Tíminn - 14.01.1972, Qupperneq 1

Tíminn - 14.01.1972, Qupperneq 1
H Mujibur er margfaldur NTB—Ðacca, fimmtudag. Mujibur Rahman, sem í 'gær tók við embætti sem forsætisi-áðherra í Bangladesh, eftir að hafa afsalað sér forsetaembættinu, ætlar sjálf ur einnig að vera varnarmála- og innanríkisráðherra í nýju stjórn inni. í«á mun hann hafa æðsta vald yfir upplýsingaþjónustunni og rikisútvarpi landsins. Tajuddin, sem stairfaði sem leiðtogi stjórnarinnar meðan Mujibur sat í fangelsi, verður nú efnahagsmála- og áætlanamálaráð herra, en Abdus Samed Azab verð ur áfram utanríkisráðherra. Wallace líka NTB-Montgomery, fimmtudag. George Wallace, ríkisstjóri í Alabama, tilkynnti í dag, að hann myndi igefa kost á sér til forsetaframboðs. Wallace, sem er 52 ára, hefur staðið gegn því að úr gildi væru felld lög, sem mismuna hvítum og svörtum. Hansa bauð sig fram við forseta kosmngamar 1968 utan flokka, en nú hyggst hann verða forsetaefni demókrata. dttazt er um líf kon- ungsins NTB—Kaupmannahöfn, fimmtudag; Friðrik Danakonungur var enn meðvitundarlaus í kvöld og var líf hans talið í alvarlegri hættu. í tilkynningu, sem send var frá sjúkrahúsinu kl. 17,30 var sagt, að engin sérstök breytinig hefði orðið í dag. Meðlimir konunigsfjölskyldunn ar hafa allir komið til sjúkrahúss ins í dag, en yfirleitt staðið stutt við. Margrét prinsessa og Hinrik pirins hafa aflýst fyrirhugaðri heimsókn sinni til Thailands, Ástralíu og Indónesíu í næsta mánuði, en ekki hefur verið end anlega ákveðið með heimsókn þeirra til Sovétríkjanna í mai Margrét hefur gegnt störfúm þjóðhöfðingja meðan faðir henn ar hefur verið veikur. Danadrottning kemur til sjúkra- hússins. Stjómarbylting í Ghana í gærmorgun NTB—Lagos, fimmtudag. Liðsforinigjar hersins og hópur stjórnmálamanna tóku snemma í morgun öll völd í Ghana, settu Busia, forsætis ráðherra af, felldu úr gildi stjómarskrána, leystu upp þing ið og tilkynntu síðan þjóðinni í útvarpi, að allt væri í lagi, og fólk skyldi vera rólegt. Allt gekk þetta friðsamlega, að því er bezt er vitað, en upplýsingar hafa verið af skomum skammti í daig. Flugvöllurinn í Accra er lok aður, allt símasaimband rofið við umheiminn. Þær fréttir, sem berast, eru frá Lagos í Níger íu og segir m. a. að valdatök unni hafi verið stjórnað af Achampong, liðsfoiringja, sem sé afskaplega rólegur maður, gáfaður og trúaður með af- brigðum. Forsætisráðherrann, dr. Kofi Busia er í London, þar sem hann leitar sér lækninga, en hann hefur frestað heimför sinni um sinn. Solsjenitsyn er að skrifa „Október 1916“ NTB—Moskva, fimmtudag. Alexander Solsjenitsyn mót mælti í dag harðlega þeim ásökunum, sem nýlega birtust í sovézku tímariti, þar sem sagt er m. a. að síðasta skáld saga hans, „Ágúst 1914“ sé dulbúin tilraun til að sverta Sovétríkin. — Ég hef lengst af talað hreint út um hlutina og ekki gripið til neinna ævintýra, sagði Nóbelsskáldið í tilkynn ingu, sem opinberuð var í dag. Sagan „Ágúst 1914“ var gef in út á rússnesku í París í fyrra og mun væntanlega verða gefin út í fjölda landa í ár. Bókin skýrir frá Tannenberg- orustunni í fyrri heimsstyrjöld inni, þegar Rússar biðu mikinn ósigur fyrir Þ.ióðverjum. Það leiddi síðan ásamt fleira til rússnesku byltingarinnar. Loks tilkynnti Solsjenitsyn, að hann ynni nú að öðru bindi þrenndar um fyrri heimsstyrj- öldina og ætti sú bók að heita „október 1916“. Nixon tilkynnir fækkun í herliðinu í Vietnam NTB—Washington, fimmtudag. Nixon Bandaríkjaforseti til- kynnti í eigin persónu í dag, að hann hefði gefið fyrirskipanir um að fækkað skuli í herliði Banda ríkjamanna í Víetnam um 70.000 manns fyrir 1. maí. Þýðir það, að þá verða aðeins eftir 69,000 Banda ríkjahermenn þar. Þegar Nixon tók við forsetaemb ætti voru 549.000 bandarískir her menn í S-Víetnam. Nixon sagði einnig í dag, að fyrir 1. maí myndi hann tilkynna um frekari fækk un og þegar kosningamar færu fram í nóvember yrðu aðeins milli 25.000 og 35.000 henmenn í Víetnam. Nauðsynlegt yrði að halda þeirrj töiu eithvað áfram, því ekki væri hægt að kalla all- an herinn heim, fyrr en aHir bandarískir stríðsfangar í N- Víetnam væru frjálsir. 80 blaðamenn fara með Nixon — skrif þeirra ekki ritskoðuð frjálsir ferða sinna í Peking og I skoða verksmiðjur og saonyrkjiu að þeiir fengju tækifæri til að I bú. Fakistan slítur sam- bandi við mörg iönd — öll, sem viðurkenna Bangladesh NTB—Washington, fimmtudag. Kínverskir leiðtogar hafa gefið 80 bandarískum blaðamönnum leyfi til að fylgjast með Nixon í heimsókn hans til Peking í næsta mánuði. Einnig hafa Kín- verjar sagt, að ekki verði gerð nein tilraun til að ritskoða það efni, sem blaðamennirnir senda heim. Ronald Ziegler, blaðafulltrúi Nixons, tilkynnti þetta í dag og kvaðst hann mjög ánægður með þennan árangur, þar sem Kín- verjar hefðu komið lengra til móts við óskir bandarískra fjöl miðla en menn hefðu þorað að vona. Flestir bandarísku blaðamcnn- irnir munu koma til Peking dag inn áður en Nixon kemur þangað. Þeir 80 blaðamenn, sem fengu leyfin, voru valdir úr hópi 2000 umsækjenda. Venjulega er fjöldi blaðamanna með forsetanum á ferðum hans um 240 manns. Ziegler sagði að blaðamennirn ir myndu fá að vera fullkomlega NTB—London, fimmtudag. Pakistan tilkynntj í gærkvöldi, að landið myndi slíta tenigslum sínum við þau lönd, sem viður kenndu Bangladesh. Um leið var tilkynnt, að slitið myndi stjórn málasambandi við Búlgaríu, en hún er ein hinna sex landa, sem þegar hafa viðurkennt hið nýja ríki. Talsmaður Bhuttos forseta sagði einnig, að Pakistan myndi beita öllum tiltækum ráðum til að koma í veg fyrir að fleiri lönd viðurkenndu Bangladesh. Talsmenn Bangladesh hafa sagt, að það sé næstum áreiðanlegt, að landið verði viðurkennt af Sovét ríkjunum, ef til viH einmg Bret landi oig Frakklandi í náinni fram tíð. Sérfræðingar í Moskvu vilja meina, að aðeins sé tun.fáa daga að ræða, þar til sovézka viður- kenningin verði tilkynnt og í Washington hefur Hubert Hump hrey, öldungadeildarþingmaður, sem býður sig fram til forseta- kjörs, ákveðið að gerast talsmað ur bandarískrar viðurkenningar á Bangladesh.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.