Tíminn - 06.01.1972, Qupperneq 3

Tíminn - 06.01.1972, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 6. jánúar 1972 TIMINN Halldór E. Sigurðsson fjármálaráðherra á fundi meS blaðamönnum í gaer. Vinstra megin við hann er Hannes Jónsson blaðafulltrúi rikisstjórnar- innar og hægra megin Jón Sigurðsson ráðuneytisstjóri. (Tímamynd Gunnar) Halldór E. Sigurðsson, fjármálaráðherra, á blaðamannafundi: „Fráleitt að saka ríkis- stjórnina um brot á lögum“ Hækkunin samkvæmt kjarasamningum BSRB 7-9% meiri en gert var ráð fyrir EJ—Reykjavík, miðvikudag. • „Það er fráleitt að líta á mat ríkisstjórnarinnar á kröfu BSRB um endurskoðun kjarasamnr.nga opinberra starfsmanna frá 19. des- ember 1970 sem lögbrot af henn- ar hálfu“, — sagði Halldór E. Sigurðsson, fjármálaráðherra, á fundi mcð blaðamömium í dag. — „Það, sem ríkisstjórnin hefur sagt í málinu, er einfaldlega það, að hún telur, að sú 4% kauphækk- un, sem varð nú um áramótin hjá verkalýðsfélögunum, sé ekki slík ar almennar og verulegar kaup- breytingar, að þær fullnægi skil- yrðum laganna um endurskoðun kjarasamnings’Jis. Þetta þýðir, að af hálfu ríkisstjórnarinnar verður ekki um samkomulagslausn á kröfu BSRB að ræða. Hins vegar hlýtur málið að hafa sinn löglega gang, ef BSRB heldur kröfu sinni til streitu, og fara til sáttasemj- ara og síðan til Iíjaradóms, og ríkisstjórnin mun að sjálfsögðu halda þar fram sjónarmiðum rík- isstjórnarinnar, og hlíta síðan þeim úrskurði, sem Kjaradómur mun kveða upp.“ • Jafnframt sagði fjármálaráð- herra um forsendur þessa mats ríkisstjórnarinnar, að auk þess sem hún teldi að 4% kauphækk- un væri ekki vcruleg, þá bæri á það að líta, að þegar kjarasamn- ingur BSRB frá 19. desembar 1970 var gerður, hefði verið viðurkennt, m.a. af fyrrvcrandi fjármaiaráð- herra, að meða'hækkun launa rík- isstarfsmanna til að ná jöfmiði við almenmn launamarkað yrði nær 35%. Nú befði hins vegar lrom ið í ljós við útfærsiu samningsios, a? liækkunin af hans völdum milh verð? 42—41%, og bafi því gert verulega merra en að ná jöfnuði við hinn aimcnna launamarkað Fjármálaráðherra hélt fund moð blaðamönnum í dag til að kynna viðhorf ríkisstjórnarinnár í mál- iru, en auk ráðherra sátu fundinn .Tón Sigurðsson, ráðnueytisstjóri. og Hannes Jónsson, blaðafulltrúi ríkisstjórnarmnar. Á hverju mat ríkisstjórn- arinnar byggist Fjármálaráðherra ræddi fyrst um það mat ríkisStj órnarinnar, að sú kauphækkun, 4%, sem kom til framkvæmda um áramótin sam- kvæmt samningum verklýðshreyf- ingarinnar, væri ekki þess eðlis, að skilyrðum laganna um ,.al- mennar og verulegar kaupbreytir.g ar á samningstímabili" væri full- nægt, og sagði þá m.a.: „í þessu máji er fyrst.qg frepist um það deilt, hvort fuilnægt sé skilyrðum 2. pjgr, .7. ,,gr. kjara-^ samningalaganna frá 19(32 um „almennar og verulegar kaup- breytingar á samningstímabili.“ í öðru lagi þá hefur ríkisstjóm in það svo, að þær kaupbreyting- ar, sem orðið hafa um áramótin, fullnægi ekki þessum skilyrðum. Við teljum, að 4% kauphækkun sé ekki veruleg kauphækkun, þótt um það megi deila, og það sé rétt, að slík hafi áður verið dæmd í Kjairadómi sem þess virði, að hún væri tekin með. í öðm lagi skal svo tekið fram, að mjög hefur verið vitnað í um- mæli fyrrverandi fjármálaráð- herra í sambandi við gerð kjara- samningsins 19. desember 1970, þess efnis, að með þeim samningi væri aðeins búið að leiðrétta það sem ríkisstarfsmenn höfðu þá dreg í izt aftur úr öðrum launastéttum. j Ég legg ekki mat á þessa frásögn hans, en vil benda á, að þegar hann gaf út þessa yifirlýsingu, var gert ráð fyrir, að kjarasamning- arnir myndu fela í sér að meðal- tali um 35% hækkun á launakjör- um ríkisstairfsmanina. Hins vegar hefur komið í ljós, að þessir kjarasamningar þýddu 42—44% hækkun. Hér er um það mikinn mismun að ræða — 7—9% —- að það eitt myndi réttlæta þessa ákvörðun ríkisstjórnarinnar að mínu mati. Það er þess vegna ekkert óeðli- legt, þó að ríkisstjórnin hafi talið, að nýgerðir kjarasaimningar ættu ekki að leiða til endurskoðunar á kjarasamningi BSRB.“ Ekkert lagabrot „Því hefur verið mjög haldið á lofti, að ríkisstjórnin sé með þessari afstöðu sinni að brjóta lög. Því vil ég mótmæla sem al- gjörum misskiiningi," sagði ráð- herrann. — „Það stendur ekki í 7. grein þessara laga, að ríkisstjórn á hverjum tíma eigi að hafa sama sjónarmið og BSRB. Þeir hafa báðir rétt til þess að túlka sín sjónarmið eins og þau liggja fyr- ir á hverjum tíma. Það, sem ríkisstjórnin liefur geirt er, að hún hefur lýst því yfir sem sinni skoðun, að hún telji ekki grundvöll fyrir endur- skoCun kjt.-asamninganna, og ég hef þegar nefnt á hverju hún bygg ir þá skoðun sína. Þess vegna sjái hún ékká'tetæðB'til aðriiéfjá'"við- ræður af sinni hálfu um það mál, enda *er "þací 'm'ftóii hrefiiléára 'áð segja þetta hreint og klárt heldur en að ganga til viðræðna með það í huga að gera ekkert með þær. En ég vil jafnframt taka það fram, að það lokar engri leið til löglegrar meðferðar á málinu, því framhaldið er, að ef ekki nást samningar, eins og talað er um í lögunuim, þá er næsta stigið, að sáttasemjari taki málið til með- feirðar, en hann kveður auðvitað báða aðila til, og þriðja stigið er svo Kjaradómur. Að sjálfsögðu mun ríkisstjórnin taka þátt í þessu eins og til stendur. Hún mun láta sína fulltrúa mæta hjá sáttasemj- ara, þegar málið er komið á það stig, og hún mun auðvitað láta sækja og verja málið af sinni hendi fyrir Kjaradómi og beyigja sig fyrir niðurstöðu hans, eins og eðlilegt er og lög mæla fyrir um, Þess vegna er ekkert af hennar hendi sagt annað en það, hver hennar afstaða er, og hvert henn- ar mat er, en auðvitað engu sleg- ið föstu um niðurstöðuna. Ráðherra gat þess einnig, að eniginn gæti sagt til um hvex úr- skurður Kjaradóms yrði; á liðn- um áruim hefði úrskurður hans ýmist fallið ríkisstjórn eða ríkis- starfsmönnum í vil. Nær aðeins til 4% hækkunarinnar Aðspurður sagði fjánnálaráð- henra, að þetta mat ríkisstjórnar- innar snérist aðeins um þau 4%, sem komu til framkvæmda nú um áramótinu. Ríkisstjórnin hefði ekki tekið afstöðu til þess, hvort aðrar þær áfangahækkanir verka- lýðsfélaganna, sem síðar eiga að koma, rnyndu þegar þar að kem- ur teljast þess eðlis, að skilyrð-^ um um endurskoðun kjarasamn- ings opinberra starfsmanna væri fullnægt. Hins vegar benti hann á, að opinberir starfsmenn hefðu feng- ið áfangahækkun um áramótin, og myndu fá aðra 1. júlí, og í bæði skiptin væri þeirra hækkun nokkru meiri en hækkun sú sem aðrir fá. Aðspurður um, hvort ríkis- stjórnin teldi, að sú láglauna- hækkun, sem verkalýðshreyfinigin samdi um í desember, þyrfti ekki að koma ríkisstarfsmönnum til góða, saigði ráðherra, að það hefði ékki vérið uhí þáð fjallað sérstak- lega í ríkisstjórninni, því BSRB hefði farið fram á endurskoðun á samníngum í heild og svar ríkis- stjórnarinnar verið miðað við það. Hins vegar yi-ði það mat Kjara- dóms á þessum málum öllum, sem myndi gilda. Keðjuverkandi áhrif hættuleg Fjármálaráðherra lagði á það áherzlu á blaðamannafundinum að ríkisstjórnin teldi keðjuverkandi áhrif í kjarasamningum stórra hagsmunahópa hættulegar fyrir efnahagslífið. Þess vegna væri það stefna ríkisstjórnarinnar, að gera samninga hinna stóru hagsmuna- hópa sjálfstæðari og án beinna tengsla þeirra í milli. Þess vegna væri ríkisstjórnin t.d. að beita sér fyrir endurskoðun á lögum um Framleiðsluráð landbúnaðarins. Væri mikið af þeirri endurskoð- un lokið og myndi ríkisstjórnin og stjórnarflokkarnir fara að at- huga tillögur þeirrar nefndar, sem að málinu hefur unnið, og yrðu miðað við það grundvallaratriði, að keðjuverkaijirnar verði minni en áður hefur verið. Einnig væri ákvörðun ríkisstjórnarinnar um samningsrétt fyrir opinbera starfs menn miðuð við, að þeir semji sem sjálfstæðir aðilar. Sem dæmi um svona óheppi- legar keðjuverkanir nefndi hann, að opinbcrir starfsmenn hefðu leit að eftir jöfnuði við launakjör á almennum vinnumarkaði. Síðan hefðu ýmsir, t.d. verzlunarmenn nú síðast, talið sig vera að ná þeim kjörum, sem opinberir starfs menn hefðu samið um, oð nú vildu opinberir starfsmenn aftur fá hækkanir. Svona keðjuáhrif væru mjög hættuleg að hans mati, og sú staðreynd, að gildistími kjara samninga verkalýðsfélaga, opin- berra starfsmanna og nú síðast bátasjómanna væri til ársloka 1973 eða þar um bil benti til þess, að aukinn ■’kilningur væri á nauð- syn þess að samningar væru gerð- ir samtímis hjá se,m flestum. 3 Illla líður Jóhanni í stjórnarandsföðu Greinar stjórnmálaforingj- anna um áramótin er orðin að skennntilegri hefð í íslenzk um blöðuin. Þessar greinar eru að sjálfsögðu misjafnar að gæð um frá ári til árs eins og geng ur, en yfirleitt hafa þær á sér yfirbragð málefnalegrar og til- tölulega áreitnislitlar rök- semdafærslu. Þessar greinar |í| urðu óvenju margar um þessi fí áramót, þar sem formenn þing- a flokkanna rituðu einnig ára- 1 mótagreinar, sem birtust í Mbl. og skrifuðu því sumir foringj- anna tvær greinar, en tveir af forystumönnum þeirra flokka, sem ekki hafa forinann flokks- ins og þingflokksins í einni og sömu persónu. Það má segja um allar þessar greinar, að þær hafi vcrið málefnalegar og hófsamar með tilliti til (f þess, hvers eðlis þær eru. Með einni undantekningu þó. Jó- hann Hafstein, formaður Sjálf stæðisflokksins, sem greinilega er ekki búinn að sætta sig enn við kosningaúrslitin á s.l. sumri, og grein hans var lítt málefnaleg, en full af alls kon r ar skætingi. : -i I >3 á Skætingur í stað raka Þannig skrifaði hann um „skipbrot Framsóknarflokks- ins“ í kosningunum og að Framsóknarmenn hafi fórnað öllu á altari kommúnista með stjórnarmynduninni og Hanni- bal hafi tapað sigrinum i kosn ingunum. Já, skelfilega hlýtur honum Jóhanni að líða illa í stjórnarandstöðunni. Svo hefur Jóhann, sem stóð að 4 gcngisfellingum í stjórnar tíð viðreisnarstjórnarinnar, allt á hornum sér vegna „gengis- fellingar“ núvcrandi ríkis- stjórnar, með þcssum orðum: „Loks þótti ekki hjá því komizt að lækka gengi krón- unnar. En það reyndist lítið vanlaverk. Gefin var út um það fréttatilkynning, að „stofn gengi krónunnar væri óbreytt miðað við dollar". Auðugasta þjóð lieimsins hafði þurft að fella gengi gjaldmiðils síns, en við íslendingar ekki, — þessir iniklu menn, — „stofngengið óbreytt“!“ Það er svona málflutningur, sem er til vansæmdar stjórn- málaforingja og flokkast undir hreinan skæting. Hér eru eng- in rök flutt. Það má að vísu deila um orðalag um þau áhrif sem lausn hinnar alþjóðlegu gjalde>Tiskreppu hafði á gjald eyrismál á fslandi, en hitt er staðreyndað stofngengi íslenzkr ar krónu er og hefur verið og mun áfram verða miðað við dollar. Þegar dollarinn var iækkaður lækkaði að sjálf- sögðu krónan með tilliti til annarra gjaldmiðla, sem voru hækkaðir. Þarna fékk íslenzk ríkisstjórn engu um ráðið. Hér var um að ræða ráðstafanir, sem ríkisstjórnin á íslandi hafði cngin áhrif á. íslenzka rík'sstjórnin tók þá ákvörðun að halda óbreyttu stofngengi íslcnzku krónunnar gagnvart dollar. Þar með hélt hún óbreyttu útflutuingsverðlagi á fiskafurðum á Bandaríkjamark Framfc. á bls. 2.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.