Tíminn - 04.01.1972, Page 1
1. tbl.
Þriðjudagur 4. janúar 1972
56. árg.
Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra í áramótaávarpi:
Stærsta málið á árinu er
stækkun landhelginnar
EJ—Reykjavík, raánudag.
— Þegar á heildarmynd efna
hagsmála ársins 1971 er litið,
er þanniig ljóst, að við höfum
fulla ástæðu til þess að minn-
ast ársins 1971 með þakklátum
huga sem góðæris, — sagði
Ólafur Jóhannesson, forsætis-
róðherra, í áramótaræðu sinni
í sjónvarpi ag hljóðvarpi.
Ólafor Jóhannesson
\ forsaetisráSherra
Ólafur sagði, að afkoma at-
vinnuveganna hefði verið mjög
góð á árinu 1971 þegar á heild-
ina væri litið. Nýjustu tölur
bendi til þess, að heildarfram-
leiðsluaukning á árinu verði
a.m.k. 9% miðað við 1970, og
aukning þjóðartekna orðið enn
meiri vegna liagstæðra við-
■ ■■■■■■)■■■■
skiptakjara við útlönd, eða allt
að 12%. , ,
Hann sagði, að nýjustu töl-
ur Efnahagsstofnunarinnar
bentu til þess, að landbúnaðar-
framleiðslan hefði aukizt veru-
le,ga 1971 í fyrsta sinn um
fimm ára skeið, og væri aukn-
ing þeirrar framleiðsiu, ásamt
bústofnsbreytingum, um 9%
árið 1971, en um 4% án bú-
stofnsbreytinga.
í iðnaði, öðrum en fiskiðn-
aði, varð einnig mikil fram-
leiðsluaukning, væntanlega a.
m.k. 15% að magni til miðað
við 1970.
Ilins vegar minnkaði magn
sjávarvöruframleiðslu um 6%
frá 1970 en verðlag hækkaði
mjög mikið á erlendum mark-
aði, eða um 23%, þannig að
gjaldeyrisverðmæti sjávaraf-
urðaframleiðslu jókst um allt
að 16% árið 1971.
Þá sagði Ólafur, að spari-
fjármyndun hefði verið veru-
leg á árinu og samkvæmt bráða
birgðatölum væri aukning spari
innlána ekki undir 2700 milljón
um króna, en var 2477 milljón-
ir árið 1970.
Loks var ekkert atvinnuleysi
að kaila á árinu, og má fremur
tala um vinnuaflshörgul en_ at-
vinnuleysi árið 1971, sagði Ólaf
ur.
í ræðu sinni minntist forsæt-
isráðherra m.a. á stjórnarskipt-
in á árinu, afhendingu handrit-
anna, kjarasamningana í des-
ember og þann mikla slysafar-
aldur, sem gekk yfir á árinu.
Síðan fjallaði hann um hið
nýja ár, og sagði m.a.:
„Innan fárra klukkustunda
heilsum við nýju ári og bjóð-
um það velkomið. Við getum
ekki ráðið þá rún, hvaða tíð-
indi það mundi flytja okbur.
Samkvæmt reynslunni megum
við þó reikna með því, að það
eigi í fórum sínum bæði bros
og tár, skin og skugga, sigra
og vonbrigði. Við heilsum því
vonglöð, en skulum líka búa
okkur undir barning. Við vit-
um, að okkar bíða vandasöm
verkefni á komandi ári. Stærsta
Framhald á bls. 14.
Vegir rofnuðu ú fímm
stöðum í Borgurfírði
Enn er fært frá Reykjavík austur á land
EB—Reykjavík, mánudag.
Vegagerðin var í gær og dag
önnum kafin við að lagfæra vegi
víða á Vesturlandi og Vestfjörð-
um, en þeir skemmdust talsvert
vegna þess vatnsveðurs sem
geysaði í þessum landslilutum
aðfaranótt gamlársdags og á gaml-
ársdag. í Borgarfirði rofnuðu veg-
ir á fimm stöðum, en þar var mik-
ið vatnsflóð. í kvöld voru vegir
þar aftur orðnir færir, og reiknað
var með að bráðabirgðaviðgerðum
á vegum annars staðar yrði að
mestu lokið í kvöld.
Mestu flóðin urðu í neðanverð-
um Borgarfirði, ög munu þau vera
Framhald á bls. 3
Skaróið, sem myndaðist i veginn í Norðurárdal við brúna á Bjarnardalsá.
(Tímamynd SH)
Tilboðin um heimsmeistarakeppni í skák opnuS:
ísland er með þriðja
hæsta tilboðið
ÞÓ-EB-Reykjavík, mánud.
Þegar tilboðin 14, um að
halda einvígi þeirra Fischers
frá Bandaríkjunum og Sovét-
mannsins Spasskys, um heims
meistaratitilinn { skák, voru
opnuð á skrifstofu Alþjóða-
skáksambandsins í Amsterdam
í dag, kom í ljós, að tilboð
íslands er þriðja hæsta tilboð-
ið og það langviðamesta, sam-
kvæmt upplýsingum Guðmund-
ar G. Þórarinssonar, forseta
Skáksambands fslands. Þá er
fulltrúi íslenzka skáksambands
ins, Freysteinn Þorbergsson,
sem fór með tilboð fslands til
Amsterdam, einn af þremur
í nefnd sem hafði það hlutverk
að opna tilboðin.
Guðmundur G. Þórarinsson
sagði í viðtali við Tímann í
kvöld, að náttúrlega mætti
ekki upplýsa hver þessi tvö
lönd eru, sem eru fyrir ofan
Island. Kom fram í sjónvarps-
viðtali við Freystein í kvöld,
að meðiimirnir í þriggja
manna nefndinni eru bundnir
þagnarskyldu næstu tvær vik
urnar. Freysteinn taldi ísland
hafa töluverða möguleika í
þessu efni, en þess bæri að
gæta, að veirðiaunin skiptu
ekki öllu máli. Ýmislegt fleira
spilaði þar inn í. Veðrátta og
fleira.
— Við erum ennþá inni í
dæminu, sagði Guðm. G. Þór-
arinsson, og gat þess um leið,
að margar nýjungar í sam-
bandi við slíka skákkeppni fæl-
ust í tilboði íslands. Guðmund-
ur gat að sjálfsögðu ekki sagt
hvað tilboð íslands væri hátt,
þar eð samið var um, að ekk-
Framhald á bls. 14.
Á
Guðmundur G. Þórarinsson
mffð tilboð Skáksambandsins.