Tíminn - 11.01.1972, Page 3

Tíminn - 11.01.1972, Page 3
ÞRIÐJUDAGUR 11. janúar 1972 3 Vörukynn- ing í Nor- ræna húsinu SJ—Reykjavík, imánudag. Dagana 16. — 23. janúar efna Kvenfélagasamband íslands og Norræna húsið til kynningar á störfum vörukynningarnefnda á Norðurlöndum og sýningar á vöru Jymningarmiðum og vörumerkjum svo og kennslugögnum, sem nefndirnar hafa útbúið til að kynna starfsemi sína. Hingað kem ur einnig Jytte Kruse efnaverk fræðinigur, sem starfar hjá dönsku nefndinni. Flytur hún tvo fyrir- lestra á sýningunni, sem kölluð hefur verið Vörulýsing—Vörumat. Verða þeir á mánudags- og þriðju dagskvöld kl. 20.30 og miðast sá fyrri við neytendur, en sá síðari við kaupmenn og framleiðendur. Sýningin verður í Norræna hús inu, opin frá kl. 14 til 19 daglega. 377 á Grund í árslok EB—Reykjavík, þriðjudag. í árslok 1971 voru 377 vistmenn á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, sem er tveimur færri en var í ársbyrjun 1971. 285 konur voru nú í árslok á heimilinu og 92 karlar. 125 vistmenn komu á árinu, 46 vistmenn fóru og 81 vist- maður dó á árinu. Á elli- og dvalarheimilinu Ási í Hvéragerði voru nú í árslok 131 ivstmaður, 72 þeirra eru konur og karlar eru 59. í ársbyrjun 1971 voru vistmenn 106. 72 vistmenn komu á árinu, 45 fóru og 2 dóu. Alls eru því á þessum heimil- um nú 508 vistmeim. Starfsmenn toQstjóra undrandi Þrjátíu og átta starfsmenn á Tollstjóraskrifsto.' i.nni í Reykja- vík hafa sent fiármálaráðherra eft- Irfarandi: „Starfsmenn á skrifstofu toll- stóórans í Reykjavík lýsa hér með yfir undrun sinni vegna þess þekk ingarskorts og/eða skilningsleysis fjármálaráðherra á kjarasamningi ríkisstarfsmanna, sem felast í h'ii- um furðulegu ummælum ráðherr- ans á blaðamannafundi 5. þ.m., að ríkisstarfsmenn „hafi tekið for- skot á sæluna“ Ennfremur lýs- um við yfir vanþóknun okkar á þeim fráleitu vinnubrögðum, að ráSherra neiti að taka upp viðræð- ur við BSRB þrátt fyrir 14% kjara- bætur á almennum iaunamarkaði. Við styðjum einliuga kröfur BSRB um endurskoðun kjarasamn ingsins, þar sem verulegar, al- mennar kjarabætur verða á samn- ingstímabili okkar, og við hvetj- um stjórn BSRB, bandalagsfélöög- in og alla ríkisstarfsmenn til að standa vörð um réttindi og kjör rfkisstarfsmanna, og svara stríðs- yflrlýsingu og gjörræði fjármála- ráðherra me® öllum tiltækum ráð- um. Skrifstofa tollstjóra, 6. janúar 1972.“ TÍMINN Á blaðamannafundi hjá þjóðleikhússtjóra í gær. Frá vinstri: John Fernald, leikstjóri, Guðlaugur Rósin- krans og Jón Laxdal. Jón Laxdal leikur hér eftir 16 ára útivist EB—Reykjavík, mánudag. Æfingar eru nú hafnar af full um krafti á Shakcspcare-verkinu Othello og samkvæmt upplýsing um Guðlaugs Rósinkrans, þjóð- leikhússtjóra, frumsýnir Þjóðleik húsið verkið 11. febrúar n. k. Hinn þekkti leikari Jón Laxdal, ffer með aðalhlutverkið, en John Fernald, einn þekktasti leikstjóri Breta, stjórnar æfingunum, en hann hef ur sérhæft sig í því, að setja verk Shakespears á svið. Alls leika 26 manns í Olhello, þar af eru 23 karllilutverk. Jón Laxdal Halldórsson er fædd ur 1933 og fékk snemma áhuga á leiklist. Hann útskrifaðist úr Ijoik skóla Þjóðleikhússins 1954. 1956 STALU TVEIM /■ OÓ—Reykjavik, mánudag. Tveir ungir menn í Hafnarfirði stálu bíl s. 1. nótt, báðir drukknir og réttindalausir. í Reykjavíkinni tilaði bíllinn og skildu þeir hann eftir og gerðu sér lítið fyrir og stálu öðrum bíl og áttu ekki í neinum vandræðum með að kom ast inn í hann eða ræsa vélina. Þegar til Hafnarfjarðar kom greip lögreglan piltana. Voru þeir báðir dauðadrukknir. annar pilt- anna hefur oft leikið þennan leik áður að stela bílum og virðist það einhver árátta hjá honum. Happdrætti Framsóknar- flokksins Dregið var í Happdrætti Fram sóknarflokksins 23. desember s.l. en vegna þess, að enn eiga nokkr ir aðilar eftir að gera skil, eru vinn ingsnúmerin innsigluð á ski'ifstofu borgarfógeta, þar til síðar í þess um mánuði. Þeim, sem ekki hafa gert skil, eru beðnir um að gera skil, ekki síðar en 15. janúar. Tekið eor á móti greiðslum á skrifstofu Fram sóknarflokksins að Hringbraut 30 og skrifstofu Tímans, Bankastræti 7. fór Jón utan til framhaldsnáms læa'ði hann í Vínarborg og lauk þar námi 1959. Eftir að hann lauk námi, lék hann fyrst í Austur- Þýzkalandi og síðan víða í Þýzka landi. Síðustu fjögur árin hefur Jón starfað við leikhús í Ziirich. Auk þess að leika í leikhúsum, hefur Jón Laxdal leikið í kvik myndum og sjónvarpsmyndum. Á fundi með fréttamönnum í dag, kvaðst Jón Laxdal vera mjög ánægður a" fá tækifæri til að koma heiim og leika þar, en 16 ár eru nú liðin síðan hann lék hér síðast. MS—Reyðarfirði, mánudag. í gær, sunnudag, var lialdinn hér á Reyðarfiðri mjög fjölimenn ur stjónmálafundur að tilhlutan Kj ördæmisaimbainds fraimsóknar- manna á Austurlandi. Framsögu- menn á fundinuim voru Einai' Ágústsson utanríkisráðherra, Ey- steinn Jónsson forseti saméinaðs þings og Vilhjálmur Hjálmarsson alþingismaður. Á fundinum munu hafa verið á þriðja hundrað manns, og voru margir fundarmanna langt að komnir, eða af svæðinu frá Lóns heiði í suðri og til Hellisheiðar í norðri. Fundurinn var í Félags PE—Hvolsvelli. Á aðalfundi sýslunefndar Rang árvallasýslu s. 1. sumar, var sam þykkt að allsherjar kláðaböðun skyldi fara fram í héraðinu nú í vetur. Um mánaðamótin okt. — nóv. hélt sýslumaður svo fund í Félagsheimilinu Hvoli, þar sem mættir voru allir odvitar úr sýslunni, svo og baðstjórar. Á fundinum mættu einnig dýralækn arnir Sigurður Sigurðsson á Keld um, dr. Karl Kortsson á Hellu, Jón Guðbrandsson á Selfossi og Þor steinn Líndal, en hann er nýlega kominn í héraðið og hefur aðset ur í Skógum. Ilans umdæmi er frá John Fernald, er sem fyrr sagði einn þekktasti leikstjóri Breta. Hann hefur stjórnað leikskóla þeiim í London, þar sem margir af leikurum okkar hafa lært. Enn fremur hefur Fernald mikið ritað um leikhúsmál. Strax og æfingum er lokið á Othello, heldur John Fernald til Ameríku til þess að vinna þar. Á blaðamannafundinum í dag, sagði Fernald, að hann hefði komið hingað til lands á stríðsárunum og þá þegar orðið hrifinn af land inu. lundi á Reyðarfirði, og var fram söguræðum feikna vel tekið, og í umræðum á eftir kom fram mik ill einhugur meðal fundarmanna við stefnu ríkisstjórnarinnar í landhelgismálinu. Formaður kjör dæmissambandsins, Kristján Ing- ólfsson á Hallormsstað setti fund- inn en fundarstjórar voru hrepp- stjórarnir Magnús Guðmundsson á Reyðarfirði og Björn Kristjáns son á Stöðvarfirði. Það er mjög sjaldgæft að haida stjórnmálafund fyrir svona stórt svæði á þessum tíma árs, en færð in gerir það að verkum að menn geta komið langt að. Markarfljótsbrú að Lómagnúp. Sýslumaður reifaði málið á fund inum, og hvatti baðstjóra til að fara eftir settum reglum um notk un baðefna, svo að böðun mætti í alla staði fara vel fram, og yrði framkvæmd af vandvirkni og sam viskusemi, en tvíbaða þarf með tíu til tólf daga millibili. Þetta undirstrikuðu dýralæknarnir svo og oddvitarnir og baðstjórarnir. Fundurinn samþykkti að baðanir skuli fara fram nú í janúar mán uði 1972. Böðunin er framkvæmd í varúðarskyni, þar sem fjárkláða hefur orðið vart á nokkrum bæjum í austanverðri sýslunni. Rangæingar tví- baða sauðfé sitt Bátasjómenn Það er stefna ríkisstjórnar- innar að bæta kjör sjómanna. Það er höfuðnauðsyn fyrir þjóðarbúíð, og þar með alla þjóðarlieildina, að jafnan sé nægilegt framboð góðra manna á skip og báta landsmanna, sem sækja afla á mið og björg í bú. Það hafa nú líka orðið mikil umskipti á kjörum báta- sjómanna frá því í sumar. Fisk verð hefur verið hækkað um 30% og kemur sú hækkun sjó- mönnum og útgerðinni til góða. Fastakaup bátasjómanna er komið yfir 30 þúsund krón- ur á mánuði með vísitöluálagi og orlofi. Afkoma bátasjó- manna er þar með miklu örugg ari en áður. Yfirmenn á bátunum fá einn ig tilsvarandi hækkanir á sinni kauptryggingu. Stýrimaður og 1. vélstjóri sem höfðu hálfan annan aflahlut fá nú 42 þús- und krónur á mánuði í fasta- kaup. Hér er um breytingar á kiörum sjómanna að ræða, sem á að stuðla að betri mannskap og meiri afla á vetrarvertíð, og þar með bættum hag þjóðarbús ins og allra þegna landsins. Með hinum nýju kjarasamn ingum við bátasjómenn var líf- og örorkutrygging þeirra hækkuð nokkuð. Hækkun fiskverðs Hin mikla hækkun fiskverðs, sem orðið hefur síðan stjórnar- skiptin urðu í sumar eða um 30% mun einnig stuðla að verulegum kjarabótum sjó- manna. Núverandi ríklsstjórn vill líka að sjómannastarfið verði eftirsóknarvert. Kjör sjómanna hafa verið bætt meir en annarra starfsstétta og er það rétt stcfna, sem hlýtur að mæta skilningi meðal allra landsmanna, þar sem hún er forsenda þess að unnt verði að tryggja nægilegt framboð ' hæfra og duglegra sjómanna og þar með meiri verðmæti í þjóðarbúið. Það er beinlínis forsenda þess að kjör allra annarra geti batnað. Þá verður að hafa í huga í þessu sambandi, að ákveðin er nú mikil aukning á fiskiskipa- flota landsmanna. Sú fjárfest- ing þjóðarinnar kemur ekki að notum nema verulega vaxi framboð vinnuafls til starfa á fiskiskipaflotanum. Sjómenn áttu litlum skiln- ingi að mæta hjá fyrrverandi ríkisstjórn og skerti hún til dæmis samningsbundinn hlut þeirra um 17% árið 1968 og það var eitt af fyrstu gerðum núverandi rikisstjórnar að skila ránsprósentunum aftur. — TK. Magnús E. Baldvlnsson ______laugavcgl 12 - Slml 22804 VERÐLAUNAPENINCAR VERÐLAUNACRIPIR FÉLACSMERKI

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.