Tíminn - 04.01.1972, Side 1

Tíminn - 04.01.1972, Side 1
1. tbl. Þriðjudagur 4. janúar 1972 56. árg. Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra í áramótaávarpi: Stærsta málið á árinu er stækkun landhelginnar EJ—Reykjavík, raánudag. — Þegar á heildarmynd efna hagsmála ársins 1971 er litið, er þanniig ljóst, að við höfum fulla ástæðu til þess að minn- ast ársins 1971 með þakklátum huga sem góðæris, — sagði Ólafur Jóhannesson, forsætis- róðherra, í áramótaræðu sinni í sjónvarpi ag hljóðvarpi. Ólafor Jóhannesson \ forsaetisráSherra Ólafur sagði, að afkoma at- vinnuveganna hefði verið mjög góð á árinu 1971 þegar á heild- ina væri litið. Nýjustu tölur bendi til þess, að heildarfram- leiðsluaukning á árinu verði a.m.k. 9% miðað við 1970, og aukning þjóðartekna orðið enn meiri vegna liagstæðra við- ■ ■■■■■■)■■■■ skiptakjara við útlönd, eða allt að 12%. , , Hann sagði, að nýjustu töl- ur Efnahagsstofnunarinnar bentu til þess, að landbúnaðar- framleiðslan hefði aukizt veru- le,ga 1971 í fyrsta sinn um fimm ára skeið, og væri aukn- ing þeirrar framleiðsiu, ásamt bústofnsbreytingum, um 9% árið 1971, en um 4% án bú- stofnsbreytinga. í iðnaði, öðrum en fiskiðn- aði, varð einnig mikil fram- leiðsluaukning, væntanlega a. m.k. 15% að magni til miðað við 1970. Ilins vegar minnkaði magn sjávarvöruframleiðslu um 6% frá 1970 en verðlag hækkaði mjög mikið á erlendum mark- aði, eða um 23%, þannig að gjaldeyrisverðmæti sjávaraf- urðaframleiðslu jókst um allt að 16% árið 1971. Þá sagði Ólafur, að spari- fjármyndun hefði verið veru- leg á árinu og samkvæmt bráða birgðatölum væri aukning spari innlána ekki undir 2700 milljón um króna, en var 2477 milljón- ir árið 1970. Loks var ekkert atvinnuleysi að kaila á árinu, og má fremur tala um vinnuaflshörgul en_ at- vinnuleysi árið 1971, sagði Ólaf ur. í ræðu sinni minntist forsæt- isráðherra m.a. á stjórnarskipt- in á árinu, afhendingu handrit- anna, kjarasamningana í des- ember og þann mikla slysafar- aldur, sem gekk yfir á árinu. Síðan fjallaði hann um hið nýja ár, og sagði m.a.: „Innan fárra klukkustunda heilsum við nýju ári og bjóð- um það velkomið. Við getum ekki ráðið þá rún, hvaða tíð- indi það mundi flytja okbur. Samkvæmt reynslunni megum við þó reikna með því, að það eigi í fórum sínum bæði bros og tár, skin og skugga, sigra og vonbrigði. Við heilsum því vonglöð, en skulum líka búa okkur undir barning. Við vit- um, að okkar bíða vandasöm verkefni á komandi ári. Stærsta Framhald á bls. 14. Vegir rofnuðu ú fímm stöðum í Borgurfírði Enn er fært frá Reykjavík austur á land EB—Reykjavík, mánudag. Vegagerðin var í gær og dag önnum kafin við að lagfæra vegi víða á Vesturlandi og Vestfjörð- um, en þeir skemmdust talsvert vegna þess vatnsveðurs sem geysaði í þessum landslilutum aðfaranótt gamlársdags og á gaml- ársdag. í Borgarfirði rofnuðu veg- ir á fimm stöðum, en þar var mik- ið vatnsflóð. í kvöld voru vegir þar aftur orðnir færir, og reiknað var með að bráðabirgðaviðgerðum á vegum annars staðar yrði að mestu lokið í kvöld. Mestu flóðin urðu í neðanverð- um Borgarfirði, ög munu þau vera Framhald á bls. 3 Skaróið, sem myndaðist i veginn í Norðurárdal við brúna á Bjarnardalsá. (Tímamynd SH) Tilboðin um heimsmeistarakeppni í skák opnuS: ísland er með þriðja hæsta tilboðið ÞÓ-EB-Reykjavík, mánud. Þegar tilboðin 14, um að halda einvígi þeirra Fischers frá Bandaríkjunum og Sovét- mannsins Spasskys, um heims meistaratitilinn { skák, voru opnuð á skrifstofu Alþjóða- skáksambandsins í Amsterdam í dag, kom í ljós, að tilboð íslands er þriðja hæsta tilboð- ið og það langviðamesta, sam- kvæmt upplýsingum Guðmund- ar G. Þórarinssonar, forseta Skáksambands fslands. Þá er fulltrúi íslenzka skáksambands ins, Freysteinn Þorbergsson, sem fór með tilboð fslands til Amsterdam, einn af þremur í nefnd sem hafði það hlutverk að opna tilboðin. Guðmundur G. Þórarinsson sagði í viðtali við Tímann í kvöld, að náttúrlega mætti ekki upplýsa hver þessi tvö lönd eru, sem eru fyrir ofan Island. Kom fram í sjónvarps- viðtali við Freystein í kvöld, að meðiimirnir í þriggja manna nefndinni eru bundnir þagnarskyldu næstu tvær vik urnar. Freysteinn taldi ísland hafa töluverða möguleika í þessu efni, en þess bæri að gæta, að veirðiaunin skiptu ekki öllu máli. Ýmislegt fleira spilaði þar inn í. Veðrátta og fleira. — Við erum ennþá inni í dæminu, sagði Guðm. G. Þór- arinsson, og gat þess um leið, að margar nýjungar í sam- bandi við slíka skákkeppni fæl- ust í tilboði íslands. Guðmund- ur gat að sjálfsögðu ekki sagt hvað tilboð íslands væri hátt, þar eð samið var um, að ekk- Framhald á bls. 14. Á Guðmundur G. Þórarinsson mffð tilboð Skáksambandsins.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.