að verða undir.
Kostnaðurinn sem fylgir því að
fá Korn til landsins er svo gríðar-
legur að ýmsir höfðu ákveðið að
sleppa því að reyna við sveitina
þar til tilvonandi gestgjafar
þeirra ákváðu að kýla á þá. Sagan
segir að þeim sé lífsnauðsynlegt
að fylla Laugardalshöllina tvisvar
til að eiga möguleika á því að
komast sómasamlega frá ævin-
týrinu fjárhagslega og því sé al-
farið stólað á aukatónleika. Höll-
in mun vera bókuð og miðarnir
prentaðir og því aðeins beðið eft-
ir því að seljist upp á fyrri tón-
leikana.
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Placebo.
Ástþór Magnússon.
Stokkönd.
Þetta er allt að koma
BALTASAR KORMÁKUR
Er að koma aftur í leikhúsið eftir nokkurra
ára fjarveru.
Vikan sem verður
BALTASAR KORMÁKUR
■ Fylgir bókinni ekki nákvæmlega eftir
en reynir að finna kjarnann.