Tíminn - 18.01.1972, Side 2

Tíminn - 18.01.1972, Side 2
 2 TIMINN -------—— ÞBIÐJUDAGUR 18. janúar ÍOTI Vestmannaeyingur fékk milEjón og meira Mánudaginn 17. janúar var dreg iS í 1. flokki Happdrættis Háskóla íslands. Dregnir voru 2.700 vinn- ingar að fjárhæð 19.640.00 krónur. Hæsti vinningurinn, fjórir milljón króna vinningar, komu á aúmer 11088. Þrír miðar af þessu númeri voru seldir í Vestmanna- eyjum, en sá fjórði hjá Valdimar Long í Hafnarfirði. Einn eigandi miðanna í Vestmannaeyjum, átti röð af miðum, og fær því báða aukavinningana, auk milljón kr. vinningsins. 200.000 króna vinningurinn kom á fjóra miða númer 24812, sem voru allir seldir í umboði Arn- dísar Þorvaldsdóttur, Vesturg. 10. 10.000 krónur: 415 1788 2339 4663 4931 4962 6353 6840 8506 11087 11089 11742 12956 13994 14259 14965 15799 16939 17448 17907 18099 18764 19937 20934 23601 24441 25687 27915 28835 30053 35537 36250 36957 38148 38472 39082 42925 43836 44130 44700 45083 45318 45384 46552 46591 48420 48476 51144 55435 57183 '57725 58280 59803. (Birt án ábyrgðar). Tveir stórir bátar seldir frá Dalvík HD—Dalvík, SB—Rvík, föstudag. Tveir af stærri bátum Dalvík- inga, Baldur og Bjarmi hafa nú verið seldir til Suðurlands. Smærri Fundur Bijá sveitarfélögum Fundur fulltrúaráðs Sambands íslenzkra sveitarfélaga verður sett ur í borgarstjórnarsalnum að Skúlatúni 2 í Reykjavík kl. 10 f.h. í dag, þriðjudaginn 18. janúar. Formaður sambandsins Páll Lín dal, setur fundinn. Hannibal Valdi marsson, félagsmálaráðherra og Geir Hallgrímsson, borgarstjóri, flytja ávörp. Aðalumræðuefni fundarins verð- ur frumvarp til laga um tekju- stofna sveitarfélaga. Hjálmar Vilhjálmsson, ráðu- neytisstjóri, mun gera grein fyrir efni fruimvarpsins og svara fyrir- spurnum. f fulltrúaráði sambandsins eiga sæti 30 fulltrúar sveitarfélaga víðsvegar nð af landinu. Gert er ráð fyrir ,að fundinum ljúki síðdegis á miðvikudag. Stóratáin Friðlýsingarmál eru á döfinni í Þjóðviljanum síðastliðinn sunnudag með þeim hætti, að undirritaðan fer að gruna að hann þurfi að fara að óska friðlýsingar sjálfum sér til handa, enda er nú dróttað að honum ýmsum vanmetum, svo sem eins og andstöðu við útfærslu landhelginnar og vetnissprengju. Var þó aðeins verið að furðast yfir afstöðu rithöf- unda til máls er varðar höfin, á sama tíma og brýnt og fastari efni biðu afstöðulaus, Þá eru höfð orð um að tiltekinn ,,aðairithöfundur" Tímans hafi ekki gengið með spiald. Un> mótmælin segir: „Þarna voru útvegsmenn, sjómenn, verkamenn, iistmálarar, leikarar, iðn- aðarmenn, opinberir starfsmenn, tollheimtumenn og bersyndugir, bítl- ar, póstm. og rithöfundar og allir að mótmæla svínariinu. Þó ekki einn aðalrlthöfundur Tímans, sá sem Morgunblaðið endurprentar af mest- um ákafa þessa dagana, af því að hann er alveg bit á kollega sína, sem lýstu nýlega stuðningi við fram- komna hugmynd á Alþingi um stuðn- bátum hefur hins ve'gar fjölgað á Dalvík og í athugun eru kaup á 16 lesta báti og smíði á 50 lesta stálbáti. Lítið hefur verið róið frá áramótum og afli tregur. Aðalsteinn Loftsson, útgerðar- maður var eigandi Baldurs, en útgerðarfélagið Röðull átti Bjarma, sem var afhentur nýjum gigendum fyrir skömmu. Fjórir smærri bátar 8—28 lesta komu til Dalvíkur á sl. ári og af þeim þrír nýsmíðaðir. Fyrir- huguð eru kaup á 16 lesita báti og í undirbúningi er smíði á 50 lesta stálbáti, auk þess sem búið er að semja um kaup á skuttog- ara. Lítið hefur verið róið fná ára- mótum, smærri bátar hafa verið á línuveiðum, en afli hefur verið tregur og því lítil vinna í frysti- húsinu síðan fyrir jól. Togbáturinn Björgvin og Björg- úlfur fara væntanlega strax eftir helgina á togveiðar. Nokkuð mikið er byggt á Dal- vík og hefur verið sótt um lóðir á þessu ári fyrir 6—10 einbýlis- hús, sem væntanlega verður hafin bygging á í vor. ing viS framkomna tilögu Ceylon- stjórnar á þingi S.Þ. um friðiýsingu Indlandshafs, og að undirbúin verði hliðstæð tiílaga um friðlýsingu til- tekins svæðls á Norður-Atlantshafi. Segir rithöfundur Tímans svo: „En hvað þeir (rithöfundar) ætla að gera með friðlýst höf, á meðan þau eru ekki orðin að bleki, velt ekki nokkur maður." Vlð óritlærðir freistumst tii að álykta að svona háleitum spek- ingum komi heldur ekki 50 mílna landhelgi neitt við, fyrr en hafið yfir landgrunninu er orðið að bleki, — og landið ekkert við, fyrr en það er orðið að pappírsörkum, — og komi yfirieitt ekki nokkur skapaður hlut- ur við, fyrr en hann er orðinn að tæki til að koma andagift sinni á framfæri — hvort sem það er börn, kariar, kvenfóik, Tíminn, bill, hús, skip eða vetnissprengja." Hér hefur verið stigið ofan á ein- hvern. En mér er spurn. Hvern gat grun- að að stóratáin á heilum stjórnmála- samtökum fyrirfyndist í Indlands- hafi? Sva rthöfðl. SJ—Reykjavík, mánudag. Valur Gíslason leikari átti sjötugsafmæli á laugardaginn. Um kvöldið lék hann hlutverk bóndans í Nýársnótt- Innl, og í leikslok fluttl Guðlaugur Rósinkranz ræðu og þakkaði honum vel unnin störf. Hvert sæti var sklpað í húsinu og var Val ákaft fagnað. Þjóðleikhússtjóri skýrði frá því, að Valur hyggðist ekki draga sig f hlé frá störfum að fullu þótt sjötugur væri orðinn, og gætu leikhúsgestir enn hlakkað til að sjá hann í nýjum hlut- verkum á sviði Þjóðleikhússins. Myndin var tekin þegar Valur var hyiltur á sviðinu. (Tímamynd G.E.) Nýr fræðslumyndaflokkur í Sjónvarpinu: Heimur hafsins Næsta miðvikudag 19. janúar hefur sjónvarpið sýningu á nýj- um fræðslumyndaflokki, sem nefnist: Heimur hafsins. Þetta er í fyrsta skipti, sem íslenzka sjónvarpið fær ítalskan mynda- flokk til sýningar, en auk ítal- anna eiga Frakkar og Þjóðverj- ar nokkurn hlut að máli. Mynd- irnar eru 13 að tölu og verða sýndar á miðvikudögum. Hver þáttur er sjálfstæður og fjallar um aímarkað svið. Af efnisþáttum má nefna haf- ið sem matarforðabúr, helztu fiskimið heirns (þar á meðal fslandsmið í 6. þætti), nýjungar í fiskiveiðitækni, dýrgripi hafs ins, svo sem perlur og kóralla, fornminjar á hafsbotni, lands- lag neðansjávar, köfun og neð- ansjávarrannsóknir, mannskæð- ar sjóskepnur og margt fleira, enda er seilzt til fanga víða um lönd og höf. ítajinn., Bruno Kailati gerði myndimar, en hann er einn af frumherjum í gerð neðan- sjávarkvikmynda. Myndirnar eru teknar í litum eins og flestar náttúru- og dýralífs- myndir nú orðið, en af skilj- anlegum ástæðum njóta litimir sín ekki þar sem hér er ekki litasjónvarp ennþá. Myndatak- an sjálf tók 2% ár og fjórir myndklipparar störfuðu síðan að verkinu í 15 mánuði sam- fleytt. Það er von sjónvarpsins, að fræðslumyndaflokkur af þessu tagi verði vel þeginn með þjóð, sem er háðari heimi hafsins en flestar aðrar þjóðir. Tilrauna eldhús EB—Reykjavík, föstudag. Samkvæmt nýútkomnum Saf- bandsfréttum, hefur verið ákveð- ið að söluaðilar landbúnaðarins sameinist um stofnun og rekstur tilraunaeldhúss og afurðakynning- ardeildar, þar sem m.a. verði gefn- ar út mataruppskriftir, haldnar vöru- og afurðakynningar og nýir réttir kynntir. Segir í Sambands- fréttum, að á vegum ýmissa þess- ara aðila hafi á undanförnum ár- um verið unnið nokkuð starf í þessa átt, en með tilkomu þessar- ar starfsemi sé ætlunin að efla og samræma starfsemi söluaðil- anna á þessu sviði. Ennfremur segir, að í sambandi við þessar fyrirætlanir sé hús- mæðrakennari á förum til náms hjá Jordbrukets Provkök í Sví- þjóð á vegum Búvörudeildar SÍS. Skrifstofustúlka tii New York Starf skrifstofustúlku við fastanefnd íslands í New York verður laust 1 febrúar n.k. Umsækjandi þarf að hafa gott vald á ensku og einu skandinavísku tungumáli, góða vélritunar- kunnáttu og nokkra bókhaldsþekkingu. Umsóknir, er greini aldur, menntun og fyrri störf, sendist utanríkisráðuneytinu, helzt ásamt með- mælum, fyrir 24. janúar n.k. Utanríkisráðuneytið, Reykjavík, 14. jan. 1972. Tilkynning Athygli innflytjenda skal hér með vakin á því, að samkvæmt auglýsingu viðskiptaráðuneytisins, dags. 27. des. 1971, sem birtist í .2. tbl. Lögbirt- ingablaðsins 1972, fer 1. úthlutun gjaldeyris- og/ eða innflutningsleyfa árið 1972 fyrir þeim inn- flutningskvótum, sem taldir eru í auglýsingunni, fram í febrúar 1972. Umsóknir um þá úthlutun skulu hafa borizt Landsbanka íslands og Útvegs- : banka íslands fyrir 1. febrúar n.k. Landsbanki íslands Útvegsbanki íslands f

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.