Tíminn - 12.01.1972, Side 16

Tíminn - 12.01.1972, Side 16
f Smyglaði dekkjum af Vellinum OÓ—Reykjavík, þriðjudag. Allir kannast við söguna af manninum sem vann á Vellinum en bjó utan hans og gekk með hjólbörur fullar af sandi út uim Vallarhliðið á hverju kvöldi að lokinni vinnu. Hliðverðir létu karl hella sandinum úr börunum kvöld eftir kvöld og leituðu að ólöglegum varningi í sandhrúg- unni en fundu aldrei neinn slík an og náunginn hélt áfraim með hjólbörurnar. Löngu eftir að mað urinn var hættur að vinna á Vell lmim hitti einn af hliðvörðum hnan og bað karl að segja sér hverju hann hafi verið að smygla í hjólbörunum á sínum tíma, því enginn vafi lék á að hann var að smygla einhverju. Auðvitað hjól börum, svaraði smyglarinn. Kannski er sa-ga þessi ekki al- veg sönn, en hún á sér hliðstæðu og nú situr náungi Lnni, sem lék svipaðan leik. Er það íslendingur sem hefur unnið alllengi hjá vamarliðinu. Hann var handtek inn fyrir nokkrum dögum ákærð ur fyrir að hafa stolið 15 dekkjum frá vinnuveitendum sínum og játaði maðurinn sekt sína. Dekkjunum var hann búinn að smygla út af Keflavíkurflugvelli og selja. Aðferðin sem hann not aði við að koma varningnum út um hliðið var einfaldlega sú að setja stolnu dekkin undir bíl sinn og aka þeim út, en kom aftur til vinnu með gömul og slitin dekk undir bílnum. Á efri myndinni er túrbínan ásamt fylgihlutum á hafnarbakkanum í Reykjavík, en á þcirri ncðri álctrun á sendingunni. (Tímamynd G-E.) Fyrstu loðnutorfurnar fundust út af Langanesi Norðmenn eru byrjaðir loðnuveiðarnar ÞÓ—Reykjavík, þriðjudag. Rannsóknaskipið Árni Friðriks- son lagði af stað til loðnuleitar nú um helgina, og hefur orðið var við loðnulóðningar 50—60 sjómíl- ur NNA frá Langanesi. Að sögn Jakobs Jakobssonar, leiðangursstjóra á Árna Friðriks- syni, er loðnan, sem fundizt hefur kynþroska og á hún eftir að ganga suður með landinu. Torfurnar, sem þeir á Árna hafa orðið varir við eru frekí.r strjálar og halda þær sig á 30 faðma dýpi á nótt- unni, en á daginn heidur loðnan sig á 100 faðma dýpi og eru torf- urnar 10—15 faðma þykkar. I fyrra fannst loðnan ekki fyr- en 14. jan. og er hún því nokkuð fyrr á ferðinni nú. Veiðarnar í fyrra hófust 20. februar. Fréttir hafa borizt um loðnugöngu allmikiu sunnar en Árni Friðriksson leitar nú, en ætlunin er að athuga þá loðnu og sjá hvort það er kyn- þroska loðna, sem um er að ræða. í þessari ferð mun .->-rni Friðnks- son leita suður fyrir Papey. >á hafa borizt fréttir frá Nor- egi um, að Norðmenn hafi hafið uaSauveilðar. Fengu fyrstu norsku bátarnir loðnu á laugaxdagskvöld, og á sunnudag fengu 15 norskir bátar 1900—9500 hektólítra. Á síð astliðnu ári veiddu Norðmenn yfir 13 milljónir hektólítra af loðnu, OÓ—Reykjavík, þriðjudag. Sl. nótt kl. 1,55 var hringt í öryggisdeild Varnarliðsins á Kefla víkurflugvelli og maður sagði frá því að sprengja væri í einum af herskálunum. Sá sem svaraði í símann vildi vita meira og spurði í hvaða skála sprengjan væri og hvenær hún spryngi, en röddin í símanum bara cndurtók, að sprengja væri í einum af skál um' hermannanna. Tilkynningin kom gegnum Vall arsímakerfi Varnarliðsins. Einnig heyrðist í símanum í barni sem en norskir fiskifræðingar eru ekki eins bjartsýnir á veiðina nú, og segja að loðnugangan sé mun minni en í fyrra. grét. Álitið var að um gabb væri að ræða en samt voru gerðar nauðsynlegar varúðanráðstafanir í þeim herskálum sem til greina komu. Voru menn vaktir upp og þeim sagt að fara út og halda sig á sérstöku svæði mcðan rann- sókn færi fram. Sérfræðingar gerðu síðan leit að sprengju í skálunum en fundu enga, og fengu hermennirnir að fara að sofa aftur að tveim tímum lÍðlT’ Svipuð atvik hafa komið fyrir áður á Keflavíkurflugvelli að Framhald ó bls. 14. Tilkynnt um sprengju á Keflavíkurflugvelli Sáttanefndin í Lax- árdeilunni aö störfum Túrbínan í virkjunina á hafnar- bakkanum í Reykjavík KJ—Reykjavík, þriðjudag. Hin nýskipaða sáttanefnd í Lax árdeilunni hefur haldið sína fyrstu fundi með deiluaðilum, og voru þcir huldnir á Akureyri og í Ár- nesi. Svo sem skýrt hefur verið frá, eru þeir Egill Sigurgeirsson hrl. og Ólafur Björnsson prófess or í nefndinni. Egill Sigungeirs- son sagði Tímanum í dag, að strax upp úr nýárinu hefðu þeir haldið norður í land og átt við- ræður við deiluaðila. Ræddu þeir við stjórn Laxárvirkjunar á Ak- ureyri og við stjórn Landeigenda félagsins í Árnesi. Sagði Egill að þetta hefðu verið mjög ítarlegar viðræður, þair sem deiluaðilar hefðu skýi’t málin. — Við höfum hug á því að fara fljótléga norður aftur, til við- ræðna við deiluaðila og leggjum kapp á að ná sáttum í þessari langvinnu og umfangsmiklu deilu, sagði Egill Sigurgeirsson. í framhaldi af þessu má geta. þess, að framkvæmdum við virkj unina við Laxá heldur áfram, og etru nú farnir að koma til lands ins hlutar í vélasamstæðu virkjun arinnar. Á hafnarbakkanum í Reykjavík er nú túrbínan og fylgi hlutar með henni, en túrbínan, sem mikið hefur verið talað um í þessu sambandi, er smíðuð í VeStur-Þýzkalandi. Þegar pöntun in á vélahlutunum var gerð, hét virkjunin Gljúfurversvirkjun, og þannig eru vélahlutarnir merktir. Nú heitir virjunin sem unnið er að Laxá III, en vélahlutarnir eru þeir sömu. Allt við það saraa um opnunartíraa sölubúða ÞÓ—Reykjavík, þriðjudag. „Þetta er stærra mál en fyrst var haldið, og við munum ekki rasa um ráð fram“, sagði Guð- mundur Ragnarsson, framkvæmda stjóri Kaupmannasamtakanna, er við inntum hann eftir því hvort nokkuð nýtt væri að frétta um opnunartíma verzlana, vegna styttinigar vinnuvikunnar. Guðmundur sagði, að sérsam- böndin væru með stanzlausa fundi, en almennt hefði engin ákveðin niðurstaða fengizt. Mat- vörukaupmenn héldu fund í morg un, og á þeim fundi var yfingnæf Framhald á bls. 14. 103.589 farþegar komu til /andsins á síðasta ári þar af voru 71.384 útlendingar SB-Reykjavík, þriðjudag. Farþegar, sem komu til lands- ins með skipum og flugvélum á s.l. ári, voru 103.589 talsins, þar af 71.384 útlendingar frá 96 lönd- um. Með í þessum tölum eru far- þegar 20 skemmtiferðaskipa, sem komu hingað á árinu, en þeir voru 10.665. Árið 1970 komu hingað 52.908 útlendingar frá 92 löndum, og er því um fjölgun að ræða, þótt skemmtiferðaskipunum sé sleppt, en þau voru ekki talin með árið 1970. Af þeim útlendingum, sem komu hingað árið 1971, eru Bandaríkjamenn í yfirgnæfandi meirihluta, 27.588. og eru þeir um 5200 fleiri en árið áður. Næstir í röðinni eru Bretar 5,785 talsins, en voru 5.295 árið áður. Danir voru 4.223, en þeim fækkaði úr 4.694. Noiiðmenn voru 2018 og fækkaði einnig. Svíum fjölgaði hins vegar úr 2681 í 3304. Þau lönd, sem bættust við síðan árið 1970, eru Tasmanía, Senegal, Afganistan og Togo og munar þar mest um Senegalballettinn, en í honum voru 41. Um ferðalög fslendinga á árinu er það að segja, að íslendingar sem komu til landsins nú voru 32.205, en í fyrra 26.899. 1301 útlendingur kom með skip um, en 59.418 með flugvélum, auk þeirra 10.665, sem komu með skemmtiferðaskipum, eins og áður er getið. Kosning framlengd EJ-Reykjavík, þriðjudag. Eins og kunnugt er, átti kosn- ingu stjórnar í Sjómannafélagi Reykjavíkur að ljúka í gærkvöldi. Nú hefur kosning hins vegar ver- ið framlengd, að sögn. vegna dræmrar kjörsóknar, til a.m.k. 20. janúar. Rúmlega helmingur þeirra sem á kjörskrá eru — eða um 660 félagsmenn — hafði neytt at- kvæðisréttar í gær. Áramótafagnaður FUF í Reykjavík verður haldinn í Veitingahúsinu að Lækjarteig 2 fimmtudag- inn 13. janúar næstkomandi. Nánar auglýst í blaðinu á morgun. | Stjórnin.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.