Tíminn - 14.01.1972, Síða 1

Tíminn - 14.01.1972, Síða 1
vmtmm SENDIBÍLASTÖÐIN Hf FRYSVIKISTUR * FRYSTISKÁPAR * * * ¥ * * * * ¥ * _ * ^ fl.f * $)£■ RAFTÆKJADEILD, HAFNARSTRÆTI 23, S(MI 18395 TO. «d. ■ ..ii in^i^m.wi mii ii .■■■ ■ .. 11 1 .. Skattafrumvörpin miða að réttlátari skattaálagningu Föstudagur 14. janúar 1972 — 56. árg. — sagði Halldór E. Sigurðsson, fjármálaráðherra, á f jölmennum FUF fundi í Reykjavík EB-Reykjavík,fimmtudag. Þegar Halldór E. Sigurðsson, fj'ármálaráöherra, gerði grein fyrir fjárlagaafgreiðslunni og skatta- frumvörpum ríkisstjórnarinnar, sem nú liggja fyrir AlÞingi, á fjölmennum opnum fundi, sem Félag ungra Framsóknarmanna í Reykjavík efndi til á Hótel Sögu í gærkvöldi, minntj hann á eftir- farandi atriði, seim ríkisstjórnin ákvað m.a. a® koma í framkvæmd: ★ Virða kjarasamninga, sem rík isstiórnin gerði þegar í upp- liafi valdatíma síns. ★ Hækka tryggingabætur. Það hefur ríkisstjórnin þegar gert. Lágmarkstrygging launa er orðin að raunveruleika. ★ Fella niður persónuskatta — fjárlagaafgreiðslan miðaðist við það. Ar Lækka skatta af láglaunuin Framhald á bls. 10. Myndin var tekin við upphaf fundarins í Ráðlierrahústaðnum í gærmorgun, og sitja Islendingarnir hægra megin, en Bretarnir vinstra megin á myndinni. (Tímamynd — GE) KJ—Reykjavík, fimimtudag. í morgun klukkan ellefu hóf ust tveiggja daga viðræður ís- lendinga og Breta um útfærslu fiskveiðilandhelginnar í 50 míl ur 1. sept. n. k. í nefnd hvors ríkis eru átta menn, og er þetta í annað sinn sem þessir aðilar ræða saiman sm útfærsluna. Fundurinn í imongun var mjög stuttur, eða rétt aðeins til að skiptast á upplýsingum, en síðan ræJdust nefndimar við sín í hvoru lagi, og imunu hafa gefið ríkisstjórnum sínum upplýsingar af fundinum. Framhald á bls. 10. Bergur Sigurbjörnsson Guðmundur Vigfússon LOKS SIGLDU SKIPIN Sjómenn samþykktu með 84 gegn 61 atkvæði OÓ-EJ—Reykjavík, fimmtudag. Verkfalli undirmanna á kaup- skipunum er lokið. Greidd voru at- kvæði um tillögu sáttanefndar í dag og voru atkvæði talin í kvöld. Atkvæði féllu þannig, að Vinnumálasamhand samvinnu- félaganna sagði já, og hjá skipa- félögum sem eru í Vinnuveitenda- samhandi íslands sögðn 1160 já en 955 nei. Meðal farmanna í Sjó- mannafélagi Reykjavíkur sögðu 84 já en 61 nei. Strax og ljóst varð að verkfall- inu var lokið var send út tilkynn- ing til farmanna þess efnis að mæta til skipa sinna. Skipadeild SÍS bað sína menn að mæta á miðnætti. Sagði Hjörtur Hjartar, forstjóri, að aflokinni talningu, að öll skip Sambandsins legðu úr höfn í nótt eða í fyrramálið. Far- menn hjá Eimskip voru beðnir að mæta hið fyrsta um borð. Öttar Möller, forstjóri, sagði að nokkur skipanna legðu úr höfn þegar í nótt en önnur eins fljótt og kost- ur væri á í fyrramálið og á morg un. Skip Hafskips, Jökla og Skipaút gerðar ríkisins munu ekki fara fyrr en á morgun, en í nokkur skipanna á eftir að lesta eitthvað af varningi. En alla vega er víst, að tómlegt verður um að litast í Reykjavíkurhöfn á morgun, föstu- dag, því allt kapp verður lagt á að koma skipunum út á sjó eftir langt og strangt verkfall. Nokkur spenna lá í loftinu í húsi Vinnuveitendasambandsins er atkvæðagreiðsla hófst kl. 20 í kvöld. Þar voru mættir fulltrúar sjómanna og skipafélaganna, auk sáttanefndar, sem taldi atkvæðin. Þegar Jón Sigurðsson gekk í sal- inn með atkvæðakassa Sjómanna- félagsins í fanginu, tautaði hann: —Ég vona bara, vona bara, vona Framhald á bls. 10. Skipaí í framkvæmdaráí Framkvæmdastohunarinnar KJ—Reykjavík, fimmtudag. Á fundi sínum í morgun skip aði ríkisstjómin þirjá menn I fram kvæmdaráð Framkvæmdastofnun- ar ríkasins, en stjórn stofnunarinn ar er kjörin af Alþingi. Eftirtaldir menn voru skipaðir í framkvæmdaráðið: Tómas Árnason, hæstaréttarlögmaður, Bergur Sigurbjörnsson, viðskiptafræðingur, Guðmundur Vigfússon, fyrrverandi borgarráðsmaður. Logi Einarsson, forseti Ilæstaréttar, liellir úr atkvæðakassa Sjómanna- félagsins. Að baki honum standa Emil Ágústsson, borgardómari, og Erlendur Guðmundsson, fulltrúi sjómanna við talninguna. — Tímam.-G. Landhelgisnefndirnar héldu stuttan fund í gær

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.