Tíminn - 06.01.1972, Blaðsíða 13
\
FIMMTUÐAGUR 6. janúar 1972
éé$$ mmm TIMINN
Fyrri landsleikur Sslands og Tékkóslóvakíu í
handknattíeik verður annað kvöld kl. 20,30.
Siðari leikurinn er á laugardaginn
Tékkar og íslendingar léku tvo landsleiki í Laugardalshöllinni fyrir nákvæmlega tveim árum e3a í janúar 1969.
Þessi mynd er frá fyrri leiknum, sem lauk með sigri Tékka 19:17. Það eru þeir Bruna og Karvan, sem þarna
hafa klemmt Sigurberg Sigsteinsson á milli sín á línunni. Þessir þrír menn verða allir með í leiknum á morgun.
Þrír menn lékn sig inn
Pressuliðið gaf landsliðinu ekkert eftir, en tapaði naumt 16:19.
Klp—Reykiavík.
Annað kvöld kl. 20,30 hefst í
Laugardalshöllinni fyrri lands-
leikur íslands ng Tékkóslóvakíu I
handknattleik, en það er jafnframt
fimmti landsleikur þessara þjóða
í íþróttinni í LaugardaJshöllinni,
frá því að hún var fyrst tekin í
notkun.
Tékkarnir komu hingað til lands
í gær en hér dvelja þeir fram á
sunnudag. Þeir leika tvo leiki við
íslenzka landsiiðið í þessari ferð,
sem og í sínum tveim fyrri ferð-
um hingað.
Islenzka landsliðinu hefur yfir-
leitt vegnað nokkuð sæmilega
gegn Tékkum í leikjunum hér á
landi, þótt aldrei hafi það haft það
af a@ sigra. í fyrsta leiknum var
munurinn minnstur, eða 1 mark,
18:17 fyrir Tékka. í öðrum lei'kn-
um var munurinn 4 mörk 18:14.
Nú eru getraunirnar að fara af
stað aftur eftir gott jólafrí, og
þiá förum við að sjálfsögðu einnig
af stað með því að fá einstaka
menn til að spá fyrir okkur.
Fyrsti spámaður ársins, sem spá
ir á igetraunaseðil nr. 1, en á hon-
um eru leikirnir sem leiknir verða
á laugardaginn, er Bergþór Berg-
þórsson, bifreiðastjóri. Hann spá-
og 2 útisgirum, eða á Liverpool og
Derby. Annars er spá Bergþórs
á seðli nr. 1 þessi:
Lelkk 8,1»Mer «870 1 J a
C'.teis.ea ~ KiidtíessSetó l
Essjiísa « Efeet Uam
isieáa «*» Spssyish 1
Löceslar 1
ítefe ljsá, — «ítea í ■
tfeíieasla Gsyeolif *
HeSös Fes, — CtízM R. /
eöiífeatKpiaa — Ceáhy
1 eiffka — Aísenál
IþSeaiiBKi — Maa JSS»
SaBA. — Shfiffield ISd, *
«» ©.PJL l . L
Bergþór Bergþórsson
Árið 1969 lauk fyrri leiknum með
sigri Tékka 19:17 og þeim síðaii
með sömu markatölu og síðari
leiknum í fyrri ferðinni, eða 18:14.
Islenzka landsliðið hefur tvisvar
keppt við Tékka í heimsmeistara-
keppni. 1 Magdenburg 1967 en þá
sigruðu Tékkar stórt 27:17 og í
Stuttgart 1961 en þá varð jafn-
tefli 15:15. Sá leikur var einn eí't-
irminnilegasti i sögu handknatt-
leiksins á Islandi, því úrslit hans
kjmu öllum á óvart, enda voru
Tékkar þá freirsta handknattleiks-
þjóð veraldar.
Eins og fyrr segir hefst leikur-
inn á morgun kJ. 20,30, en sá síð-
ari á iaiigardaginn kl. 16.00. For-
sala aðgöngumiða á báða leikina
verður í Laugaidalshöllinni. Hefst
hún í dag frá kl. 17,00 til 20,00. Á
morgun frá kl. 17.00 og á laugar-
daginn frá kl. 13,00.
Verð aðgöngumiða er óbreytt
frá síðustu landsleikjum.
Dómarar í báðum leikjunum
verða danskir, H. Svensson og G.
Knudsen.
Tékkneska liðið sem hingað kem
ur er skipað leikreyndum mönn-
um. Má þar t.d. benda á menn eins
og Benes, Bruna, Karvan, IClimcík
og Skarvan, Þó nokkrir séu nefnd-
ir.
AÐALFUNDUR
Aðálfundur Glímudeildar Ár-
manns verður haldinn a® Hótel
Esju 2. hæð, föstudaginn 14. janú-
ar n.k. og hefst kl. 20,00.
Venjuleg aðaifundarstörf.
Stjórnin.
Mennirnir, sem skipa landliðs-
nefnd í handknattleik, voru ekki
brosmiklir, þegar þeir yfirgáfu
Laugardalshöllina á mánudags-
kvöldið. Þeir, sem voru vitni að
leik landsliðsins og lið íþrptta-
fréttamanna, gátu vel skilið þá,
frammistaða landsliðsins, sem þeir
völdu, gaf ekki ástæðu til bjart-
sýni að óbreyttu eftir að samæft
landslið marði sigur yfir ósam-
æfðu pressuliði 19:16. Þeir hafa
smá afsökun, það vantaði í lið
þeirra — nokkra fasta liðsmenn.
En er það nokkur afsökun, þegar
haft er í huga, að landsli.ðsnefnd-
in fær að velja beztu eplin úr
kassanum, en blaðamenn eiga að
velja presjiulið úr eplunum sem
eftir liggja.
Ef einhver leikmaður hefur spil-
að sig inn í landsliðið í leiknum,
er það hinn margreyndi hand-
knattleiksmaður og fyrirliði press
unnar, Bergur Guðnason, hann var
áberandi bezti maður leiksins. Það
var ekki nóg að hann skoraði 7
mörk í leiknum, heldur lagði hamn
upp þrjú önnur með frábærum
línusendingum. Og í leiknum
sannaði hann enn einu sinni, að
hann er okkar öruggasta víta-
skytta.
í leiknum mátti greinilega sjá
að leikmenn liðanna voru nokkuð
taugaóstyi'kir — sást það bezt á
því hvað mikið var um „feil“-send
inigar, hik, og voru menn að stinga
knettinum niður í tíma og ótíma.
Leikmennirnir voru frekar þung-
ir — (vildu sumir kenma jóla-
steikinni um það) — vantaði meiri
léttleika og ógnun, meira var um
kapp en forsjá.
Þegar fyrri hálfleik lauk var
staðan 9:7 fyrir landsliðið, eftir
að pressan hafði leitt leikinn til
að byrja með.
Fyrstu 10 mín. síðari hálfleiks-
ins réðu úrslitum leiksins, komst
þá landsliðið í 12:7 — en pressu-
liðið var þó ekki á þeim buxun-
um að gefast upp. Þá kemur „þátt-
ur“ Bergs Guðnasonar, hann skor-
ar fimm mörk í röð og á þar að
auki tvær sendingar, sem gefa
mörk — og munurinn var aðeins
orðinn eitt mark fyrir landsliðið
16:15. En stuttu síðar dæmdi sein-
heppinn dómari leiksins Valur
Benediktsson, víti af Bergi —
já, fyrir. . .? Ekki veit' égí fyrir
hvað, og greinilega vissu landsliðs
mennirnir það ekki heldur, því að
þeir voru að byrja með knöttinn
á miðju — þegar Valur flautaði,
Framhald á bls. 14.
Línumannaiið valið
gegn Tékkóslovakíu
Klp—Reykjavík. — Eftir
pressuleikinn á mánudagskvöld
ið kom landsliðsnefnd HSÍ sam
an til að velja hópinn, sem
nota skal í landsleikina við
Tékkóslóvakíu, sem fara fram
urn næstu helgi. Nefndinni var
nokkur vandi á hönduim, því
tveir af beztu mönnum lands-
liðsins undanfarna miánuði, þeir
Geir Hallsteinsson og Ólafur
H. Jónsson, gátu hvorugir leik-
ið vegna meiðsla, og Jón Hjalta-
lín gaf heldur ekki kost á sér,
þar sem hann á að mæta í próf
við skóla sinn í Lundi á föstu-
dag.
Þeir 15 menn sem landsliðs-
nefndin valdi til leikjanna eru
þessir:
Hjalti Einarsson, FH
Ólafur Benediktsson, Val
Gísli Blöndal, Val
Axel Axelsson, Fram
Páll Björgvinsson, Vík.
Viðar Símonarsson, FH
Stefán Gunnarsson, Val
Sigurbergur Sigsteinss., Fram
Björgvin Björgvinss., Fram
Gunnsteinn Skúlason, Val
Stefán Jónsson, Haukum
Sigfús Guðmundss., Vík.
Georg Gunnarsson, Vík.
Ágúst ögmundsson, Val
Auðunn Óskarsson, FII
Af þessum mönnum leika
12 þeir fyrsttöldu í fyrri leikn-
um, en þeir Georg, Ágúst og
Auðunn hvíla í þeim leik. Fyrir
liði liðsins verður Gunnsteinn
Skúlason, og er þetta í fyrsta
sinn, sem hann er fyrirliði
landsliðsins.
Að sjálfsögðu má mikið finna
að þessu vali, sem og mörgum
öðrum af svipuðum toga. Það
sem vekur fyrst athygli er hvað
fátt er um góðar skyttur í lið-
inu. Þær eru raunverulega
ekki nema tvær, Gísli Blöndal
og Axel Axelsson. Þeir Páll
Bjöirgvinsson og Viðar Símonar
son, eru að vísu einnig skytt-
ur, en ekki góðar og því siður
öruggar.
Hópurinn er að mestu skip-
aður línumönnum, eða 9 tals-
ins, og má nú segja að tímarn-
ir séu tvennir, þegar línumað-
ur komst varla í landsliðið
nema þá helzt til að fylla upp
í töluna. Meðal þessara 9 línu-
manna er eini nýliðinn í hópn-
um, Georg Gunnarsson, sem
svo sannarlega hefur til þess
unnið að fá að reyna sig í lands
liði.
Reikna má með að breyting
verði gerð á liðinu ef illa geng-
ur í fyrri leiknum. L- skytt-
Framhaltí á bls 14
FyrirliSi pressu-
llðsins, Bergur
GuSnason, var
bezti maður þess
f leiknum gegn
landsliðinu. Hann
er samt „óþekkt
andlit", sem lands-
liösmaöur, prátt
fyrir sinn langa
feril í handknatt-
leiknum.