Fréttablaðið - 23.02.2004, Qupperneq 1
LOFTSLAGSBREYTINGAR Mun meiri
ógn stafar af loftslagsbreytingum
á næstu árum og áratugum en
nokkurn tímann af hryðjuverka-
mönnum. Þetta er niðurstaðan í
skýrslu bandaríska landvarna-
ráðuneytisins, sem bandarísk
stjórnvöld hafa haldið leyndri í
fjóra mánuði.
Sérfræðingar ráðuneytisins
telja að náttúruhamfarir, vatns-
og orkuskortur, þurrkar og hung-
ursneyð víða um heim geti á
næstu árum og áratugum leitt til
óeirða og stríðsátaka þar sem svo
gæti jafnvel farið að kjarnorku-
vopnum verði beitt.
Frá þessu var skýrt í breska
dagblaðinu The Observer í gær.
Blaðið hefur undir höndum eintak
af skýrslunni og segir hana vera
ófagra lesningu.
Meðal annars er talin veruleg
hætta á því að sumar helstu borgir
Evrópu sökkvi í sjó innan tveggja
áratuga. Því er einnig spáð að veð-
urfarið á Bretlandi geti strax árið
2020 verið orðið einna líkast því
sem nú er í Síberíu.
Birting skýrslunnar gæti kom-
ið sér illa fyrir George W. Bush í
næstu forsetakosningum, þar sem
hann hefur jafnan gert lítið úr við-
vörunum vísindamanna og um-
hverfissinna um að loftlagsbreyt-
ingar geti haft alvarlegar afleið-
ingar fyrir allt mannlíf á jörðinni.
Búast má við því að John Kerry,
sem flest bendir til að verði forseta-
frambjóðandi Demókrataflokksins,
muni óspart notfæra sér þessa
skýrslu í kosningabaráttunni.
Sérstaklega gæti það orðið
vandræðalegt fyrir Bush að það
var Andrew Marshall, einn helsti
varnarmálaráðgjafi Pentagon,
sem fól höfundum skýrslunnar,
þeim Peter Schwartz og Doug
Randall, að taka hana saman.
Marshall hefur haft veruleg áhrif
á stefnumótun Bandaríkjahers
undanfarna þrjá áratugi og stjórn-
aði meðal annars viðamiklum
breytingum á hernum nýverið í
umboði Donalds Rumsfeld varn-
armálaráðherra. ■
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
MÁNUDAGUR
KYNNING Í IÐNÓ Sjónvarpsfeðginin
Magnús Magnússon og Sally Magnússon
kynna bókina Dreaming of Iceland - the
lure of a family legend klukkan 20 í Iðnó.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
KÓLNAR Í DAG Það verður hvasst og
éljagangur um austanvert landið í dag. Í
höfuðborginni styttir hins vegar upp þegar
líður á morguninn. Sjá nánar á bls. 6.
23. febrúar 2004 – 53. tölublað – 4. árgangur
● keppir við fálkaorðuna
Stjarna vikunnar:
▲
SÍÐA 31
Guðfinnur
Sigurvinsson
● í anda take that og westlife
IceGuys:
▲
SÍÐA 30
Ídol-strákar
stofna strákaband
● fyrsta vökukonan
Jarþrúður Ásmundsdóttir:
▲
SÍÐA 16
Nýr formaður
Stúdentaráðs
LENTU Í SJÁLFHELDU Tveimur ung-
lingspiltum sem lentu í sjálfheldu ofarlega í
Helgafelli í Kaldárbotnum síðdegis í gær
var bjargað af fjallabjörgunarmönnum. Sjá
síðu 2
NADER Í FRAMBOÐ Ralph Nader, tals-
maður neytendasamtaka í Bandaríkjunum,
tilkynnti í gær að hann ætlaði að bjóða sig
fram til forseta Bandaríkjanna. Sjá síðu 4
ÓSKA EFTIR FUNDI Formaður BSRB
segir að í dag verði óskað eftir fundi með
heilbrigðisráðherra um deilu vegna aksturs-
samninga starfsfólks heimahjúkrunar í
Reykjavík. Sjá síðu 6
VILL SAMEINA Jóhannes Páll II páfi er
harðákveðinn í því að gera allt sem hann
getur til að sameina kristnu kirkjudeildirnar.
Patríarkinn í Moskvu telur Páfagarð ekki
standa sig vel í samskiptum kirkjudeild-
anna. Sjá síðu 8
RANNSÓKN Erfitt er að segja til um
hvenær Litháinn Vaidas Jucevici-
us lést. Miðað við rotnun líksins er
talið að hann hafi jafnvel dáið
föstudaginn 6. febrúar, en þann
dag hófst ferðalag Litháans Tomas
Malakauskas og Jónasar Inga
Ragnarssonar til Austfjarða.
Ef rétt er að Jucevicius hafi lát-
ist föstudaginn 6. febrúar er rann-
sakað hvort Jónas og Malakauskas
hafi ferðast með líkið í tvo daga í
bíl frá höfuðborgarsvæðinu til
Neskaupstaðar. Á leiðinni urðu
þeir veðurtepptir á Djúpavogi frá
föstudagskvöldi til sunnudags.
Þeir komu til Neskaupstaðar
sunnudaginn 9. febrúar og héldu
aftur til Reykjavíkur daginn eftir.
Líklegt er að líki Jucevicius hafi
verið sökkt við netabryggjuna í
Neskaupstað aðfaranótt sunnu-
dags.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglu er ekkert sem bendir til þess
að Jucevicius hafi umgengist aðra
en Malakauskas, Jónas og Grétar
hér á landi. Mennirnir þrír eru
meðal annars grunaðir um brot á
211. grein almennra hegningar-
laga, sem er morð af ásetningi.
Ljóst þykir að um 400 grömm af
amfetamíni sem Jucevicius var
með innvortis skiluðu sér ekki nið-
ur meltingaveginn. Talið er að
hinir grunuðu hafi ekki komið
honum til hjálpar þegar hann
veiktist, en það væri brot gegn 221.
grein almennra hegningarlaga sem
fjalla um að koma manni í lífs-
hættu ekki til hjálpar.
Tomas Malakauskas hefur áfrýj-
að gæsluvarðhaldsúrskurði til
Hæstaréttar en Jónas Ingi Ragn-
arsson ákvað að taka sér þriggja
daga frest til að ákveða hvort hann
ætli að áfrýja. Grétar Sigurðarson
ákvað að una úrskurðinum. ■
Pentagon spáir
miklum hamförum
Helstu borgir Evrópu sökkva í sjó innan tuttugu ára og veðurfar á Bretlandi verður eins og í
Síberíu, segir í leyniskýrslu bandarískra hernaðaryfirvalda. Birting skýrslunnar gæti komið sér
afar illa fyrir Bush í næstu forsetakosningum.
Rannsóknin á láti Vaidas Jucevicius:
Lést Jucevicius fyrir sunnan?
BLÓÐBAÐ Í JERÚSALEM Palestínumaður sprengdi sjálfan sig í loft upp í troðfullum strætisvagni í Jerúsalem í gærmorgun. Níu manns
létust og 59 slösuðust. Sjá nánar bls. 2
Kosningar í Íran:
Íhaldsmenn
ná völdum
TEHERAN, AP Íhaldssamir múslimar
náðu ótvíræðum meirihlutatökum
á íranska þinginu í kosningunum á
föstudaginn. Á
þinginu sitja nú
fleiri bókstafs-
trúarmenn og
færri konur,
auk þess sem
fleiri þingmenn
hafa fræðilega
þekkingu á
kjarnorkumál-
um en fyrr.
Ekki er búist við að talningu at-
kvæða ljúki fyrr en í fyrsta lagi í
dag. Harðlínumenn höfðu í gær,
þegar búið var að telja tvo þriðju
atkvæða, tryggt sér 135 þingsæti
af 290, og var ekki annað að sjá en
þeir myndu auðveldlega ná þeim
146 þingsætum sem þarf til að
vera með meirihluta. ■
TALNING
Ekki er búist við að
talningu atkvæða
ljúki fyrr en í dag.
39%52%
● skipulag í hafnarfirði ● sturtuklefar
▲
FYLGIR BLAÐINU Í DAG
Með fallíska
sjálfsmynd í stofunni
Erling Klingenberg:
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 23
Sjónvarp 28