Tíminn - 08.01.1972, Qupperneq 3

Tíminn - 08.01.1972, Qupperneq 3
LAUGAEDAGUR 8. janúar 1972 3 Mánudagsmyndin: Jngar ástir" Það er sænsk mynd, sem verður sýnd næstu mánudaga í Háskóla- bíói. Leikstjórinn er tæplega þrít- ugur Svíi, Roy Andersson, sem hefur þegar getið sér gott orð fyrir næmt aiiga og listrænan smekk — útskrifaður af skóia Sænsku kvikmyndastofnunarinnar, sem þykir með betri meðmælum — og er þetta fyrsta mynd hans. Þegar myndin, sem heitir einfald lega „Ungar ástir“ var send til dóms á kvikmyndaáhtíðinni í Beclín fyrir tveirn árum, hlaut hún tvenn verðlaun. Hún fékk „Unicrit“-verðlaunin, sem svo eru nefnd, en þau veita alþjóðleg saim- tök kvikmyndagagnrýnenda, sem sækja sýninguna, en auk þess voru henni dæmd verðlaun „Writers Guild“, sem fjalla, aðeins um einn þátt kvikmyndar, handrit mynd- arinnar. Annars var það almennt álit gesta á hátíðinni, að „Ung- ar ástir“ hefði áreiðanlega feng- ið ein hinna opinberu verðlauna, ef allt hefði verið með felldu með hátíðina, en henni lauk með algerri rinigulreið vegna ósamkomu lags stjórnendanna. „Ungar ástir" segir frá fyrstu ástum tveggja táninga — Párs og Anniku — sem hittast úti fyrir sjúkrahúsi, þegar foreldrar þeirra eru þar í heiimsókn. Síðan er fyglzt með þeim og ást þeirra í tíðindaleysi hversdaigsins í mið- stéttarhverfi velferðarríkis. Af- staða ungliniganna til lífsins er í mikilli mótsögn við viðhorf for- eldranna, sem eru komin á þann aldur, að þeim hefur gleymzt, hvernig það er að vera ástfang- inn, en hafa þess í stað þorskað með sér næma tilífinningu fyrir efnishyggju, og þessi tilfinning þeirra birtist oft á broslegan hátt. Það er unglingar, sem leika að- alhlutverk myndarinnar — Ann Sofie Kylin, sem leikur Anniku, er aðeins 14 ára, og Rolf Scohlman, sem leikur Pár, er aðeins ári eldri. Þau höfðu aldrei komið fram fyr- ir kvikmyndavél, þegar myndatak an hófst, en leikur þeirra hefur hlotið verðskuldað lof. B.T. í Kaupmannahöfn gaf henni 4 stjörnur. Logi Einarsson forseti Hæstaréttar Logi Einarsson hæstaréttardóm- ari hefur verið kjörinn forseti Hæstaréttar frá 1. janúar 1972 að telja til ársloka 1973. Bene- dikt Sigurjónsson hæstaréttar- dómari var kjörinn varaforseti til sama tíma. Fréttatilkynning. TÍMINN Myndin var tekin er Þorláki var hleypt af stokkunum í Stálvík í Garðahreppi (Tímamynd G.E.) Tvö skip Meitilsins sjósett á sama degi OÓ—Reykjavík, föstudag. Tveir bátar sem smíðaðir voru fyrir Meitilinn í Þorlákshöfn voru sjósettir í dag, annar úr Stálvík í Garðahreppi og hinn er smíðað- ur í Slippstöðinni á Akureyri. Bæði eru skipin 105 rúmlestir að stærð, smíðuð úr stáli, og eru teiknuð til togveiða auk línu- og netaveiða. Fara bæði skipin á neta veiðar nú á vertíðinni og síðan eft- ir atvikum á togveiðar eða humar að vertíð lokinni. Meitillinn er nybúinn að selja tvo báta. Þorlák II og ísleif en á þrjá eikarbáta enn, sem fyrirtækið heldur áfram að gera út. Þá mun Meitillinn í þessum mánuði gera samning um smíði skuttogara á Spáni. Skipið sem sjósett var á Akur- eyri, hlaut nafnið Brynjólfur ÁR 4. Frú Gu'Sbjörg Thorarensen, eig inkona Benedikts Thorarensen, framkvæmdastjóra Meitilsins, gaf sfeipinu nafn. Frú Anna Glafsdóttir, eiginkona Árna Hermannssonar verkstjóra hjá Meitlinum, gaf skipinu sem smíðað var í Stálvík nafnið Þor- lákur ÁR-5. Skipstjóri á Þorláki verður Jóhann Adólfsson og 1. vélstjóri Guðmundur Þorsteinsson. Skipin fara bæði til Þorlákshafn- Mánudaginn 10. janúar n.k. kl. 0800 verður tekin í notkun 1000 númera stækkun sjálfvirku stöðv- arinnar við Suðurlandsbraut (Grensásstöðin) í Reykjavík. Númerin verða 86000 til 86999. Þrátt fyrir þessa nýju stækkun verður ekki hægt að uppfylla all- ar Þegar prófunum á vélum, tækj- um og öðrum búnaði er lokið og Siglingamálastofnun ríkisins hef- ur lokið sínum skoðunum. Að sjálfsögðu eru skipin búin öllum þeim tækjum til siglinga fiskileitar og veiða, sem kröfur nútímans heimta í þeim efnum. ar óskir um nýja síma eða flutn- ing síma og verður ekki hægt fyrr en nýjar stækkanir koma til söig- unnar, svo sem eins og bygging Breiðholtsstöðvarinnar. Ný símaskrá er væntanleg með vorinu. Fréttatilkynning frá Póst- og símamálastjórninni. Þúsund númer bætast við en enn vantar marga síma Landhelgisgæzlan í húsnæðishraki OÓ—Réykjavík, föstudag. — Þótt aldrei hafi farið fram nein formleg bréfaskipti um hús- næðismál Landhelgisgæzlunnar, var búið að gera ráð fyrir að hún fengi efstu hæð nýju löigreglu- stöðvarinnar til afnota, og við höfum ekki hugsað um önnur húsnæðismál á meðan af þeim sökum, sagði Pétur Sigurðsson, forstjóri, Tímanum. Kom það því okkur nokkuð á óvart þegar sagt var frá því að utanríkisráðuneyt- ið flytti inn í þetta húsnæði, þótt það sé ekki endanlega afráðið. Landhelgisgæzlan er til húsa í byggingu Vitamálastjórnarinnar við Seljaveg og á gamalt hús og stóra lóð við Ánanaust, þar sem nokkuð af starfseminni fer fram. En nú þarf Vitamálastjórnin á öllu sfnu húsnæði að halda og í mörg ár hefur verið gengið að því vísu, að Landhelgisgæzlan flytti inn á efstu hæð lögreglu- stöðvarhússins við Hverfisgötu þar til nú, að utanríkisráðuneyt- ið fær það húsnæði að öllum lík- indum. Okkar höfuðvandamál er, sagði Pétur, í sambandi við húsnæðis- málin, er að við þurfum að hafa loftskeytastöð, og það er ekki hægt að setja hana hvar sem er. Það er óhjákvæmilegt í sambandi við hlustun að það sé hávaði frá svona stöð, og þess vegna getur hún ekki verið inni á skrifstofum. Nú er loftskeytastöð Landhelgis- gæzlunnar uppi í risi á Seljaveg- ÞÓ—Reykjavík, föstudag. Laust fyrir kl. 24 í gærkvöldi var hringt, til lögreglunnar á Akur eyri, frá Sesseljubúð á öxnadals- heiði og tilkynnt að fólksbifreið hefði lent út af veginum. Þegar komið var á slystaðinn reyndust fjórir hafa veri® í bílnum og tvær stúlkur, sem sátu fram í voru meiddar og voru þær fluttar á inum, og eru aðstæður þar mjög ófullkomnar. Ætlunin var að hafa stöðina uppi á lofti í lögreglustöðv arhúsinu alveg út af fyriir sig, en ekki inni á sjálfum skri'fstof- unum. — Hæðin sem við héldum að við fengjum til afnota stendur óinnréttuð enn sem komið er. En við hjá Landhelgisgæzlunni höf- Framhald á bls. 14 sjúkrahúsið á Akureyri Tveir karlmenn, sem sátu í aftursæti bifreiðarinnar sluppu lítið sem ekkert meiddir og fengu þeir strax að fara heim, að lokinni rann- sókn. Bifrei"" sem var á lcið vestur heiðina, mun hafa lent út af í beygju og farið þar veltu. Bifreið valt á Öxnadalsheiði: Tvær stúlkur meiddust kMk BMjfl | Hvað ber árið í skauti? í áramótagrein sinni í Tím- anum á gamlársdag ræddi Ólaf ur Jóhannesson, forsætisráð- herra m.a. urn verkefni ársins 1972. Hann sagði, að nú eins og jafnan endra nær væri | framtíð hulin og óráðin gáta. Við vissum ekki hvað árið 1972 myndi færa okkur að höndum og margt óvænt gæti skeð. Ný vandamál, sem nú væru ófyrir sjáanleg gætu komið til sög- unnar. En eins gæti allt snúizt á betri veg, ef gæfan væri með. Það yrði hins vegar að taka því, sem að höndum bæri og láta hvorki velgengni stíga sér til höfuðs né láta bugast þótt Iá móti blési. En þrátt fyrir alla óvissu, sem jafnan ríkti um framtíðina vissum við íslend- ingar um mörg verkefni, sem úrlausnar biðu á árinu 1972 og óefað yrðu viðfangsefni ársins. , Um þetta sagði Ólafur m.a.: I Stærstu „Þannig er t.d. ljóst, að eitt helzta verkefni ríkisstjórnarinn ar á árinu 1972 verður að halda áfram að kynna landhelg ra ismálið fyrir öðrum þjóðum og afla málstað okkar fylgis, þann ig að útfærslan 1. september 1972 geti farið friðsamlega fram og fengið næga viður- kenningu. Það er okkar stærsta mál. Viðræður um varnarmál munu eiga sér stað á árinu. f annan stað verður efling atvinnulífs eitt af höfuðverk- efnum á næsta ári. Gera má ráð fyrir, að fjár- festing á sjávarútvegi þurfi að hafa vissan forgang, afla þarf fleiri fiskiskipa, og er þegar samið um mikil kaup, endur- bæta þarf aðstöðuna til fisk- vinnslu í landi, endurbyggja og færa til meira nútímahorfs frystihúsin í landinu, efla fis.k niðurstöðu og vinna að markaðs Iöflun fyrir hana erlendis. Landbúnaðinn þarf að efla og st. ðla þar 'að stóraukinni ,, framleiðni og bættum hag bænda. Það þarf að gera heild- P aráætlun um alhliða land- 1 j græðslu og skipulega nýtingu landgræðslu og skipuleggja 1 nýtingu landsgæða. Það þarf t;j að vinna að aukinni fjölbreytni Ú í landbúnaði, m.a. með ylrækt i og fiskirækt. t Byggia þarf upp öflugan iðn [i að í landinu, fyrst og fremst | í höndum íslendinga ' sjálfra, | en þó kemur þar samvinna við íf; útlendinga til greina í'vissum iji tilvikum og að fullnægðum til- P teknum skilyrðum. Kemur þar Im.a. til greina sjóefnavinnsla, i efling skinasmíða og . full- t vinnsluiðnaður íslenzkra af- urða sjávarútvegs og landbun- j aðar. Jafnframt verður unnið j af undirbúningi stórra vatns- i afls- og jarðhitavirkjana, sem fullnægt geti þörfum vaxandi iðnaðarstarfsemi og séð fyrir lýsingu og hitun á húsakosti landsmanna. Þegar um er að ræða efling atvinnuveganna, em miklar vonir bundnar við Fram- kvæmdastofnun ríkisins, sem tekur til starfa upp úr áramót- í, um. Hennar hlutverk er fyrst L og fremst það að koma í fram Framhald á bls. 14

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.