Tíminn - 12.01.1972, Síða 2
TIMINN
MIÐVIKUDAGUR 12. janúar 1972
Ekki gagnrýni
Eftirfarandi barst Tímanum í
dag með ofanigreindri fyrirsögn
frá Fiskifélagi íslands, undirritað
af Guðmundi Ingimarssyni.
„Með tilvísun til fyrirsagnar í
blaði yðar í gær, 11. jan. þar
seim segir að Fiskifélagið gagnrýni
Siglingaimálastofnuina og telji
skipaskráningu hennar villandi,
telur Fiskifélagið að í fréttatil-
kynningu, sern yður var send,
komi ekkert það firam, er rétt-
læti fyrirsögnina, heldur mun
blaðamaður sá, ser fréttina ritar,
einn bera ábyngð á henni.
Að þessu gefna tilefni, vill Fiski
félagið vekja athyigli á því hvemig
félagið safnar upplýsingum sínum
um eigendur einstafera skipa, svo
og útgerðarstaði þeirra, o>g vill í
því sambandi vísa til formála fyr
ir skipaskrá almanaksins á bls.
342, þar sem segir:
„Skipaskráin er að öllu leyti unn
in á skrifsitofu Fiskifélagsins, eft
ir þeim upplýsingum, sem félagið
hefur aflað sér, m.a. hjá trúnaðar-
mönnum Fiskifélagsins um land
LR fær hluta
af ágóða
SJ—Reykjjavík, þriðjudag.
í dag kom út á vegum Almenna
bókafélagsins bókin Leikhúsið við
Tjömina. Baldvin Tryggvason
framkvæmdastjóri AB afhenti for
ráðamönnum og heiðursfélögum
Leikfélags Reykjavíkur f>Tstu ein
tökin í dag í hófi í Iðnó og ósk-
aCi félaginu og starfsfóiki þess til
hamingju.með daginn.
Leikhúsið við Tjörnina kemur
út í 2000 eintökum og kostar tæp
ar 1200 kr. Le'.kfélagið fær 400.
000 kr. í ritlaun fyrir bókina, en
ank þess 30% af söluverði þeirra
eintaka, sem það selur á eigin veg
um.
Sveinn Einarsson hefur samið
meginmál bókarinnar ,sem er með
mörgum myndum, en hvorki hann
né Ijósmyndararnir hafa tekið
laun fyrir hlut sinn að bókinni.
Utlit bókarinnar annaðist Aug-
lýsingastofa Kristínar Þorkelsdótt-
nr. Prentun og setning fór fram í
Setberg. Félagsbókbandið batt
inn bókina.
allt, svo og einstökum útgerðar
mönnum. Auk þess að vera sjó-
mönnum, útvegsmönnum o. fl. til
gagns og fróðleiks, er þessi skipa
skrá einkum ætluð þeim aðilum
öðrum, sem þurfa á sem réttustum
upplýsingum að halda um skipa
stólinn, t. d. um útgerðarstað hinna
einstöku skipa. Eru þessar upp
lýsingar m. a. nauðsynlegar fyrir
starfsmen.n og trúnaðarmenn Fiski
félagsins og Aflatryggingajóðs um
land allt.“
Ennfremur má benda á að
þessar upplýsingar um útgerðar-
menn og -staði skipa eru einnig
mjög nauðsynlegar fyrir ýmsa
sjóði sjávarútvegsins og má þar
til nefna Stofnfjársjóð fiskiskipa,
fæðisgreiðslur til sjómanna, líf-
eyrissjóð sjómanna o. fl.
Siglingamálastofnunin aftur á
móti er bundin lögum um að
skrásetja þinglesna eigendur fiski
skipa og þar af leiðandi safnar hún
sínum upplýingum eftir öðrum
leiðuffi en Fiskifélagið.
Guðm. Ingi.marsson.“
Sporhundur
inn fór á
bryggjuna
SB—Reykjavík, þriðjudag.
Lík Þorsteins Sigurjónssonar,
Glerárgötu 3, Akureyri, fannst í
dag í sjónum við syðstu bryggjuna
á Oddeyri. Þorstcins hafði verið
lcitað í dag og nótt, en hann fór
að heiman frá sér í gærmorgun
til vinnu. Hann kom ekki í vinn
una og heldur ekki heim og var
þá lcit hafin.
Flugbjörgunarsveitin á Akur-
eyri, Hjálparsveit skáta og frosk-
menn aðstoðuðu lögregluna við
leitina. Einnig var fenginn spor-
hundur Hjálparsveitar skáta, frá
Hafnarfirði. Hundurinn fór hvað
eftir annað fram á Oddeyrar-
bryggjuna og fundu síðan frosk-
menn lík Þorsteins þar í dag.
Þorsteinn Sigur jónsson var sex-
tugur að aldri og lætur eftir sig
konu og uppkomin börn.
Að hugsa djúpt
Á blaðsíðu átta í blaðinu i dag
senda tveir mætir menn undirrit.
uðum nokkrar linur út af friðarlýs.
Ingu hafsvæða, sem orðið er eltt af
baráttumálum Rithöfundafélags ís-
lands. Menn þessir eru Sigurður A.
Magnússon, ritestjóri og Stefán
Jénsson, áður nefndur fréttamaður.
Báðir þessir menn bera friðun haf-
svæða miklð fyrir ferjósti, og er ég
þelm samsinntur í þvi efni, fyrst
fulltrúar hjá Samelnuðu þjóðunum
Ifta svo á mitt í slnni heimsforsjá,
að rétt sé að friðlýsa eitt svæði,
en ekki annað. Það breytir heldur
ekkl stuðnlngi vorum við slfkar frið-
lýslngar, þótt Indverjar og Pakist-
anlr væru f óðaönn að berjast á
Indlandshafi á sama tíma og þeir
studdu tillöguna um hafsvæðið.
Auðvitað er góð meining á bak við
ályktanir eins og þessa, en það hef-
ur sannazt á Sameinuðu þjóðunum,
að góð meining enga gerir stoð, þeg
ar framkvæmdavaldið vantar. Og úr
þvf geta hvorki Sigurður, Stefán
eða sameinaðir og fundafærir kraft
ar Rithöfundafélags ísiands bætt, og
ekki sú djúpa hugsun, sem beitt er
við vandamálin vestur f New York
og gjarnan er vltnað til að vanti í
þessum þáttum.
Á vettvangi utanríkismála á fs-
land skilyrðlslaust að vera með
friði og friðlýsingu. Það hefur hins
vegar enn ekki heyrzt að Rithöf.
undafélag íslands hafi tekið utanrik
ismálin í sínar hendur. Þeir hafa
hins vegar margsinnis haft afpkipti
af þvf sem rithöfundum er ti' fjár-
hagslegs ábata, þótt SAM kunni að
þykja það ómerkilegt. Þeir hafa enn
ekki lýst yfir stuðníngi sínum við
hænsnarækt i Timbúktú, og heldur
ekki gefið út yfiriýsíngar um mál á
erlendum vettvangi, eins og örvlta-
dóma yfir rithöfundum öðrum
löndum. Liklega verða öll slfk þján-
ingarmál erlendra skáldbræðra af-
greidd með þeirri kröfu féiagsins á
hendur Sameinuðu þjóðunum, að
þær friðlýsi nú þegar Rússland allt
og hjálendur þeirra í Austur-
Evrópu. — Svarthöfði.
Þessar ungu konur kenna á námskeiðunum. Talið f. v.: Ragna Róbertsdóttir, Sigríður Jóhannsdóttir og
Hildur Hákonardóttir. (Tímamynd Gannar).
Námskeið í vefnaði á vegum M/ndlistar- og Handíðaskólans:
Ein vefur frakka á eiginmannmn
EB—Reykjavík, þriðjudag.
Á efstu hæð í Stórholti 1 við
hliðina á Myndlistar- og Hand-
íðaskólanum, hafa í vetur farið
fram námskeið í vefnaði og öðru
í sambandi við hann. Hafa um
40 konur alls tekið þátt í þess
um námskeiðum, sem fara fram
á kvöldin og dunda við ýmislegt
á þeim, m. a. var okkur sagt, þeg
ar við litum þarna upp í dag, að
ein af konunum væri nú að vefa
frakka á eiginmann sinn.
Þrjáæ ungar konur sjá um
þessi námskeið, þær Ragna Róberts
dóttir, sem kennir tauþrykk, Sig-
ríður Jóhannsdóttir, sem kennir al-
mennan vefnað og Hildur Hákon
ardóttir, en hún kennir • mynd
vefnað.
Slasaðist illa
OÓ—Reykjavík, þriðjudag.
Maðurinn sem varð fyrir bil á
Skúlagötu i gærkvöldi liggur mik
ið slasaður og þungt haldinn á
Borgarspítalanum. Hann er 72
ára gamall. Maðurinn var á reið
hjóli er hann varð fyrir bíl á
móts við byggingar SS við Skúla
götu.
Maðurinn er höfuðkúpubrotinn,
fótbrotinn og rifbeinsbrotinn.
SQFNUÐUR
STOFNAÐUR 1
BREIÐHOLTI
Á síðustu fjárlögum var fjár
veiting til prestsembættis í Breið-
holti, en í Breiðholti 1 voru um
síðustu áramót milli 5 og 6 þús-
und íbúar. Þar sem bráðlega er
væntanlegur nýr prestur í Þann
stóra verkahring, sem þar biður,
er aðkallandi að stofna nú þegar
Breiðholtssöfnuð, sem þegar trá
síðustu áramótum fái sóknartekj-
ur af því fjölmenni, sem á þessu
svæði býr, og prestskosning geti
farið fram í prestakallinu eins
fljótt og auðið er.
Þess vegna boða ég til stofn-
fundar Breiðholtssafnaðar n.k.
föstud. 14. jan. kl. 8,30 síðd. í
Breiðholtsskóla. Verður þar geng
ið frá stofnun hins nýja saínaðav
og kosin safn ið-'niefnd, og saf. að-
arfulltrúi. Bið ég sem flesta
þeirra, sem ahuga hafa á þessu
þýðingarmikla nauðsynjamáli
hins nýja og stóra byggðahverfis,
j að sækja fundinn.
Dómprofasturinn
í Reykjavíkurprófastsdæmi,
1 Jón Auðuns.
Að söign kennaranna byrjuðu
þessi námskeið 1. október s. 1. og
standa til 20. janúar n. k. — Þá
byrja síðari námkeiðin og standa
þau til aprílloka. Markmiðið með
þessum námskeiðum er að gefa
sem flestum kost á alhliða mennt
un í þesum efnum og er hungmynd
in að bæta við námskeiðum þarna
m.a. kanna teikningu.
Á þessum námskeiðum mun
vera hægt að afla sér undirbún
ingsmenntunar svo og sérmennt
unar, enda hafa nokkrir kennar
ar tekið þátt í námskeiðunum, að
sögn þeirra þremenninga. Þátt-
tökugjald mun vera 4—5 þús. kr.
fyrir hvert námskeið, og er efnis
kostnaður þá ekki talinn með.
Konur hafa eingöngu tekið þátt
í þessum námskeiðum, en Hildur
Hákonardóttir sagði ,að hún vildi
gjarnan að karlmenn tækju einn-
ig þátt í þeim.
Þessi námskeið eru í sambandi
við starfsemi Myndlistar- og hand
íðaskólans.
■ r
OÓ-Reykjavík. þriðjudag.
Sjónvarpsáhorfendur fá nú að
hvíla sig á sómapiltinum og lækn
inum Kildare, að minnsta kosti
um sinn. Föstudaginn 18. janúar
hefst flutningur á nýjum fram-
haldsþætti, sem hlotið hefur fá-
dæma vinsældir erlendig þar sem
hann hefur verið sýndur. Þættin-
um hefur ekki enn verið gefið
íslenzkt nafn, en hann er fram-
leiddur í Bretlandi og nefnist þar
A Family at War, eða flausturs-
lega þýtt „Stríðsfjölskyldan“.
Þáttur þessi er nýr af nálinni
og var fyrst sýndur á s.l. ári.
Vakti hann mikla hrifningu í Bret
landi og síðan í hverju landinu
eftir öðru, m.a. á Norðurlöndum.
Þótt stríð sé nefnt í titlinum.
éru þetta ekki neinar stríðsmynd
ir, sagði Jón Þórarinsson, dag-
skrárstjóri lista- og skemmtideild
ar.
Segja má að þátturinn fjalli öllu
heldur um fjölskyldu í skugga
stríðsins. Sagan gerist í Bretlandi
á heimsstyrjaldarárunum síðari,
byrjar reyndar á dögum Spánar-
stríðsins. Um efni er að sjálf-
sögðu erfitt að fjölyrða, en það
er um roskin hjón, þeirra börn,
tengdabörn og viðhöld og allt
mögulegt. Annars er erfitt að
skilgreina' efnið, en segja má að
það sé fjölskyldudrama. Það sem
kannski gerir þessa þætti svo
vinsæla sem raun ber vitni er, að
flestir geta þekkt sjálfan sig í
cinhverjum persónum eða sett sig
í spor þeirra, eða þekkja alla
vega af afspurn.
Gerðar hafa verið þrjár seríur,
samt. 52 þættir. — Til að byrja
með, sagði Jón, — höfum við ekki
fengið nema 13 fyrstu þættina,
sem er fyrsta serían. Hvað sem
verður hér, hafa sumar stöðvar
gert hlé á áframhaldi útsendingu
þessa þáttar og byrjað aftur síðar.
Dæmi um vinsældir þessara
þátta er, að samkvæmt nýgerðri
skoðanakönnun í Bretlandi er
„Stríðsfjölskyldan" þar í efsta
sæti.
Ein af fjölmörgum söguhetjum nýja framlialdsþáttarins, sem hefst í
Siónvarpinu 18. jan., Colin Campell, sem David Ashton.