Fréttablaðið - 10.05.2004, Síða 1
● næsti leikur á þriðjudaginn
Íslandsmótið í handbolta:
▲
SÍÐA 23
Haukar unnu
Valsmenn létt
● 57 ára í dag
Sveinn Rúnar Hauksson:
▲
SÍÐA 18
Bindur ekki miklar
vonir við tertu
● korn kemur um mánaðamótin
Jonathan Davis:
▲
SÍÐUR 24 og 25
Verið þakklát
fyrir að mega blóta
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
MÁNUDAGUR
ÍBV GETUR TRYGGT SÉR SIGUR
ÍBV getur í kvöld tryggt sér Íslandsmeistara-
titilinn í handbolta kvenna. Staðan í einvíg-
inu er 2-1, ÍBV í vil. Fjórða viðureignin fer
fram í Valsheimilinu og hefst klukkan 19.30.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
FREMUR ÞUNGBÚIÐ á landinu. Þurrt
að kalla þar til seinnipartinn að búast má við
vætu, einkum suðvestanlands. Áfram milt
veður. Sjá síðu 6
10. maí 2004 – 127. tölublað – 4. árgangur
BAUGUR Í SKARTGRIPINA
Baugur hefur keypt meirihlutann í bresku
verslanakeðjunni Goldsmiths. Fyrirtækið rekur
165 skartgripaverslanir á Bretlandi og er metið
á tæpa 15 milljarða króna. Bank of Scotland,
sem fjármagnar kaupin ásamt Landsbankanum,
kaupir lítinn hlut í Goldsmiths. Sjá síðu 2
TOGSTREITA Utanríkisráðuneytið aflýsti í
fyrra fundum sem forseti Íslands hafði boðað
til í Washington með bandarískum embættis-
mönnum. Togstreita forsetans við stjórnkerfið
hefur lengi verið opinbert leyndarmál, segir í
dagblaðsgrein. Sjá síðu 4
FJÖLMIÐLAFRUMVARP Ekki liggur
fyrir hvenær fjölmiðlafrumvarpið verður af-
greitt úr allsherjarnefnd Alþingis. Nefndin
þingar stíft um málið. Sjá síðu 6
ÞJÓÐERNISHREINSANIR Súdönsk
stjórnvöld eru sökuð um að standa að baki
herferð til að hrekja svarta íbúa Darfur-héraðs
á brott. Þúsundir hafa fallið í árásum stjórnar-
hermanna og vígamanna og rúm milljón
manna hefur lagt á flótta. Sjá síðu 14
Sa
m
kv
æ
m
t f
jö
lm
i›l
ak
ön
nu
n
Ga
llu
ps
m
ar
s
'0
4
48%65%
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 20
Sjónvarp 28
Þór Jakobsson:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Uppáhaldshúsið
er MR
● fasteignir ● hús
Írak:
Sprengingar
í Bagdad
ÍRAK, AP Tvær sprengjur sprungu
með stuttu millibili í miðborg
Bagdad síðdegis í gær með þeim af-
leiðingum að þrír létust og tuttugu
særðust. Fyrri sprengjan sprakk á
vinsælum útimarkaði á annatíma og
í það minnsta þrír létust af sárum
sínum. Níu aðrir slösuðust en
meiðsl flestra voru minniháttar.
Tveimur stundum síðar sprakk önn-
ur sprengja fyrir utan Four Sea-
sons-hótelið í borginni. Alls særðust
átta og er veitingastaður hótelsins
rústir einar eftir sprengjuna. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
WASHINGTON, AP Donald Rumsfeld,
varnarmálaráðherra Bandaríkj-
anna, er undir vaxandi þrýstingi
vegna meðferðar bandarískra
hermanna á íröskum föngum.
Framámenn repúblikana á þingi
hafa gefið í skyn að varnarmála-
ráðherrann kunni að neyðast til að
segja af sér vegna málsins en
demókratar hafa þegar farið fram
á afsögn Rumsfelds.
Rannsóknarnefndir þingsins
munu fá að sjá áður óbirtar mynd-
ir af enn hrottalegri meðferð á
íröskum föngum en sést hafa til
þessa. Beinist rannsókn þingsins
að því að kanna hvort um afmörk-
uð tilvik er að ræða
eða hvort fangar hafa
kerfisbundið verið
niðurlægðir og pynt-
aðir. Repúblikaninn
Chuck Hagel, sem á
sæti í njósnanefnd
þingsins, sagði í gær
að málið risti dýpra
og væri umfangs-
meira en stjórnin
virtist gera sér grein
fyrir og forsetinn
yrði að taka á málun-
um.
Sjö herlögreglumenn hafa ver-
ið ákærðir vegna illrar meðferðar
á föngum í Abu Ghraib-
fangelsinu og hefjast
herréttarhöld yfir
þeim fyrsta í Baghdad
nú í vikunni. Þá eru til
rannsóknar 42 tilvik
um meint harðræði
bandarískra hermanna
gagnvart íröskum
borgurum til viðbótar
við 35 tilvik um illa
meðferð á íröskum
föngum. Haft er eftir
Hagel að víðtæk rann-
sókn sé hafin á fram-
ferði bandarískra hermanna í Írak
og Afganistan. ■
Bandaríska þingið skoðar enn hrottalegri myndir af meðferð á íröskum föngum:
Þrýstingur á Rumsfeld eykst
Forseti Tsjetsjeníu
lést eftir sprengjuárás
Um 30 létust og tugir særðust eftir sprengingu sem varð á íþróttaleikvelli í Grosní, höfuðborg
Tsjetsjeníu, við mikil hátíðarhöld sem þar fóru fram í gærmorgun.
TSJETSJENÍA, AP Um 30 létust og
nokkrir tugir særðust í mikilli
sprengingu sem varð á íþrótta-
leikvangi í Tjetsjeníu í gærmorg-
un en meðal hinna látnu var for-
seti landsins, Akhmad Kadyrov.
Benda líkur til að jarðsprengju
hafi verið komið fyrir undir heið-
ursstúku leikvangsins en þar fór
fram mikil hátíð til að minnast
sigurs á Þjóðverjum í seinni
heimsstyrjöldinni. Önnur
sprengja fannst skömmu síðar
skammt frá stúkunni en lögreglu
tókst að aftengja hana án frekari
vandræða.
Öryggissveitir hafa verið sett-
ar í viðbragsstöðu og Vladimír
Pútín, forseti Rússlands, hefur
sagt berum orðum að hryðju-
verkamennirnir verði látnir
gjalda fyrir verknaðinn enda hafi
Akhmad Kadyrov verið þjóðhetja.
Þykir lát hans afar slæmt fyrir
framtíðarfriðarhorfur í Tsjetsj-
eníu en heimamenn hafa barist
fyrir sjálfstæði landsins um tíu
ára skeið. Kadyrov, sem naut fulls
stuðnings Pútíns forseta, gaf sig
ætíð út fyrir að ætla að koma á
nauðsynlegum endurbótum í
landinu og koma þannig að ein-
hverju leyti til móts við íbúana,
sem lengi hafa búið við kröpp
kjör og fengið litla aðstoð eða at-
hygli alþjóðasamfélagsins.
Herma fregnir að fljótlega eft-
ir sprenginguna hafi lögregla
handtekið fimm menn grunaða
um verknaðinn en yfirheyrslur
standa þó enn yfir. Talið er víst að
uppreisnarmenn standi að baki
sprengingunni en þeir hafa hingað
til ekki vílað neitt fyrir sér í bar-
áttu sinni gegn því sem þeir lýsa
sem oki og valdhroka yfirvalda í
Moskvu gagnvart íbúum landsins.
Stjórnvöld í Evrópu og Banda-
ríkjunum fordæmdu verknaðinn
og ítrekuðu að engar slíkar árásir
væru réttlætanlegar.
albert@frettabladid.is
VEÐRIÐ LEIKUR VIÐ LANDANN Eindæma veðurblíða var á landinu um helgina og nutu þessir kaffihúsagestir sólargeislanna á Aust-
urvelli í gær. Hitinn fór í 17 stig á Kirkjubæjarklaustri og í Skaftafell um miðjan dag í gær en veðrið var best á Suðurlandi og suðvestur-
horninu. Veðurstofan spáir áframhaldandi suðlægum áttum og blíðviðri en einhver væta verður þó í dag og á miðvikudag. Þriðjudagur-
inn gæti hins vegar orðið álíka og góðviðrisdagarnir um helgina.
ÓHUGNANLEGAR MYNDIR
Bandarísk stjórnvöld hafa
undir höndum myndir og
myndbönd sem sýna enn
hrottalegri meðferð á íröskum
föngum en áður hefur sést.
ÖFLUGAR SPRENGJUR
Uppreisnarmenn halda áfram stríði sínu
og sprungu tvær sprengjur með stuttu
millibili í Bagdad í gær.
M
YN
D
/A
P
M
YN
D
/A
P