Fréttablaðið - 09.05.2004, Blaðsíða 21
Réttur þinn
3SUNNUDAGUR 9. maí 2004
Söngstjóri
Laus er staða söngstjóra Samkórs Selfoss.
Samkór Selfoss var stofnaður 24. september 1973 og er
því að ljúka sínu þrítugasta starfsári. Í kórnum eru u.þ.b.
40 áhugasamir söngfélagar sem eru ávallt reiðubúnir að
takast á við ögrandi verkefni í söng og leik.
Áhugasamir skili inn umsókn fyrir 1. júní 2004.
Pósthólf 107
802 Selfossi.
Upplýsingar gefur Ingibjörg Stefánsdóttir formaður
Samkórsins í síma 4821972 – 8642972.
Kennarar athugið.
Við grunnskólann á Tálknafirði vantar kennara til starfa.
Mögulegar kennslugreinar, stærðfræði, íslenska, raun-
greinar, samfélagsfræði og danska á unglingastigi sem og
kennsla í upplýsinga og tæknimennt, textíl- og mynd-
menntakennsla.
Allar frekari upplýsingar
gefur skólastjóri, Ingólfur Kjartansson
Símar: 4562537 - 4562538 - 8976872
Netföng: ingolfur@talknafjordur.is, grunnskolinn@talk-
nafjordur.is
Veffang: www.talknafjordur.is
Hvernig verð ég?
Dýralæknir
Starfið
Starfandi dýralæknar á Íslandi eru í
kringum 80. Dýralæknar stunda al-
mennar dýralækning-
ar og rannsóknir, sjá
um heilbrigðis- og
matvælaeftirlit og
gegna ýmsum stjórn-
unarstörfum. Starfið
er gefandi og
skemmtilegt, en oft erfitt og hefur
sínar skuggahliðar. Væntumþykja og
virðing fyrir dýrum er nauðsynleg og
hæfileiki til að umgangast fólk því
samtengd starfinu eru samskipti við
dýraeigendur.
Námið
Til að verða dýralæknir þarf að hafa
stúdentspróf, helst af náttúrufræði-
eða eðlisfræðibraut. Annað sambæri-
legt nám getur komið í staðinn. Að
því loknu tekur við nám við viður-
kenndan dýralæknaháskóla erlendis,
því ekki er hægt að læra dýralæknis-
fræði hér heima. Námið tekur um
það bil sex ár og er bæði bóklegt og
verklegt. Kennslan felst í rannsóknum
og skoðunum á dýrum.
Námið er dýrt því háskólarnir þurfa
að reka sjúkrahús svo hægt sé að
stunda starfsnám meðfram bóklega
náminu.
Flestir íslenskir dýralæknar eru mennt-
aðir á Norðurlöndunum, en örfáir í
Skotlandi og Austurríki. Á Norðurlönd-
unum eru engin skólagjöld, en þau
eru hins vegar himinhá í Bretlandi.
Takmarkanir eru inn í dýralæknaskól-
ana og erfitt að komast að. ■
Jafnaðarkaup
er ekki til
Algengt er að skólakrakkar séu ráðnir í
kvöld- og helgarvinnu á veitingastöðum
og fái borgað svokallað jafnaðarkaup.
Þeir eru sjaldnast að græða á því.
„Það er ekki til neitt sem heitir jafnað-
arkaup,“ segir Tryggvi Marteinsson,
þjónustufulltrúi hjá stéttarfélaginu Efl-
ingu. „Það er til vaktavinna, en hún
þarf að uppfylla ákveðin skilyrði til að
geta kallast vaktavinna. Reynslan er
hins vegar sú að jafnaðarkaup er oft-
ast greitt fyrir vinnu sem fólk ætti að
fá yfirvinnukaup fyrir.“
Tryggvi segir algengt að unglingar leiti
til þeirra þegar þau eru hætt. „Þá
reiknum við út kaupið eins og það
var, kaupið eins og það ætti að vera
og innheimtum mismuninn.“ ■
„Eitt það skemmtilegasta við starfið mitt er útivinn-
an á sumrin. Að vera úti í náttúrunni við mælingar
og gagnasöfnun er frábært. Jafnvel þótt veðrið sé
ekki alltaf upp á það besta,“ segir Elín Ásgeirsdóttir,
líffræðingur. Hún hefur unnið á umhverfissviði
Rannsóknastofnunar landbúnaðarins á Keldnaholti
frá því í janúar 2000 en þar starfa líffræðingar, land-
fræðingar, jarðfræðingar og tæknifræðingur.
Yfir veturinn segir Elín starf sitt felast í að vinna
úr upplýsingum sem búið er að afla yfir sumarið auk
þess að halda utan um og efnagreina jarðvegssýni
sem komi inn í húsið. Allt sé það áhugavert en óneit-
anlega sé gott að komast út af tilraunastofunum á
vorin og frá skrifborðunum. Hún kveðst „bara“ vera
með BS-próf og ekki stunda sjálfstæðar rannsóknir.
„Ég er aðallega í að aðstoða meiraprófsfólkið og
þannig hef ég fengið að kynnast mörgum mismun-
andi og spennandi rannsóknum svo sem endurheimt
votlendis og kolefnisbúskap mismundandi land-
gerða. Af því hefur svo leitt að mér hefur veist erfitt
að velja sérsvið en er á leiðinni til Danmerkur í þver-
faglegt umhverfisfræðinám,“ segir Elín brosandi.
Framundan hjá henni nú er alþjóðleg ráðstefna um
eldfjallajarðveg sem haldin verður á Akureyri og
Hallormsstað og sumarið bíður með spennandi verk-
efni. ■
Líffræðingurinn:
Útivinnan er
skemmtilegust
Elín við rannsóknir
í kjallaranum á
Keldnaholti.
Hér er verið að bera á.
Í essinu sínu við gróðurgreiningu úti í náttúr-
unni, ásamt Rafni Rúnarssyni, starfsmanni
Landgræðslunnar. Ekki er umhverfið dónalegt.