Tíminn - 16.01.1972, Blaðsíða 10
10
TIMINN
SUNNUDAGUR 16. janúar 19«
HAGRÆÐ
Alþýðusamband íslands óskar að ráða hagráðunaut til starfa
fyrir sambandið og aðildarsamtök þess.
Umsókn skulu fylgja upplýsingar um nám og fyrri störf um-
sækjanda. Umsókn skal vera skrifleg og sendast Alþýðusam-
bandinu fyrir 1. febrúar n.k., merkt ASÍ — Hagræðingarstarf-
semi — Pósthólf 1406' Reykjavík.
FASTEÍGNAVAL
mg IH** *» oa ia nu m nn mnu }y~'—mnn fn—líTr ra hQMI IIH "e o >J| wTrf |
Skólavörðustíg 3A. II. hæö.
Símar 22911 - 19255
FASTEIGN AK AUPEN DUR
Vantl yður fasteign, pé hafiö
samband við skrifstofu vora
Fasteignir af öllum stœrðum
og gerðum, fullbúnar og í
smíðum.
FASTEIGNASELJENDUR
Vinsamlegast látiö skrá fast
I eignir yðar hjá okkur. Aherzla
lögð á góða og örugga þjón-
ustu. Leitið uppl. um verð og
skilmála. Makaskiptasamn. oft
mögulegir. önnumst hvers
konar samningsgerð fyrir yður
Jón Arason, hdl.
Málflutningur — fasteignasala.
BIFREIÐA-
VIÐGERÐIR
— Fljótt og veJ af hendi
leyst.
— Reynið tiðskiptin —
Bifreiðast’llingin,
Síðumúla 23. Sími 81330
ENSKIR
RAFGEYMAR
LONDON DATTERY
KOIÆIN AFTUR
f allar gerðir
bQa og dráttarvéla.
Lárus Ingimarsson,
heildverrlun.
Vitastíg 8 a. Sími 16205
GALLABUXUR
13 oz. no. 4 —6 kr. 220,00
— 8—10 kr. 230,00
— 12—14 kt. 240,00
Fullorðinsstærðn kT 350,00
LITLI SKÓGUR
SNORKABKAUl 22.
SlMl 25644.
SINNUM
LENGRI LÝSING
neOex
2500 klukkustunda lýslng
vlS eölilegar aðstæður
(Einu venjulegu perurnar
framleiddar fyrir svo
langan lýsingartíma)
NORSK ÚRVALS
HÖNNUN
Heildsala Smásala
Einar Faresiveit & Co Hf
Bergstaðastr. 10A Síml 16995
Skáksambandið
Framhald af bls. 1.
okkur, hvort við getum mögulega
haldið einvígið í sumar, sagði
Guðmundur — en allar niður-
stöður liafa verið neikvæðar.
Ferðamálaráð fjallaði um þetta
fyrir okkur og komst að hinu
sama. Margar tillögur hafa kom-
ið fram og við vísum engri á bug,
nema að vel athuguðu máli. Ein
er til dæmis sú, að taka á leigu
nokkur skemmtiferðaskip og
leggja þeim hór í höfnina og nota
sem hótel. En slíkt mundi vera
oí mikil úhætta, sagði Guðmund-
u. G. að endingu.
IVIargrét
Framhald af bls. 1.
tregum vér hinn látna konung.
Friðrik 9. var krónprins vor ís-
lendinga frá 1912 og bar frá
æskuárum vinarhug til lands vors
o gþjóðar.
Á yngri árum kom hann oft
hingað til lands sem sjóliðsfor-
ingi á skipum danska flotans og
eignaðist þá marga persónulega
vini hér, sem honum var ljúft
að minnast. Oftar en einu sinni
kom hann hingað lil lands sem
krónprins, við hlið föður síns,
Kristjáns konungs X. í opinberar
heimsóknir, Margir íslendingar
geyma enn í minni sér myndina
af hinum glæsilega unga manni
og heillandi persónuleika hans.
Þó er oss ríkast í huga, er hann
kom hingað ásamt Ingiríði drottn
ingu 1 opinbera heimsókn sem kon-
ungur Danmerkur árið 1956. Það
var sögulegur atburður, sem ekki
fyrnist, er þessir tignu gestir
sóttu land vort heim sem sjálf-
stætt lýðveldi. Framkoma dönsku
konungshjónanna við oss ísjend-
inga var oss styrkur og uppörv-
un, sem vér munum ekki gleyma.
Þá er mér og mjög ljúft að
minnast þess nú, hvílíkar viðtökur
þau veittu okkur hjónunum, er
við sóttum þau heim sem gestir
þeirra sumarið 1970. Þar fóru
saman ljúfmennska í okkar garð
og mikil virðing sýnd íslenzku
þjóðinni. Dönsku konungslijónin
höfðu þekkzt boð okkar um að
koma í opinbera heimsókn hing-
að til lands á vori komanda og
látið í ljós að þau hlökkuð til
þeirrar fei-ðar. En af því átti ekki
að verða. í stað þess að búast til
þeirrar fagnaðarhátíðar, er nú svo
komið að vér syrgjum þann góða
gest, sem vér hefðum viljað fagna.
Hugur vor leitar með einlægri
hluttekningu til ástvina konungs
hennaæ hátignar Ingiríðar drottn-
inigar, hennar hátignar Margrét-
a rdrottningar og konungsfjöl-
skyldunnar allrar, svo og dönsku
þjóðarinnar, sem nú sér á bak
þjóðhöfðingja sínum eftir langa
og giftudrjúga forystu hans á
konungsstóli.
Vér fslendingar vottum göfug-
um vini þjóðar vorrar virðingu
og sendum samúðarkveðjur yf-
ir hafið.
Búizt við að forseti íslands
verði við jarðarförina
í dag hafði ekki verið birt nein
opinber tilkynning um hverjir
færu frá íslandi, og yrðu við-
staddir útför Friðriks níunda
Danakonungs, en samkvæmt hefð
má búast við að forseti íslands
dr. Kristján Ekljárn verði við-
staddur útför konungsins.
Frá danska sendiráðinu
Vegna andláts Hans Hátignar
Frederik IX Danakonungs liggja
frammi listar í Danska sendiráð-
inu mánudaginn 17. janúar frá kl.
14—17, fyrir þá sem vilja minnast
hins látna.
Engin hætta á
hafís í bráö
OÓ—Reykjavík, föstudag.
Hafísinn fyrir norðan land og
vestan hagar sér merkilega i vet
ur, miðað við Þa® sem hann hef-
ur gert áður, sagði Páll Berg-
þórsson, veðurfræðingur, sem um
árabil hefur fylgzt með ísnum og
kannað háttarlag hans.
— Því miður eru engar athug
anir á ísnum frá okkar hendi, scm
fyrir liggja núria, en við fáum
upplýsingar frá útlendum aðilum.
Þær upplýsingar sem við höfum
fengið eru einkar fróðlegar. Sam
kvæmt þeim upplýsingum er meg
inísinn gjörólíkur því sem hefur
veri@. Á síðasta ári var tiltölu
lega mikill ís norður af Vest-
fjörðum, aftur á móti var alveg
íslaust austar. Nú er eins og
þetta hafi snúizt við að nokkru
leyti
Norður af Vestfjörðum er
mjög stór geil í ísinn, langt norð
ur í það svæði sem meginísinn
var í fyrra. En ísinn teygir sig
meira en áður suður um Jan
Mayen. Er geysimikil tunga þar,
og er engu líkara en að megin
ísinn liggi beint frá austri til
vesturs frá Jan Mayen og austur
um. Er mikill flói inn í ísinn þar
í áttina að Scorisbysundi. í þess
um flóa er sennilega eitthvað ís-
hrafl og kaldur sjór er þar áreið
anlega, þannig að hann getur lagt
ef norðanátt verður langvarandi.
— Mér sýnist að þetta bendi
til Þess að allavega verði nokkur
dráttur á að hingað komi ís og ef
hann kémuí, "þ'á værl'þáð í sam
þandi við þessa tungu við Jan
Mayen, sem þá mundi leggja upp
Umbverfismálin
Framhald af bls. 1.
og ságði hann að aðalmál á fundi
forsætisnefndarinnar hefði verið
að ræða um mál, sem verða tek-
in fyrir á fundi Norðurlandaráðs,
sem hefst í Helsingfors 19. febrú-
ar n.k.
Jón sagði, að stærsta málið á
þingi Norðurlandaráðs yrðu mark
aðsmálin, með tilliti til inngöngu
Dana og Norðmanna í Efnahags-
bandalag Evrópu. Þá sagði Jón að
annað stærsta málið yrði uim-
hverfismálin, mengun og annað
slikt. Yrði þessi mál tekin til
umræðu á þinginu, og væntanlega
gerð einhver ályktun um sam-
eiginlegar aögerðir Norðurland-
anna í umhverfismálunum. Menn-
ingarmálin verða líka ofarlcga á
dagskrá, með tilliti til menning-
arsáttmálans sem löndin hafa gert
með sér, og Menningarmiðstöðvar
Norðurlandaráðs í Kaupmanna-
höfn, sem hefur starfsemi sína á
þessn ári.
Jón Skaftason sagði að sam-
kvæmt venju yrði fjöldi annarra
mála tekin fyrir og mætti þar
nefna aukna sjónvarpssamvinnu
og að rætt yrði um tóbaksaug-
lýsingar. Af málum sem snerta
ísland sérstaklega, má nefna að
rætt verður um tillögu um sjó-
rétt, sem Magnús Kjartansson og
fleiri hafa borið fram vegna út-
víkkunar landhelginnar og einnig
yrði tekin fyrir tillaga um að auð-
veld? samgöngur milli Færeyja
—- ísi -mds og Grænlands.
Auglýsið í Tímanum
að, norð-austanverðu íslandi. Þessi
mikla ístunga staðfestir það, hvers
vegna það var svona kalt á Jan
Mayen í haust. Þessar spár mín
ar byggjast á hitastiginu þar. Þeg
ar þar er kalt er mikill ís í nánd.
Allgóðar horfur eru á því, að
minnsta kosti fyrst um sinn, að
enginn ís komi upp að íslands
ströndum. En hitt er allt annað
mál, hvað verður í vor.
Minningarathöfn
í gær fór fram í Fossvogskap-
ellu, minningarathöfn um Pétur
Siggeirsson, bónda.á Oddsstöðum
á Sléttu. Mmningarræðuna flutti
sér Gunnar Árnason, og einnig tal
aði séra Skarphéðinn Pétursson,
prófastur í Bjarnarnesi. Organleik
ari var Jón Stefánsson. Mikið fjöl
menni var við athöfnina.
Pétur Siggeirsson verður jarð-
settur á Raufarhöfn, og hefst at-
höfnin klukkan tvö í Raufarhafnar
kirkju. Prestur vérður séra Marino
Kristinsson á Sauðanesi. Flogið
verður til Raufarhafnar klukkan
níu á sunnudagsmorgun frá
Reykjavík. Minningargrein um Pét
ur Siggeir.sson birtist síðar í ís-
lendingaþáttum Timans.
Frímerki
Framhald af bls. 9.
fæðingu málarans Lucasar
Cranch. 25. pf. frímerki verð-
ur gefið út til að minnast þess.
20. ágúst eru 20 ár liðin frá
dauða Kurt Schumacher og
verður þess minnzt me@ út-
gáfu 30 pf. frímerkis 18. ágúst.
6. nóvember eru 300 ár lið-
in frá dauða tónskáldsins Hein
rich Schiitz. Minna merki að
verðgildi 30 pf. verður gefið út
29. september til að minnast
þessa atburðar.
1973 heldur Köln upp á 150
ára afmæli kjötkveðjuhátíðar-
innar þar í borg. Af þessu til-
efni verður gefið út 30 pf.
merki, sem kemur út 11. nóv-
ember, en þá hefst hátíðin.
Öll frímerki í almennu útgáf
unum til daglegra nota, sem
og líknar- og æskulýðsmerki
verða gefin út bæði með áletr-
uninni Deutsche Bundesposl
og Deutsche Bundespost Ber
lin.
Auk þessa mun svo póst-
stjórn Berlínar birta seinna úl
gáfulistann yfir önnur merki
er aðeins vcrðn gefin út þar
Siguiður H. Þorsteinsson.