Tíminn - 08.01.1972, Síða 16
I
í öllum ofangreindum kaup-
stefnum hafa íslenzk fyrirtæki tek
ið þátt í áður. Nú þegar hafa ýms
fyrirtæki að mcika eða minna leyti
rætt við Útflutningsmiðstöðina um
sýningaráform sín á árinu 1972.
Mjög mikilvægt er að aðrir
væntanlegir þátttakendur setji sig
í samband við skrifstofu Útflutn
ingsmiðstöðvar iðnaðarins sem
fyrst.
Lsrgardagur 8. januar 1972.
JÖLIN
KVÖDD
A þrettándakvöld, fimimtu-
dag, kvöddu vesturbæinigar jól'
in með mikilli brennu við Sörla
skjól. Hundruð manna voru'
samankomin við bálið og að
sögn kunnugra fleira fólk en
við nokkra brennu í bonginni á
gamlárskvöld. Slökkviliðið var
nærstatt, en þrettándabrennan
í Skjólunum var sú eina, sem
leyfð var í borginni. Þó rnunu
unglingar hafa laumazt til að
kveikja bál víðar að kvöldi þrett
ándans, og ekki virðast hafa
hlotizt nein slys af. (T.m. GE).
Bíll margvalt og endastakkst
' en tveir piltar sem í honum
w K/n. nraoa voru sluppu alveg ómeiddir
'WoBcsvagenbíH, sem ekið var á
ofsahraða, vait margar veltur og
endhatakkst út atf Kringlumýrar-
brautinni sl. nótt, en tvo pilta
sem í bflnum voru salcaði ekki.
Hpphaf þessa ævintýrs var það,
að 17 ára gamall piltnr, ökurétt-
indalaus og drukkmn, brauzt inn
hjá bflaleigunni Fal og tók Wolks-
vagenbíl þar traustataki. Til að
sitja ekki einn að ánægjunni sötti
hanm tvo kunrringja sína, sern
einnig voru undir áhrifum 'áfeng-
is. Fyrst í stað leyfði bílþjöfnr-
inn öðrum kunnimgja sínum að
aka bflnum, en sá var ekki meö
nema stutta stund og yfrrgaf þá
bílinn og þar með kunningja sína,
sem héldu ökufeæðinni áfram og
sem héldu ökuferðinni áfiram, og
tók sá sem stal bílnum aftur við
*var er 15 ára að aldri.
Ákváðu þeir að aka til Kefla-
víkur og héldu suður Kringlu-
mýrarbraut. Þegar hallaði niður
í Fossvoginn var bflnum ekið á
,120 km. hraða. Á móts við Sléttu-
veg fór bíllinn í loftköstum og
hentist út af veginum og langt
:út á tún. Er greinilegt eða bíll-
■ inn fór margar veltur og enda-
stakkst nokkrum sinnum og er
svo útleikinn að það eir varla
ski-úfa eðia i’ó í bflnum, sem ekki
er 'brotin eða bogin.
Ætluðu piltarnir fyrst að hlaupa
frá, en voru allvankaðir. Fólik
sem að kom hélt að vonum að
þama hefði orðið stórslys og kall
að var á sjúkrabíl, sem kom von
bráðaæ og voru drengirnir flutt-
ir á slysadeild Borgarspítalans.
En við rannsókn reyndust þeix
báðír ósárir, en voru þó í bíln-
um allar velturnar og Iágu í flak-
inu þegar að var komið. Er óskilj
anlegt hve sterkt er í strákunum
og hvemig þeir komust hjá að
stórslasast, svo að vægt sé að
orði komizt.
Ræða frumvarpið um
tekjustofna sveitarfélaga
Stjóm Sambands íslenzkra svert
arfélaga hefur ákveðið að kveðja
fulltrúaráð sambandsins saman til
fundar í Reykjayík dagana 18.
og 19. þessa mánaðar. Meginefni
fundarins vei'ður að fjalla um
frumvairp til laga um tekjustofna
sveitarfélaga, sem lagt var fram
á Aiþingi skömmu fyrir þinghlé
fyrir jól.
Þátttaka ákveðin
í átta kaupstefnum
Útflutningsmiðstöð iðnaðarins
er nú að undirbúa þátttöku í kaup
stefnum á árinu 1972. Þegar hef-
ur verið ákveðin þátttaka í eftir-
töldum kaupstefnum:
9/3—12/3 ISPO — Múnchen
Sportfatnaður úr ull og skinn-
um.
12/3—15/3 Scandinavian Fas-
hion Week — Kaupmanna-
höfn. — Tízkufatnaður úr ull
og skinnum.
12/3—21/3 Vorkaupstefnan í
Eeipzig — Leipzig. — Ýmsar
vörur, þar á meðal matvæli
19/3—23/3 Mode Woche —
Múnchen. — Tízkufatnaður úr
ull og skinnum.
19/3—23/3 Frankfurter Rauch-
waren Messa — Frankfurt —
Skinnavara.
29/4—2/5 Schandinavian Gold
and Silver-Messé — Kaup-
mannahöfn. — Gull og silfur-
munir.
10/5—14/5 Schandinavian Furni-
ture Fair — Kaupmannahöfn.
— Húsgögn.
2/9—5/9 Haustkaupstefnan,
Færeyjum — Þórshöfn. —
Ýmsar vörur .
Einnig er í athugun að taka
þátt í sýningum í Kanada og Bret-
landi (Skotlandi og Englandi).
Útflutningsmiðstöðin annast all
an sameiginlegan undirbúning fyr
iir þessar sýningar og sér um
stjórn sýningardeildanna á staðn-
um.
Keðjubréfin komin í
umferð á nýjan leik
OÓ—Reykjavík, föstudag.
Eins og menn muna voru keðju-
bréfin vinsæl hér á landi fyrir
nokkrum árum, og græddu marg-
ir stórfé á þeim en rniklu fleiri
töpuðu. Sá faraldur var kveðinn
niður, en aldrei fékkst þó úr því
skorið, hve mikið fé var í saman-
lagðri veltu keðjubréfafyrirtækj-
anna. Og veltu menn ekki síður
áfengi en peningum á þennan
hátt.
Hljótt hefur verið u,m slíka
starfsemi um skeið þar til nú,
að nýtt keðjubréfamál hefur skot-
ið upp kollinum og er í lögreglu-
rannsókn. Tiltölulega er vægt far
ið í sakirnar miðað við það, sem
stunduim var áður þegar mest
~--kk á og hundruð þús. voru í
veltunni. Rannsóknariögreglan hef
ur undir höndum eitt þessara
keðjubréfa. Er það í því formi,
að viðtakandi á að greiða 100 kr.
til fjögurra manna, og skrifa þeim
og eigi þá sá hinn sami von í
peningaupphæð og er lofað 25
þúsund kr„ slitni keðjan ekki.
Nokkur nöfn eru á bréfi því
sem lögreglan er með, og er nú
verið að leita upphafsmanns fyr-
irtækisins.
Tveir seldu
í Grimsby
ÞÓ—Reykjavík, föstuduag.
Tveir íslenzkir togarar seldu
afla sinn í gær í Grimsby, voru
það Hamranes, sem seldi 57.7
lestir fyrir í.577.000 kr. og er
meðalverðið hjá því 27.35 kr.
Hinn togarinn seld seldi í Grimsby
cr Kaldbakur, hann seldi 88.3
lestir fyrir 3 millj. 356 þús., og
var meðalverðið hjá honom lcr.
38.10.
Samkeppnin um þjóðhátíðarmerkið:
Dómnefnd taldi enga
tillögu verðlaunahæfa
EB—Reykjavík, föstudag.
Á fundi í gær varð dómnefnd
sú, er fjallað heíur um til-
lögur að þjóðhátíðarmerki og
veggskildi, sammála um að eng
in af tillögum sem bárust væri
verðlaunahæf. Ilefur dóinnefnd
in nú skilað þessu áliti sínu
til Þjóðhátíðarnefndar 1974.
Á fundi með fréttamönnum
í dag, sagði r.latthías Johann-
essen, formaður Þjóðhátíðar-
nefndar, að þetta ylli þeim
nefndarmönnum að sjálfsögðu
vonbrigðum og myndi Þjóð-
hátíðarnefnd fjaila um það á
næstunni hvað gert yrði i
þessu máli.. Aðsnur^ sagði
hann, að ef til vill yrði nú
efnt tií lokaðrar samkeppni
nokkurra listamanna, eða smiið
sér til eins listamanns, til þess
að vinna þetta verk
Ennfremur sagði Matthías,
að sér sýndist kannski vera
hægt að hugleiða það, hvort
hægt yrði að nota eina eða
tvær af tillögunum með ein-
hverju móti.
Samk\'æmt auglýsingu um
samkeppni um teikningu að
þjóðhátíðarmerki 1974 og mynd
skreylingu á veggskildi var tek-
ið fram að verkefnum skyldi
skilað í síðasta lagi 1. nóv-
cmber 1971. í keppnina bár-
ust 45 umslög með 77 tillög-
um. Voru umslögin opnuð á
fundi dómnefndar í Þórshamri
29. desember sl. og þá rarið
lauslega yfir tillögurnar.1 Síð-
an varð að ráði, til að auðvelda
dómnefndum starfið að koma
tiilögunum fyrir í lokuðum sýn
ingarsal í Norræna húsinu.
Þar fjallaði dómnefndin nán-
ar um firamkomnar tillögur á
2 fundum hinn 5. janúar sl.
Fyrri fundurinn var haldinn
kl. 13.15 og síðari kl. 17.15. Þá
kom dómnefndin aftur til fund-
ar 6. janúar kl. 18. Á öllum
þessuim fundum var fjallað um
tillögurnar og þær skoðaðar.
Á fundinum 6. janúar sam-
þykkti dómnefndin sapjhljóða
eftirfarandi bókun:
„Á fundi í Norræna húsinu
6. janúar 1972, sem hófst kl. 6
síðdegis, varð dómnefndin sam-
mála um að skila því áliti tii
Þjóðhátíðar.nefndar 1974. að
húr teldi engar af fraimkomn-
um tillögum um þjóðhátíðar-
merki og veggski’di verðlauna-
hæfar."
í dag, 7. janúar, boðaði dóm-
nefndin Þjóðhátíðarnefnd á
Framhald á bls. 14.