Tíminn - 07.01.1972, Page 1
I
4. tbl.
Föstudagur 7. janúar 1972 —
56. árg.
ISLENZKIR ÞEGNAR I 200 AR
Hreindýrin hafa nú orðiS fastan
bústað í byggð, því í Sædýra-
safninu hafa þau verið um árs
skeið, og þar var þessi mynd tek-
In. (Tímamynd Gunnar)
3 þúsund
hreindýr
SJ—-Reykjavík, fimmtudag.
í sumar voru 200 ár liðim
síðan fyrstu hreindýrin voru
flutt til íslands. Nú eru um
3000 hreindýr talin vera á
landinu og eru heimkynni
þeirra öræfi Múlasýslu. Hrein-
dýrin á öræfum Austurlands
eru þó ekki komin af þessum
fyrsta hópi hreindýra, sam flutt
voru hingað í von um að þau
gætu orðið landsmönnum til
framdráttar þegar illa áraði,
heldur fyrst og fremst af 35
dýrum, sem komu til Djúpa-
vogs 1787 og e.t.v. einnig af
öðrum hópi, sem settur var á
land við Eyjafjörð 1784. Fjórði
hópurinn var fluttur til Reykja
nesskaga og þar lifðu hrein-
dýrin í góðu gengi lengi vel,
en dóu út um 1920. Nú eru
aftur komin hreindýr á Reykja
nesið, en að vísu aðgins í
Sædýrasafnið við Hafnarfjörð
og er meðfylgjandi mynd það-
an.
í viðtali við TLmann í dag
sagðist Egill Gunnarsson eftir-
litsmaður hreindýra, sem býr
að Egilsstöðum í Fljótsdal, lít-
Framhald á bls. 10.
Áramótaávarp
forsætisráðherra
r
Olafs Jóhannessonar
Sjá forsíðu seinna blaðs
15 mín. fundur
í borgarstjðrn
EB—Reykjavík, fimmtudag.
Fundir borgarstjórnar Reykja-
víkur eru haldnir hálfsmán?ðar-
lega og yfirleitt stendur hver
fundur í 5 — 6 klukkutíma. Síð-
ustu fundir í borgarstjórn á liðnu
ári, stóðu þó yfirleitt til miðnætt-
is eða lengur þar eð mörg mál
voru Þá á dagskrá og þurftu marg-
ir borgarfulltrúanna að ræða þau.
í dag var fyrsti fundur boraar-
stjórnar á hinu nýbyrjaða ári og
mun hann líklega vera sá stytzti,
sem menn muna, vegna þess að
hann stóð ekki r.ema í tæpan
stundarfjórðung. Fundargerðir
ýmissa nefnda og ráða borgarinn-
ar voru afgreiddar og kosið í natt-
úruverndarnefnd og síðan var
fundinum slitið. Þar með er ekki
hægt að segja að borgarstjórnar-
menn sitji iðjulausir þessa dagana
því að næg verkefni eru framund-
an og ber þar hæst afgreiðsla fjár
hagsáætlunar borgarinnar fyrir
1972, sem samþykkt var að fresta
á síðasta borgarstjórnarfundinum
fvrir jól.
Leiöir verkfall og hafís til fdður-
vöru- og olíuskorts úti á landi?
Aðeins farið að bera á neyzluvöruskorti og vörur hrúgast upp í erlendum höfnum
EJ—ÞÓ—Rvík, fimmtudag.
Þótt farmannaverkfallið hafi
ekki enn sem komið er leitt til
alvarlegs vöruskorts í landinu, þá
óttast ýmsir, að erfitt ástand muni
skapast ef verkfallið stendur lengi
enn, ekki sízt þar. seim því hefur
verið spáð, að hafís fari að koma
að landinu í þessuim mánuði. Uti
á landi munu fóðurvöru- og olíu-
birgðir vera mjög misjafnlega
miklar eftir stöðum, en suims stað-
ar er um litlar birgðir að ræða.
Hjörtur Hjartar, framkvæmda-
stjóri Skipadeildar SÍS, sagði í
viðtali við Tímann í dag, að nú
væri íshættan að aukast. Samtím-
is væri fóðurbætir smátt og smátt
að ganga til þurrðar úti á landi,
og ástandið gæti því orðið alvar-
legt þar, ef hafísinn kæmi að land
inu og ef verkfallið leystist ekki
fljótlega.
Jafnframt sagði hann, að vöru-
magnið hefði hrúgazt svo upp í
erlendum höfnum meðan verkíall-
ið hefur staðið, að erfitt væri að
ráða við það með eðlilegum hætti
þegar verkfallið leysist.
Þá sagði Hjörtur, að vegna haf-
íshættunnar þá væru vcnjulega
allir olíugeymar út um landsbyggð
ina fullir um þetta leyti árs, en
nú væru víða aðeins birgðir af
oliu til nokkurra daga, eða nokk-
urra vikna þar sem bezt væri
ástandið.
— „Ef hafísinn kemur, þá verð-
ur þetta mikið áhyggjuefni“, —
sagði Hjörtur.
Blönduós.
Hér í A-Húnavatnssýslu er allt
í lagi, a.m.k. það sem komið er,
sagði Árni Jóhannsson, kaupfélags-
stjóri. Við eigum ennþá fóður-
vörubirðir, en í desember feng-
um við 600 lestir. Hætt er við,
að ef farmannaverkfallið leysist
ekki skjótt, þá geti skort fóður-
vöru, er frám líður og eru menn
hræddastir um, að langan tíma
taki að koma reglu á siglingarnar
eftir verkfallið.
Árni sagði, að ekki væri farið
að bera neitt sem héti á neyzlu-
vöruskorti, en er iíða færi á mán-
uðinn þá mætti búast vi ðskorti
á nauðsynjavörum ef ekkert rætt
ist úr.
Egilsstaðir.
Þorsteinn Sveinsson, kaufé-
lagsstjóri á Egilsstöðum, sagði
að þar væru þeir sæmilega birgir
af fóðurvöru, en það fari að koma
að því, að þá vantaði efni í
fóðuirblöndunina og að auki færi
að vanta rúgmjöl. Þá er farið að
bera aðeins á neyzluvöruskorti, en
Framhald á bls. 10.
Bifreiðatryggingamálin:
Rætt um aö bifreiðaeigend-
ur taki á sig „sjálfsábyrgð”
KJ—Reykjavík, fimmtudag.
Svo sem áður liefur komið fram,
þá hafa bifreiðatryggingafélögin
tekið að sér að ábyrgjast ábyrgða ■
tryggingar bifreiða fram til 20.
janúar n.k., en jaftiframt vtnna
stjórnvöld að því að finna lausn á
bifreiðatryggingamálinu. Gera má
ráð fyrir að í næstu viku verði
biiið að ganga frá endanlegri lausn
á þessum málum, og er búizt við
að niðurstaðan verði sú, að gefin
verði út bráðabirgalög, til breyt-
inga á núgildandi umferðarlögum,
og þeim breytt þannig, að trygg-
ingataki taki á sig „sjálfsábyrgð'*,
sem mundi nema allt að 7 500
krónur í hverju tjóni. Ef af bess-
ari breytingu verður, er eklci talið
að tryggingafélögunum yrði heim-
ilað að hækka tryggingaiðgjöld af
ábyrgðartryggingum bifreiða, frá
því sem nú er.
Bifreiðatryggingafélögin báðu
um hækkun á iðgjöldum ábyrgðar-
trygginga á s-1. vori, en fengu ekki
að hækka. Aftur á móti var „trygg
ingaárinu" breytt þannig að það
fylgir nú almanaksárinu, en ekki
miðað við 1. maí eins og áður. Á
gamlársdag var gefin út reglu-
gerðarbreyting, um gjalddaga
ábyrgðartrygginga bifreiða, og
mun samkvæmt þeirri reglugerð
vera tveir gjaldagar, en ekki einn.
Eins og áður segir, þá hafa
stjórnvöld haft Þetta mál til með-
ferðar um nokkurn tíma, og einn-
Framhald á bls. 1©.