Tíminn - 15.01.1972, Qupperneq 1
SBNDIBÍLASTÖÐIN Hf
n. fbi.
— Laugardagur 15. janúar 1972 —
" , FRYSTIKISTUR *
>i/ g FRYSTISKÁPAR *
RAFTÆKJADEILD, HAFNARSTRÆTI 23, SlMI 16395
*
*
*
*■
* i
1
*
56. árg.
NTB—Kaupmannahöfn, föstudag.
FriSrik konungur Danmerkur lézt í kvöld á borgar-
sjúkrahúsinu í Kaupmannahöfn, 72 ára að aldri. Margrét,
dóttir hans, sem gegnt hefur störfum konungs undan-
farna daga, verður á morgun lýst drottning og mun
taka sér drottningarnafnið Margrét II.
Friðrik Danakonungur veikt- með samúð og hryggð.
ist á nýársdag, og versnaði Konungurinr. andaðist kl.
stöðugt þegar líða tók á þessa 18.50 að íslenzkum tíma. Hann
viku. Heislu hans hrakaði var meðvitundarlaus frá því á
einkum síðustu dagana, og hin miðnætti síðastliðnu.
opinbera tilkynning um andlát Þegar Friðrik andaðist var
hans kom því ekki á óvart í Ingiríður drottning og Sten
Danmörku, þar sem öll þjóðin Madsen, yfirlækr.ir og náinn
hefur fylgzt með baráttu hans vinur konungshjónann^, við-
við dauðann undanfarna daga Framhald á bls. li
Friðrik IX. - Sjá bls. 7
FRIDRIK
ER LÁTINN
Landhelgisviðræð-
um lokið að sinni
Ekkert gefið upp um niðurstöður viðræðnanna
KJ—Reykjavík, föstudag.
Landhelgisviðræðunum milli íslend-
inga og Breta lauk síðdegis 1 dag, en þær
hófust í gær. Á þessu stigi málsins hefur
ekkert verið gefið upp opinberlega um
niðurstöður viðræðnanna — né hvort
þeim verður haldið áfram. Munu viðræðu-
pefndirnar leggja niðurstöður viðræðn-
anna fyrir ríkisstjórnir sínar. Eftir að
ríkissstjórnirnar hafa fjallað um þær, verð
ur væntanlega gefið upp hverjar niður-
stöður viðræðnanna hafa orðið.
Viðræðurnar nú voru iframhald við-
ræðnanna, sem fram fóru í London í nóv-
ember s.l.
Formaður íslenzku sendinefndarinnar
var Hans G. Andersen þjóðréttarfræðing-
ur, og þeirrar brezku H. B. C. Keeble að-
stoðarráðuneytisstjóri.
Loftleiðaþota tafðist
vegna spreng jugabbs
OÓ—Reykjavík, föstudag. i
Loftleiðaflugvél seinkaði um ■
tæpa tvo klukkutíma í New York
í gærkvöldi, vegna þess, að rétt
áður en flugvélin átti að fara í
loftið, var hringt í afgreiðslu Loft
leiða á Kennedyflugvelli og til-
kynnt a@ sprengja væri í vélinni.
Flugvélin var að leggja af stað
til Keflavíkurflugvallar og Luxem
borgar, fullfermd farþegum.
Þegar er tilkynningin barst var
fhigstjóranum gert viðvart og
ÞÓ—Reykjavík, föstudag.
I samtali, sem Guðmundur G.
Þórarinsson, forseti Skáksam-
bands íslands, átti við dr. Uwe,
forseta Alþjóðaskáksambandsins, í
dag, kom í ljós, að Spassky álítur
ísland heppilegasta keppnisstað-
inn í einvíginu um heimsmeistara-
titilinn í skák milli lians og Bobby
Fischers.
Dr. Uwe er nýkominn frá
Moskvu, þar sem hann hefur kynnt
sovézkum tilboðin, sem bárust um
að halda einvígið, og ,í Moskvu
lét Spassky það álit í ljós, að
bezt væri fyrir sig að tefla á
íslandi.
Það er ekki þar með sagt, að
einvígið fari fram á íslandi, nú
á eftir að heyra álit Fischers, en
sneri flugvélin aftur að flugstöðv
arbyggingunni og allir farþegar
voru látnir fara út. Síðan var gerð
leit f flugvélinni og í farangri,
eins og alltaf er gert þegar svona
tilkynningar koma, sem langoft
ast reynast gabb sem betur fer,
Þegar menn voru búnir að leita
af sér allan grun stigu farþegar
aftur um borð í þotuna, sem síð
an fór sína áætlunarleið.
Ekki er vitað hver þa® var sem
hringdi og tilkynnti um sprengj
una.
ekki er enn vitað, hvar hann vill
tefla. Fari svo að þeir kappar
vilja tefla á sitt hvorum staðn-
um, kemur til kasta Alþjóðaskák-
sambandsins. Þegar það hefur
lagt fram sína tillögu hafa þeir
neitunarvald hvor um sig einu
sinni, en eftir það hefur Alþjóða
skáksambandið úrskurðai-valdið.
Ekki er enn vitað hvenær ein-
vígið fer fram, en talið er að það
fari fram í júnílok, og er það frek
ar óheppilegur tími fyrir ísland,
þar sem ferðamannastraumurinn
er þá að byrja fyrir alvöru. Hefur
Skáksamband íslands farið þess
á leit við Ferðamálaráð, að það
kanni þctta mál með það fyrir
augum, áð hægt vcrði að tefla hér
Þótt ferðamannastraumurinn verði
byrjaður.
Sumir sigidu
með tóma lest
EJ—Reykjavík, föstudag.
Flest skipanna, sem voru í
Reykjavíkurhöfn vegna far-
mananverkfallsins, eru nú far
in út, ýmist til hafna úti á
landi eða til útlanda. Þau skip,
sem sigldu til erlendra
hafna, höfðu yfirleitt lítinn
farm meðferðis, en flest voru
þó með eitthvað í lestinnL
Nokkur skip héldu til hafna
úti á landi til að lesta þar fryst
an fisk til útflutr.ings.
Af skipum Eimskipafélags fs-
lands voru einungis þrjú eftir í
höfninni í morgun. Það var
Bakkafoss, Fjallfoss, sem fer frá'
Reykjavík annað kvöld til ýmissa
hafna úti á landi, og Gullfoss,
sem reyndar fór frá Reykjavík
síðdegis áleiðis til Þórshafnar í
Færeyjum og Kaupmannahafnar.
Skip Eimskipafélagsins fóru ým-
ist strax til útlanda eða þá á
hafnir innanlands, t.d. á ísafjörð
og á Rif, til að lesta þar fisk til
útflutnings.
Skip Skipadeildar SÍS fóru
eining í gærkvöldi og nótt ýmist
til innlendra hafna, eða þá til út-
landa.
Af skipum Skipaútgerðar ríkis-
ins fór Hekla strax í gær vestur
um land til ísafjarðar, en Esja
fer frá Reykjavík í hringferð á
þriðjudag og Herjólfur fer á mánu
dagskvöldið til Vestmannaeyja.
Spassky telur island heppi-
legasta keppnisstaðinn