Tíminn - 08.01.1972, Blaðsíða 12
'2
TIMINN
LAUGARDAGUR 8. janóar 1972
Björguðu andlitinu
Eftir martröðina gegn Júgóslavíu á dögunum náði íslenzka landsliðið sér
aftur á strik með því að gera jafntefli við Tékkóslóvakíu 12:12. — í þetta
sinn var leikið yfirvegað og af viti ailan tímann.
KIp.-Reykjavík. — íslenzka
landsliðið í handknattleik
bjargaði, andlitinu — eða a.
m.k. andlitslitnum — með því
að gera jafntefli við tékk-
neska landsliðið í Laugardals
höllinni í gærkvöldi 12:12. —
Réttara væri víst að segja að
Tékkarnir hafi gert jafntefli/
því þeir skoruðu síðasta mark
leiksins, en íslenzka liðið
hafði 1 mark yfir 5 mín. fyrir
leikslok 12:11. Eftir hina
hroðalegu útreið, sem liðið
fékk hjá Júgóslövum á dög-
unum, voru þessi úrslit kær-
komin. í leikjunum við Júgó-
slava hefur liðið fengið góðan
skóla í því hvernig það á ekki
að leika gegn sterku liði) —
af því dregin lærdómur, sem
var einn aðalvaldur þess að
þessi ánægjulegu úrslit náðust
gegn Tékkóslóvakíu.
Nú var leikið' yfirvegað og
rólega — þó ekki neinn göngu-
handbolta — menn héldu nú
höfði allan tímann og þá sérstak-
lega á lokamínútunum, sem oft-
ast hafa verið okkur örlagaríkar.
Eins og markatalan 12:12 gefur
til kynna, var leikið yfirvegað.
Það gerði að vísu bara íslenzka
liðið. Tékkarnir reyndu að ná
upp hraðanum en voru mistækir
og bráðir þegar þeir fengu bolt-
ann. Þeir skutu í vafasömum fær
um og voru ónákvæmir með skot-
in og sendingarnar. Einnig vafð
ist fyrir þeim að komast með
knöttinn fram hjá hinum ný-
krýnda íþróttamanni ársins, Hjalta
Einarssyni. sem stóð sig frábær-
lega vel 1 markinu. Vörn íslenzka
liðsins var einnig erfið fyrir Tékk
ana. Hún lék fast, en var hreyfan
leg og einnig vel „grimm“
ef svo má að orði komast.
Það var sýnilegt þegar í upp-
hafi lciksins, að Tékkarnir voru
ekki eins góðir og þeir hafa oft
verið áður, þegar við höfðum leik
ið yið þá. Það mátti líka einnig
sjá, að ísl. liðið ætlaði sér að
leika yfirvegað og ekki skjóta
nema í góðum færum. Sést það
bezt á því að eftir 11 mín. leik
var staðan 2:1 fyrir Tékkóslóva-
kíu.
Þá jafnaði íslenzka liðið, Viðar
Símonarson, en hann skoraði
Fimm breytingar
á iandsliðinu í dag
Geir Hallsteinsson og Ólafur H. Jónsson koma
báðir inn aftur. —- Tekst þeim að bæta liðið?
Klp-Reykjavík. — Landsliðs-
nefnd HSÍ tilkynnti fyrir lands
lcikinn í gærkvöldi, að gerðar
yrðu miklar breytingar á lands
liðinu, sem ætti að mæta Tékk
um í síðari leiknum, sem fram
fcr í dag og hefst kl. 16,00 í
Laugardalshöllinni. — Og það
voru engar smábreytingar sem
hún gerði á íiðinu, sem náði
jafnteflinu. Hún setti 4 menn
út og tók 4 nýja í staðinn. Þeir
sem voru settir út voru: Hjalti
Einarsson, Sigfús Guðmunds-
son, Páll Björgvinsson, Björg-
vin Björgvinsson og Stefán
Gunnarsson (???). — Inn koma
þeir Birgir Finnbogason, Georg
Gunnarsson, Ágúst Ögmunds-
son, Ólafur H. Jónsson og Geir
Hallsteinsson.
Ekki fékkst skýring á því
hvers vegna þeir Stefán og
Björgvin voru settir út, en þeir
áttu báðir góðan leik í gær-
kveldi. Vitað er að Hjalti fær
sig ekki lausan úr vinnu.
Þeir Geir og Ólafur treystu
sér hvorugur til að leika í f jtrri
leiknum vegna meiðsla, en
þeim hefur sýnilega batnað á
skömmum tíma, því þeir koma
nú báðir inn aftur.
Það getur orðið fró'ðlegt að
vita hvernig þeim tekst' upp
í dag, en það verður allt annað
en auðvelt fyrir þá að leika
— eftir að lið, sem var án
þeirra náði jafntefli í fyrri
leiknum.
einnig fyrsta markið. Aftur kom
ust Tékkar yfir, en aftur var
jafna'ð. Þegar 20 mín. voru liön-
ar af hálfleiknum var staðan 6:4
fyrir Tékkana, en fyrir hálfleik
náði íslenzka liðið að jafna 6:6,
Gísli Blöndal úr vítakasti (því
eina, sem ísl. liðið fékk i leikn-
um) og Axel Axelsson með
ægirlegu þrumuskot af löngu
færi.
í síðari hálfleik skoruðu Tékk-
ar þegar, 7:6, en tvö gullfalleg
mörk af línu frá þeim Gunn-
steini Skúlasini og ■ Sigurbergi
Sigsteinssyni, komu íslandi yfir
8:7. Þá fyrst hófst fjörið fyrir
alvöru. Tékkarnir reyndu allt
sem þeir gátu til að komast yfir,
en það tókst Þeim ekki. Þeir
náðu aftur á móti að jafna hvað
eftir annað, en íslenzka liðið
skoraði alltaf aftur og náði þar
með forustunni. Axel Axelsson,
sko'raði 9. mark íslands, Gísli
Blöndal það 10. með þ\'í að1
vaða einn upp ailan völl og
brjótast í gegn. Sigurbergur Sig-
steinsson, það 11. á glæsilegan
hátt úr horninu, og hann var
aftur á ferðinni með þa@ 12.,
engu síður glæsilegt mark.
Þá voru 5. mín. eftir af leikn-
um, en Tékkai-nir jöfnuðu 12:12
skömmu síðar. Færðist þá mikil
„panik“ í bæði liðin. I-Ivert upp-
hlaupið af öðru mistókst og hvor
ugu tökst aö bæta við marki.
Þegar 2 mín. voru til leiksjoka
náði ísl. liðið boltanum. Ætlaði
það sér að halda honum þar
til á síðustu sekúndu og reyna þá
að skora sigurmarkið. Það hafði
það af að halda boltanum, en það
gerði Gísli Blöndal á meistaraleg-
an hátt, en því tókst ekki að skora.
Síðasta skotið var varið af lang-
bezta manni tékkneska liðsins,
Jarrslav Skarvn.
Beztu menn ísl. liðsins í þess-
Björgvin Björgvinsson, fær „flugferð
leiknum í gærkvöldi.
um, leik, voru tvímælalaust þeir
Hjalti Einarsson, í markinu. Sig-
urbergur Sigsteinsson, bæði í vörn
og sókn. Gísli Blöndal, sem lék
af viti allan tímann, ■ Björgvin
Björgvinsson og Stefán Gunnars-
son, sem átti frábæran leik í
vörninni. Það átti reyndar Gunn-
steinn Skúlason einnig.
Axel Axelsson og Viðar Símon-
arson,' voru einnig mjög þokka-
legir, Axel í síðari hluta leiksins
og Viðar í fynri hluta hans. Þeir
voru þó báðir helzt til of ragir
við að skjóta, því jafnvel úr
blaðamannastúkunni, mátti sjó
stór göt í tékknesku vörninni,
sem ekki voru notuð.
Það kom manni spánskt fyrir
sjónir, að sjá einn landsliðsmann-
inn sitja á varamannabekknum
hjá fékkneskum leikmanni í lands-
allan leikinn og fá aldrei að fara
inn á. Þar vai- Sigfús Guðmunds-
son, sem hafði það „hlutverk" í
þessum leik. Til hvers er lands-
liðsnefndin að velja mann í lands-
lið, ef hann er svo látinn sitja
á bekknum allan tímann?
Dómarar leiksins voru Danim-
ir H. Svenson oig G. Kndusen. Þeir
byrjuðu leikinn illa ,og fengu fyr-
ir það rnikið „pú“ frá áhorfend-
um, sem voru í fæsta lagi ó lands-
leik í handknattleik, en er á leið
náðu þeir betri tökum á leiknum
og gerðu vel, sérstaklega á loka-
mínútunum, en þá var leikið mjög
fast.
Mörkin í leiknum skoruðu: Sig-
urbergur Sigsteinsson, 3, Gísli
Blöndal, 2, Axel Axelsson, 2, Við-
Framhald á bls. 14.
I fyrsta skipti í mörg ár var Geir Hallsteinsson áhorfandi að lands- I
leik í Laugardalshöllinni, og í þetta sinn fékk hann að sjá félaga )
sína gera jafntefli við Tékka 12:12. í dag verður hann ekki áhgrf. 1
andi, því hann á þá að leika. !
ú v i
Viðar Símonarson reynir markskot í leiknuni gegn Tékkóslóvakiu í gærkvöldi. Honum tókst ekki að skjóta í
þetta sinn, því haldið var i ermina á peysu hans — og ekkert var dæmt á brotið. (Tímamynd Gunnarl